Morgunblaðið - 25.10.2000, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Stoltenberg í sambandi við rússneskan njósnaforingja á árum áður
Með dulnefni
• •
og moppu
hjá KGB
Reuters
Jens Stoltenberg ræðir við Vladímír Pútín Rússlandsforseta á ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í New York í síðasta mánuði.
JENS Stoltenberg, forsætisráð-
herra Noregs, hafði snemma á síð-
asta áratug samband við foringja í
rússnesku leyniþjónustunni, KGB.
Par var honum gefið dulnefni og
þar átti hann sína möppu með upp-
lýsingum um einkahagi hans og
stjórnmálaafskipti. Kom þetta
fram í þætti í norska ríkissjónvarp-
inu.
Stein Vale, aðstoðaryfirmaður
norsku leyniþjónustunnar, stað-
festi í gær í viðtali við Aftenposten,
að KGB hefði notað ákveðið dul-
nefni, „Steklov“, á Stoltenberg en
hann vildi hins vegar ekki upplýsa
hvernig leyniþjónustan hefði kom-
ist að því.
Fór að ráðum
leyniþjónustunnar
Vale sagði, að 1991 hefði fulltrúi
norsku leyniþjónustunnar haft
samband við Stoltenberg og skýrt
honum frá því, að leyniþjónustan
vissi, að hann væri í sambandi við
mann, Borís í. Kíríllov, sem væri
foringi í KGB en ekki menningar-
fulltrúi eins og látið væri í veðri
vaka. Var Stoltenberg beðinn að
láta KGB-manninn vita, að norska
leyniþjónustan vissi öll deili á hon-
um. Gerði hann það og þar með var
samband þeirra búið.
Vale leggur áherslu á, að Stolt-
enberg hafi farið nákvæmlega að
ráðleggingum leyniþjónustunnar.
í yfirlýsingu, sem Stoltenberg
hefur látið frá sér fara, segist hann
hafa haft samskipti við starfsmenn
í mörgum sendiráðum og þar á
meðal í sendiráðum austantjalds-
landanna. Hafi það verið venjan á
þessum árum.
Dagblaðið Verdens Gang sagði
frá því fyrir þremur árum, að
Thorbjprn Jagland, þáverandi for-
sætisráðherra, hefði á ofanverðum
áttunda áratugnum verið í sam-
bandi við KGB-menn í Noregi.
Hefðu þeir notað um hann dulnefn-
ið „Júrí“. Jagland sagði, að á þess-
um tíma hefði það verið hluti af
starfi sínu að hafa samband við er-
lend sendiráð og þar á meðal það
sovéska.
„Það var stefna Verkamanna-
flokksins á þessum árum að veita
eðlilegar upplýsingar um ástand
mála í Noregi til að Sovétstjórnin
færi ekki að telja sér trú um annað
en það, sem var satt og rétt,“ sagði
Jagland.
Norska leyniþjónustan komst að
dulnefninu, sem Rússar gáfu Jag-
land, er KGB-foringinn Míkhaíl
Bútkov baðst hælis í Bretlandi
1991. Hafði hann starfað við so-
véska sendiráðið í Ósló frá 1989
undir því yfirskini, að hann væri
fréttaritari rússnesks dagblaðs.
í Dagbladet kemur fram, að
tveir aðrir stjórnmálamenn í
Verkamannaflokknum, þeir Reiulf
Steen og Thorbjorn Berntsen, hafi
rætt við KGB-menn. Var aldrei
reynt að bera á þá fé en fyrir kom,
að þeim bárust litlar gjafir.
Gerði grein fyrir
sambandinu
Stoltenberg segist hafa gert ná-
kvæma grein fyrir sambandi sínu
við starfsmenn austur-evrópsku
sendiráðanna þegar hann var á sín-
um tíma kjörinn í varnarmálanefnd
Stórþingsins og það hefði að hans
frumkvæði verið rætt á fyrsta
fundi hans í nefndinni. Segist hann
aldrei hafa látið Kíríllov fá nein
skjöl nema ef vera skyldi einu sinni
um fund um umhverfismál, sem
halda átti á Kolaskaga.
