Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 81
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 81
DAGBÓK
Árnað heílla
ÁRA afmæli. Næst-
I v/ komandi mánudag,
6. nóvember, verður sjötug
Elinóra Arnar, Dalalandi 6,
Reykjavík. Af því tilefni tek-
ur hún og eiginmaður henn-
ar, Gústav Arnar, á móti
ættingjum og kunningjum í
dag, laugardaginn 4. nóv-
ember, ki. 17-19 í félags-
heimili Fóstbræðra, Lang-
holtsvegi 109-111.
BRIDS
limsjún Uuðmuiidiir l'áll
Arnai-sun
VÖRNIN gegn sex spöð-
um suðurs er sannkallað
meistaraverk. Fyrst þarf
að finna rétt útspil og svo
að henda af sér á frumleg-
an hátt til að verjast
þvingun.
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
* 108
¥2
♦ AG9862
+ A862
Austur
* 52
¥ D9854
* K75
* 954
Suður
♦ ÁKDG9863
¥ G103
♦ -
+ K10
Vestur Norður Austur Suður
- Pass Pass lspaði
Dobl 2 tíglar 2hjörtu 4spaðar
Pass Pass 4grönd 6spaðar Pass Allirpass Bspaðar*
* Tvö lykilspil og spaða-
drottning.
Flestir myndu spila út
hjartaás með ÁK í Utnum,
en þegar sagnir eru brotn-
ar til mergjar verður
trompútspil mjög rökrétt.
Norður myndi tæplega
fara í ásaspurningu án
þess að eiga fyrirstöðu í
hjarta, sem er mjög lík-
lega einspil. Og vestur á
það mikið í láglitunum að
hann gerir best í því að
reyna að fækka hjartast-
ungum í blindum. Svo
tromp kemur út.
En það er bara byrjun-
in. Blindur á slaginn og
sagnhafi tekur tígulás
(hendir hjarta) og trompar
tígul. Spilar svo hjarta-
gosa að heiman. Vestur
verður að dúkka í þeirri
von að makker eigi drottn-
inguna og geti trompað
aftur út. Sem hann gerir.
Sagnhafi notar innkomu
blinds aftur til að trompa
tígul og nú er vestur einn
um að valda tígulinn og
hjartað. Þegar suður rúll-
ar nú niður trompunum
verður eitthvað undan að
láta og vestur ákveður að
henda strax drottningu og
gosa í laufí til að benda
makker á að halda dauða-
haldi í sín lauf. Austur á
níuna þriðju og það dugir
til að stoppa litinn og sagn-
hafi fær aldrei tólfta slag-
inn.
Vestur
* 4
¥ ÁK76
♦ D1054
+ DG73
GULLBRÚÐKAUP. í dag, laugardaginn 4. nóvember,
eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Ingigerður Ágústs-
dóttir og Steindór R. Jónsson. Þau dvelja erlendis um
þessar mundir.
GULLBRÚÐKAUP. í dag, laugardaginn 4. nóvember,
eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Ingibjörg Kristjáns-
dóttir og Gunnar Siguijónsson, Sólvöllum 9, Selfossi.
Þau verða að heiman í dag.
SKAK
Unisjón Ilelgi Áss
Grétarsson
STAÐAN kom upp á Hoog-
eveen-mótinu er lauk fyrir
skömmu. FIDE heims-
meistarinn Alexander Klial-
ifman (2.667) var í fanta-
formi á mótinu og stýrði hér
svörtu mönnunum gegn
ungversku skákdrottning-
unni Judit Polgar (2.656).
31. ...Hxd3! Dæmigerð
skiptamunsfórn sem ryður
úr vegi hindrunum fyrir
stórskotalið svarts. 32. cxd3
Dxd3 33. Hcl
c2 34. Hd4 Df3
35. Rf4 35. Rgl
kom til greina
en eftir 35. ...
Dxa3 hefur
svartur unnið
tafl. 35. ...b6!
36. Rxg2
Ba6+! 37. Kgl
Bb7! Og hvítur
gafst upp enda
verður hann
mót eftir t.d.
38. Kfl Hxg2
39. Df4 Hgl +
40. Kxgl
Dg2#. Unn-
endur frönsku
varnarinnar ættu ekki að
láta þessa skák fram hjá sér
fara: 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3
Bb4 4. e5 c5 5. a3 Ba5 6. b4
cxd4 7. Dg4 Re7 8. bxa5
dxc3 9. Dxg7 Hg8 10. Dxh7
Rbc6 11. Rf3 Dc7 12. Bf4
Bd7 13. Bd3 0-0-0 14. Bg3
Dxa5 15. 0-0 Hh8 16. Dg7
d4 17. Dg4 Rf5 18. Hfbl
Rxg3 19. Dxg3 Dc7 20. Kfl
Hhg8 21. Df4 f5 22. h3 Kb8
23. Hel Bc8 24. Rg5 Hd5 25.
Rf3 Re7 26. Habl Rg6 27.
Dh2 Dh7 28. Hb4 Rh4 29.
Rxd4 Rxg2 30. Hebl Dd7
31. Re2 og nú er staðan á
stöðumyndinni komin upp.
