Morgunblaðið - 25.10.2000, Page 43

Morgunblaðið - 25.10.2000, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 43 + Úlfar Haraldsson fæddist á Óðins- götunni í Reykjavík 2. mars 1928. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi að morgni sunnudagsins 15. október síðastliðins. Hann var sonur hjón- anna Þórunnar Úlf- arsdóttur, f. 31. jan- úar 1903, d. 21. desember 1988 og Björns Haraldar Sig- fússonar, f. 19. júní 1899, d. 19. janúar 1931. Systkini hans eru: Njáll, f. 1926; Soffía, f. 1930, d. 1985; Birna, f. 1930, d. 1937 og hálfbróðir sammæðra Björn Har- aldur Sveinsson, f. 1940. Úlfar kvæntist 22. maí 1948, Ragnheiði Kristinsdóttur, f. 29. ágúst 1926. Foreldrar hennar voru Ásta Magnúsdóttir, f. 5. júlí 1899, d. 19. júní 1945 og Kristinn Ásgeir Kristjánsson, f. 6. maí 1897, d. 14. ajirfl 1972. Böm þeirra eru: 1) Asta, f. 1947, maki Kristinn Þ. Sig- urðsson, þeirra böm em: a) Ragn- heiður, gift Gísla Emi Kæmested, bam Anton Örn, b) Sigurður Yngvi í sambúð með Sunnu Snædal, bam Kristinn, c) Linda, Úlfar Haraldsson, félagi okkar og vinur, andaðist sunnudaginn 15. október síðastliðinn. Hann er far- inn heim. það er skarð fyrir skildi. Úlfar fæddist 2. mars 1928 og var því 72 ára þegar hann lést. Hann gerðist félagi í St. Georgs- gildinu í Hafnarfirði á árdögum þess. Hann var ávallt góður vinur og félagi, starfsamur, ósérhlífinn og heill í hverju verki. Við nutum þess, skátasystkini hans í Hafnar- fjarðargildinu. Úlfar gegndi mörgum og mikil- vægum trúnaðarstörfum fyrir okk- ur, var ómetanlegur aflgjafi í skálahópnum okkar góða og störf- um gildismeistara gegndi hann með miklum sóma, svo að eitthvað sé nefnt. Hann var glaður og reifur, bar oft með sér sólskinið til vina sinna. Hann var röskur til allra verka og þess nutum við félagar hans í gild- inu. Nú kveðjum við góðan dreng með söknuð í huga. Við þökkum honum samveruna og gengin spor í leik og í starfi. Við látum hugann líða til Aggíar, eiginkonu hans og skátasystur okkar, í hljóðri bæn til guðs og biðjum hann að styrkja hana í sorginni. Henni, börnum þeirra Úlfars og barnabörnum sendum við samúðarkveðjur. Minning um góðan og lífsglaðan dreng lifir og lýsir. Liðnir dagar líða um hugarsali, logar og vermir hugsun um skátabál. Hér er sem vinir einni tungu tali, tungu sem geymir liðinna stunda mál. Harpa er slegin, haustsins tónar óma, haustgult laufið fellur, þekur jðrð. Vinur er farinn heim með sæmd og sóma, sorgin er hlý - og vefur Hafnarfjðrð. Allt er hverfult, enginn náttstað ræður,- allt er geymt í drottins sterku hönd. Aldrei gleymast eldsins töfraglæður, aldrei slitna skátans bræðrabönd. Vinir kveðjast, vegir skilja að sinni, viðkvæm alltaf sérhver kveðjustund. Hugljúf geymist minningin í minni um mann sem sáttur gekk á guðs síns fund. (H.Z.) Vertu sæll Úlfar Haraldsson. - Góða ferð. Ásthildur Ólafsdóttir, gildismeistari St. Georgs- gildisins í Hafnarfirði. Okkur langar að kveðja Úlfar með þessum fátæklegu orðum. Honum kynntumst við fjölskyldan unnusti hennar er Þórður Reynisson. 2) Þórunn, f. 1950, maki Haraldur Þór Óla- son, þeirra synir eru a) Úlfar í sambúð með Margréti Stef- ánsdóttur, barn Þór- unn Birna, b) Þór, sonur hans er Kor- mákur Andri og unn- usta Guðlaug Elfa Ragnarsdóttir. 