Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 59
MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 59.,: UMRÆÐAN MINNINGAR Mig langar að minnast hans tengdaföður míns með nokkrum orð- um. Mér verður það alltaf ofarlega í minni þegar ég sá hann fyrst. Það var í maí 1960. Ég hafði komið til Reykjavíkur að vestan með bát sem ég hafði verið að beita á um veturinn, það var eitthvað bilað í vélinni og vél- stjórinn, sem var góður vinur Tjáa, hafði fengið hann til að aðstoða sig við að lagfæra bilunina. Hann leysti það mál á skömmum tíma og svo var sest í lúkarinn og drukkið kaffí. Hann virtist kannast við flesta sem þarna voru og spjallaði við þá á sinn létta og hressilega hátt, en var alltaf að líta í ki-ingum sig og spurði svo allt í einu: „Og hver er þessi Ingi- mar?“ Ég gaf mig fram feiminn mjög og kynnti mig. Ástæðan fyrir þessari heimóttarsemi var sú að ég hafði verið að slá mér upp með elstu dótt- ur hans, en hún hafði verið á vertíð fyrir vestan. Ég var hræddur um að hann segði mér að láta stelpuna í friði. En öll feimni var óþörf. Það var gott að kynnast Theodóri. Hann og kona hans, Kristín Karolína, bjuggu þá á Réttarholtsvegi 55 með fimm börnum sínum. Þarna var glaðlegt og skemmtilegt heimilislíf því bæði voru Tjái og Lína glaðlynd að eðlis- fari. Þangað komu margir í heim- sókn og ekki síst fólk að vestan sem þurfti að sinna erindum í borginni. Ég man aldrei eftir Tjáa sitja auð- um höndum. Hann var alltaf eitthvað að læra. Hann hafði mikinn áhuga á að mennta sig en sem unglingur hafði hann ekki tök á því, en ég er viss um að í dag hefði hann farið í langskólanám. Þeir eni nokkuð margir sem þáðu leiðbeiningar hjá honum þegar þeir voru í skóla, eink- um var leitað til hans í sambandi við stærðfræði. Ég var einn af þeim en þegar ég var í Sjómannaskólanum bjó ég á Réttarholtsveginum hjá Tjáa og Línu, hann var sérlega áhugasamur um að sinna mér við námið. Eitt aðaláhugamál Tjáa vai- að grúska í ættfræði, enda var hann mjög ættfróður maður. í einni ferð sinni til Mallorca kynntist hann golfíþróttinni og eftir það eyddi hann mörgum stundum á púttvellinum. Hann á marga bikara og verðlaunapeninga sem hann vann í keppnum en hann var mikill keppn- ismaður við hvað sem var. Hann hafði mikið yndi af tónlist og hlustaði mikið á klassíska músik og sönglög. Hann hafði fallega söng- rödd og það var oft glatt á hjalla á Réttarholtsveginum þegai’ harmó- nikkan var tekin fram. Ég mun alltaf minnast þeirra stunda er við sátum saman og hann var að spila plötu með sínum uppáhaldslögum og segja mér frá höfundum þeirra og kenna mér að hlusta á og meta góða tónlist. Árið 1961 fluttu Tjái og Lína vestur á Tálknafjörð og áttu þar heima til 1963. Mikið fannst mér gaman að fá þau vestur og geta notið nálægðar þeirra. Um vorið 1963 hófst ég handa við að byggja hús og tók Tjái það að sér um sumarið að byggja húsið og gerði það með sóma eins og allt sem hann tók sér fyrir hendur. Já, það er margs að minnast. Ég verð alltaf þakklátur þeim örlögum sem urðu þess valdandi að ég kynnt- ist þessum góða manni og fólkinu hans. I frændgarði hans hef ég eign- ast marga vini og kunningja og fyrir það er vert að þakka. Vertu blessaður, Theodór Ólafs- son, bestu þakkir fyrir allar samverustundfrnar og vinsemdina. Guð geymi þig. Ingimar. Mamma hringdi í mig til að til- kynna mér að afi minn væri orðinn mikið veikur og að hann ætti ekki mikið eftir, og þar sem ég bý erlend- is pakkaði ég niður í tösku og flaug heim til að hitta hann og vera með fjölskyldunni. Því miður var ég of sein því þegar ég lenti heima var hann búinn að kveðja og ég náði ekki að hitta hann í hinsta sinn og því langar mig nú að minnast afa míns með nokkrum orðum og kveðja hann. Hann afi Tedd, eins og við kölluð- um hann, var afi