Morgunblaðið - 25.10.2000, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Alþjóðlegu bókakaupstefnunni í Frankfurt lokið
Eitt mesta átak í kynningu á ís-
lenskum bókmenntum erlendis
ALÞJÓÐLEGU bókakaupstefnunni
í Frankfurt lauk formlega á mánu-
dag, en hún stóð í sex daga. Edda -
miðlun og útgáfa var þar með stóran
sýningarbás og kynnti bækur höf-
unda Vöku-Helgafells, Máls og
menningar, Iceland Review og For-
lagsins. Samtals tóku tuttugu starfs-
menn fyrirtækisins þátt í sýningunni
í þeim tilgangi að kynna íslenskar
bókmenntir, leita eftir kaupum á út-
gáfurétti og funda með samstarfs-
aðilum á ýmsum sviðum.
Fundaði með um eitt hundrað
fulltrúum útgefendafyrirtækja
„Réttindastofa Eddu átti fundi
með fulltrúum um eitt hundrað út-
gáfufyrirtækja víðs vegar að úr
heiminum, allt frá Bandaríkjunum til
Japan, enda þótt megináhersla hafí
verið lögð á evrópsk forlög,“ segir
Pétur Már Ólafsson, forstöðumaður
Réttindastofu Eddu.
„Gefinn var út sérstakur bækling-
ur þar sem hátt í sjötíu íslenskir höf-
undar eru kynntir og var honum
dreift á sýningunni. Má þannig segja
að á sýningunni hafi farið fram eitt-
hvert umfangsmesta átak sem gert
hefur verið til að kynna íslenskar
bókmenntir á erlendum vettvangi til
þessa.“
Björn Bjamason menntamálaráðherra og Ingimundur Sigfússon sendiherra íslands í Þýskalandi kynntu sér
starfsemina á sýningarsvæði Eddu-miðlunar og útgáfu á bókakaupstefnunni í Frankfurt og hittu þar m. a. að
máli Ólaf Ragnarsson stjórnarformann Eddu og Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóra útgáfusviðs.
Upplestur í
Gerðarsafni
UPPLESTUR á vegum Ritlistar-
hóps Kópavogs verður í Gerðar-
safni fimmtudag kl. 20.
Skáldin í Grafai-vogi lesa úr bók
sinni Brúin út í Viðey - sögur og
ljóð. Þau eni Aðalsteinn Ingólfs-
son, Ari Trausti Guðumundsson,
Einar Már Guðmundsson, Gyrðir
Elíasson, Hjörtur Marteinsson,
Kristín Marja Baldursdóttir,
Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Sig-
mundur Ernir Rúnarsson Aðgang-
ur er ókeypis og allir velkomnir.
♦ ♦ ♦
Síðasta
sýningarhelgi
NÚ FER hver að verða síðastur að
skoða margmiðlunarsýninguna @ og
myndbandsverkið „Hraun og mosi“
eftir listakonuna Steinu Vasulka í
Listasafninu á Akureyri. Tölvusýn-
ingin @ er unnin í samvinnu ART-
.IS, OZ.COM og Reykjavíkur menn-
ingarborgar Evrópur árið 2000, en
báðum sýningunum lýkur nú um
helgina, sunnudaginn 29. október.
Hópur rithöfunda sem koma út
undir merkjum forlaga Eddu á sér
fasta útgefendur erlendis og má þar
nefna Halldór Laxness, Einar Má
Guðmundsson, Ólaf Jóhann Ólafs-
son, Einar Kárason og Steinunni
Sigurðardóttur.
Á sýningunni var einnig lögð
áhersla á kynningu íslenskra barna-
bóka og sýndu forleggjarar bókum
höfundanna Andra Snæs Magnason-
ar og Guðrúnar Helgadóttur sér-
stakan áhuga, að sögn Péturs Más
Ólafssonar.
Kók o g samloka
ATVIKSBÆKUR
heitir nýleg ritröð á
vegum útgáfufélags-
ins Bjartur -Reykja-
víkurAkademían og
er nú að líta dagsins
ljós dálítið greina-
safn frá þeim, sem
ber heitið Molar og
mygla: Um einsögu
og glataðan tíma.
Greinarnar eru
þrjár. Sú fyrsta er
þýðing á ritgerð eins
kunnasta sporgöngu-
manns einsögurann-
sókna, Carlo Ginz-
burg, næsta er eftir
ungan sagnfræðing
að nafni Davíð Ólafsson, og þá
síðustu hefur helsti baráttumað-
urinn fyrir einsögurannsóknum á
Islandi, Sigurður Gylfi Magnús-
son, skrifað. I tilefni af útgáfu
þessarar bókar ræddi blaðamað-
ur við Sigurð Gylfa um Atviks-
bækurnar, ReykjavíkurAkadem-
íuna og svo að sjálfsögðu
einsögurannsóknir.
Sigurður Gylfi telur Atviks-
bækur geta mæta tvíþættri þörf í
íslensku samfélagi. Annars vegar
eiga þær að vera hugvekjandi og
birta skrif um áleitin viðfangsefni
og umdeild á vettvangi fræðanna.