3) Ás- geir, f. 1958, maki Ina Skúladóttir, þeirra börn eru: a) Skúli, b) Hildur, c) Bjarki, fyrir átti Ásgeir Snorra Frey. Ulfar lærði netagerð hjá tengda- föður sínum og ráku þeir saman netagerð og gúmmíbátaþjónustu, hann var forstöðumaður Sundhall- ar Hafnarfjarðar þar til hann lét af störfúm sökum aldurs. Stundaði jafnframt ökukennslu frá árinu 1966 og fram á mitt þetta ár. Hann sat í stjóm og starfaði í Lánasjóði ökukennara, Iðnaðarmannafélagi Ilafnarfjarðar, St. Georgsgildinu og Lionsklúbbi Ilafnarfjarðar. Útför Úlfars fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. þegar þau hjónin Úlfar og Aggí fluttu að Álfaskeiði 92 fyrir 12 ár- um. Hann var alveg einstakt ljúf- menni og sérstaklega barngóður eins og börnin okkar, Lárus og Hulda, fengu að kynnast þessi ár ásamt öðrum börnum í stigahús- inu. Hann sýndi öllu í kringum sig áhuga, stóru sem smáu. Gaman var að fylgjast með þessum indælu hjónum, hversu samhent þau hafa gengið lífsins veg. Kæra Aggí og fjölskylda, sorg ykkar er mikil en minningin um þennan sómamann, hann Ulfar ykkar, mun ylja okkur um ókomin ár. Ásta J. Ágústsdóttir og fjölskylda. Fyrstu kynni mín af vini mínum Úlfari voru á meiraprófsnámskeiði bifreiðastjóra 1951. Þar komu strax í ljós góðir mannkostir hans, hversu traustur, hjálpsamur og skemmtilegur félagi hann var. Síðar lágu leiðir okkar saman við störf hjá Ökukennarafélagi Is- lans (Ö.Í.). Úlfar starfaði þar af miklum áhuga og var m.a. ritari Hjálparsjóðs ökukennara frá stofnun hans og þar til hann var lagður niður eða í yflr 25 ár. Er Svíar breyttu úr vinstri akstri yfir í hægri fórum við Úlfar ásamt konum með Ö.í. í kynnisferð ökukennara til Stokkhólms, Kaup- mannahafnar og London. í þessari ferð hófst vinátta okkar hjóna við þau Aggý og Úlfar, einlæg og sönn vináttasem hefur verið okkur Gógó mikils virði. Fyrir þremur áratugum síðan tóku þrír félagar úr St. Georgs- gildinu í Hafnarfirði að girða land gildisins kringum Skátalund við Hvaleyrarvatn. Fljótlega bættust þrír aðrir í hópinn er fékk nafnið „skálahópurinn". Hin síðari ár höf- um við félagarnir verið tíu talsins. Flesta sunnudagsmorgna, að sumrinu undanteknu, hefur verið drukkið saman morgunkaffi og síð- an farið í skálann okkar við Hval- eyrarvatn, unnið við girðingar, stækkun og breytingar á skálanum auk gróðursetningar. Úlfar var einn af þeim sem oftast mætti og var hann svo tillögugóður að í gamni var hann titlaður aðalhönn- uður hópsins. Þau hjónin Aggý og Úlfar áttu sumarbústað við Meðalfellsvatn og þangað komum við hjónin nokkuð oft, ein eða með skálahópnum og var bæði notalegt og skemmtilegt að sækja þau heim. Úlfar var afar skemmtilegur fé- lagi, glettinn og orðheppinn, traustur og mikill vinur vina sinna. Skálahópurinn og makar þeirra eiga góðar og dýrmætar minningar um Ulfar, hans verður sárt saknað. Þakklæti fyrir góða samfylgd er okkur efst í huga og biðjum við góðan Guð að gæta hans. Aggý, Ástu, Þórunni, Ásgeiri og fjölskyldum þeirra sendum við Gógó og Skálahópurinn innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð að veita þeim styrk í sorginni. Hver minning dýrmæt perla að iiðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi og gæfa var það öllum er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sig.) Ólafur K. Guðmundsson. Okkur systkinin langar að minn- ast Úlla eins og flestir kölluðu hann