Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Slökkvilið Akureyrar tekur yfír
rekstur Akureyrarflugvallar
Fjölgað um þrjú
stöðugildi
á flugvellinum
AKUREYRARBÆR hefur gert
þjónustusamningvið Flugmálastjórn
sem felur í sér að Slökkvilið Akureyr-
ar tekur yfír rekstur Slökkviliðs Ak-
ureyrarílugvallar um næstu áramót.
í sumar höfðu þessir aðilar gert með
sér samning um að Slökkvilið Akur-
eyrar tæki yfir faglega yfirstjórn á
slökkviliði flugvallarins.
Tómas Búi Böðvarsson slökkvi-
liðsstjóri á Akureyri sagði þjónustu-
samninginn til mikilla bóta fyrir báða
aðila og að í kjölfarið myndi starf-
semin á Akurejnrarflugvelli eflast,
sem og í bænum. „Við yfirtökum nú-
verandi slökkvilið á flugvellinum og
þeir þrír fastráðnu starfsmenn sem
það vilja koma til okkar. Þá er gert
ráð fyrir að fjölga úr fjórum stöðu-
gildum á flugvellinum í sjö. Auk þess
er gert ráð fyrir hálfri stöðu í þjálfun
flugvallarvarða á dreifbýlisflugvöll-
um á landinu og til eftirlits með
slökkvibúnaði á flugvöllunum. Tómas
Búi sagði að um það hafi verið rætt í
mörg ár, að ekki sé nóg að hafa einn
mann á vakt á flugvellinum og með
þessari breytingu verða tveir menn á
vakt þar á meðan áætlunarflug er í
gangi en þess utan verður einn mað-
ur á vakt.
Við þessa breytingu fjölgar um
einn bfl í Slökkviliði Akureyrar, sem
hægt verður að nýta í neyðartilfell-
um, að sögn Tómasar Búa. Þá eigi
slökkviliðið aðgang að einum manni á
flugvellinum, sem er þar á dagvakt
við annan mann. „Þá höfum við að-
gang að fleiri þjálfuðum mönnum á
frívöktum en enn um sinn munum við
þurfa að leysa öll stærri útköll með
því að kalla inn menn á frívakt."
Tómas Búi sagði jafnframt að
þessi þróun á Akureyri væri í takt við
það sem hafi verið að gerast á höfuð-
borgarsvæðinu.
Morgunblaðið/Kristján
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á biðsal flugstöðvarinnar á Akur-
eyri og hann stækkaður til muna.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Hádegis-
tónleikar í dag, laugardag, súpa og
brauð í Safnaðarheimilinu á eftir.
Guðsþjónusta kl. 11 á morgun,
sunnudag. Látinna minnst. Björg
Þórhallsdóttir syngur einsöng, Séra
Svavar A. Jónsson. Fræðsla í Safn-
aðarheimilinu eftir messu. Sr. Svav-
ar talar um börn og sorg. Kvenfélag-
ið selur súpu og bollur. Sunnu-
dagaskóli á Hlíð kl. 11 á morgun.
Fundur í æskulýðsfélaginu kl. 17 í
kapellu. Minningartónleikar um
Jakob Tryggvason í kirkjunni kl. 17
á morgun. Biblíulestur í fundarsal á
mánudagskvöld kl. 20.30. Morgun-
söngur kl. 9 á þriðjudagsmorgun.
Mömmumorgunn kl. 10 til 12 á mið-
vikudag. Sólveig og Júlía, löggiltir
sjúkranuddarar, eigendur Sjúkra-
nuddstofunnar Friður og ró, kynna
ungbarnanudd og hvað þær hafa á
boðstólum. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12 á fimmtudag. Bænaefn-
um má koma til prestanna. Léttur
hádegisverður í Safnaðarheimilinu á
eftir.
GLERÁRKIRKJA: Bamasamvera í
safnaðarsal kl. 11 á morgun, sunnu-
dag. Messa kl. 14 sama dag. Látinna
minnst. Kirkjukaffi verður í safnað-
arsal að athöfn lokinni í umsjá Kven-
félagsins Baldursbrár. Kyrrðar- og
tilbeiðslustund kl. 18 á þriðjudag í
kirkjunni. Hádegissamvera kl. 12 til
13 á miðvikudag. Helgistund, fyrir-
bænir og sakramenti. Léttur hádeg-
isverður í safnaðarsal á vægu verði.
Opið hús fyrir mæður og börn á
fimmtudag frá kl. 10 til 12. Heitt á
könnunni og svali fyrir börnin.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, sunnudag.
Almenn samkoma kl. 20 um kvöldið.
Heimilasamband kl. 15 á mánudag.
Hjálparflokkur kl. 20 á miðvikudag.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Biskupa-
messa kl. 18 í dag, laugardag og kl.
