Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 20
 , JEinangnm norræna samstarfeins þarfað rju&a „Aðrar þjóðir geta tvímælalaust lært heilmikið af Norðurlöndunum, og því samstarfi sem þau eiga með sér í Norðurlandaráð“, segir Berglind Ás- geirsdóttir ráðuneytisstjóri í félags- málaráðuneytinu. Hún talar af reynslu, því hún var framkvæmda- stjóri Norðurlandaráðs á árunum 1996-1999. Hún tók við því starfi er skrifstofan var flutt frá Stokkhólmi til Kaupmannahafnar og þekkir því ekki aðeins inniviði norræns samstarfs, heldur einnig hvaða augum það er litið utan Norðurlandanna. Og það er kannski ekki síst í al- þjóðlegu samhengi sem norrænt sam- starf er áhugavert. Eins og Berglind þreytist ekki á að benda á þá byggist alþjóðlegt samstarf í vaxandi mæli á því að ríki eigi jafnframt með sér svæðasamstarf, er oft snýst um mál- efhi sem jafnframt er á dagskrá við- komandi alþjóðastofnunar. Skilvirkt samstarf grannríkja er þannig til þess íállið að flýta fýrir niðurstöðum á al- þjóðavettvangi. Og Norðurlöndin búa einmitt yfir ríkri reynslu af slíku samstarfi. Norrnnt samstarftilJýrirmyndar Þó Norðurlöndin séu fremur lík inn- byrðis þá skilur margt á milli, þegar grannt er skoðað. Þetta kemur oftar en ekki í ljós þegar ná á samstöðu um aðgerðir eða stefnu í einstökum mál- um. „Persónulega var starfið mér dýr- mæt reynsla í því að bræða saman ólík sjónarmið, skapa málamiðlun og fa fólk til að vinna saman.“ „í Norðurlandaráði mætist fólk frá fimrn löndum, auk Færeyja, Græn- lands og Álandseyja, frá mismunandi stjórnmálaflokkum og það er hlut- verk skrifstofunnar að miðla málum og ná niðurstöðu." En í huga hennar hefúr þessi reynsla einnig varpað nýju ljósi á Evrópu- samstarfið. „Ég kom auga á nýja sam- starfsmöguleika og fékk almennt meiri áhuga á erlendu samstarfi, því norræn samvinna spannar miklu víð- ara svið en bara Norðurlönd.“ Það kemur kannski einhverjum á óvart að heyra að norræn samvinna spanni vítt svið, því hún er einmitt oft álitin einangruð við Norðurlönd- in og fá, afmörkuð svið. Þessari skoð- un hafnar Berglind. „Samstarf í ör- yggis- og varnarmálum var meðal þess sem stefnt var að, meðan ég vann hjá Norðurlandaráði. Ég fór til dæmis eitt sinn á ráðstefnu í Rúmen- íu til að kynna samstarf Norðurland- anna. Það var áhugavert að vera þarna, svo skammt frá Balkanskaga og átta sig á hversu áhugavert nor- rænt samstarf, meðal annars á sviði öryggis- og varnarmála, var fyrir þjóðir á þessu svæði.“ segir Berglind. Berglind bendir á að styrkur nor- ræns samstarfsins sé að það óx neðan frá úr aldagömlu frjálsu félagasam- starfi. Þetta félagasámstarf hefur á undanförnum árum þróast við hlið hins opinbera samstarfs, til dæmis í norrænu félögunum og tekið við ýmsum verkefnum frá því. Hún bendir sérstaklega á ómetanlegan stuðning við samstarf ungs fólks. Nordjob, norræna vinnumiðlun fyrir ungt fólk, en einnig vinabæi og íþróttasamstarf. „Norrænt samstarf er svæðisbundið samstarf, þar sem vilji fólks kemur til skila“ segir Berglind með áherslu. ,Aðrar þjóðir geta tvímælalaust lært af norrænum þjóðunum. Það sem við höfúm að miðla á nærsvæðunum, en líka á fjarlægari svæðum eins og á Balkanskaganum, er að gmnnurinn að og kjarninn í norrænu samstarfi er menningarsamstarfið og sameiginleg- ur menningararfúr.“ Þetta er í hennar huga hið einstaka í norrænni sam- vinnu og það sem skilur hana fra sam- starfi Evrópuríkjanna í ESB. Nútímalegt samstarf á gömlum merg „Við á Norðurlöndunum höfúm þró- að samstarf frá grunni úr ffjálsu fé- lagasamstarfi almennings á Norður- löndunum, meðan Evrópusamstarfið að þetta eigi ekkert skylt við að mynda samannjörvaða blokk, til dæmis í ESB. „Norræn afstaða skilar sér, þar sem ein Norðurlandaþjóð er með. Norrænt samstarf hefur líka hnattræna vídd og byggir á gagn- kvæmri virðingu, sem margir geta læn af.