með nokkrum orðum. Úlli er eiginmaður móðursystur okkar, Aggýar. Úlli og Aggý voru mjög samrýnd hjón og gerðu nánast allt saman. Þau eiga þrjú börn, þau Þórunni, Ástu og Ásgeir, og stóran hóp barnabarna og barnabarna- barna. Og var hann mjög stoltur af að eiga allan þennan hóp. Við flutt- um í blokkina til þeirra á Álfa- skeiði fyrir fimm árum með móður okkar. Eftir það urðu tengslin meiri. Það voru nú ekki fá skiptin sem þau buðu okkur systkinunum í mat ef mamma var ekki heima. Úlli var yndislegur maður og erum við mjög þakklát að hafa fengið að kynnast honum. Hann var alltaf glaður og jákvæður. Hann kenndi okkur báðum á bíl og var hann mjög góður ökukennari. Minnis- stætt er að þegar farið var í prófið sagði prófdómarinn að ekki þyrfti maður að hafa áhyggjur af að falla ef maður hefði lært hjá Úlfari. Minningarnar eru margar og þökkum við þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Við vottum Aggý og öðrum að- standendum okkar dýpstu samúð. Við kveðjum þig með söknuðL Rósa og Júlíus. Fyrstu kynni mín af IJlfari Har- aldssyni voru þegar hópur öku- kennara fór 30. ágúst 1967 í kynn- isferð til Stokkhólms. Þátt- takendur í ferðinni voru 24 karlar og 10 konur. Var Úlfar í þessum hópi og eiginkona hans, Ragnheið- ur Kristinsdóttir. Aðaltilgangur ferðarinnar var að kynnast framkvæmd og undirbún- ingi Svía varðandi fyrirhugaðar umferðarbreytingar þar í landi frá vinstri yfir í hægri umferð sem ákveðin var 3. september kl. 15. Annar meginþáttur ferðarinnar var að heimsækja ökuskóla og fræðast um starfsemi þeirra. Flogið var til Gautaborgar, þar sem ekki var beint flug til Stokk- hólms. Á flugvellinum í Gautaborg tók á móti Úlfari og konu hans ung stúlka, dóttir þeirra sem þá dvald- ist í Svíþjóð og er mér þetta mjög minnisstætt. Eftir skamma dvöl á flugvellinum í Gautaborg var flogið til Stokkhólms, þar sem hópurinn gisti á KFUM-hótelinu „Þrír engl- ar“. Sænskir ökukennarar tóku af- ar vel á móti okkur og var þessi fimm daga heimsókn í Stokkhólmi lærdómsrík, skemmtileg og fróð- leg. Við heimsóttum sænska ökuk- ennarasambandið STR og ýmsa sænska ökuskóla. Höfðum skemmtikvöld á Bromma. Vorum boðin af borgarstjórn og STR í hið fagra ráðhús Stokkhólms. Á H-daginn var hópurinn stadd- ur á Selgergstorgi í miðbæ Stokk- hólms. Þar fylgdumst við með um- ferðarbreytingunum sem enn er í fersku minni. Strax á eftir var stig- ið upp í langferðabíla í boði STR ULFAR HARALDSSON og ekið um borgina í hægri um- ferð. Við sátum síðan kvöldverðarboð Olof Palme forsætisráðherra og umferðarnefndar í Wenner-Gren- Center. Við komum síðan á heimleið við í Danmörku þar sem ökuskólar og ökukennarar voru heimsóttir, bæði í Kaupmannahöfn og Hróarskeldu. Árið 1971 var stofnaður lána- sjóður innan ökukennarafélagsins og hlaut hann nafið Hjálparsjóður Ökukennarafélags íslands (HÖÍ). Kosið var í stjórn fyrir sjóðinn. Kosnir voru: Jón V. Sævaldsson, Birkir Skarphéðinsson, Úlfar Har- aldsson. Varastjórn: Guðmundur Þorsteinsson, Júlíus Halldórsson. Ákváðum við að stjórnarfundir sjóðsins yrðu haldnir á heimilum okkar til skiptis, og að eiginkonur okkar kæmu með okkur til að hitt- ast og ræða sín áhugamál og kynn- ast, meðan við í stjórninni ræddum lánamál sjóðsins, ökukennslu og umferðarmál. Áttum við eftir- minnilegar og góðar stundir á þessum