Möppueign hjá
KGB litil tíðindi
Þetta mál hefur vakið athygli í
Noregi en þeir eru líka margir,
sem hneykslast á þessum frétta-
flutningi ríkissjónvarpsins. Segja
þeir, að á tímum kalda stríðsins
hafi af ýmsum ástæðum verið talið
ALBERTO Fujimori, forseti Perú,
hafnaði í gær kröfu andstæðinga
sinna um að hann segði tafarlaust
af sér vegna til-
lögu stjórnarinn-
ar um að yfír-
mönnum hersins
yrði veitt sakar-
uppgjöf vegna
mannréttinda-
brota sem framin
voru í baráttunni
gegn eiturlyfja-
smyglurum og
uppreisnarmönn-
um. Fujimori reyndi einnig að
kveða niður þrálátan orðróm um að
yfirmenn hersins kynnu að taka
völdin í sínar hendur og kvaðst hafa
fulla stjóm á hernum.
Fujimori hefur sætt harðri gagn-
rýni vegna tillögunnar um sakar-
uppgjöf og heimkomu Vladimiros
Montesinos, fyrrverandi yfirmanns
leyniþjónustunnar, sem sneri aftur
til Perú á mánudag eftir að beiðni
hans um hæli í Panama var hafnað.
Montesinos flúði þangað eftir að
hafa verið staðinn að því að múta
stjórnarandstöðuþingmönnum í því
skyni að tryggja flokki Fujimoris
meirihluta á þinginu.
Yfirmenn hersins
óttast saksókn
Montesinos var áður helsti
bandamaður Fujimoris og mjög
áhrifamikill í hernum. Þegar mútu-
málið var afhjúpað ákvað forsetinn
að boða til kosninga og láta af emb-
ætti í júlí á næsta ári en óttast er að
ekki verði af kosningunum, meðal
annars vegna andstöðu hersins.
nauðsynlegt að hafa nokkurt sam-
band við sendiráð kommúnistaríkj-
anna og engin ástæða til að hrópa
um það nú. Með því sé verið að ýja
að því, að þeir, sem það gerðu, hafi
brotið eitthvað af sér án þess að
nokkrar heimildir séu um það.
Morten Jentoft, sem skrifar um
erlend tíðindi fyrir norska ríkis-
sjónvarpið, sagði líka í viðtali við
Dagbladet í gær, að það að hafa átt
sér möppu hjá KGB segði nákvæm-
lega ekkert. Sjálfur hljóti hann að
hafa verið þar á skrá.
Yfirmenn hersins ætla að hætta
störfum í lok ársins og talið er að
þeir leggi nú mikið kapp á að
tryggja að þeir verði ekki sóttir til
saka eftir að þeir draga sig í hlé.
Stjómarandstaðan segir að mark-
miðið með sakaruppgjöfinni sé
einnig að vernda Montesinos, sem
hefur verið sakaður um að hafa
skipulagt viðamiklar njósnir um
stjórnmálamenn, fyrirskipað pynt-
ingar og heimilað morð.
Franciseo Tudela varaforseti
sagði af sér á mánudag vegna tillög-
unnar um sakaruppgjöfina, en talið
hafði verið að hann yrði frambjóð-
andi stjórnarinnar í næstu forseta-
kosningum. Fujimori gagnrýndi af-
sögn Tudela í gær og kvaðst ætla að
halda embættinu um sinn til að
koma í veg fyrir glundroða í land-
inu.
Heimkoma Montesinos varð til
þess að margir óttuðust að að yfir-
menn hersins kynnu að ræna völd-
unum þar sem þeir teldu sig ber-
skjaldaða vegna væntanlegra
kosninga. Fujimori sagði hins vegar
að hann hefði enn fulla stjórn á
hernum eftir að hafa rætt við yfir-
menn hans og heimsótt nokkrar
herstöðvar á mánudag.