í því sambandi kaus hann að
leggja áherslu á þjónustu við
nemendur H.Í., þar sem þeim
veitti ekki af að fá nasasjón af
umfangi og rótum slíkrar um-
ræðu hverju sinni. Hann áleit lík-
legt að undangengnar kappræður
og áköf skoðanaskipti um stöðu
sagnfræðinnar og einsögurann-
sóknir hafi farið fyrir ofan garð
og neðan hjá mörgum nemendum
og þá einfaldlega af þeim sökum
að markvissa kynningu um inn-
viði og markmið einsögufræða
skorti. Hitt hlutverk Atviksbóka
snýr aftur að starfandi fræði-
mönnum á Islandi.
Sigurður Gylfi benti á að
langskólagengnir fræðimenn á
íslandi hafa ekki alls fyrir löngu
hitt fyrir tímamót, sem reyndar
séu orðin velþekkt erlendis og
jafnan erfið viðfangs. Nýsnúnir
úr Iöngu námi geti Islendingar
ekki lengur gengið að stöðum hjá
Háskóla Islands sem gefnum,
heldur neyðist til að þiggja
stundakennslu eftir hentugleikum
Sigurður Gylfi
Magnússon
þeirrar stofnunar.
Slíkt ástand hafi
óhjákvæmilega í för
með sér að menn
veigri sér við að
bjóða fram námskeið
sem gætu verið illa
séð af hálfu Háskóla
Islands og hneigist
þess í stað til að laga
sig að ríkjandi við-
miðum um hvað sé
leyfilegt í umræðunni
og hvað ekki. Hægt
er að orða þetta sem
svo að einröddun geti
náð yfirhöndinni þeg-
ar einungis eitt
fræðasetur tryggir
hag fræðimanna í heimspeki-
greinum. Það sem ekki má ræða
verður ekki sagt, svo lengi sem
menn eru upp á viðkomandi
stofnun komnir um viðurværi sitt.
I þessu samhengi kom staða
ReykjavíkurAkademíunnar til
tals, en samkvæmt Sigurði Gylfa
hefur hún gert fræðimönnum
kleift að starfa sjálfstætt og
mynda þannig mótvægi við
áherslur Háskóla Islands. Þá sé
ekki þar með sagt að Háskóli ís-
lands sé afturhaldssöm stofnun,
síður en svo. Sigurður sagðist
einungis eiga við að Reykjavíkur-
Akademian hafi átt þátt í að
mynda ástand þar sem ólíkar
raddir geta óhikað látið í sér
heyra og tekist á um sjónarhorn
og viðhorf til viðkomandi mál-
efna. Háskóli íslands jafnt sem
ReykjavíkurAkademían hljóti að
sjá hag sinn í slíku ástandi.
Sigurður Gylfi staðsetti Atviks-
bækur sem afleiðingu þeirra um-
ræðna sem fram hafa farið undir
þaki ReykjavíkurAkademíunnar,
og lagði ríkt á um að tengslin þar
á milli kæmust til skila. Fræði-
menn hvaðanæva að geti þó snúið
sér til ritstjórnar Atviksbóka með
hugmyndir sínar og sé ætlunin að
sem ólíkastar áherslur birtist í
þeim fiokki.
Hann lét ennfremur í veðri
vaka að hlutverk Atviksbóka
mætti skilgreina sem „avant-
garde“ á vettvangi fræðanna.
Slíkt hlutverk fælist þá ekki síst í
því að bækurnar væru flestum
aðgengilegar og gæfu áhugasöm-
um færi á að kynna sér
uppgangstíma á sviði ólíkustu
fræðigreina. Með því móti er veg-
ið að múrnum á milli fræðilegs
vettvangs og samfélagslegs að
mati Sigurðar Gylfa.
I umræðum um efni bókarinnar
Iét Sigurður Gylfi þá skoðun í
ljós að einsögurannsóknir gegni
öðrum þræði því hlutverki að
vega að slikum múrum. Líkt og
Davíð bendir á í grein sinni og
Sigurður Gylfi gerði að um-
talsefni, þá felur það þó engan
veginn í sér að hana megi af-
skrifa sem þjóðlegan fróðleik.
Sigurður Gylfi lýsti einsögunni
í grófum dráttum sem ákveðinni
rannsóknastefnu sem gangi út frá
eigindlegum viðmiðum um að
meðaljóninn sé ekki til og hafi í
raun aldrei verið til. Sagnfræð-
ingurinn sé ávallt að fást við sér-
stæðar manneskjur, burtséð frá
því hvort hann átti sig á því.
Stjórnmál samanstanda af fólki
sem ræðir saman eða rífst um
ákveðin málefni, og sömu sögu er
að segja um barnsfæðingar,
dauðsföll, aðbúnað, menntun og
þar fram eftir götum. Allt felur
þetta í sér samkundu fjölmarga
einstaklinga, sem hver og einn
býr yfir eigin sögu.