11 á morgun, sunnudag í Péturs-
kirkju við Hrafnagilsstræti 2 á Akur-
eyri.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Messa verður í Munkaþverárkirkju
á sunnudagskvöld kl. 20.30. í lok at-
hafnar verður afhjúpuð stytta, helg-
uð Maríu Guðsmóður, sem listakon-
an Sólveig Baldursdóttir hefur gert.
Á eftir verður boðið upp á kaffi í
Kapítulinu.
Vélasvið Heklu
Nýtt þjónustuumboð
opnað á Akureyri
ÞJÓNUSTUUMBOÐ vélasviðs
Heklu verður formlega opnað á Ós-
eyri 8 á Akureyri, í fyrrverandi hús-
næði Arnarfells, nú um helgina.
Vélasvið Heklu hefur gert samn-
ing við nýstofnað fyrirtæki á Akur-
eyri, Trukkinn ehf. sem- er í eigu
feðganna Sveinbjörns Sveinbjöms-
sonar eldri og yngri, um rekstur
Þjónustuumboðsins á Akureyri. Þeir
feðgar eru mörgum kunnir á Norð-
urlandi og hafa báðir sinnt svipaðri
þjónustu um árabil.
Þjónustuumboð vélasviðs Heklu
hf. á Akureyri mun hafa fulla sam-
vinnu við og sækja styrk til þjón-
ustudeildar vélasviðs Heklu hf. í
Reykjavík og leitast við að annast
sem víðtækasta þjónustu við Scania
bifreiðar, lyftara frá Caterpillar,
Caterpillar land- og sjóvélar og MaK
sjóvélar og aðrar þær vörur sem
seldar eru hjá vélasviði.
Þjónustuumboð vélasviðs Heklu
annast sölu varahluta í ofangreind
tæki í umboði vélasviðs Heklu.
Opið hús verður hjá Þjónustuum-
boði vélasviðs Heklu á Akureyri í
dag, laugardaginn 4. nóvember, frá
kl. 10 til 16.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Eins og sjá má af myndinni var Spunkur hin föngulegasta kind með sér-
staklega stór horn sem voru með óhefðbundnu lagi þó ekki væri hann
vaninhymdur.
Safnahúsið á Húsavík kynnir alþýðulist
Húsvískir
Ijóða- og
lagahöf-
undar
Húsavík - Húsvískir ljóða- og laga-
höfundar vom kynntir í Safnahús-
inu á Húsavík sunnudaginn 29.
október sl. með sérstakri dagskrá
en meðal höfunda sem flutt voru
ljóð eftir má nefna Unni Benedikts-
dóttur Bjarklind (Huldu), Guðfinnu
Jónsdóttur, Egil Jónasson, Kristján
Ólason,Valdimar Hólm Hallstað og
Ósk Þorkelsdóttur.
Þá fluttu eigin ljóð þau Brynhild-
ur Bjarnadóttir, Guðmundur G.
Halldórsson og Jóhannes Sigur-
jónsson, en aðrir flytjendur ljóða
komu frá Leikfélagi Húsavíkur,
m.a. þau Sigurður Hallmarsson, Að-
albjörg Sigurðardóttir, Guðný Þor-
geirsdóttir og Ingimundur Jónsson.
Sungin voru lög eftir Sigurð Sig-
urjónsson, Steingrím Birgisson,
Ingimund Jónsson, Jóhann Björns-
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Guðmundur G. Halldórsson
flutti eigin Ijóð.
son og Friðrik A. Friðriksson. Þau
sem sungu lögin voru Hólmfríður
Benediktsdóttir, Aðalsteinn Júlíus-
son og Baldur Baldvinsson en und-
irleik annaðist Aladár Rácz. Guðni
Halldórsson, forstöðumaður Safna-
hússins, kynnti dagskrána og höf-
unda þeirra ljóða og laga sem flutt
voru.
Aðsókn var góð og létu þeir sem
samkomuna sóttu vel af henni en
hún var liður í afmælishaldi vegna
50 ára kaupstaðarafmælis bæjarins.
Forystusauð-
urinn felldur
Norður-Héraði - Forystusauðurinn
Spunkur á Eiríksstöðum á Jökul-
dal stenst ekki samdráttinn í
sauðfjárræktinni frekar en annað
fé. Sigurjón Guðmundsson, bóndi
á Eiríksstöðum, er að bregða búi í
haust en hann seldi fullvirðisrétt-
inn til ríkisins og felldi allt féð,
þar á meðal forystufé sitt og
Spunk, fjögurra vetra, þar með.
Sigurjón hefur átt forystufé af
sama kyni frá því hann kom í Ei-
ríksstaði 1944 en þá eignaðist
hann bfldótta forysturollu sem allt
hans forystufé er komið af og
voru síðustu kindurnar af þeim
meiði felldar í haust.
