Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Verðlaunatillaga að nýju hverfí á Hrólfsskálamelum á Seltjarnarnesi Gert ráð fyrir um 7 0 íbúðum í blandaðri byggð ÚRSLIT í skipulagssamkeppni um byggð á Hrólfsskálamelum á Sel- tjamarnesi voru gerð kunn í gær. f tillögunni sem vann til 1. verðlauna er gert ráð fyrir sex hæða fjölbýlis- húsi við Kirkjubraut og tveimur fimm hæða fjölbýlishúsum sunnan Mýrarhúsaskóla. Við Suðurströnd verða þriggja hæða raðhús en á miðju svæðinu leikskóli og einbýlis- og parhús. Samkv. tillögunni verða um 70 íbúðir f húsunum. I niður- stöðum dómnefndar segir að meðal- stærð íbúða sé nokkuð há og að fjölga mætti meðalstórum og minni íbúðum að einhverju leyti á kostnað hinna stærstu. Verðlaunaféð var 1,7 milljónir króna. Sigurgeir Sigurðsson, bæjarsfjóri Seltjarnamess segir að fram- kvæmdir við byggingarnar ættu að geta hafíst innan tveggja ára. Garður í miðju svæðisins Hrólfsskálamelur er síðasta svæði á Selfjarnarnesi sem skipu- lagt er sem íbúðar- og þjónustu- hverfí. Húsin sem nú standa á Hrólfsskálamelum em gamla Is- bjamarhúsið, Iíkamsræktarstöðin Ræktin og verslun Bónuss. Sigur- geir Sigurðsson, bæjarstjóri segir líklegt að fyrst verði byggt á vestur- hluta svæðisins. í tillögunni er gert ráð fyrir tveimur görðum í austur- og vestur- hluta svæðisins. Garðamir verða tengdir með göngu og hjólreiða- stígum sem liggja þvert yfir svæðið. Fráþessum stígum liggja minni stfgar að íbúðarbyggðinni og smærri görðum við húsin. Guðrún Sigurðardóttir sem er einn af höf- undum tillögunnar segir að garð- arnir í miðju svæðisins verði teikn- aðir hver fyrir sig. „Ef þú gengur úti á nesi er mikið um göngustíga og þú getur farið í kringum um ein- býlishús og þar em leynigarðar hér og þar. Við hugsuðum þessa garða sem svolítið sérhannaða," segir Guðrún. Blönduð byggð fjölbýlis- húsa og raðhúsa í tillögunni segir að sömu bygg- ingarefnin verði notuð í öll húsin til að ná fram heildarmynd á hverfið. Efstu hæðir fjölbýlishúss við Kirkju- braut verða klæddar utan með tré og einnig stigagangar og efsta hæð fjölbýlishúss nyrst í hverfinu. Sams Morgunblaðið/Jim Smart Höfundar verðlaunatillögunnar eru arkitektamir Nicholas Guichet, Fiona Meierhans, Laurent Bonthonneau og Guðrún Sigurðardóttir. konar tréklæðning verður einnig á framhlið raðhúsa við Suðurströnd. Við Suðurströnd munu rísa sjö raðhús sem byggð verða á pöllum en hæð húsanna samsvarar þremur hæðum. Neðsta hæðin er ætluð fyrir vinnustofur eða verslanir. Gengið er inn f húsin frá innri Suðurströnd en inngangurinn verður nokkm hærri en götuhæð. Á jarðhæð og í kjallara vestur- raðhússins er gert ráð fyrir þjón- ustumiðstöð, t.d. lfkamsræktarstöð. Höfundar verðlaunatillögunnar gera ráð fyrir Iágreistri byggð, sér- býlis- og tvíbýlishúsa, „frjálslegum að formi og stærð", í miðju svæðis- ins eins og segir í tillögunni. Þar er einnig gert ráð fyrir leikskóla. Tillagan gerir ráð fyrir að við Kirkjubraut muni rísa sex hæða fjölbýlishús með 28 íbúðum. Á jarð- hæðinni verða fjórar íbúðir en