Morgunblaðið - 25.10.2000, Blaðsíða 64
Heimavörn
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJmBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Kristín
Rós vann
. gullverð-
laun
KRISTÍN Rós Hákonardóttir,
sundkona úr Reykjavik, fagnaði
sigri í 100 m bringusundi á Ól-
ympíumóti fatlaðra í Sidney í
gær. Hún gerði sér Iítið fyrir og
bætti eigið heimsmet um tæpar
tvær sekúndur þegar hún synti á
tímanum 1.35,64 mín.
Kristín Rós hafði mikla yfir-
burði í sundinu en næsti keppandi
kom í mark rúmum 15 sekúndum
á eftir henni.
Gullverðlaun Kristínar Rósar
jVoru áttundu verðlaun hennar á
'Tilympíumóti en hún keppti bæði í
Barcelona 1992 og Atlanta 1996.
■ Kristín Rós/Cl
Guðmundur Hauksson
um breytingu
sparisjóða í hlutafélög
jGetur orðið
sparisjóð-
um mikil
lyftistöng
GUÐMUNDUR Hauksson, for-
maður Sambands íslenskra spari-
sjóða, er þeirrar skoðunar að til-
lögur sem fram koma í
frumvarpsdrögum um að heimilt
verði að breyta rekstrarformi
sparisjóða í hlutafélög geti orðið
sparisjóðunum mikil lyftistöng.
Guðmundur á sæti í nefnd við-
skiptaráðherra sem samdi frum-
varpsdrögin. Hann segir að þessar
hugmyndir haíi enn ekki verið mik-
ið ræddar á vettvangi sparisjóð-
anna og ítarleg umræða þurfi að
fara fram um þær á næstunni.
Sparisjóðirnir eru í dag í
talsvert lokuðu umhverfi
„Það er engin ein aðferð sem
leysir alla hluti. Þessi leið sem við
erum þarna að benda á hefur verið
reynd í Danmörku og fleiri löndum.
Eg tel að það sem fyrst og fremst
liggur til grundvallar þessari leið
er að sparisjóðirnir eru í dag í tals-
vert lokuðu umhverfi. Ef þeir þurfa
að sækja sér meira eigið fé inn á
^markaðinn er það mín persónulega
sannfæring að hlutabréfaformið sé
skynsamlegasta leiðin,“ segir hann.
■ Stofnfjáreigendur/10
J
Kristín Rós Hákonardóttir vann til gullverðlauna í 100 m bringusundi á Ólympíumóti fatlaðra í Sydney í gær.
Lúsin
stingur
sér niður
í grunn-
skólunum
LUS hefur stungið sér niður í
gnmnskólunum í Reykjavík.
Guðrún A. Sigurgeirsdóttir,
hjúkrunarfræðingur í Austur-
bæjarskóla, segir að lúsar hafi
orðið vart í skólanum og komi
hún í raun frekar seint upp
miðað við marga aðra skóla.
Hún segir að lúsin sé orðin ár-
viss plága og fari ekki í mann-
greinarálit.
Sem dæmi um það nefnir hún
að lúsinni líði best í hreinu hári.
Lúsin smitast við beina snert-
ingu og einnig með greiðum,
burstum og höfuðfatnaði.
Nauðsynlegt er að kemba hár
allra í hverjum bekk þar sem
lús hefur komið upp og sömu-
leiðis fjölskyldna allra í bekkn-
um. Þvo þarf rúmföt og viðra
sængur. Einnig má setja fatnað
í plastpoka og frysta hann. Lús-
in drepst á 30 mínútum í 50
gráðu hita og nitin á einni
klukkustund. Lúsin drepst á 30
mínútum við 20 gráðu frost og
nitin á 4 klukkustundum við
sarna hitastig.
í apótekum fæst hárþvotta-
lögur sem drepur lúsina og þar
er einnig hægt að fá upplýsing-
ar um hvernig best verður ráð-
ið við þennan leiða gest.
