Morgunblaðið - 25.10.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 31
UMRÆÐAN
V élindabakflæði -
lífsstíll eða sjúkdómur?
Margrét Bjarni
Oddsdóttir Þjóðleifsson
ÞESSI grein, sem fjallar um vél-
indabakflæði, er hluti af átaki sem
Félag sérfræðinga í meltingarsjúk-
dómum stendur fyrir ásamt Land-
læknisembættinu og ESGE (Europ-
ean Society of Gastrointestinal
Endoscopy) til að fræða almenning
um meltingarsjúkdóma.
Vélindabakflæði er einn algeng-
asti kvilli í efri hluta meltingarvegar.
Samkvæmt nýrri íslenskri könnun
má ætla að fjórðungur þjóðarinnar
fái einkenni vélindabakflæðis a.m.k.
einu sinni í mánuði, og 12.500 hafi
það mikil einkenni að það hái þeim í
daglegu lífi. í sömu könnun kom hins
vegar í ljós að fáir vita hvað vélinda-
bakflæði er. Það er því skoðun okkar
að þörf sé á fræðslu um vélindabak-
flæði, einkenni og meðferð.
Kjörorð átaksins er „Þekking, lyk-
ill að lífsgæðum" vegna þess að vél-
indabakflæði truflar mikið lífsgæði.
Einkenni sjúkdómsins eru margvís-
leg en aðaleinkennin eru brjóstsviði,
nábítur og verkir. Einkenni bakflæð-
is trufla oft daglegt líf, svefn og störf
og kemur meðal annars í veg fyrir að
fólk geti notið góðs matar. Ef sjúk-
dómurinn er vanræktur geta hins
vegar komið fram h'fshættulegir
fylgikvillar. Vitundarvakningunni er
fyrst og fremst ætlað að kenna fólki
að þekkja einkenni vélindabakflæðis
á háu stigi til að hægt sé að greina
það og beita viðeigandi meðferð.
Er brjóstsviði
alltaf hættulegur?
Brjóstsviði er alls ekki alltaf
hættulegur. Flestir finna fyrir
brjóstsviða einhvem tímann, t.d. eft-
ir veislumáltíð, vín- eða kaffidrykkju
og það bendir ekki ákveðið til sjúk-
dóms. Fái maður brjóstsviða tvisvar
í viku, eða sjaldnar, og án þess að
hann trufli daglegt hf er ekki nauð-
synlegt að hafa áhyggjur. Flest ráð
við vægum brjóstsviða snúast um
lífsstíl og hóf í mat og
drykk. A næstu dögum
verður dreift á hvert
heimili á Islandi bækl-
ingi um vélindabak-
flæði og þar er að finna
leiðbeiningar um hve-
nær á að taka bijóst-
sviða alvarlega.
Hvað er
vélindabakflæði?
Á mynd 1 sést
hvemig eðlilegt vél-
inda lítur út og til sam-
anburðar vélinda með
slappan hringvöðva og
þindarslit þar sem súrt
magainnihald gúlpast
upp, en það er kallað vélindabak-
flæði. Melting fæðunnar byrjar í
maganum þar sem hún blandast
sterkri saltsým og meltingarhvöt-
um. Magainnihaldið er mjög ertandi
fyrir vélindað og sýran getur valdið
bmnatilfinningu undir bringubeini
(brjóstsviða) og stundum brjóst-
verkjum sem líkjast hjartaverk. Ef
sýran fer alla leið upp í kok kemur
súrt bragð í munninn sem kallað er
nábítur. Ef sýran ertir raddbönd eða
fer niður í lungu fylgir oft langvar-
andi hæsi, ræskingar, hósti og stund-
um astmi. Eðlilegt véhnda eins og
sýnt er á myndinni hindrar að þetta
gerist.
Áhrif á lífsgæði
Vélindabakflæði er lúmskt og ein-
kenni þess magnast gjaman stig af
stigi, oft á mörgum ámm eða jafnvel
áratugum. Hóf í mat og drykk auk
lífsstílsbreytinga era skynsamleg
viðbrögð við vægum brjóstsviða.
