Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÞETTA er fólkið sem er í sjálfboða- vinnu í súpueldhúsum fyrir heimilis- lausa og ætlast ekki til að fá þakkir. Fólkið sem gefur blóð, tíma og pen- inga og vill ekkert í staðinn. Fólkið sem hefur engan áhuga á að verða efni í kvikmynd eða frétt í dagblöð- unum. Núna er þetta fólk farið að gefa af sér sjálfu - bókstaflega - þeim sem þurfa meira á því að halda. >vAð gera eitthvað alveg án skil- yrða, það var það sem ég vildi,“ sagði bandarískur kennari sem var einna fyrstur manna þar í landi til gefa líf- færi sjálfviljugur - annað nýrað - einhverjum sem hann þekkir ekki neitt. Hann vill ekki láta nafns síns getið, segir hann, „vegna þess að þetta á að vera nafnlaus gjöf. Þetta er búið og gert, og ef satt skal segja hef ég engan áhuga á að heyra í þeg- anum. Þar til alveg nýverið hafa ígræðslumiðstöðvar haft þá grund- vallarreglu að taka ekki við svona fólki. Skurðaðgerð á heilbrigðu fólki brýtur í bága við siðareglur lækna um að valda ekki skaða. „Og svo höfðu menn líka svolitlar áhyggjur af því að þetta fólk væri kannski ekki al- veg með öllum mjalla," sagði dr. Alan Wilkinson, framkvæmdastjóri nýrnaígræðslusviðs læknadeildar Háskólans í Kaliforníu í Los Angeles. „Svo að við vildum helst ekki taka við því.“ En þetta viðhorf er ört að breyt- ast. Háskólinn í Minnesota í Banda- ríkjunum fór að taka við nafnlausum nýrnagjöfum í fyrra, og hafa síðan verið vegnir og metnir um 20 sjálf- boðaliðar og nýru verið numin úr sjö þeirra, þar á meðal fyrmefndum kennara. Héraðssamtök í Wash- ington (The Washington Regional Transplantation Consortium), höfuð- borg Bandaríkjanna, sjá um skipu- lagningu á líffæraígræðslu í borginni og hafa nú á sínum snærum talsverð- an fjölda fólks sem er reiðubúið til líf- færagjafar án þess að láta nafns síns getið. Biðlistar lengjast Biðlistar fólks sem bíður eftir að fá líffæri lengjast um mörg þúsund manns á hverju ári, og framboð á líf- færum úr látnum eykst ekki. I fyrra var tii dæmis aðeins hægt að sinna innan við þriðjungi þeirra 44 þús- unda, sem þurftu á nýmaígræðslu að halda, og 2.969 létust á meðan þeir biðu. En læknar verða sífellt leiknari í þeirri list að sjá um og framkvæma líffæraígræðslur. Nýrnaígræðsla er algengust, og nú em oft tekin nýru úr gjöfum sem era óskyldir þegan- um, til dæmis maka eða vini. Ekki er langt síðan það var sjaldgæft að numið væri úr lifandi, óskyldum gjafa, en nú er þetta gert í um 15% IM Að gefa hluta af sjálfum sér Það færist í vöxt í Bandaríkjunum að fólk gefí líffæri af allsendis óeigingjörnum hvötum til fólks sem það þekkir ekki og mun aldrei vita neitt um. Þetta er fullkomlega heilbrigt fólk, bæði á sál og líkama, enda fengi það ekki að gefa svona af sér, bókstafiega, ef það væri ekki með öllum mjalla. þeirra tilfella þegar gjafinn er lifandi. Svo er orðið ljóst, að fólk sem vill gefa nýra án þess að láta nafns síns getið er yfirleitt með fullu viti. Og því er líka full alvara. „Ábyrgt, mikils meg- andi og yfirleitt vel menntað fólk,“ segir Cheryl Jacobs, félags- málafulltrúi í Minne- sota, „sem hefur áður veitt framlög, sem hef- ur gefið blóð, sem vill virkOega koma til hjálpar." Skýrar reglur hafa verið mótaðar um það hvemig ákveðið er hver fær líffæri úr látnum gjöfum. Svo er ekki í til- vikum líffæragjafa miskunnsamra sam- verja. Þar era engar hömlur. TPN „Þar til nýlega töldu margir hættu á því að líffæragjafar sem krefjast nafnleyndar væru ekki með öllum mjalla," seg- ir Alan Wilkinson, framkvæmdastjóri nýrnaígræðslusviðs læknadeildar Háskólans í Kaliforníu í Los Angeles. Wilkin- son býst nú við því að slíkum líffæragjöfum eigi eftir að fjölga stórlega í Bandaríkjunum. lifa í að minnsta kosti fimm ár, og að vegna framfara í lyfjameðferð sem aðstoðar líkamann við að þiggja nýjan vef getur líffærið virkað vel í yfir 20 ár. Hann komst enn- fremur að því, að um það bil þrír af hverjum tíu þúsund sem gefa nýra deyja af völdum aðgerðarinnar, og að eitt til tíu prósent finna fyrir aukaverkunum á borð við bólgu við örið. Þetta fannst honum ásættanlegt. Og eitt nýra myndi duga hon- um. Eftir því sem lækn- ar komast næst verða nýrnagjafar ekki fyrir neinum langtímaóþæg- indum af völdum þess að hafa orðið af einu líf- færi. „Við verðum að fara ákaflega var- lega þegar þessi hópur gjafa á í hlut, og ganga úr skugga um að þeir komi einungis til okkar af óeigingjömum hvötum,“ segir dr. John Curtis, fram- kvæmdastjóri nýmaígræðslusviðs Háskólans í Alabama í Bandaríkjun- um. Það var sjónvarpsþáttur sem fékk fyrrnefndan kennara til þess að hugsa um að gefa. líffæri. Hann hafði verið hermaður í Víetnam-stríðinu, og varið mörgum árum í predikara- störf fyrir Baptistakirkjuna og reynt að koma skikk á veröldina. En öll lof- gjörðin og þakkargjörðin var farin að hindra hann í að gera það sem hann virkilega langaði til að gera, segir hann, „bara breyta rétt, og hugleiða það ekki frekar.