Morgunblaðið - 25.10.2000, Page 40

Morgunblaðið - 25.10.2000, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Ólafur Guðjón Arsælsson var fæddur á Höfn í Homafirði 25. júlí 1948. Hann lést að heimili sinu, Brekku- stíg 17, Reykjavík, 17. október síðastlið- inn. Foreldrar eru Jónfna Jónsdóttir Brunnan, f. 16. ágúst 1918 og Ársæll Guð- jónsson, f. 15. janúar 1920, d. 23. febrúar y- 1993. Bræður Ólafs eru: Jón Birgir, flug- vélstjóri í Lúxem- borg, f. 3. desember 1941, eigin- kona: Aðalheiður Árnadóttir, sjúkraliði; Bragi Ársælsson, raf- virki Hornafírði, f. 1. desember 1950, eiginkona: Bima Oddgeirs- dóttir, húsmóðir; Jóhann Heiðar Ársælsson, f. 22 júní 1961, d. 17. septemher 2000. Ólafur lauk bama- og unglinga- skólanámi á Höfn í Homafírði, siðan gagnfræðaprófi frá Héraðs- skólanum á Laugarvatni vorið 1966. Enskunám stundaði hann í Lundúnum 1967. Hann stundaði ÓU ólst upp í foreldrahúsum, hjá foreldrum, bræðrum, afa og þrem afasystkinum. Eftir að skyldunámi lauk hér á Höfn, lá leiðin í Héraðs- skólann á Laugavatni í tvo vetur, þar sem hann útskrifaðist með gagn- fræðapróf. Hann stundaði því næst sjómennsku, sem háseti í nokkur ár, en þaðan lá leiðin í Stýrimannaskól- ann í Reykjavík, þar sem hann lauk öllum stigum þess nárns árið 1974. í apríl 1975 kaupir Óli sér íbúð á Brekkustíg 17 í Reykjavík, þar sem hann kom sér upp yndislega fallegu heimili og hefur búið þar síðan. Peg- ar hann er að Jjúka Stýrimannaskól- anum stundar hann millilandasigl- ingar á Sambandsskipunum og sigUr þá meðal annars á Rússland og Am- eríku. Árið 1968, þegar hann varð 20 ára, heldur hann uppá afmæUð sitt um borð í Gissuri hvíta, 270 tonna skipi í eigu föður hans og frænda, en skipið var nýtt á heimleið frá Sönder- borg í Danmörku. Á því skipi var hann svo tvö næstu sumur við síld- veiðar í Norðursjónum og naut hann þess tíma vel. Árið 1972 hóf Óli svo störf hjá Hval h.f. og var hann síðan stýrimaður á Hval 9 í 14 hvalvertíðir, uns þeim veiðum lauk. Hætti hann -^.þar með allri sjómennsku. Árið 1987 hóf hann störf hjá Slysavarnafélagi íslands, við Tilkynningarskyldu ís- lenskra skipa og björgunarmiðstöð félagsins og hefur unnið þar síðan, sem einn af varðstjórunum. I þessu starfi eins og ávallt, sýndi Óli að hon- um mátti treysta og hvarvetna fékk hann lof fyrir áreiðanleika og stund- vísi. Hann átti mörg áhugamál, hann ijómaði af bjartsýni og áhuga til allra verka. Eitt Kelsta áhugamálið var ferðalög og hafði hann ferðast víða hérlendis og erlendis og á ferðalög- um sínum til hinna ýmsu þjóðlanda hafði hann ávallt þá reglu að skipu- leggja allt vel fyrirfram með ferðafé- lögum sínum svo að allir hlutir —vgengju sem best upp og ferðin gæfi af sér sem mest. Hann hafði ávallt myndavélina með á ferðum sínum og þegar maður skoðar allt það mikla myndasafn hans, sem hann hefur tekið, sér maður best hversu næmur og athugull hann hefur verið fyrir menningu og mannlífi hjá hinum fiarlægu þjóðum. Það má segja að Öli hafi verið mikill gæfumaður í líf- inu þótt hann stofnaði ekki til fjöl- skyldu. Hann var vinsæll og vina- margur og átti sérlega góða vini, sem aldrei brugðust þegar á reyndi og aldrei sleit hann sambandi við æsku- ^heimili.sitt á Höfn. Hann var stoð og stytta foreldranna í veikindum þeirra á sjúkrahúsum í Reykjavík og alltaf til taks að rétta hjálparhönd þeim er leituðu til hans eftir aðstoð og góðum ráðum, þar sem það átti við. Hann var yfirvegaður, glæsi- menni að burðum, aðlaðandi í við- móti og viðræðugóður. Oft átti hann síðan sjómennsku á bátum útgerðar föð- ur síns og frænda, Óskars Valdimars- sonar