I sem skemmstu máli sagði Sig-
urður Gylfi áherslur í bókinni og
uppsetningu greinanna miða að
því að kynna einsögurannsóknir,
útskýra þær og gera grein fyrir
aðsteðjandi vandamálum á ís-
lenskum umræðuvettvangi. Tók
hann sérstaklega fram að hans
eigið innlegg felist í gagnrýni á
einsögurannsakendur og þær
áherslur sem hann álíti varasam-
ar eða ófullnægjandi. Hann bætti
því við að sín grein ræki reyndar
lestina. Grein Ginzburgs, „Ein-
sagan: Eitt og annað sem ég veit
um hana“, þjóni aftur á móti
þeim tilgangi að kynna hugsjón-
irnar sem búa að baki einsögu-
rannsóknum og staðsetja vanda-
málin með tilliti til umheimsins.
Grein Davíðs þótti honum einkum
sinna því að gera grein fyrir
einsögufræðilegum áherslum í ís-
lensku fræðaumhverfi, skoða þær
og gagnrýna.
Líkt og allar aðrar Atviksbæk-
ur kostar Molar og mygla... 1000
krónur, „sem er nú bara kók og
samloka" komst Sigurður Gylfi
að orði. Einnig er hægt að gerast
áskrifandi að þessum bókum.
Shopping & Fucking
í síðasta sinn
NÚ fer hver að verða síðastur að
sjá sýningu EGG-leikhússins á
Shopping & Fucking eftir Mark
Ravenhill, því síðasta sýning verð-
ur nk. föstudag, 27. október, kl.
20.30 í Kvikmyndaverinu í Loft-
kastalanum.
Þegar verkið var frumflutt í
London fyrir fjórum árum vakti
það strax mikla athygli og umtal
og ekki leið á löngu þar til leikhús
víða um heim kepptust við að setja
það á svið. I leikritinu er sögð
miskunnarlaus saga af fólki sem
lítur á mannleg samskipti sem við-
skipti fyrst og fremst. í sýningu
EGG-leikhússins fara með hlut-
verkin: Agnar Jón Egilsson, Atli
Rafn Sigurðarson, Hjalti Rögn-
valdsson, Nanna Kristín Magnús-
dóttir og Ólafur Darri Ólafsson.
Miðasala er í Iðnó alla daga og
Loftkastalanum tveimur tímum
fyrir sýningu.
Morgunblaðið/Golli
Ólafur Darri Ólafsson og
Agnar Jón Egilsson.
Sönghelgi í
Hallgrímskirkj u
HALLGRÍMSSÖFNUÐUR heldur
um þessar mundir upp á 60 ára starfs-
afmæli sitt. Af því tilefni verður þess
minnst nk. föstudagskvöld, 27. októ-
ber, á dánarafmæli Hallgríms Péturs-
sonar, að prestar safnaðarins hafa í 60
ár samfleytt sungið messu á þessum
degi til minningar um Hallgrím. Karl
Sigurbjörnsson, biskup íslands,
prédikar og Mótettukórinn syngur.
„Til allra sem hafa yndi og gaman
af að syngja. Til allra sem einhvern-
tíma hafa sungið í kór en hafa ekki
tíma til þess að vera í reglubundnu
kórstarfi. Til allra sem hefur dreymt
um að syngja í kirkjukór en aldrei lát-
ið drauminn rætast. Nú er tækifær-
ið!“ Þannig kynnir Hallgiímskirkja
nýjung í starfi sínu en þar æfir og
syngur um næstu helgi opinn kór
undir stjórn Harðar Ágústssonar
organista. Opni kórinn æfir söngdag-
skrá í Hallgrímskirkju á laugardag
frá kl. 10 til 14 og syngur við messu kl.
11 daginn eftir, sunnudaginn 29. októ-
ber, eftir æfingu þá um morguninn. Á
verkefnaskrá er kórverk eftir Mend-
elssohn og sálmalög, meðal annars
eftir Homelius og Hallgrím Péturs-
son. Margrét Bóasdóttir syngur ein-
söng með opna kómum.
Skráning í opna kórinn er til föstu-
dags í Hallgrímskirkju, kl. 9-17.
Sigurbjörn Einarsson biskup flyt-
m- fyrirlestur í Hallgrímskirkju kl. 10
nk. sunnudag þar sem hann m.a. rifj-
ar upp minningar írá íýrstu dögum
Hallgrímssafnaðar. í messunni kl. 11
prédikar séra Sigurður Pálsson sókn-
arprestur og séra Jón Dalbú
Hróbjartsson prófastur þjónar fyrir
altari.
í safnaðarblaði sem kemur út í til-
efni tímamótanna segir Sigurbjöm í
viðtali að Hallgrímskirkja og starf-
semin sem þar fer fram sé einhver
mesti sigur kirkjunnar á okkar dög-
><M-2000
Miðv. 25. okt.
ART2000
Fyrirlestur Hans PeterStubbe Tegl-
bjærg ogJöran Rudi í Salnum kl.l 7,
en verk þeirra veröa leikin á tónleik-
um kvöldsins kl. 20.
www.musik.is/art2000
CAFÉ9 LISTASAFN REYKJAVÍKUR -
HAFNARHÚS KL. 13-15
KinderCargo, verkstæöi þar sem
börn geta unniö efni ogskrifast á viö
jafnaldra í hinum borgunum.
www.cafe9.net