“ Síðastliðið sumar, þegar hann varð 62 ára, sá hann sjónvarpsþátt um það hvernig nýma- ígræðsla veitir fólki með nýrnasjúk- dóm nýtt líf. Hvemig ígræðsla frels- ar það frá sífelldum læknisheim- sóknum þar sem blóðið er síað með vél, og þetta tekur langan tíma. í þættinum kom ennfremur fram, að nýru frá lifandi gjöfum endist yfir- leitt lengur en nýru úr látnum, og hafi færri aukaverkanir. „Það réð úrslitum fyrh' mig. Ég hugsaði sem svo, hvers vegna ætti ég að bíða þangað til ég er dauður? Ég myndi frekar vilja gera þetta núna, á meðan ég er heill heilsu ... á meðan ég tóri.“ Hann kynnti sér málin fyrst. Hann komst að því, að 80-90% nýrnaþega Kennarinn hafði því samband við allar helstu líffæraígræðslumiðstöðv- ar í Norðaustur-Bandaríkjunum og alls staðar var honum vísað frá. Líf- færagjafir frá ókunnum gjöfum þekktust reyndar og nokkrar að- gerðir höfðu verið gerðar í slíkum til- vikum. En honum varð ekkert ágengt - þangað til einhver gaf hon- um upp símanúmerið hjá Catherine Garvey. Kennarinn stóðst prófið Garvey sér um að skipuleggja ígræðslur við miðstöðina í Minne- sota, þar sem nýverið hafði verið komið á fót fyrstu deildinni í Banda- ríkjunum sem ætlað var að vega og meta þá sem vildu gefa líffæri til ókunnugra. Hún sagði við kennarann SEM GÆOi 00 GOTT VERfl FARA SAMAN... Nyja markaðstorgið það sama og hún hafði sagt við hina hundrað sem höfðu hringt og viljað gefa líffæri: „Þú þarft að koma hing- að tvisvar. Fjrst til að láta meta þig, og síðan til að fara í aðgerðina. Það er að segja ef þú stenst matið.“ Hann stóðstlíkamlegamatið. Eng- ir hjartasjúkdómar eða krabbamein; engin greinanleg smit á borð við HIV eða lifrarbólgur; engar vísbendingar um alkóhólisma eða sykursýki. Þá var komið að sálræna matinu. Sálfræðileg athugun er lykilatriðið í ferlinu við miðstöðina í Minnesota, og þannig á það alltaf að vera þegar um er að ræða fólk sem vill gefa líf- færi af óeigingjörnum hvötum, segja læknasiðfræðingar. Matið við Há- skólann í Minnesota felur í sér pers- ónuleikalýsingu og viðtal þar sem komið er inn á ævisögu viðkomandi, menntun, ástarsambönd og allt ann- að sem virðist skipta máli. „Það er tvennt sem við verðum að ganga úr skugga um,“ segir Jacobs, sem tekur þátt í að meta alla gjafa sem koma til miðstöðvarinnar. „í fyi-sta lagi að um sé að ræða einstakl- ing sem sé fær um að taka þessa ákvörðun, og í öðra lagi að einstakl- ingurinn sé raunveralega að þessu af óeigingjörnum hvötum, og ekki af einhveijum öðram, persónulegum hvötum. Eins og til dæmis af peninga- ástæðum, vegna þess að það er ólög- legt að selja líffæri úr mönnum. Eða til að vekja á sér athygli. Eða jafnvel til að hljóta frelsun - frá tilfinninga- kvölum eða samviskubiti. „Við verð- um að gæta þess vandlega að ein- staklingurinn eigi ekki við alvarlegt þunglyndi að etja,“ segir Jacobs. Kennarinn stóðst prófið. Hann þurfti ekki á peningum að halda, hann var ekki klikkaður og hann hafði enga löngun til að vekja á sér athygli. Éftir tveggja mánaða bið var hann mættur aftur á háskólasjúkrahúsið, og var gerður klár fyrir aðgerðina. Aðgerðin tók um það bil fjórar klukkustundir. Nýra var íjarlægt og farið var með það beina leið á aðra skurðstofu á sjúkrahúsinu þar sem það var grætt í nýja eigandann. Var þetta ekki sárt? „Hræðilega. • Fyrsta sólarhringinn, hræðilega. Ég var með svona nál í æð þar sem mað- ur getur skammtað sér lyf sjálfur þegar maður vill með því að ýta á hnapp. Ég notaði það svo sannar- lega.“ Eftir tvo daga var hann kominn heim aftur. Og um það bil viku seinna - þrettán dögum eftir aðgerðina - var hann mættur til vinnu. Slíkt er óvenjulegt, að sögn ígræðsluhjúkr- unarfræðinga, flestir gjafar era að minnsta kosti þijár vikur að jafna sig. „En ég var hress. Þreyttur fyrstu m taMiMMGmiimgmMSíMtig SU Ð U R'lTAr N D S B Rfl UjTeSlS IMI SSS0M1 Wi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.