Morgunblaðið - 25.10.2000, Síða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
PETTA ER HANN GUTTIFRÆNDI
MINN. HANN ÓK MEÐ
SPRENGIEFNI
Hundalíf
Eins og bensínverðið er í
dag gæti maður haldið að
hann gleddist...
A.faAW'L'rt’.
Ljóska
ES ÆTLA At> FA STORAN, SAFARIKAN
HAMBORSARA MEt) OSTI - í DÚNMJÚKU
BRAUDIÚR
Ferdinand
Þú ert heppinn þú getur flogið.. Ja, nei..
Efég væriþú, þá flygi ég frjáls ekkiefmanni
um heiminn! líkar illa að ferðast..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
N ey ðargetnað-
arvörn er ekki
fóstureyðing
Frá Reyni T. Geirssyni:
í MORGUNBLAÐINU sl. laugar-
dag, 21.10., er ágætur „viðhorfs“-
pistill sem Hanna Katrín Friðriksson
ritar um þá sérkennilegu umræðu
um fóstureyðingar og rétt kvenna
sem næstum alltaf verður hluti af
kosningabaráttu frambjóðenda til
forseta í Bandaríkjunum. Pistillinn
heitir „Pillan umdeilda". í þessum
skrifum gætir þess misskilnings að
svonefnd neyðargetnaðarvöm sé ein-
hverskonar fóstureyðing. Svo er alls
ekki.
Neyðargetnaðarvörnin felst í
stuttvarandi hormónatöku sem er
einkum ætlað að koma í veg fyrir
egglos. Þetta er aðalverkunin. Hér er
fyrst og fremst verið að koma í veg
fyrir þungun, en ekki framkalla fóst-
ureyðingu. Það myndast ekki fóstur.
Aukalega verður slímhúð legsins
óhagstæðari bólfestu eggs og ef
neyðargetnaðarvöm er tekin nálægt
væntanlegum tíðablæðingum, hefjast
blæðingar. Ef egg frjóvgaðist samt
sem áður, þá mundi það líklega ekki
festast, heldm- leysast upp og hverfa
með tíðablóði, eins og gerist við mjög
margar náttúrulegar frjóvganir og
við egglos þegar ekki verður frjóvg-
un. Að kalla þetta „fóstureyðingu"
væri meira en langsótt. Meirihluti
náttúrulegra fijóvgana verður aldrei
að bami og þetta er alveg sambæri-
legt. Andstæðingar þess að konur
geti átt völ á fóstureyðingu sem neyð-
arúrræði hafa hinsvegar reynt að
sverta neyðargetnaðarvörnina með
því að halda fram tvennum ósannind-
um, þ.e.a.s. að neyðargetnaðarvömin
sé fóstureyðing og með henni sé
hvatt til óábyrgrar kynlífshegðunar
og lauslætis. Erlendar rannsóknir
hafa ljóslega sýnt að hvomgt er rétt.
Þó neyðargetnaðarvörnin sé ein
allra ömggasta lyfjataka sem völ er
á, mun betri en parasetamól eða
magnýl, þá misnota konur hana ekki
og hefja oftast notkun góðra getnað-
arvama, eins og pillunnar, í kjölfar
þess að þurfa að taka neyðargetnað-
arvörn.
Að koma í veg fyrir þungun er að
sjálfsögðu margfalt betra en að fram-
kvæma fóstureyðingu. Hér á landi
era alltof margar óvelkomnar þung-
anir, einkum hjá unglingsstúlkum.
Neyðargetnaðarvöm er viðbótarúr-
ræði til að hamla gegn því. Eitthvað
verður að hafa, því fólk sem er byrjað
á kynlífi hættir því ekki svo glatt aft-
ur. Náttúran er söm við sig. Sem bet-
ur fer er notkun neyðargetnaðar-
varnar að aukast hér á landi og
aðgengi að henni að batna með
ábyrgum hætti.
REYNIR TÓMAS GEIRSSON,
læknir.
Olympíuleikar
fatlaðra
Frá Völn Guðmundsdóttur:
ÉG VAR gráti næst, komið var fram
yfir miðnætti föstudagskvöldið 20.
október. Ég hafði sett mig í stellingar
til að horfa á útsendingu frá Ólympíu-
leikum fatlaðra þar sem félagar mínir
og vinir úr sundinu em nú að keppa.
Eg vonaðist til að sjá keppni Kristín-
ar Rósar og Gunnars Arnar í 200 m
fjórsundi og 100 m bringusundi.
Skemmst er frá því að segja að
ekkert var sýnt frá þeirra keppni þó
að Kristín lenti í þriðja sæti og Gunn-
ar í því tíunda. Hvemig er það með
okkur fatlaða, eram við annars flokks
fólk í samfélaginu? Er það ekki
stefna stjómvalda að allir skuli vera
jafnir í samfélaginu og á rikissjón-
varpið ekki að fylgja þeirri reglu sér-
staklega. Eram við kannski svona
miklu lakari söluvara en þeir heil-
brigðu, fylgja okkur kannski færri
auglýsingar en hinum?
Hvað með afnotagjöldin sem allir
landsmenn borga jafnt?
Ég undinituð fer fram á það að
forráðamenn sjónvarpsins geri grein
fyrir því hvers vegna við fáum ekki að
sjá okkar afreksmenn á Ólympíuleik-
um fatlaðra.
VALA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skólagerði 21, Kópavogi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Sérmerktar
gjafavörur
r
Okeypis
bæklingur
íslenski Postlistinn
sírni 557 1960
www.postlistinn.is