minn. Hann var góður maður og ég man ekki eftir honum öðruvísi en í góðu skapi og það var alltaf fjör í kringum hann. Ég man þegar hann var að koma í heimsókn til okkar á Akranes, þá sátu hann og pabbi lengi frameftir á kvöldin og hlustuðu á klassíska tón- list, spiluðu á harmónikku og á org- elið. Hann hafði mjög gaman af tón- list og vissi mikið um hana. Það þurfti lika stundum að spila tónlist- ina dálítið hátt svo að afi nyti hennar betur. Ættfræðin var eitt af hans stóru áhugamálum og hann var alltaf eitt- hvað að grúska í þeim málum og finna út hverjfr voru skyldir okkur. Þegar við vorum t.d. að keyra með honum um í Trabbanum og fórum framhjá einhverjum sagði hann iðu- lega: „Þetta er hann frændi þinn,“ eða „Þetta er hún frænka þín.“ Þeg- ar ég var yngri fannst mér okkar fjölskylda svo sérstök því það voru allir meira og minna skyldir okkur. Hann átti það til að senda þykk um- slög til mömmu og pabba með ættar- tölum hinna og þessara manna sem hann hafði fundið út að væru skyldir okkur. Að lokum vil ég þakka fyrir allar okkar samverustundir og vildi ég að þær hefðu verið fleiri. Það verður skrýtið að sjá hann ekki meir sitja og horfa á fréttirnar í lopapeysunni, með lopahúfuna og í skinnskónum sínum sem við öll þekkjum svo vel, þetta er það sem minnir mig á afa minn, hann afa Tedd. Elsku mamma, Óli og Hafdís og fjölskyldur, guð veri með ykkur á þessari sorgarstund. Elsku afi minn, Guð geymi þig og takk fyrir allt. Hvíl í friði. Guðrún. Lítil saga um giftingu DAGURINN var 3. september árið 2000 og við Logi sátum í embættisskrifstofu séra Úlfars Guð- mundssonar í Eyrar- bakkaprestakalli og vorum að ganga frá til- teknum pappírum, sem gera þarf áður en hjónavígsla getur átt sér stað. Það eina sem krafist er nú til dags er að þú getir sannað að þú sért ekki nú þeg- ar gift/ur. Nú, þegar þetta var allt afgreitt þá gellur í mér: Verst hvað þetta er nú dýrt allt saman, ég held ég borgi um 46 þúsund fyrir þetta. Nei nei, sagði séra Úlfar, taxtinn fyrir giftingar er ekki nema 4.600 krónur. Ég hló við og skýrði út fyrir honum málið: Ég átti nú alls ekki við það Úlfar, held- ur það að ég er 75% öiyrki og við það að gifta mig skerðast bætur mínar frá Tryggingastofnun rfldsins allverulega ef ekki alveg. Ég fæ þaðan í dag 46.233 krónur mánaðar- lega. Hvumig má það vera? spyr presturinn. Nú allar okkar tekjur eru miðaðai’ við að við séum hvorki gift né skráð í sambúð. Þeir eru á móti giftingunni, segir hann þá. Þeir eru að útiloka giftinguna og það hlýtur að vera lögleysa. Séra Úlfari var mjög brugðið og sagðist hann ekki hafa vitað að þetta væri svona mikið. Ég hugsaði með mér að nú væri kannski kominn tími til að upp- lýsa fólkið í landinu með beinum staðreyndum um hvernig þessi svokallaða tekjutenging virkar. Ég ætla hér að taka mitt eigið dæmi og koma bara með allar tölur upp á borðið svo fólk geti nú séð þetta svart á hvítu. Við giftingu koma strax til tekjur eiginmanns og hafa áhrif á það sem þú hefur hingað til fengið frá Tryggingastofnun ríkisins, þ.e.a.s. tekjur þínar verða tekjutengdar telqum hans. Skiptir engu máli lengur hvers konar öryrki/einstakl- ingur þú varst fyrir giftinguna, þú hefur á tilfinningunni að þú bara hverfir. Hvernig má það vera að einstaklingur sem fengið hefur þann úrskurð að hann sé 75% öryrki hætti að vera öryrki við það að gift- ast manninum sem hann elskar og vill ganga með í gegnum lífið? Ég var/er nú samt að vona að ég haldi sjálfum grunnlífeyrinum, kr. 17.715, fyrfr öryrkja. Held þefr megi ekki taka hann. Maðurinn minn vinnur hjá ísal og fær útborgaðar hálfs- mánaðarlega um 60.000 kr. og finnst okkur við vera heppin ef við fáum svo mikið. En tökum bara þá tölu, sem er þá 120.000 á mánuði. Við erum eins og svo margir aðrir í greiðsludreifingu í