Spunkur var fæddur þrflemb-
ingur og voru hin lömbin tvö,
rolla sem var bfldótt líkt og for-
móðirin og sauður sem hét Blæng-
ur, einnig felid um leið og hann.
----------------
Sólveig sýnir
í Safnahúsinu
SÓLVEIG Illugadóttir heldur mál-
verkasýningu í Safnahúsinu á Húsa-
vík, en hún verður opnuð í dag, laug-
ardaginn 4. nóvember, og stendur til
12. nóvember næstkomandi.
Sýningin verður opin á morgun frá
kl. 16 til 18 en aðra sýningardaga er
opið frá 14 til 18. Við opnunina leikur
Tríó Valmars Valjaots ásamt söng-
konunni Jóhönnu Seljan Þórodds-
dóttur og frumflytja þau m.a. tvö ný
lög eftir myndlistarkonuna. Sýning-
in er að hluta sölusýning, en þetta er
þrettánda einkasýning Sólveigar.
---------♦-♦-♦--
Norrænt
skólahlaup í
Grundarfirði
Grundarfirði - Norræna skóla-
hlaupið er hlaupið ár hvert. Það
eru grunnskólar landsins sem taka
þátt í því. Þessi mynd var tekin þeg-
ar nemendur í Grunnskólanum i
Grundarfirði þreyttu hlaupið, sem
gekk mjög vel.
Gáfu búnað
til notkunar
við greftranir
LIONSKLÚBBUR Sauðárkróks
hefur afhent Sauðárkrókskirkju
búnað til notkunar í kirkjugarðinum
við greftranir. Búnaðinum er komið
fyrir yfir opinni gröfinni og lætur
hann kistuna síga rólega niður, í stað
hinnar hefðbundnu aðferðar með
köðlum eins og tíðkast hefur. Búnað-
urinn er drifinn rafmagni frá raf-
hlöðu sem er hlaðin. Er því auðvelt
að nota hann hvar sem er í garðinum.
Af hálfu kirkjunnar er það frjálst
að vali aðstandenda hvort þessi sig-
búnaður er notaður við útfarir. Hann
var notaður fyrst við tvær útfarir 21.
október, en formleg afhending verð-
ur við guðsþjónustu á Allraheilagra-
messu 5. nóvember nk.
Morgunblaðið/KVM
Fjölsótt afmælisveisla
Mývatnssveit - María
Þorsteinsdóttir í
Reykjahlíð er 80 ára um
þessar mundir. Af því
tilefni efndi hún til fjöl-
mennrar veislu í Hótel
Reynihlíð fyrir ættingja
og vini á laugardaginn í
lognblíðu og síðdegis-
sól.
María er fædd í
Reykjahlíð og var yngst
fimm systkina, barna
hjónanna Guðrúnar
Einarsdóttur og Þor-
steins Jónssonar. Á upp-
vaxtarárum Maríu óx
upp í Qölbýli Reykja-
hlíðar stór hópur táp-
mikilla frændsystkina, sem voru
samstiga í leik og starfi, barnaböm
Einars Friðrikssonar
og Guðrúnar Jónsdótt-
ur, sem flust höfðu úr
Svartárkoti út í Reykja-
hlíð vorið 1895. María
er ein eftir af þeim hópi
íMývatnssveit.
Arið 1960 fluttist
María ásamt bróður sín-
um Jóni Pétri og aldr-
aðri móður í nýtt ein-
býlishús sem þau höfðu
látið byggja á eldhraun-
inu rétt sunnan undir
kirkjuhólnum ogþar
var heimili hennar upp
frá því. María vann
mikið fyrir kirkju sína
og hafði til þess metnað
að allt færi þar vel fram. Iljá henni
höfðu sóknarpresturinn og ferming-
María Þorsteinsdótt-
ir, 80 ára.
arbörnin sína aðstöðu áður en geng-
ið var til kirkjuathafna og heimili
hennar stóð kirkjugestum ætíð opið.
María er félagslynd og hefur
eignast mikinn fjölda vina sem
gjarnan hafa heimsótt hana á sumr-
um og dvalaði með henni stund. Hjá
þeim systkinum vom löngum í sum-
ardvöl frændsystkin þeirra úr
Reykjavík og var hún þeim sem
móðir, enda sýna þau henni nú
mikla elskusemi.
I veislunni nú var borið fram hcitt
súkkulaði með þeyttum rjóma ásamt
öðm góðgæti, svo sem er við hæfi í
stórafmæli gamals Reykhlíðungs.
Sungin voru ættjarðarlög að hætti
Þráins og fleira var til tilbreytingar.
María Þorsteinsdóttir dvelur nú á
Hvammi, hcimili aldraðra á Húsa-
vík.