“ Tilhneiging til aðþingmenn ein- angrist í norreena geiranum Þó margt gangi vel í norrænu sam- starfi er það á engan hátt fúllkomið og gallalaust. Helsti gallinn í starfi Norðurlandaráðs er að mati Berg- lindar að starfið þar tengist ekki nógu vel þingstarfinu í heimalöndunum. “Þingmennirnir í Norðulandaráði gegna fúllu starfi í þjóðþingum landa sinna og það er ekki alltaf auðvelt fýr- ir þá að finna tíma fýrir norræna starfið. Heima fýrir er ekki tekið tillit til starfsins í Norðurlandaráði í starfs- aðstöðu þeirra. Þingmenn hljóta enga umbun fýrir það og það hefúr ekki tekist að skapa norræna starfinu nægilega góð skilyrði í þingunum.“ Berglind segist aðeins hafa séð blaðafregnir um hugmyndir þær sem komu fram í skýrslu vinnuhóps undir forysm Jóns Sigurðssonar bankastjóri Norræna fjárfestingabankans, en þar er bent á leiðir til að skapa tengsl milli Norðurlandaráðs og þing- nefhda. Það væri að hennar mati til mikilla bóta. „Það er ekki góður kost- ur að norrænt samstarf þjóðþinganna ■«ifinfcj«g1mraÍfaMa sé of einangrað. Styrkur þess á ein- mitt að liggja í því hversu fjölbreyti- leg málefni em þar til umfjöllunar og ættu að varða meira og minna allar þingnefndir. Það virðist ekki takast að tengja það sem skyldi við önnur þingstörf. Það myndi að mínum dómi verulega lyfta starfi Norður- landaráðs ef þingforsetar þjóðþing- anna væru um leið formenn lands- deildanna í Norðurlandaráði." Berglind bendir á að þingmenn séu þegar í margvíslegu alþjóðlegu samstarfi og því samstarfi ætti hið norræna að tengjast betur, jafhframt því sem það fengi markvissari teng- ingu við þau viðfángsefni sem eru á Alþingi. „En þetta er ekkert sérís- lenskt vandamál, það er það sama á hinum Norðurlöndunum. Norrænu samstarfi er í þjóðþingunum sinnt með umræðu um eina þingskýrslu á ári. Það sem vantar upp á er að ein- stakar þingnefhdir gefi gaum að hinu norræna samstarfi og hvaða lærdóm megi draga af því við umfjöllun þýð- ingarmikilla mála. Norðurlandaráðs- þingmenn ættu að geta komið á framfæri og stuðlað að „þverfaglegri" umræðu. Norrænt samstarf fýrir okk- ur íslendinga er ekki markmið eitt og sér heldur tæki jafnt hér innlands sem og í alþjóðlegu samstarfi. Einangrun norræna samstarfsins þarf að rjúfá.“ kemur hins vegar ofán frá, með regl- um og reglugerðum,“ segir Berglind. „Norrænt samstarf skapar mögu- leika til samvinnu, ekki aðeins milli þjóðríkjanna, heldur einnig milli sveitafélaga, skóla og annarra stofn- ana. Þetta tel ég afár þýðingarmikið til að efla lýðræði og draga úr mið- stýringu. Það sérstaka við norrænt samstarf er að það er gamalt samstarf, en samt ákaflega nútímalegt og því hefúr tekist að fýlgja kalli tímans." „Samstarf af þessu tagi getur verið fýrirmynd víða um heim, þar sem byggja má á sameiginlegum eða lík- um tungumálum og menningararfi, án þess að efnahagslegt samstarf sé fýrir hendi,” bendir Berglind á og bætir við að reyndar geti samstarf af þessu tagi skapað grunn fýrir efna- hagslegu samstarfi. Sú alþjóðlega skírskotun, sem felst í norrænu samstarfi hefúr leitt til þess að Berglind segist alls ekki geta litið á norrænt samstarf sem einangrað fýrir- bæri. „í mínum huga er norrænt samstarf alþjóðlegt samstarf, þó rótin sé norræn, enda eru öll löndin í al- þjóðlegu samstarfi utan Norður- landa,“ segir hún og minnir á að þau hafi valið sér mismunandi leiðir. Þrjú norrænu landanna eru í ESB Danmörk, Finnland og Svíþjóð, þrjú í NATO, Danmörk, Noregur og ís- land - og það er því aðeins Danmörk, sem er með í báðum samtökunum. „En það er einmitt vegna þess hvað Norðurlöndin koma víða við að nor- rænt samstarf getur skilað sér svo víða,“ bendir Berglind á og bætir við (j 3.