bankanum okkar og þangað borgum við á mánuði 90.000 eða hálfsmánaðarlega 45 þúsund. Svona lítur þá dæmið út og allt eru þetta nettótölur eða það sem við fáum í vasann: Kr. 60.000 mínus 45.000 gera 15.000 sinnum 2 gera 30.000 + 17.715 örork- an mín gera heilar 47.715 í ráðstöfunar- tekjur á mánuði. Dýrt er drottins orðið og allt það. En ég ætlaði að leggja allt á borðið, ekki satt, svo enn er eftir að tala um lífeyrissjóði. Ég vann hjá Ríkisútvarpinu í mörg Tekjutenging * Eg minnka ráðstöfunar- tekjur mínar um hálfa milljón á ári, segir Ragnheiður Drífa Steinþórsdóttir, við það að ganga í hjónaband með manninum sem ég elska og bý með. ár áður en ég veiktist af þessum blessaða króníska illlæknanlega sjúkdómi mínum, sem í mínu tilfelli er lífshættulegur. Hann heitir á ís- lensku geðhvörf, þ.e. skiptist á þunglyndi og örlyndi (manía). Líf- eyrissjóður rflasins borgar mér mánaðarlega 27.873, - enn eru allar tölur nettótölur, það sem ég fæ í vasann. Síðan fæ ég úr söfnunar- sjóði lífeyiisréttinda 6.989 fyrir þau ár sem ég var ekki fastráðin hjá Ríkisútvarpinu. En vitiði hvað? Mér finnst ekki að það eigi að tala um lífeyrissjóð eins og um venjulegar tekjur, eins og Tryggingastofnun gerir. Þetta eru allt öðru vísi fengnir peningar, þú ert löngu búinn að vinna fyrir þeim, þú ert löngu búinn að greiða af þeim skatt og ert enn að greiða af þeim skatt. Og nógu tala stjómmálamenn fjálglega um þessa blessuðu lífeyris- sjóði þegar þeir eru að taka þetta af laununum manns; þá er þetta eitt- hvað sem þú ert að tryggja þig með til mögru áranna, hefur þú á til- finningunnni. Og í dag getur þú ver- ið í ótal lífeyrissjóðum, bara ef þú hefur efni á því; 2% hér og önnur þar. En svo eru þeir þér bara fjötur um fót þegar þú ferð að fá úr þeim, m.a. þetta sem ég fæ var/verður til þess að lækka það sem ég fæ/fékk frá Tryggingastofnuninni. Ég veit ekki hvort fólk gerir sér grein fyrfr því að það borgar sig upp að vissu marki að fá ekkert úr lífeyrissjóði, því þá færðu allar bætur óskertar og færð allan þann afslátt og hlunn- indi sem eru því samfara. Þetta er staðreynd. Tekjutrygging óskert er nefnilega lausnarorðið: Hafir þú óskerta tekjutryggingu færðu allt þetta sem öryrkjar fá og með réttu auðvitað, t.d. ókeypis afnotagjald af y símanum, helminginn af Mogganum frían og svona mætti lengi telja. En í ágústmánuði eftir skatt- skýrsluna er farið yfir hana og svo er tekjutryggingin lækkuð út af þeim tekjum sem þú hefur haft, líf- eyrissjóður tekinn með. Jú auðvitað erum við með þessa peninga fram- yfir örorkuna. Heimilisuppbótin mín féll t.d. niður meðan ég bjó með börnum mínum á sínum tíma, þann- ig að frá Tryggingastofnun fékk ég örorkulífeyrinn margnefnda, skerta tekjutryggingu og svo 3.000 krónur rúmar vegna sjúkrakostnaðar. Ég var nú að taka það saman hvað ég fór með í lyf á síðasta kortatímabili og það voru einar litlar 12.000, segi og skrifa tólf þúsund krónur. Ég tek ellefu tegundir af lyfjum á dag. En nei ó nei, þetta felldu þeir niður líka. Ég fæ strípaðar örorkubætur, 17.715, og þakka náttúrlega fyrir að fá þær. Áð endingu ætla ég að koma með tölur yfir það sem öryrkjar fá sem engar aukatekjur hafa, eru ógiftir og ekki í skráðri sambúð, þessar töl- ur eru brúttótölur: Örorkulífeyrir kr. 17.715 Full tekjutrygging kr. 31.313 Full heimilisuppbót kr. 14.564 Sérstök heimilisuppbót kr. 7.124 Samtals kr. 70.716 Að lokum þetta, lesandi góður. í mínu ' tilfelli er það ijóst að ég minnka ráðstöfunartekjur mínar um hálfa milljón á ári við það að ganga í hjónaband með manninum sem ég elska og bý með. Á tíu árum verð ég búin að „greiða" íslenska ríkinu, þ.e. okkar sameiginlegu sjóðum, um fimm milljónir. Er það svona sem ríkisstjómin nær að hafa þokkaleg- an tekjuafgang og borga niður er- lendar skuldir