Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 31
Rannsókn flugslyssins á Taívan
Þotan var á
rangri flugbraut
Taipei, Singapore. AP, AFP.
BOEING 747-400 risaþotan sem
fórst í flugtaki sl. mánudag var á
flugbraut sem var lokuð vegna við-
gerða og rakst í flugtaki á „stálhluti
og tvær gröfur“ sem voru á braut-
inni. Það olli því að í þotunni kviknaði
og hún hlutaðist í sundur.
Þetta eru niðurstöður bráða-
birgðarannsóknar á slysinu sem
kynntar voru í gær.
Kay Yong, framkvæmdastjóri
fiugöryggisráðs Taívan, sem fer með
rannsóknina, sagði einnig að svo virt-
ist sem mistök flugmannsins hefðu
átt stóran þátt í slysinu. Yong ítrek-
aði þó að of snemmt væri að draga þá
ályktun að flugmaðurinn, hinn 48 ára
gamli Foong Chee Kong, væri einn
ábyrgur fyrir slysinu. Honum hefur
verið bannað að yfirgefa Taívan
vegna framhalds á rannsókninnni.
Alls fórst 81 maður með þotunni,
sem var í eigu Singapore Airlines, 79
samstundis og tveir á sjúkrahúsi.
Talsmenn flugfélagsins kröfðust í
gær svara við spurningunni hvers
vegna þau mistök hefðu getað átt sér
stað að vélin lenti á rangri flugbraut.
„Við erum gersamlega miður okk-
ar yfir niðurstöðunni," sagði Rick
Clement, talsmaður flugfélagsins.
Hann sagði fjölskyldur fómarlamb-
anna eiga skýringu skilið og trygg-
ingu þess að slík mistök gætu ekki
endurtekið sig.
Áður hafði flugfélagið vísað því á
bug að flugmaðurinn hefði tekið á loft
frá rangri braut. Á það var bent að
ólíklegt væri að reyndur flugmaður
hefði farið með flugvélina inn á braut
íviðgerð.
Nú hefur hins vegar komið í ljós að
flugbrautin umrædda, 05R, sem ligg-
ur samsíða réttu brautinni, 05L, var
upplýst og ekki lokuð af. Að sögn
flugmálayfirvalda í Taívan var send
út viðvörun um lokun brautarinnar
til allra flugfélaga í lok ágúst. Flug-
maður flugvélarinnar hélt hins veg-
ar, að sögn Yong hjá flugöryggis-
nefndinni, að hann væri á réttri
braut, hann staðfesti það tvisvar við
flugtum áður en hann tók af stað.
Flugturninn á flugvellinum er ekki
búinn ratsjártæki sem sýnir stað-
setningu vélanna á jörðu niðri og
vegna slæms skyggnis um kvöldið
sáu flugumferðarstjórar ekki hvers
kyns var. Flugmenn tveggja véla
China Airlines urðu vitni að því að
þotan var á rangri braut, en til-
kynntu af einhverjum ástæðum ekki
um það.
Hlutabréf í Singapore Airlines
féllu um 5,7% eftir að tilkynnt hafði
verið um niðurstöður rannsóknarinn-
ar. Þau féllu einnig í kjölfar slyssins,
en höfðu náð fyrra gildi í gær þegar
þau féllu á ný.
Hér skail
vélin niður
Vinnuvélar og fleira sem
þotan rakst á
Heimild: Chiang Kai-Shek flugvöllur, Singapore Airlines
Flugvélin átti að taka á
loft frá þessari braut
REUTERS
Þvzks flóttafanga leitað
BerlínóAFP.
UMFANGSMIKIL stóð yfir í gær
um allt austanvert Þýzkaland og inn
fyrir landamæri nágrannalanda að
dæmdum kynferðisafbrotamanni,
sem slapp úr fangelsi í Branden-
borgarhéraði hinn 25. október. Við
flóttann stakk hann fangavörð til
bana með eldhúshníf og særði annan
lífshættulega og móður sína einnig,
en þetta er í sjötta sinn sem honum
tekst að flýja úr fangavist.
Maðurinn, sem heitir Frank
Schmökel og er 38 ára gamall, hafði
verið dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir
röð kynferðisafbrota, nauðganir og
morðtilraun. Schmökel tókst að flýja
er hann var í heimsókn hjá móður
sinni í bænum Strausberg norðaust-
ur af Berlín. Lögreglan hefur leitað
hans árangurslaust síðan, með hjálp
400 manna liðs, leitarhunda og þyrla.
Að sögn lögreglunnar viðurkenndi
Schmökel í síma-
samtali við sál-
fræðing sinn að
hafa banað sex-
tugum manni,
sem fannst bar-
inn til bana við
sumarhús nærri
Strausberg í
fyrradag. Er talið
að Schmökel hafi
haft sig á brott í bíl hins myrta.
50.000 marka verðlaunum, and-
virði 1850 þúsunda króna, hefur ver-
ið heitið fyrir upplýsingar sem gætu
leitt til handtöku Schmökels, en
hann er sagður heltekinn þeirri hug-
mynd að ná fundum einnar stúlkunn-
ar sem hann var dæmdur fyrir að
hafa nauðgað. Hún er nú átján ára og
hefur verið fengin lögregluvernd all-
an sólarhringinn.
SYNINEARSAUUR
Frabær VINNUAÐSTAÐA
SKRIFBDRÐ
mahdgdny
- 4ra skúffu skápur svartur
- lyklaboröshilla
2 5 . □ □ □ , -
lengd: l BD Breidd: BD
Z3.DDD,-
lengd: l 40 Breidd: 64
, TM = mmmmmmmm - HÚSGÖGN
Síðumúla 30 -Slml 568 6822
- œvintyri líkusl
mán. - lös. 10:00 -18:00 ■ laugard. 11:00 -18:00 ■ sunnud. 13:00 -10:00
HÖNNUN-BLÓM 0G GARÐYRKJA-MATUR-SPEGLAR
Stjörnuspá á Netinu ^mbl.is eirrH\SA£3 HÝn
hönnun
Eldhús- og baðinnréttingar
Þín bíða margir möguleikar -
og allir fáanlegir fyrir jól.
Opið hús í dag, laugardag kl.l 1-16
HAMRABORG 7,200 KC
—-