Ríkið greiðir framhaldsskólakennurum ekki full laun um mánaðamótin
Kennarar fá aðeins
laun til 7. nóvember
Neikvætt innleg, að mati kennara
RÍKIÐ hefur ákveðið að greiða
framhaldsskólakennurunum sem
eru á fyrirframgreiddu kaupi laun
um næstu mánaðamót sem svara til
sjö daga vinnu en kennarar hafa
boðað verkfall 7. nóvember hafi
samningar ekki tekist fyrir þann
tíma. Að sögn Gunnars Björnsson-
ar, formanns launanefndar ríkisins,
er þetta í samræmi við þá fram-
kvæmd sem ríkið hefur viðhaft þeg-
ar starfsmenn þess hafa boðað verk-
fall.
Gunnar sagði að þorri framhalds-
skólakennara væri á fyrirfram-
greiddum launum og þeir fengju því
aðeins greidd laun fyrir sjö daga um
næstu mánaðamót. „Mál af þessum
toga hafa einu sinni eða tvisvar farið
til Félagsdóms og þar hefur dómur-
inn staðfest að þegar fyrir lægi
verkfallsboðun og sýnt væri að
samningar væru ekki að takast væri
ríkinu stætt á að greiða ekki laun
fyrir fram. Raunar taldi dómurinn
að ríkinu bæri nánast skylda til að
haga málum með þeim hætti,“ sagði
Gunnar.
Gunnar sagði að þetta ætti þess
vegna ekki að þurfa að koma kenn-
urum á óvart.
„Við h'tum á þetta sem mjög nei-
kvætt innlegg í samningaviðræð-
umar. í þessu felst ákveðin yfir-
lýsing. Við bendum á að þó að ríkinu
kunni að vera stætt á að haga mál-
um með þessum hætti þá er þetta
ekkert sem ríkið verður að gera
samkvæmt lögum. Þetta er eitthvað
sem fjármálaráðherra hefur ákveðið
að gera,“ sagði Elna Katrín Jóns-
dóttir, formaður Félags framhalds-
skólakennara. Hún sagðist vilja
vekja athygli á því að þessi ákvörð-
un væri tekin hálfum mánuði fyrir
boðaða vinnustöðvun. Menn hlytu
að spyrja sig hvort hún bæri vott
um samningsvilja af hálfu ríkisins.
Samninganefndir ríkisins og
framhaldsskólakennara sátu á ,
samningafundi hjá ríkissáttasemj-
ara í gær og er nýr fundur boðaður í
dag. Gunnar sagði að menn væru að
ræða málin og leita að samnings-
fleti. Engin sérstök tíðindi væru af
síðustu fundum.
r
I
Bónus fyrír
korthafa
Nú getur þú greitt með EUROCARD
og MasterCard greiðstukortum f Bónusí
Samið um ýmis réttindi
opinberra starfsmanna
ALMENN ánægja er ríkjandi með
samkomulag um ýmis réttindi opin-
berra starfsmanna sem Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja, Bandalag
háskólamanna og Kennarasamband
íslands gerðu í gær við ríkissjóð,
launanefnd sveitarfélaga og Reykja-
víkurborg.
Höfðu viðræður um réttindamálin
þá staðið yfir í eitt og hálft ár meira
og minna. Þannig telur Geir Haarde
fjármálaráðherra samkomulagið
mikið fagnaðarefni og það slái ágæt-
an tón fyrir komandi kjaraviðræður
við einstök félög opinberra starfs-
manna. I svipaðan streng tekur for-
maður BHM, Björk Vilhelmsdóttir.
Samkomulagið nær til nærri 30
þúsund manns, eða tæplega þriðj-
ungs launþega í landinu. Þar er
kveðið á um ýmis ný réttindi til veik-
inda- og fæðingarorlofs auk þess
sem stofna á sérstakan fjölskyldu-
og styrktarsjóð sem er ígildi sjúkra-
sjóðs á almennum vinnumarkaði.
■ Samkomulaginu fagnað/11