þjóðarinnar? Það var aldrei meiningin að borga rfldnu um hálfa milljón á ári þótt ég tæki mig til og gifti mig. Mig langar að lokum að spyrja háttvirtan heilbrigðisráð- herra, frú Ingibjörgu Pálmadóttur; hvort hún treysti sér til að lifa á þessum launum einn mánuð. Þá þyrfti hún að látast vera ógift kona og búa alein til þess að halda öllu þessu. Ég skora á þig Ingibjörg! Höfundur er öryrki og fyrrverandi starfsmaður RUV. f Ragnheiður Drífa Steinþórsdóttir SIGURLA UG AÐAL- STEINSDÓTTIR + Sigurlaug Aðalsteinsdóttir fæddist í Reykjavík 28. desem- ber 1944. Hún lést á heimili sínu 21. október síðastliðinn og fór út- fór hennar fram frá Áskirkju 26. október. FÉLAGSLÍF FERÐAFELAG # ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-?533 Dagsganga 5. nóvember: Kaldársel — Húsfell — Búr- fellsgjá. Brottför frá BSÍ og Mörkinni 6 kl. 13:00. Fararstjóri Gestur Kristjánsson. Verö 1200 kr. Ailir velkomnir. Munið aðventuferðina í Þórs- mörk 2.-3. desember. Bókið tímanlega. www.fi.is, textavarp RUV bls. 619. Mig langar að minnast Sigur- laugar Aðalsteinsdóttur með örfá- um orðum. Hún var móðir Tómas- ar Guðna vinar míns og var ég á tímabili tíður gestur á heimili hennar og Eggerts, mannsins hennar. Þangað var alltaf gott að koma og vel tekið á móti manni. Sigurlaug var alltaf svo létt og skemmtileg. Það er svo sorglegt þegar fólk hverfur á braut í blóma lífsins. Hún háði hetjulega baráttu við krabbamein, þann vægðarlausa sjúkdóm, sem hún að lokum laut í lægra haldi fyrir. Eggerti, Tómasi og Eiríki votta ég mína innilegustu samúð. Guð veri með ykkur. Pétur Valgarð Pétursson. MYNDASÖGUBLAÐIÐ ZETA www.nordiccomic. com Geta íslenskir fótaaðgerða- fræðingar sparað fé? A UNDANFORNUM árum hefur þekking okkar á fótameinum sykur- sjúkra aukist mjög. Aðalástæður fótasára vegna sykursýki eru vegna taps á varnartilfinningu í fótum ásamt auknu álagi á fætui’na og vegna æðakalkana. Kostnaður við læknismeðferð fóta sykursjúkra er gífurlegur miðað við aðra króníska sjúkdóma. I vísindalegum rannsóknum, ásamt því að skrá kostnað á fótaað- gerðastofum í Hollandi, hefur verið sýnt fram á að bæði sé hægt að minnka alvarleg fótavandamál og fækka sárum sem leitt geta til aflim- ana með því að fylgjast gaumgæfi- lega með og kanna ástand fóta (prófa næmi) sykursjúkra. Þetta leiðir líka til lægri kostnaðar. Bæði á göngudeildum sykur- sjúkra sem og á einkastofum fótaað- gerðafræðinga í Hollandi eru fyrir- byggjandi prófanir á fótum Fótaaðgerðir Fótverndardagurinn er m.a. haldinn til þess að auðvelda ykkur, segir Margreet van Putten, að komast í samband við fótaaðgerðafræðinga. sykursjúkra fastir liðir. Með því að kanna ástand fóta sykursjúka a.m.k. einu sinni á ári er hægt að koma í veg fyrir sáramyndun á fótum. Auk fjár- hagslegs árinnings (færri legudagai- á sjúkrahúsi, færri skurðaðgerðir, færri aflimanir og endurhæfing) er ávinningur sjúklingsins sjálfs aug- ljós. Lífsgæðin aukast ef hann getur verið á hreyfingu og sjálfbjarga! íslenskir fótaaðgerðafræðingar hafa undanfarin 4-5 ár fengið þjálf- un í að skoða og prófa fætur sykur- sjúkra. Utkoma þeirra prófana um hvort sjúklingur sé í áhættuhópi hvað varðar fótamein af völdum syk- ursýki ætti að vera riðurkennd af öll- um læknum og hjúkrunarfræðing- um, sem annast sykui’sjúka. Á grundvelli þeirra á að vera hægt að ráðgera frekari meðhöndlun. Fótverndardagurinn er m.a. hald- inn til þess að auðvelda ykkur að^ komast í samband við fótaaðgerða-sT fræðinga. Ef þið hafið sykursýki þá skora ég á ykkur að leita til fótaað- gerðafræðinga og fá prófun á þri hvort þið eruð í áhættuhópi á að fá fótamein. Þeir taka vel á móti ykkur. Höfundur er læknir og kennari við fótaaðgerðadeild Fontys Hoegschool^ í Eindhoven f Hollandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.