skipsljóra. Hann útskrifaðist frá varðskipadeild Sjómannaskólans í Reylgavík 1974 og hafði þá einnig lokið farmanna- og fiski- mannaprófi. Hann stundaði millilanda- siglingar á Sam- bandsskipunum Skaftafelli, Mælifelli og Hvassafelli uns hann réð sig sem stýrimann hjá Hval h/f og var þar 14 vertíðir og vann oftast við viðhaid hvalbát- anna milli vertíða. Árið 1987 hóf hann störf hjá Slysavamafélagi Islands, við Tilkynningaskyldu ís- lenskra skipa og björgunarmið- stöð félagsins og hafði starfað þar sfðan á meðan heilsan leyfði. Kveðjuathöfn fór fram frá Foss- vogskirkju sfðastliðinn mánudag. Útför Ólafs Guðjóns fer fram frá Hafnarkirkju, Hornafirði, í dag og hefst athöfnin klukkan 14. góðar stundir með vinum sínum á Brekkustíg 17 og það hús stóð ávallt opið fjölskyldu hans að austan, þegar komið var í bæinn. Heimilið bar vott um smekkvísi, hver hlutur á sínum stað, allt í röð og regiu. f sumarbú- stað fjölskyldunnar austur í Stafa- fellsfjöllum í Lóni, átti Óli sterkar taugar til. Þar átti hann sitt drauma- land og þar hélt hann uppá 50 ára af- mæli sitt með vinum og vandamönn- um, einnig dvaldi hann þar oft til að njóta einstakrar kyrrðar í faðmi fjall- anna, eða þá heldur til að pússa, mála og snyrta, því að hann vildi halda vel við þessum sælureit. Mannblendni var honum eðlislæg, alltaf var hann tilbúinn til viðræðna við fólk úr öllum stigum þjóðfélagsins, og að styrkja tengsl sinnar ættar, hvort heldur í föður- eða móðurætt var honum mik- ið áhugamál. Hann gaf út niðjatal föðurættar sinnar og stóð fyrir ætt- armóti, sem haldið var á Kirkjubæj- arklaustri fyrir fáum árum, þar sem margir ættingjar hittust í fyrsta sinn. Þessi eiginleiki hans hefur á- vallt verið hans gæfa, ekki síst í starfi hjá Tilkynningarskyldunni þar sem oft er svarað síma frá fólki sem er að spyijast fyrir um ástvini sína úti á sjó í misjöfnum veðrum. Þá getur verið gott og hughreystandi að fá greið og góð svör. Ég veit að sá sam- henti hópur sem vinnufélagar Óla á Skyldunni er hefur ávallt staðið þétt við bakið á honum í hans erfiðu veik- indum og sýnt honum mikla um- hyggju, ykkur vil ég þakka. Öðrum vinum og kunningjum Óla, sem léttu honum stundimar í veikindunum, vil ég einnig þakka. En enginn reyndist þér betur Óli minn, en Heiða mág- kona þín, henni verður seint þakkað fyrir alla þá umhyggju, sem hún hef- ur sýnt í veikindum þínum. Guð launi henni fyrir hennar hjálp. Óli minn, þín minning er björt og hrein sem geymist áfram í hjörtum þinna nán- ustu, það er okkur mikill styrkur að lifa fyrir. Nú viljum við þakka þér fyrir öll þau gæfuspor sem þú gekkst á þessari jörð og biðjum almáttugan góðan Guð að laúna þér fyrir öll þín góðverk hér f heimi. Við erum stolt af hetjulegri baráttu þinni við einn grimmasta sjúkdóm mannkynsins, krabbameinið, og Guð einn veit hvað þú máttir líða. En hetjulundin var alltaf sú sama. Þér var gefið mikið þrek og þú gast líka gefið öðrum mikið af sjálfum þér. Margs er að minnast, Margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir Uðna tíð. Margseraðminnast, margseraðsakna. Guð þerri tregatárin stríð. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt, GekkstþúmeðGuði, Guðþérnúfylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Kveðja frá móður: Vertu sæll og sofðu rótt, guðsínáðararmi. Sjálfur fórstu alltof fljótt, svo bijóst vort fylltist harmi. Árinsemþúáttirhér, geymagæfuoggleði. Vér aldrei munum gleyma þér. Hvíl um eilífð guðs í friði. Þín móðir, Jónína Brunnan. í dag kveðjum við með söknuði Óla bróður, eins og við ávallt kölluð- um hann. Minningin um hann er okk- ur ljúf og að hafa fengið að vera hon- um samferða er okkur mikils virði. Við höfum búið um árabil á erlendri grund í fjarlægu landi, en Óli var okkar sterkasti tengiliður við fjöl- skylduna hér heima á íslandi. Við vorum í nær daglegu sambandi við hann, hvert sem leiðir okkar lágu og þegar við vorum á ferð hér á landi var alltaf svo gott að koma til hans. Við áttum með honum ógleymanleg- ar stundir í sumarbústað fjölskyld- unnar og alltaf var tilhlökkunarefni að fá hann í heimsókn og upplifa með honum hin mörgu ferðalög, sem hann fór í, á myndakvöldum, þar sem hann útskýrði á lifandi hátt það sem fyrir augu hafði borið. Við áttum oft stundir með honum á ferðalögum hans um heiminn og þá kom vel í ljós hversu skipulagður hann var og hve vel hann naut hverrar líðandi stund- ar. Hann naut þess að vera til. Best var að fela honum stjórnina, því hann kom ávallt undirbúinn og hafði gert sína heimavinnu. Hann var einn þeirra sem lagði sig fram við að spila alltaf eftir leikreglum og honum var alltaf hægt að treysta. Vinnan var honum mikils virði og gaman var að kíkja við hjá honum á vaktina hjá Til- kynningaskyldunni og sjá ljómann í augunum þegar hann var að útskýra nýjustu tækni við þessa mikilvægu öryggisþjónustu sjómanna. Hann sá um okkar hagi hér heima á íslandi. Hjálpsemi og fómfýsi var honum í blóð borið. Eitt sinn kom hann til Lúxemborgar í sínu fríi gagngert til að aðstoða við stand- setningu á húsinu okkar, sem þá var á byggingarstigi. Þar nutum við hans fórnfýsi, dugnaðar og verklagni og okkur tókst að ljúka verkinu í tíma til að flytja inn áður en við þurftum að rýma gamla húsnæðið. Óli var vinm- argur, enda prúður í framkomu og með jafnaðargeð og gerði í því að halda tengslum við fólk. Þegar ljóst var á hvaða stig hans veikindi vora komin og hvert stefndi, var engin spurning að koma til íslands og leggja honum lið í hans hetjulegu baráttu við þann illvíga sjúkdóm, sem hafði heltekið hann. Það voru forréttindi að fá að vera með honum síðustu sex mánuðina, sem hann var hér með okkur. Baráttuviljinn, hetjulundin og æðruleysið mun llða okkur seint úr minni. Hann barðist fram á síðasta dag, þótt hann gerði sér fulla grein fyrir við hverju hann mætti búast. Hann lagði mikla áherslu á að prýða umhverfið í kring um sig og jafnframt að hafa öll sín mál á hreinu. Hann skipulagði loka- ferðina rétt eins og hann skipulagði allar sínar skemmtiferðir um heim- inn. Hann undirbjó allt og gerði sína heimavinnu. Fyrir réttum mánuði, sannaði hann enn sína hetjulund, er hann helsjúkur tók sér ferð á hendur austur á Homafjörð til að fylgja bróður sínum, Jóhanni, til hinstu hvílu og geta þá átt smátíma með móðir sinni á þeirri erfiðu stund í lífi fjölskyldunnar. Hann hafði alltaf eitthvað af sér að gefa. Þó við sökn- um hans mikið, viljum við þakka Guði fyrir þær stundir.sem við feng- um að njóta með honum. Við viljum koma á framfæri þakklæti til hans mörgu vina, samstarfsmanna á Til- kynningaskyldunni og Slysavarnafé- lagsins/Landsbjargar, lækna og hjúkrunarliðs á deild A 3-Lands- spítalans í Fossvogi og Líknardeild- ar í Kópavogi og ennfremur frábærr- ar þjónustu heimahlynningar Karitas fyrir þá aðstoð sem honum var veitt í hans veikindum fram á síð- asta dag. Guð blessi minningu hans. Heiða og Birgir. Það er skammt stórra högga á milli. Fyrir mánuði lést Jóhann Heið- ar Ársælsson langt um aldur fram og mánuði síðar laut bróðir hans og hetjan, Ólafur Guðjón Ársælsson, í lægra haldi fyrir illvígum sjúkdómi. Við sem eftir sitjum, harmi slegin, eigum erfitt með að skilja hversu mikið er lagt á aldraða móður