Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 25
ERLENT
Spá sex þýskra hagfræðistofnana um
efnahagsþrdun á evrusvæðinu
Hátt olíuverð og háir
vextir draga úr hagvexti
erlín. AFP.
Chirac fer til Vínar
Strassborg. Reuters.
VAXANDI olíukostnaður og háir
vextir eru farnir að draga úr hag-
vexti á Evrusvæðinu. Sex kunnar
hagfræðistofnanir í Þýskalandi
spáðu því í gær, að vegna þess yrði
hagvöxtur í aðildarríkjum Evrópska
myntbandalagsins 2,8% á næsta ári
en ekki 3,3% eins og áður hafði verið
talið.
Hagfræðingarnir taka raunar
fram, að ef til vill sé þessi spá full-
svartsýn og hugsanlegt sé, að hið
háa verð á olíunni sé aðeins stundar-
fyrirbrigði. I haustskýrslu sinni telja
þeir samt, að hagvöxtur í Þýskalandi
og öðrum Evrulöndum muni minnka
verulega, aðallega vegna vaxandi ol-
íukostnaðar en einnig vegna vaxta-
hækkana. Hafa þeir hækkað um 2,25
prósentustig síðan í nóvember og
eru farnir að hafa neikvæð áhrif á
fjárfestingar.
Stöðugleikinn miðast
við 2% verðbólgu
Heldur illa horfir líka með verð-
bólguna að dómi hagfræðinganna en
þeir telja, að hún verði 2,3% á þessu
ári og 2,1% á því næsta. Evrópski
seðlabankinn telur hins vegar, að
hún megi ekki vera meiri en 2% til að
unnt sé að tala um stöðugleika.
Einn hagfræðinganna, Holger
Fahrinkrug, sagði í gær, að í sjálfu
sér kæmi fátt á óvart í skýrslunni
nema hvað nú væri í fyrsta sinn í
hálfopinberu plaggi spáð minni hag-
vexti vegna hins háa olíuverðs. Nor-
Horfurnar samt
mjög góðar þeg-
ar fram í sækir
bert Walter, aðalhagfræðingur
Deutsehe Bank, sagði þó, að hin
neikvæðu áhrif olíuverðsins yrðu að-
eins tímabundin enda væru horfurn-
ar á Evrusvæðinu almennt mjög
góðar. Sagði hann þær í raun betri
en margir teldu.
Nýr kippur vegna
skattalækkana
Walter spáir því, að efnahagslífið í
Þýskalandi muni taka nýjan kipp á
næsta ári, knúið áfram af aukinni
einkaneyslu, áhrifum skattalækkana
og minna atvinnuleysi.
Annar hagfræðingur, Rainer Veit,
segist telja kollega sína vera of
svartsýna og hann spáir því, að hag-
vöxturinn á næsta ári verði 3% eða
meiri. Raunar telja þeir allii-, að
hugsanlega fari verðbólgan niður
fyrir 2% á næsta ári og taka undir.
með Walter í því, að áhrifa skatta-
lækkana á Evrusvæðinu verði farið
að gæta á næsta ári.
Áhrif olíuverðsins
verði ekki vanmetin
Hans Eichel, fjái-málaráðherra
Þýskalands, fagnaði í gær skýrslu
hagfræðinganna og ekki síst þeirri
spá, að atvinnuleysið myndi minnka í
takt við aukinn hagvöxt. Matthias
Wissmann, talsmaður CDU, kristi-
legra demókrata, varaði hins vegar
stjórnina við að vanmeta áhrif olíu-
verðshækkunarinnar og Rainer
Brúderle, talsmaður frjálsra demó-
krata, sagði skýrsluna sýna, að
stjórnin yrði að beita sér fyrir enn
meiri umbótum í framleiðslu- og
vinnumarkaðsmálum.
FRONSK stjórnvöld greindu frá því
í gær, að Jacques Chirac Frakk-
landsforseti myndi sem forseti ráð-
herraráðs Evrópusambandsins
(ESB) halda í heimsókn til Vínar-
borgar, í fyrsta sinn eftir að einangr-
unaraðgerðum ESB-ríkjanna fjór-
tán gegn Austurríki var aflétt.
Fjórtán ESB-ríki ákváðu í byrjun
febrúar sl., er mynduð var í Vín sam-
steypustjórn austurrískra íhalds-
manna og hins umdeilda Frelsis-
flokks Jörgs Haiders, að beita
Austurríki pólitískum refsiaðgerð-
um. Skorið var á öll tvíhliða sam-
skipti ráðamanna þessara ríkja við
austurríska kollega. Aðgerðunum
var aflétt í september eftir að sér-
skipuð nefnd hafði vottað að lýðræð-
is- og mannréttindamál í Austurríki
væru í góðu lagi.
Hefð er fyrir því að leiðtogi þess
ríkis sem gegnir foi-mennsku í ESB
hverju sinni fari í heimsóknir til höf-
uðborga allra aðildarríkjanna fyrir
hinn formlega leiðtogafund við lok
formennskumisserisins. Að þessu
sinni fer leiðtogafundurinn fram í
Nice í desember. Chirac fer væntan-
lega til Vínar 23. nóvember, en hann
var einn helzti formælandi refsiað-
gerðanna gegn Austurríki. Vanga-
veltur höfðu verið uppi um, að hann
myndi ríða hjá garði austurrísku
stjórnarinnar á ferð sinni milM höf-
uðborga sambandsins.
Sérmerktar
gjafavörur
r
Okeypis
bæklingur-
www.postlistinn.is
sími 557 1960
islenski Póstlistinn
Um helgina
Storsýning
Opnum
nýjan og betri
sýningarsal
Stðrsýning á Nýbýlaveginum,
laugardag kL 12-16 og sunnudag kl. 13-16.
ALLT AD
<gg> TOYOTA
Betri notaóir bílar
www.toyota.1s
Þar sem gæði og gott verð fara saman..
Allar vörur á lágmarksverði ..ou«etverði
Ferðatölvutaska ársins kr. 5.900,-
létt, handhæg með fjölda hólfa.
Grófur Fleece
vendijakki kr. 3.900,-
ciopce iaKkar, skyrtur,
ríiHukrigapeysur,
þykkir og\W**
í rniklu urvalt
Kuldagallar barna frá kr. 3.500,-
Vatteraður Apollo jakki
með hettu í kraga, 4 litir kr. 6.900,-
Kuldagallar, fullorðinna
verð aðeins kr. 7.500,-
Raftæki í úrvali á frábæru verði.
Jakki, vatns & vindheldur
og öndun, hetta
í kraga kr. 9.900,-
Falleg trégjafavara
á heildsöluverði í úrvali
Benzjakkinn vinsæli,
vatteraður mittisjakki
með leðurkraga. kr. 6.900,-
Frakki með leðurkraga
-með lausu fóðri. kr. 12.900,-
giSíss*-
Opiðwrkadaga 10-18
laugardag3 10-16
Nýja
markaðstorgið
Ódýr gufustraujárn
verð aðeins kr. 2.390,-
Kabín flugtaska kr. 4.900,-
í húsi Fálkans, Suðurlandsbraut 8, sími: 533 50 90