Morgunblaðið - 25.10.2000, Page 46

Morgunblaðið - 25.10.2000, Page 46
46 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Landsþing Ungra jafnaðarmanna Uppboðsleiðin á að vera meginreglan Ræddi um Ríó-ráðstefnuna á allsherjarþingi SÞ Ekki skal einblínt á það sem miður hefur farið UPPBOÐSLEIÐIN á að vera meg- inreglan við úthlutun takmarkaðra auðlinda í eigu þjóðarinnar, s.s. virkjanaleyfa og aflaheimilda. Þetta er skoðun Ungra jafnaðarmanna, -.sem héldu landsþing sitt um sl. helgi í Reykjavík. Ungir jafnaðarmenn telja ennfremur að uppboð skuli fara fram á fjarskiptarásum. Með þeim hætti fái þjóðin mest fyrir þessa tak- mörkuðu auðlind. Þá telja þeir að einkavæða beri Landssímann sem fyrst, en undanskilja verði þó grunn- netið sem áfram verði í þjóðareigu. Segir í ályktun um fjarskiptamál að nauðsynlegt sé að allir landsmenn hafí greiðan aðgang að upplýsinga- hraðbrautinni. A þinginu var Katrín Júlíusdóttir kjörin formaður UJ, en hún gegndi stöðu varaformanns á fyrsta starfsári samtakanna. Vara- formaður var kjörinn Ágúst Ágústs- son. Rás 2 verði lögð niður Fjölmargar ályktanir voru sam- þykktar á landsþingu, t.d. um sam- göngumál, velferðarmál, fjármál stjórnmálaflokkanna, menntamál og jafnréttis- og fjölskyldumál. í ályktun um ríkisfjölmiðla lýsa ungir jafnaðarmenn þeirri skoðun sinni að ríkið leggi niður Rás 2, enda eigi ríkisvaldið ekki að halda úti af- þreyingarútvarpsstöð. Hins vegar vilja þeir halda Ríkisútvarpinu og Ríkissjónvarpinu áfram í eigu þjóð- ■ arinnar þar sem það gegni ákveðnu menningar- og öryggishlutverki. Rás 1 og Sjónvarpið eiga þó að rækta fræðslu- og fréttahlutverk sín af meiri metnaði en hingað til hefur verið gert. Ungir jafnaðarmenn vilja fella niður afnotagjöld og fjármagna starfsemi ríkisfjölmiðlanna heldur af fjárlögum. Þá telja þeir óeðlilegt að RÚV sé í samkeppni við einkaaðila um auglýsingatekjur og kostun framleiðslu. í ályktun um öryggis- og friðar- mál var lýst yfír stuðningi við áfram- haldandi veru Islands í Atlantshafs- bandalaginu (NATO). Þar segir að reynsla undanfarinna tíu ára hafí sýnt að þrátt fyrir að Evrópa sé að ganga inn í eitt friðsamasta timabil álfunnar frá upphafi sé einungis ein leið til að tryggja að friður og áfram- haldandi samvinna milli fyrrverandi andstæðinga í heimsstjómmálum haldi áfram. „Með auknu samstarfi við ríki ut- an bandalagsins og inntöku nýrra leitast NATO við að eyða blokka- skiptingu í álfunni þar sem fyrrver- andi andstæðingar á tímum kalda stríðsins elduðu margoft grátt silf- ur,“ segir í ályktuninni og ennfremur að með breyttu hlutverki NATO á nýjum tímum hafi aldrei verið brýnna íyrir íslensku þjóðina að láta sitt ekki eftir liggja við hvort sem er friðargæslu í ríkjum fyrrverandi Júgóslavíu eða með samstarfi við þjóðir Austur-Evrópu. Aðild okkar að NATO hafi styrkt stöðu íslands á sameiginlegum vettvangi í friðarum- ræðunni og tryggir að rödd okkar í alþjóðsamfélaginu muni heyrast, eins og það er orðað. Jafnræði að náttúru- auðlindum þjóðarinnar í ályktun UJ um sjávarútvegsmál er lýst vilja til þess að eignarhald þjóðarínnar á sameiginlegum nátt- úruauðlindum hennar verði tryggt í stjómarskrá og tekið verði sann- gjamt gjald fyrir afnot af þeim. „Náttúraauðlindir Islands til lands og sjávar era sameign lands- manna. Þeim á ekki að úthluta til fá- einna einstaklinga til varanlegra eigna. Tryggja þarf jafnræði þjóðar- innar að