ÍT13Rj ifil íinsk 1 - en tæplega Það er gaman að koma til Reykjavíkur undir merki Norðurlandaráðs. Þetta er víst í fimmta skiptið á undanförn- um ruttugu árum að ég kem af þessu tilefni, sem norrænn fréttaritari, póli- tískur blaðamaður eða leiðarahöfúnd- ur. Hvergi virðist Norðurlandarað jafn vel heima og í Reykjavík. Hér erum við allir þátttakendurnir - þingmenn, ráðherrar, embættismenn, blaðamenn - saman á allt annan hátt en í hinum norrænu höfúðborgunum. Og það er einmitt tilgangurinn: Að vera saman á óli'kan hátt, í kappræðum í salnum, samtölum á göngunum og í móttök- um, ræða málin í alvöru og á léttu nótunum, finna norræna samkennd. Hljómar þetta ekki fremur eins og fortíðarflótti, en lýsing á raunveruleika líðandi stundar? Jú og nei. Það sem stendur hér að ofán er allt satt og rétt, líka nú. En vissulega hefur margt breyttst í norrænni samvinnu og það ekki aðeins til hins betta. Við finnum fýrir norrænni samkennd eins og áður, en við finnum meir fýrir þvf en áður að hana skortir innihald. Án innihalds verður æ erfiðara að fi stjómmálamenn til að sinna norrænni samvinnu og þeg- ar má finna að þannig hefúr það orðið. Þegar ég blaða í þvf sem ég skrifáði á Norðurlandaráðsþinginu í Reykjavík fýrir fimm árum sé ég að verið var að ræða nauðsyn gagngerra breytinga eftir að Finnland og Svíþjóð gengu í Evr- ópusambandið, ESB. Ædunin var að beina öllu efni í þrjár nýjar nefndir: Norðurlandanefnd, Evrópunefnd og Grannsvæðanefnd. Nú fimm árurn seinna má slá því fösm að með þróun ESB og væntanlegri stækkun þess eru breytingarnar úreltar. Það er þörf nýrr- ar kerfisbreytingar. Hinir vísu menn teikna nú á blað samstarfshringi, sem snertast á ólíkan hátt. Mismunandi þátttakendur eru í mismunandi hringj- um, þar sem Norðurlöndin eru innsti eða hinn harði kjarni. Betur er varla hægt að túlka það ráðleysi, sem ríkir um framtíð Norðurlandaráðs. Auðvitað er það ESB sem hefur klofið Norðurlöndin og er orsök ráð- leysisins. En hve margt hefúr breyttst í til dæmis finnskum augum. Það er ekki mörg ár síðan að finnskum stjórnmálamönnum leið illa yfir að þeir vildu ekki taka þátt í umræðum um utanríkismál eða voru gagnrýndir fýrir að vilja ekki vera með í sameigm- legri norrænni flóttamannaastefnu. Samt var mikilvægt fýrir Finna að vera með í Norðurlandaráði sem mótvægi við hið nána samstarf við grannann mikla, Sovétríkin. Það brýndi ýmsa þeirra í að reyna að skilja þessa oft óskiljanlegu ‘skandínavísku’ sem Dan- ir og Norðmenn töluðu. Og hvaða gildi hefúr norræn sam- vinna fyrir Finna nú? Sem blaðamað- ur sé ég að hún er í lagi, reskileg og oft efst á blaði. En við erum raunsæir. Allt væri einfáldara ef Norðurlöndin væru öll með í ESB. Þá hefðu þau mörg at- kvæði innan ESB og gætu haft meiri áhrif á ýmis mjúk mál þar en nú er. Nú verða einnig þau, sem eru utan ESB að aðlaga sig að tilskipunum þess. Norræn samvinna gemr ekki lif- að eigin lífi á þeim sviðum, þar sem ESB er þegar virkt. Norðurlöndin eiga sér margt sam- eiginlegt, en í miklvægum málum för- um við oft ólíkar leiðir. Það á ekki aði- ens við um NATO, ESB og myntsam- bandið, heldur einnig oft í minni hátt- ar málum. Við finnum samt sem áður mjög fýrir norrænni samkennd, en hvenig verður það með næstu kyn- slóð? Það er reyndar merkilegt hve norræn ung- menni, sem fara utan til náms, fara oft frekar út fyrir Norður- löndin en í ann- að Norðurland. Crkki Pennancn, linda/tUuiftirtílur á iicí&iiígiíj Siiuionjai.,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.