Cesar Gaviria, leiðtogi Samtaka
Ameríkuríkja (ÓAS), kvaðst hafa
miklar áhyggjur af heimkomu
Montesinos og skoraði á stjórn
Perú að koma í veg fyrir að hann
kæmist aftur til áhrifa. Bandaríkj-
astjórn kvaðst einnig hafa áhyggjur
af komu hans til Perú.
Ekki er vitað hvar Montesinos
heldur sig og hvort Fujimori hafi
rætt við hann.
Heath í
helgan stein
EDWARD Heath, fyrrverandi
forsætisráðherra Bretlands og
leiðtogi íhaldsflokksins, til-
kynnti í gær
að hann
hygðist
hætta af-
skiptum af
stjómmál-
um eftir
næstu kosn-
ingar.
Heath, sem
er 84 ára
gamall, hef-
ur verið þingmaður Bexley-
kjördæmis, suður af Lundún-
um, samfellt frá árinu 1950.
Hann var forsætisráðherra frá
1970 til 1974 og tryggði meðal
annars inngöngu Breta í
Evrópubandalagið, eins og
ESB var þá kallað. Hann átti
lengi í bitrum deilum við Mar-
gréti Thatcher, sem tók við
leiðtogahlutverkinu í íhalds-
flokknum af honum.
Kínverjar
ræða við WTO
BOÐAÐ hefur verið til funda
kínverskra embættismanna og
fulltrúa Heimsviðskiptastofn-
unarinnar (WTO) í byrjun
næsta mánaðar, til að reyna að
leysa snurðu sem hljóp á þráð-
inn á lokasprettinum í samn-
ingaviðræðum um inngöngu
Kínverja í stofnunina. Fundirn-
ir verða haldnir 2. og 8. nóvem-
ber, en búist er við að kín-
verska sendinefndin eigi í
millitíðinni tvíhliða viðræður
við einhver af aðildarríkjum
WTO.
Carter segir
skilið við
söfnuðinn
JIMMY Carter, fyrrverandi
forseti Bandaríkjanna, sagði í
gær skilið við baptistasöfnuð
Suðurríkjanna, þar sem hann
getur ekki sætt sig við
„stranga" túlkun safnaðarins á
biblíunni varðandi hlutverk
kvenna. Carter fullyrðir að
bókstafstrúarmenn hafi tekið
völdin í söfnuðinum og segir þá
hafa tekið upp óviðunandi
stefnu, meðal annars hvað
varðar andstöðu við að konur
gegni prestsembættum og með
því að halda því fram að konur
eigi að vera undirgefnar eigin-
mönnum sínum. I bréfi sem
Carter sendi 75 þúsund með-
limum safnaðarins í gær sagði
hann þessa afstöðu safnaðar-
leiðtoganna brjóta í bága við
„grundvallarforsendur trúar
sinnar“.
60 látnir
af völdum
ebóla-far-
aldurs
EMBÆTTISMENN í Úganda
sögðu í gær að talið væri að 60
manns hefðu látist af völdum
ebóla-faraldursins, sem geisað
hefur í landinu undanfarið.
Grunur leikur á að um 165
manns hafi smitast af ebóla-
veirunni. Talsmaður Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar
sagði í gær að faraldurinn gæti
staðið yfir í allt að þrjá mánuði,
en starfsmenn stofnunarinnar í
Úganda vonast þó til að hann
gangi yfir á innan við mánuði.
Maestro
ÞITT FÉ
HVAR SEM
ÞÚ ERT
Ólga í Perú vegna tillögu um að veita
yfírmönnum hersins sakaruppgjöf
Fujimori neitar að
segja af sér strax
Lima. Reuters.
Edward
Heath