Ágerist sjúkdómurinn hins vegar er
þróunin oft á þann veg að útiloka
þarf æ fleiri þætti úr fæðunni, ekki
borða seint á daginn og sofa með hátt
undir höfðinu. Það getur verið hæg-
ara sagt en gert að fylgja ströngu
mataræði. Flest okkar deila mat með
öðram á heimili eða í mötuneytum og
í veislum og á ferðalögum getur
reynst snúið að fylgja ströngu fæði.
Vélindabakflæði getur raskað
Bakflæði
Vélindabakflæði er
lúmskt, segja Margrét
Oddsdóttir og Bjarni
Þjóðleifsson, og ein-
kenni þess magnast
gjarnan stig af stigi.
fleira en matarvenjum. Einkenni
geta komið fram við áreynslu og sér-
staklega þar sem fólk þarf að bogra.
Þegar við bætist þrálátur hósti,
ræskingar og hæsi er ljóst að hfs-
gæði era veralega skert. Sumir hafa
hætt að stunda söng og líkamsrækt
af þessum ástæðum og störf eins og
garðrækt og sum húsverk geta verið
kvalræði. Rannsóknir, sem mæla
heilsutengd lífsgæði eftir ákveðnum
kvörðum, hafa sýnt að lífsgæði sjúkl-
inga með miðlungs eða alvarlegt vél-
indabakflæði era bágborin. Þeir
mælast t.d. með minni lífsgæði en
sjúklingai- með kransæðasjúkdóm
(anginu) en álíka og bæklunarsjúkl-
ingar sem bíða eftir bakaðgerð. Eftir
að sjúklingar með bakflæði fá rétta
meðferð, hvort heldur er með lyfjum
eða skurðaðgerð, mælast lífsgæði
þeirra þau sömu og heilbrigðra.
Þjóðhagsleg áhrif
Er þessi kvilli ekki bara einkamál
þeirra sem hafa ekki gætt sín í mat
og drykk og lifa óheilbrigðu lífi? Lífs-
stíll og óhóf skipta máli fyrir vægari
stig sjúkdómsins, þótt þau eigi ekki
nema að takmörkuðum hluta þátt í
að valda honum. Vélindabakflæði á
háu stigi hefur ekkert með lífsstíl að
gera. Þeir sjúklingar þurfa rannsókn
og fulla meðferð með lyfjum eða
skurðaðgerð. Án réttrar meðferðar
skerðist vinnuþrek, fjarvistir frá
vinnu aukast og stundum þarf með-
ferð á sjúkrahúsi vegna fylgikvilla.
Það getur verið dýrt fyrir þjóðfélag-
ið, sé ekki bragðist rétt við og sjúk-
dómurinn greindur og meðhöndlað-
ur strax.
Eftir margra ára eða áratuga
sýrabakflæði geta komið framu-
breytingar neðst í vélinda (Barretts-
breytingar) sem taldar era forstig
krabbameins. Með réttri meðferð er
hægt að stöðva þessar breytingar og
verið er að rannsaka hvort hægt sé
að snúa þeim til baka. Seinustu ára-
tugi hafa orðið mjög merkilegar
breytingar á tíðni magasjúkdóma í
vestrænum löndum. Sár í maga og
skeifugörn eru á hröðu undanhaldi
og sömuleiðis magakrabbamein.
Skýringin á því er að árið 1982 fannst
magasýkill (Helicobacter pylori) og í
ljós kom að hann á stóran þátt í þess-
um sjúkdómum. Frá árinu 1990 hef-
ur verið gefin viðeigandi meðferð
gegn honum, þar sem það á við, en
jafnframt er hann að hverfa með
yngri kynslóðum sem alast upp við
meira hreinlæti og betri mat en fyrri
kynslóðir. Á sama tíma og magasjúk-
dómar era að hverfa er krabbamein í
vélinda í hröðum vexti og hefur ekk-
ert krabbamein aukist jafn hratt á
Vesturlöndum á seinasta áratug.
Ekki er að fullu ljóst hvað veldur, en
aukin tíðni vélindabakflæðis á þar
vafalaust stóran hlut að máli. Vél-
indakrabbamein hefur aukist á ísl-
andi sl. tíu ár þótt ekki sé eins hratt
og víða í kringum okkur. Hins vegar
má telja víst að þróunin fari í sama
farveg ef ekki verður gripið í taum-
ana. Vitundarvakningin um vélinda-
bakflæði snýst því ekki eingöngu um
lífsgæði fjölda íslendinga á næstu
áram, heldur einnig um að koma í
veg fyrir krabbamein í vélinda eftir
10-20 ár.