og ást- vini. Ólafur Guðjón eða Óli frændi eins og ég kallaði hann var fæddur á Höfn í Hornafirði 25. júlí 1948. Hann var annar í röð fjögurra bærðra, sona Jónínu J. Brunnan og Ársæls Guð- jónssonar, útgerðarmanns á Höfn. Naut hann einstakrar bernsku á æskuheimili sínu, Sólbergi á Höfn. Ég var svo lánsöm að fá tækifæri til að kynnast frændum mínum vel, því Jónína frænka mín bauð mér marg- sinnis að dveljast hjá þeim. Það var ævintýri fyrir litla stúlku úr höfuð- staðnum að vera í Sólbergi. Ég minn- ist þess hversu kvíðin ég var þegar ég fór ein í flugvél í fyrsta skipti austur til þess að heimsækja frænd- fólk mitt. Ég kveið því að hitta strák- ana hennar. Kannski væru þeir eins og hrekkjusvínin í Reykjavík og svo var þarna fullt af ókunnu fólki. Kvíði minn reyndist óþarfur, því að strák- arnir þeirra Jónínu og Sæla, eins og pabbi þeirra var kallaður, tóku mér opnum örmum. Ég var eins og prins- essa, sem dekrað var við. Við Oli urð- um mestu mátar enda minnstur al- dursmunur á milli okkar. Hver dagur var ævintýri líkastur. Við fór- um á homsílaveiðar og komum heim rennvot og drullug upp fyrir haus. Við stálumst á gömlum árabát, Síðu- Halli, í kríueggjaleit. I hita leiksins gleymdum við okkur við eggjatínsl- una og fylltum öll flát af eggjum, þar á meðal austurstrogin. Munaði minnstu að báturinn sykki við Höfð- ann rétt utan við Sólberg, því ekki kom okkur til hugar að losa austurs- trogin, jafnvel þótt báturinn hálf- fylltist af sjó. Við vildum sýna hvað við höfðum tínt mörg egg. Húsráð- endur í Sólbergi tóku brúnaþungir á móti okkur við heimkomuna. Þeir höfðu reyndar sent leitai-flokk eftir okkur. En ekki vorum við skömmuð, heldur sett í heitt bað og stungið undir sæng, þar sem okkur var færð- ur matur í rúmið. Þetta heimili var einstakt að því leyti, að þarna bjuggu margar kynslóðir saman. Jón Brunn- an, afi Óla, bjó þama ásamt þremur systkinum sínum. Gamla fólkið naut ástríkis og umönnunar Jónínu og Sæla og í staðinn helgaði þetta elsku- lega fólk heimilinu krafta sína meðan líf og heilsa entist. Þarna skipuðu börnin öndvegis- sess og tóku þátt í gleði og sorgum hinna eldri. Ekkert kynslóðabil vai- þama til staðar og eldri kynslóðin lagði kapp á að fræða þá yngri með sögum sínum og láta bömin taka þátt í hinum daglegu störfum. Við Óli fór- um margar ferðir með Jóni afa hans að vitja um silunganet; var hann haf- sjór sagna og umvafði allt með hlýju sinni. Oli náði einstöku sambandi við gamla fólkið á heimilinu. Hann var alltaf tilbúinn að rétta því hjálpar- hönd og ræða við það. Afasystur hans dýrkuðu hann og vöktu yfir vel- ferð hans ásamt ástríkum foreldram. Ársæll, faðir hans, stundaði útgerð og féll aldrei verk úr hendi. Snemma beindist hugur Óla að hafinu, sem heillaði hann svo mjög. Fór hann ungur að aðstoða föður sinn. Móðir hans Jónína, vel gefin og glæsileg kona, las mikið og átti mjög auðvelt með að yrkja bæði í bundnu og óbundnu máli. Fylgdust þau hjónin vel með því sem var að gerast í um- heiminum og miðluðu af þekkingu sinni. Spunnust oft fjörlegar umræð- ur um menn og málefni sem allir tóku þátt í. Með þetta veganesti hélt Óli út í lífið. Hann lauk stýrimanns- prófi og gerðist stýrimaður á einum hvalveiðibátanna. Hann hafði unun af því að ferðast og einnig var ætt- fræðiáhugi hans mikill. En hann gleymdi aldrei að rækta samböndin við ættingja og vini og lét sér annt um alla. Hann reyndist foreldram sínum einstakur sonur og var alltaf tilbúinn að aðstoða ef eitthvað bját- aði á. Hann heimsótti vini og skyld- menni reglulega. Hann átti fallegt heimili í Reykjavík, sem hann var