fundum. Starfaði þessi sama stjórn í 26 ár eða til ársins 1997 þegar samþykkt var að hætta starfsemi sjóðsins og leggja hann niður. Ákváðum við að hittast áfram og koma saman eins og áð- ur, þessi fimm hjón, þrátt fyrir að búið væri að leggja starfsemi sjóðsins niður. Síðast hittumst við öll á heimili okkar hjóna 23. mars sl. hér í Hafnarfirði. Úlfar sem var lærður netagerð- armaður starfaði við þá iðn sína í mörg ár. Árið 1964 hóf hann að stunda ökukennslu og var hann af- ar vinsæll og afkastamikill ökuk- ennari. Síðasta ökunema sinn út- skrifaði hann síðastliðið sumar. Úlfar átti afar létt með að segja sögur og gamanmál í góðra vina hópi. Hann hafði ánægju af að ferðast, bæði innanlands og til út- landa. Þá dvaldi hann alltaf, þegar tími vannst til, í sumarbústað sín- um við Meðalfellsvatn. Nokkur hin síðari ár var haiMfer forstöðumaður í Sundhöll Hafnar- fjarðar, meðan heilsa leyfði, og dró þá verulega úr ökukennslunni. Ökukennarafélag íslands þakkar Úlfari samstarfið á liðnum árum og vottar eiginkonu hans samúð. Við Fanney kveðjum hann með virðingu og þökkum honum fyrir öll samstarfsárin. Ragnheiði, börnum og fjölskyld- um þeirra sendum við okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Jón Valdimar Sævaldsson. BARA SIGFÚSDÓTTIR Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri B blómaverkstæði INNA Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. I_______________:_____________ + Bára Sigfúsdótt- ir fæddist í Vog- um við Mývatn 5. október 1915. Hún lést á Fjórðung- ssjúkrahúsinu á Ak- ureyri 5. október síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Reykjahlíðarkirkju 20. október. Elsku Bára mín. Mig langar til að minnast þín sem góðrar konu og bestu vinkonu. Þótt al- dursmunurinn væri mikill varstu svo ung í anda. Þegar við fjölskyldan fluttumst til Reykjahlíðar eftir snjóflóðin á Flateyri 1995 bank- aðir þú létt á dymar hjá okkur í Birki- hrauni 9 og gekkst inn og bauðst okk- ur velkomin á nýjan stað. Upp frá þessu urðum við bestu vinkonm-. Mér fannst gott að eiga þig að á nýjum stað og gat alltaf leitað til þín ef ég þurfti. Því mun ég aldrei gleyma og mun varðveita í hjarta mínu. Móður minni, Geiru Helgadóttur, sem dvaldi oft hjá okkur í Reykjahlíð meðan við bjuggum þar, þótti mjög vænt um þig, Bára mín, enda urðuð þið fljótt góðar vinkonur. Ég bar mikla virðingu fyrir þér. Þú varst svo hlý og ráðagóð kona. Þegar við fjölskyldan fluttumst fi'á Reykjahlíð í janúar 1999 til Þórshafnar var missirinn mikill því hugur minn var svo oft hjá þér og þennan sama mánuð (jan. ’99) andað- ist móðir mín sem var mjög erfitt fyrir mig. Elsku hjartans Bára mín. Þú hefur skipaÍK sérstakan sess í lífi mínu og því mun ég ávallt sakna þín og þakka þér þann mikla auð sem þú skildir eftir. Þín besta vinkona, Katrín. I SÓLSTEIN AR ,u Nýbýla*eo. Wuiaragl Sími 564 4566 OSWALDS sími 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN U)A! .S'f’R/L 1 i 4H • 101 IUAKJAVIK m \Ó0\ Mb ' - ! Dnrí,> Inger Óhtfit. Otfi'ramj / 'tfarnistj. 1, 'tfumrstj. l ÍKi IS TUVINN LISTOFA I V VINDAR ARNASONAR 1899 Legsteinar Vönduð íslensk framleiðsla Fáið sendan myndalista MOSAIK Marmari Graníl Blágrýti Gabbró Líparít Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986 Jb'

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.