Margrét er dósent og sórfræðingur i
almennum skurðlækningum.
Bjami er prófessor og sórfræðingur
í meltingarsjúkdómum.
Lífeyriskerfið „okkar“
ÉGHRÖKKvið núí
vikunni þegar ég
heyrði fjármálaráð-
herra tala í fréttum
um að við þyrftum að
verja lífeyriskerfið
okkar. Mikið óskap-
lega varð ég ánægður
að heyra hann taka
svona til orða, það era
ekki nema nokkur ár
síðan að verkalýðs-
hreyfingin þurfti,
ásamt samtökum at-
vinurekenda, að beita
sér af alefli til þess að
verja lífeyriskerfíð
gegn atlögu stjórn-
málamanna. Stjórn-
málamennirnir gengu þá erinda
auðhyggjunnar og hefðu áætlanir
þeirra náð fram að ganga hefði
kerfið okkar hrunið. Þá vann verka-
lýðshreyfingin annan af sínum
glæstustu sigrum á undanförnum
árum, hinn var þegar tókst að kné-
beygja ríkisstjórnina og ná fram
breytingum á nýrri vinnumarkaðs-
löggjöf. Á þessum tíma hljómuðu
t.d. frá ungum sjálfstæðismönnum
og frjálshyggjuliðinu þau ummæli
að lífeyriskerfið væri einungis 10%
aukaskattur sem rynni til verka-
lýðshreyfingarinnar, sem svo ekk-
ert kæmi úr til gamla fólksins!!
Þetta var m.a. stutt af Verzlunar-
ráði, sem undir stjórn Vilhjálms
Egilssonar pantaði skýrslu frá
nefnd, sem hann setti saman. Þessu
skýrsla var eitthvert vitlausa plagg,
sem hefur verið sett saman, og varð
til þess að hann og Verzlunaráðið
urðu að athlægi meðal allra sem að
þessum málum hafa starfað. Ein-
hvern veginn minir mig að núver-
andi fjármálaráðherra hafi þá verið
sammála SUS geng-
inu.
En ég er að velta því
fyrir mér hvort ég hafi
kannski misskilið
fjármálaráðherra og
hann sé að tala um að
verja lífeyrssjóð ráð-
herra og lífeyrissjóð
alþingismanna, sem
við vitum að eru þeir
langbestu á landinu. í
lífeyrissjóð fjármála-
ráðherra greiðir at-
vinnurekandinn (lesist
skattgreiðendur) 80%
á móti 4% framlagi
ráðherra og sem veld-
ur því að þeir öðlast
full réttindi á nokkrum árum, eða
m.ö.o. 14 sinnum hraðar en í sjóð-
um okkar venjulega fólksins. Sömu
menn eru svo að auki með full rétt-
Lífeyrir
Fjármagnið væri
einskis virði, segir
Guðmundur Gunnars-
son, ef ekki kæmi til
hin vinnandi hönd.
indi í lífeyrissjóði alþingismanna,
en þar greiðir sami atvinnurekandi
40% á móti framlagi alþingis-
manna, þar er bara 7 sinnum hrað-
ari ávinnsla en hjá okkur hinum. Og
svona til þess að vera virkilega
sanngjarnir sömdu þessir menn við
sjálfa sig um að lífeyrisgreiðslur úr
þessum glæstu sjóðum væru
bundnar við launakjör ráðherra og
alþingismanna eins og þau verða á
hverjum tíma.