auðlindum sínum. Óréttlæt- ið blasir við í sjávarútvegskerfi ís- lendinga. Ungir jafnaðarmenn vilja ekki gjafakvótakerfi." Þá segir að UJ telji að uppboðs- leiðin eða fyrningarleiðin sé farsæl- ust innan sjávarútvegsins. Það sé markaðslausn sem leiði til þess að útgerðin greiði sitt eigið mat á verð- mæti aflaheimildanna í auðlinda- gjald. Þannig komi leiðin í veg fyrir að gjaldið verði hærra en það sem út- gerðin ráði við, því gera megi ráð fyrir að útgerðin bjóði ekki meira en hún ræður við. Þá komi uppboðsleið- in einnig í veg fyrir að misvitrir stjómmálamenn ákvarði gjald sem er langt undir eða yfir raunveralegu verðmæti aflaheimildanna. Upp- boðsleiðin opni sömuleiðis fyrir ný- liðun í greininni, en það sé eitthvað sem fast veiðileyfagjald geri ekki. „Það er óþolandi að heil atvinnu- grein skuli þurfa að þola þá gífurlegu óvissu sem er um framtíð sjávarút- vegsins. Hins vegar snýst deilan um sjávarútvegsmálin um að eignarhald hennar sé tryggt í stjómarská og þjóðin fái arð af þjóðareigninni en sátt mun ekki fást fyrr en aflaheim- ildir lúta uppboðsleiðinni," segir ennfremur í ályktuninni. ÞORSTEINN Ingólfsson sendi- herra, fastafulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, lagði áherslu á að menn einblíndu ekki á það sem miður hefði farið við framkvæmd Ríó-samþykktanna heldur fyndu leiðir til lausna á umhverfisvandan- um í ræðu á allsherjarþingi SÞ í síðustu viku. í ræðunni fjallaði fastafulltrúinn um undirbúning ráðstefnu sem halda á árið 2002 í tilefni 10 ára af- mælis Ríó-ráðstefnunnar um um- hverfi og þróun. Þorsteinn sagði mörg dæmi um góðan árangur og lagði til að á ráðstefnunni yrði lögð áhersla á tengsl fátæktar og um- hverfismála, vemd lífríkisins og leiðir til að auka hagvöxt og lífs- gæði án þess að auka álag á um- hverfi og auðlindir. Aðstoð félagasamtaka nauðsynleg Þorsteinn flutti aðra ræðu á alls- herjarþinginu og fjallaði hún um kynþáttamisrétti. Lýsti hann full- um stuðningi íslenskra stjórnvalda KHINTHITSA kennari í tai chi heldur námskeið fyrir byrjendur og lengra komna dagana 25.-30. októ- ber í húsnæði Styrktarfélags lam- aðra og fatlaðra, Háaleitisbraut 11- 13. við störf sérstaks fulltrúa mann- réttindaráðs SÞ gegn kynþáttamis- rétti og útlendingahatri. Hann fagnaði ákvörðun allsherjarþings- ins um að halda alþjóðaráðstefnu gegn kynþáttahatri og kynþátta- misrétti í Suður-Afríku næsta haust. Hann kvað íslensk stjórnvöld fordæma hvers kyns notkun verald- arvefjarins til að útbreiða kynþátta- hatur eða stuðla að ofbeldi. Hann taldi áhrifamátt fjölmiðla mikinn og að baráttan gegn kynþáttahatri og kynþáttamisrétti yrði ekki unnin án aðstoðar frjálsra félagasamtaka og einstaklinga. LEIÐRÉTT í LEIKDÓMI um Bangsimon í blaðinu í gær var rangt farið með nafn ljósahönnuðar sýn- ingarinnar, en hann heitir Sverrir Rristjánsson. Beðist er velvirðingar á þessu. Khinthitsa kennir einfaldar gran- næfingar sem heita Reeling silk og 19 skrefa form Chen Xioawang, seg- ir í fréttatilkynningu. Námskeiðið hefst í dag, miðviku- daginn 25. október. kl. 18. Námskeið í Tai chi Félag háskólakvenna „Að njóta leiklistar" Námskeið í samstarfi við Fljúgandi fiska hefst fimmtudaginn 2. nóvember. Fjallað verður um gríska harmleikinn Medeu eftir Evrípídes. Fyrirlestrar um gríska menningu, gríska goðafræði, grískt leikhús til forna. Fjallað um mis- munandi túlkun Medea sögunnar í óper- um, leikbókmenntum og kvikmyndum. Fyrirlestur um sálfræði með skýrskotun í verkið. Farið á æfingar og sýningu og í lokin verða pallborðsumræður með grískum mat. Stjórnandi námskeiðsins er dr. Jón Viðar Jónsson, leikhúsfræðingur. Frumsýning Medeu verður 17. nóvember. Innritun og upplýsingar hjá Geirlaugu Þorvalds- dóttur, formanni félagsins, í síma 899 3746. HEFLSUSETUR ÞÓRGUNNU Hómópatía — blóma- dropar Hagnýtt byrjendanámskeið helgina 28.