stöðugt að fegra og prýða. Eftir að hvalveiðar lögðust af hóf hann störf hjá Tilkynningaskyldunni og vann þar til hann var þrotinn að kröftum. Fyrir ári sagði hann mér frá því að hann væri búinn að fá sinn dauða- dóm, en hann væri ákveðinn að berj- ast til hins ýtrasta gegn hinum ógn; vekjandi sjúkdómi, krabbameininu. I baráttu sinni sýndi hann fádæma hetjulund, alltaf bjartsýnn og já- kvæður, þótt fárveikur væri. Naut hann sérstaki'ar umhyggju Heiðu, mágkonu sinnar. Meira af vilja en mætti fór hann austur til Hafnar í síðasta mánuði til þess að fylgja Jó- hanni, yngsta bróður sínum, til graf- ar. Þegar heim kom aftur var þrekið þorrið og kallið kom hinn 17. okt. Guð blessi elskulegan frænda og styrki Jónínu, móður hans, og ástvini alla í þessari miklu sorg. Megi hann hvíla í friði og hafi hann þökk fyrir vináttuna og hjálpsemina, sem hann sýndi okkur ollum. Ólafía Sveinsdóttir. Pau ljós sem skærast lýsa, þau Ijós sem skína glaðast, þauberamestabirtu, þau brenna líka hraðast. Og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur, en dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. (F.G.Þ.) Þessar ljóðlínur koma mér í hug, er ég minnist þín, Óli minn. Eitt það dýrmætasta, sem lifið færir okkur er sönn vinátta og hana áttir þú í svo ríkum mæli. Það kom best í ljós þeg- ar við misstum Trausta. Þá varst þú aðeins 33 ára og vildir allt fyrir okkur gera sem í mannlegu valdi stóð. Það gleymist aldrei. Þegar ég flutti úr Breiðagerði eftir tæp 50 ár varst þú fyrstur til þess að gleðjast með mér. Við ræddum um endurbætur á heim- ilum okkar, ég á mínum nýju heim- kynnum og þú á fallegu íbúðinni þinni á Brekkustígnum. Eftir að þú veiktist og varst bytjaður í lyfjameð- ferð sóttir þú mig á bílnum þínum til að sýna mér allt sem þú varst búinn að lagfæra heima hjá þér. Þú varst svo stoltur af nýju eldhúsinnrétting- unni þinni. Þú varst of máttfarinn til að koma upp í lyftunni og beiðst niðri eftir mér með bros á vör. Við fóram heim til þín og ég gladdist með þér, þegar ég sá hversu miklu þú hafðir komið í verk.. Síðast sáumst við á Líknardeildinni í Kópavogi daginn áður en kallið kom. Þú ætlaðii' heim á Brekkustíginn daginn eftir. Við hlið þér stóð hún Heiða, mágkona þín, eins og klettur í hafinu og vildi allt fyrir þig gera. Þú varst glaður og hlakkaðir til að fara heim. Þú náðir þessu markmiði þínu, en þá vora kraftamir á þrotum og þú kvaddir þennan heim. Þú áttir engan þinn líka. Ég þakka þér af heilum hug fyr- ir allt, sem þú gerðir fyrir okkur. Guð styrki mömmu þína, bræður og fjölskyldur þehra í þessari djúpu sorg. Þín frænka, Ester. Hinn 17. september 2000 dó einn frændi minn, Jóhann Heiðar Ársæls- son, og mánuði seinna deyr bróðir hans, Ölafur Guðjón Ársælsson, tveir af fjóram bræðram sem ólust upp á Sólbergi (Ránarslóð 12) Hornafirði hjá einu besta fólki sem ég hef kynnst. Þegar ég kom inn í fjölskyld- una árið 1986, þá átta ára, fékk ég að kynnast heiðarlegu, hjartagóðu og yndislegu fólki og þau tóku mér öll opnum örmum. Það var alltaf gott að koma á Austurbrautina í heimsókn og ekki síst þegar Óli frændi kom frá Reykjavík. Ein heimsóknin er mér ofarlega í huga, því þegar Óli var að fara aftur til Reykjavíkur fékk ég að fara með. Minningin er sú að hann átti rauðan bíl og lagið „Hæ,hó, jibbí, jei, það er kominn 17. júní“ gekk á spólu alla leiðina frá Hornafirði til Reykjavíkur (í glampandi sólskini) að minni ósk, en þegar við komum að Hornafjarðarfljóti, eða hossubrúnni eins og hún er kölluð, þá var fjör, Óli ÓLAFUR GUÐJÓN ÁRSÆLSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.