á 2., 3., og 4. hæð verða sex íbúðir á hverri hæð. Allar þessar íbúðir hafa útsýn til austurs og suðvesturs. Á 5. og 6. hæð verða sex tvflyftar glæsi- fliúðir. í fjölbýlishúsunum sunnan Mýrarhúsaskóla rísa tvö fimm hæða fjölbýlishús, samtals með 28 íbúð- um. Ibúðir á efstu hæðum verða tvflyftar. Bflastæði fyrir húsin verða jafnt ofan- sem neðanjarðar en gert er ráð fyrir að innkeyrslumar verði í úfjaðri byggðarinnar. Bflastæði of- anjarðar verða hönnuð með lágt hlöðnum veggjum og gróðri. Ema Nielsen, bæjarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar Sel- tjamamess var formaður dóm- nefndar. „Þessi samkeppni skiptir okkur afskaplega miklu máli. Svæð- ið stendur hátt og blasir við þegar komið er inn á nesið. Það skiptir höfuðmáli að vel verði vandað til og ég er mjög ánægð með niðurstöð- urnar,“ segir Erna. Seltjarnar- nesskaupstaður á bæði landið og húsin þar sem byggingamar eiga að rísa. Þegar hefur verið hafist handa við að rífa gamla Isbjamarhúsið en leigusamningur annarra húsa renn- ur út árið 2006. Hið nýja hverfi mun standa hátt og þaðan verður því góð útsýn. Deiliskipulag fyrir stjórnarráðsreit í Reykjavík langt komið Flest ráðu- neytin verði á sama stað ’>!#% * ÖLLUM ráðuneytum stjórnarráðs- ins nema forsætisráðuneyti og utan- ríkisráðuneyti verður á næstu árum komið fyrir á svonefndum stjómar- ráðsreit eða Arnarhvolstorfu í Reykjavík. Fyrstu ráðuneytin til að flytja á þennan reit verða heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytið og umhverfisráðuneytið. Verður það á næstu tveimur árum. Reiturinn markast af Ingólfs- stræti og Klapparstíg í vestri og austri og Skúlagötu og Lindargötu í norðri og suðri. Þar er sem kunnugt er þegar fyrir aðsetur ráðuneyta, t.d. í Arnarhvoli þar sem eru fjármálaráðuneyti, iðnaðar- og við- skiptaráðuneyti, dóms- og kirkju- málaráðuneyti og síðan mennta- málaráðuneytið, sem er í öðru húsi, landbúnaðarráðuneytið við Sölv- hólsgötu og sjávarútvegsráðuneytið sem er í sama húsi og Hafrann- sóknastofnun, gamla útvarpshúsinu. Á þessum reit eru einnig Hagstofan, Ríkisfjárhirslan og Ríkisbókhald. Deiliskipulag á Ieið til skipulagsyfirvalda „Meginmarkmiðið er að í framtíð- inni verði öll ráðuneytin nema utan- ríkisráðuneytið og forsætisráðu- neytið á þessum reit,“ segir Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri forsæt- isráðuneytis, en hann kveðst ekki geta sagt um í hversu náinni framtíð þetta yrði. „Deiliskipulag fyrir reit- inn er að miklu leyti tilbúið þótt ekki hafi verið gengið frá því formlega og verður sent á næstunni til skipu- lagsyfirvalda.