-29. október í Heilsusetri Þórgunnu í Skipholti 50C. *Upplýsingar og skráning í síma 897 1909. TIL SOLU I I I Tilboð óskast í eftirfarandi: Rennibekkur Harrison M 300. Bekkurinn er til sýnis í Austurbæjarskóla við Vitastíg, Reykjavík. Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Austurbæj- arskóla í síma 561 2680. Tilboðum skal skila fyrir kl. 16:15 þann 3. nóvember 2000 í afgreiðslu Innkaupastofnun- ar Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, R. í um- slögum merktum „Tilboð - Rennibekkur". INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríklrkjuvegi 3 -101 Reykajvík - Sími 570 5800 - Fax 562 2616 www.reykjavik.is/innkaupastofnun - Netfang: isr@rhus.rvk.is I I UPPBOÐ Listmunir Erum að taka á móti verkum á næsta listmuna- uppboð. Höfum ávallt kaupendur að góðum verkum gömlu meistaranna. Fyrir viðskiptavini leitum við að verkum eftir Þórarin B. Þorláksson, Jón Stefánsson, Ásgrím Jónsson, Kristínu Jónsdóttur, Nínu Tryggva- dóttur, Kjarval, Þorvald Skúlason, Gunnlaug Scheving og Gunnlaug Blöndal. ííl ÍÍ Gallerí Fold, bIÍ il Rauðarárstíg 14—16, Hui^AtLERTl sími 551 0400. SMAAUGLYSINGAR TILKYNNIN6AR Sálarrannsóknarfélag íslands Sálarrannsókn- arfélagið Sáló 1918-2000, Garðastræti 8, Reykjavík Leiðin til hins andleaa Sunnudaginn 29. okt. og laugardaginn 4. nóv. heldur breski miöillinn Ron Jordan námskeið á vegum Sálarrann- sóknarfélags íslands. Hann nefn- ir námskeiðið „Pathways to spi- rit" eða „Leiðin til hins and- lega". Þar tekur hann fyrir mismunandi skynjanir, árur, líti, orkusvið og leiðbeinend- ur. Einnig verður farið í hug- leiðslu. Námskeiðin verða haldin í Garðastræti 8 frá kl. 10.30 til 17.30. Verð kr. 5.000, og innifalið súpa og brauð í hádegishléi. Inn- ritun í síma 551 8130 og á skrif- stofunni milli kl. 9.00 og 15.00 virka daga. Takmarkaður þátt- takendafjöldi. Ath. Vinsamlega bókið ykkur sem allra fyrst vegna mikillar eftirspurnar. Ron Jordan hefur starfað að andlegum málefnum í 29 ár, m.a. sem kennari við Arthur Findlay College í Stansted. Hann starfar einnig á vegum Sálar- rannsóknarfélags Bretlands (The Spiritual Associaciton of Great Brittain) í London. Hægt verður að fá einkatíma hjá Ron frá 24. október til 7. nóvem- ber. Eiginkona hans, Elain Jord- an, starfar hjá félaginu á sama tímabili. Hún hefur langa reynslu sem heilari og býður Islending- um heilun, endurgjaldslaust, eft- ir því sem tími hennar leyfir. Skrifstofusími og símsvari 551 8130 (561 8130). Netfang: srfi@simnet.is. SRFÍ. FÉLAGSLÍF ÉSAMBAND ÍSLEN2KRA ____> KRISTNIBOÐSFÉLAGA Samkoma í Kristniboðssaln- um, Háaleitisbraut 58, í kvöld kl. 20.30. RAFIKI, hópur ungra Kenýafara, sór um efni samkomunnar. Allir hjartanlega velkomnir. Netfang http://sik.is Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. □ HELGAFELL 6000102519 VI I.O.O.F. 9 s 18110258% =9.0. I.O.O.F. 7 = 181102581/2 = 9.I. □ GLITNIR 6000102519 III I.O.O.F. 18 = 1811025 [ F1.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.