Það er vegna þessa sem Pétur
Blöndal er svona glaðbeittur í sjón-
varpinu, þegar hann segir að full-
orðið fólk og öryrkjar hafi það svo
svakalega gott og það sé bara engin
ástæða til þess að hlusta á bölvaðan
barlóminn í því, það sé allt saman
bull og vitleysa. Þegar ég hlusta á
málflutning þeirra félaga detta mér
einhverra hluta vegna alltaf í hug
orð Johns Voight:
Ef allir væru ríkir
og allir gætu lifað
á skuldabréfum
eða vöxtum
Þyrfti enginn að vinna
og allir myndu deyja úr hungri
Oft hefur komið fram að það fari í
taugarnar á þeim félögum og sá
pirringur kom einnig fram í dellu-
skýrslu Verzlunarráðsins, að full-
trúar eigenda lífeyrissjóðanna
(launamenn) skuli kjósa helming
stjórnarmanna. Hinn helmingurinn
er, eins og menn vita, skipaður af
framkvæmdastjórn Samtaka at-
vinnurekenda. I sérpöntuðu dellu-
skýrslunni kemur fram sú ósk, að
atvinnurekendur kysu a.m.k 60%
stjórnarmanna og sjóðfélagar ein-
ungis 40%. En óskhyggjan ber
fleiri ofurliði, t.d. ruglast sumir al-
þingismenn eins t.d. Pétur Blöndal
alltaf í ríminu þegar þessi mál ber á
góma. Hann talar um sig með þeim
hætti að hann sé valinn á Alþingi af
kjósendum og fari þar með fulltrúa-
vald og eigi að hafa rétt til þess að
ráðskast þar með okkar mál án af-
skipta þrýstihópa, en það virðast
kjósendur vera í huga Péturs á
milli kosninga. Þegar kemur að
launamönnum getur hann ekki sætt
Guðmundur
Gunnarsson
sig við fulltrúavald eigenda sjóð-
anna og þeir hafi með þeim hætti
afskipti af sínum eigin lífeyrissjóð-
um og fjárfestingarstefnu þeirra.
Einhverra hluta vegna getur Pétur
ekki sætt sig við að launamenn velji
í frjálsum kosningum, stundum
sömu menn til þess að fara með
launamál sín og lífeyrismál. í þessu
endurspeglast ótti gæslumanna
auðhyggjunnar, að launamenn geta
hugsanlega borið hönd yfir höfuð
sér með áhrifum á stjórn fyrirtækja
í gegnum hlutabréfakaup lífeyris-
sjóðanna. Þá rjúka þeir til og krefj-
ast þess að sett séu lög til þess að
torvelda það. Hugarfari þessara
skoðanabræðra er ágætlega lýst
með orðum nóbelsskáldsins okkar:
„Verslunarskipulagið dregur
manninn niður í gróðafíkn seljanda,
sem hefur ekki framar neitt tak-
mark tilveru sinnar annað en það
að eignast penínga og óverulegt
glíngur. Öll fyrirbrigði mannlegrar
tilveru eru gerð að spurníngu um
kaupgetu og gjaldþol. Gleypugáng-
urinn er í senn gerður að boðorði,
fyrirheiti og takmarki." (Dagleið á
fjöllum.)
Maður getur ekki varist þeirri
hugsun þegar þessir menn tala um
að verja lífeyriskerfið okkar eigi
þeir við að verja sinn rétt og þeir
hafi gleymt loforðum um að jafna
skuli lífeyrisrétt landsmanna. Og
ég er svo andstyggilegur að ætla að
þeir og SUS hafi gleymt fyrri yfir-
lýsingum og hvernig þeir voru
burstaðir af okkur launamönnum á
sínum tíma. Arður, gengi hluta-
bréfa og viðskipti hafa blindað
marga. Allt sem getur skilað aukn-
um arði er talið réttlætanlegt. Sjón-
armiðum launamanna er vikið til
hliðar, gróðafíknin ræður. Mannleg
reisn og samskipti virðast gleymast
þessum mönnum. Sé á það minnst
að verja hluta arðs til þess að
hækka laun er umsvifalaust skipt
yfir, að ekki megi raska stöðugleika
og verið sé að kalla á óðaverðbólgu.
Það gleymist að framlag launa-
manna og hin vinnandi hönd skap-
aði verðmætaaukningu í fram-
leiðslu fyrirtækjanna. Hlutskipti
gróðafíkla er aumkunarvert því
„þegar öllu er á botninn hvolft þá er
lífið umfram alt saltfiskur en ekki
draumaríngl". (Salka Valka.)
Höfundur er formaður
Rafíðnaðarsambands íslands.
Sérmerktar
gjafavörur
r
Okeypis
bæklingur
www.postlistinn.is
SÍmi 557 1960
islenski Póstlistinn