“ Hann segir að þessi framtíðarstefna hafi verið mörkuð þegar vinna hófst við þróunaráætl- un miðborgarinnar. Margt vinnist með slíkri ráðstöfun og þannig verði hagkvæmara og skilvirkara að stjórnarráðsskrifstofur séu í eigin byggingum á sama bletti fremur en í leiguhúsnæði víða í borginni. Upp- byggingin á vegum stjómarráðsins stuðli jafnframt að því að styrkja ákveðna þætti í höfuðborgarímynd Reykjavíkur. Ástæðu þess að utan- ríkisráðuneytið flytur ekki á stjórn- arráðsreitinn segir Ólafur þá að það hafi nokkuð nýverið flutt í hentugt húsnæði við Rauðarárstíg og for- sætisráðuneytið verður ekki flutt úr gömlu stjórnarráðsbyggingunni þar sem öll ráðuneytin voru upphaflega til húsa. Ólafur Davíðsson segir að mest liggi á að flytja heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, sem sé í óhentugu húsnæði, svo og umhverf- isráðuneytið, en það er í leiguhús- næði. Stefnt er að því að þau flytji á næstu tveimur árum. Ekki er eins aðkallandi að flytja önnur ráðuneyti og má búast við að liðið geti að minnsta kosti fimm ár fram að þvi, enda þarf að reisa nýjar byggingar á reitnum undir þau. 190 milljónir á fjárlögum næsta árs Á stjórnarráðsreitnum eru nokk- ur hús sem Ólafur segir að ætlunin sé að nýta saman eftir endurnýjun og koma fyrir ráðuneytunum sem fyrst flytja. Er það annars vegar hús Landssímans og hins vegar Landssmiðjunnar. Segir Ólafur þessi hús hluta af atvinnusögu þjóð- arinnar og eigi að fá hlutverk í stjórnsýslu landsins. Undirbúning- ur fyrir endurnýjun húsanna er þegar hafinn og er í fjárlagafrum- varpi næsta árs gert ráð fyrir 190 milljóna króna framlagi í fram- kvæmdir þar. „Með deiliskipulaginu er gert ráð fyrir að nýta reitinn frekar, sem býður upp á ýmsa möguleika til að fylla í skörðin sem þar eru og þar er einnig gert ráð fyrir talsvert mörg- um bílastæðum," segir Ólafur, en gert er ráð fyrir að bílastæðin verði neðanjarðar. Vestan til á reitnum er gert ráð fyrir þriggja hæða stjórn- arráðsbyggingu, svokölluðum rand- byggingum með görðum í miðjunni og gróðri og göngustígum. Suðaust- an til er gert ráð fyrir lágreistri byggð og þannig viðhaldið bygging- arstíl sem fyrir er. 30 daga fangelsi fyrir fíkni- efnabrot RÚMLEGA tvítugur Reykvíkmgur var dæmdur í 30 daga fangelsi í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun fyrir fíkniefnalagabrot og fyrir þjófn- að. Fullnustu refsingar var hins vegar frestað og fellur hún niður eftir tvö ár haldi ákærði almennt skilorð. Auk refsingarinnar var ákærði dæmdur til að greiða allan sakar- kostnað málsins1, þar með talin máls- vamarlaun skipaðs vejjanda síns, 50.000 krónur og upptæk voru gerð 0,81 gramm af hassi sem fundust í bif- reið hans. Við leit lögreglu í bifreið mannsins í fyn-ahaust fannst moli sem reyndist við efnagreiningu vera 0,81 g af hassi. Þá var maðurinn dæmdur fyrir að hafa stolið samtals 182.742 kr. úr sölu- uppgjöri í afgreiðslu Sundlaugar Ár- bæjar en hann hafði bætt fyrir það áð- ur en dómur féll. Velti bfl á 100 km hraða BETUR fór en á horfðist þegar 18 ára piltur missti stjórn á bifreið sinni á Njarðarbraut í Njarðvík í fyrrinótt. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnai- í Keflavík sagðist piltur- inn hafa verið á 100 km/klst. hraða er hann mætti öðrum bíl á móts við Iðjustíg og við það hafi hann misst stjórn á bifreiðinni með þeim afleið- ingum að hún valt. Pilturinn var fluttur á sjúkrahús en reyndist lítið meiddur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.