14.1
mmi
A
il^Él Mbv VM
J55LW*-
Svartur á leik.
LJOÐABROT
BOÐUN MARÍU
Var leikið á sítar? Nei, vindurinn var það, sem rótt
íviðinum söng og næturró minni sleit.
Ég gat ekki sofið. Sál mín var dimm og heit.
Sál mín var dimm og heit eins og austurlenzk nótt.
Og ég reikaði þangað sem döggin úr dökkvanum hló
og á drifhvítum runnum hið gljúpa mánaskin las.
Og ég lagðist nakin í garðsins svalandi gras.
Sem gimsteina á festi nóttin stundirnar dró.
Svo nálgaðist sítarsöngurinn handan að,
og senn var hann biðjandi rödd, sem við eyru mér kvað.
Var það svefninn, sem vafði mig draumi sínum?
Og var það blærinn, sem brjóst mín og arma strauk,
og blærinn, sem mig í titrandi faðmi sér lauk,
með sæluna, er lokaði lémagna augum mínum?
Tómas Guðmundsson.
STJ ÖRJVUSPA
eftir Frances Urake
SPORÐDREKI
Afmælisbíirn dagsins:
Þú ert heimakær og ieggur
mikið upp úrjafnvægi í sam-
skiptum við aðra og ert því
ekki gefinn fyrir áhættu.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Nú er heppilegur tími til þess
að skipuleggja framtíðina og
sem betur fer ert þú innstiUt-
ur á að gera það í fullri al-
vöru.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er ekki víst að öðrum
geðjist vel að hugmyndum
þínum um breytingar svo það
gæti verið gáfiilegt að leggja
þær á hilluna meðan þú vinn-
ur þeim fylgis.
Tvíburar ^
(21. maí - 20. júní) Án
Þótt aðrir hlaupi ekki upp til
handa og fóta til að fara eftir
því sem þú segir hefur þér að
minnsta kosti tekist að hræra
upp í þeim.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Þú þarft að einbeita þér að
því að deila starfinu með öðr-
um og því eru málamiðlanir
nauðsynlegar þegar í odda
skerst.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Þú mátt ekki vera svo fast-
heldinn að þú látir öll tæki-
færi framhjá þér fara af því
að allar breytingar eru eitur í
þínum beinum.
Meyja j*
(23. ágúst - 22. sept.) (ClL
Það getur leitt til einkenni-
legra aðstæðna þegar vinum
er hjálpað og þú þarft á öllum
þínum samningshæfileikum
að halda til að sleppa ósár.
Vog xrx
(23.sept.-22.okt.)
Það er furða hvað þú getur
haft mikið upp úr því að leyfa
sköpunargáfu þinni að njóta
sín. Árangurinn mun koma
bæði þér og þínum verulega á
óvart.
Sporðdreki ^
(23. okt. - 21. nóv.) MK
Það væri ekki ónýtt að geta
tekið sér smáfrí til þess að
hlaða batteríið fyrir svartasta
skammdegið. Njóttu samvist-
anna við góða vini því maður
er manns gaman.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) JíO
Nú verður þú að taka til
hendinni og ganga frá þeim
samskiptamálum sem þú hef-
ur stöðugt ýtt á undan þér.
Sláðu á iétta strengi, það get-
ur oft bjargað hlutunum.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar)
Þótt hugur standi til stór-
ræða skaltu halda peninga-
eyðslu í lágmarki. Þú munt
síðar sjá að það borgaði sig að
geyma aurinn til betri tíma.
kh
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.) ws
Þú mátt ekki halda öllu í
kringum þig í heljargreipum
því það getur hefnt sín
grimmilega. Leyfðu hlutun-
um að rúlla meira af sjálfu
sér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur svo mörg járn í eld-
inum að þú kemur eiginlega
engu í verk. Reyndu að ein-
beita þér að færri atriðum
sem þú getur þá klárað.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindsSegra staðreynda.
Geisladiskur — einsöngslög
Geisladiskur með 15 ísienskum einsöngslögum,
sungin af Áma Jónssyni tenórsöngvara við undirleik
píanóleikaranna Fritz Weisshappels og
Gísla Magnússonar,
fæst nú í hljómplötuverslunum.
GEISL-ADISKAveski
Aðeins kr. 1 .950
persónuleg jólagjöf.
jífnicdisþakkir
Hjartans þakkir til ykkar allra, sem glöddu mig
á 105 ára afmœlinu 26. október.
Drottinn blessi ykkur.
Þórdís Þorkelsdóttir
frá Brúsholti.
Jólaglaðningur
Hinn árlegi jólaglaðningur er hafinn
Náttsloppar frá kr. 1.900
Náttföt frá kr. 1.900
Sloppar frá kr. 2.600
úr satínefni með bómull að innan.
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
NYJAR VORUR
• Leðurjakkar
(rauðir & svartir)
• Leðurkápur (þrjár síddir)
• Pelskápur
• Ullarkápur
• Úlpur
• Stuttkápur
• Alpahófur (2 stærðir)
• Hattar
\<#HI/I5ID
Mörkinni 6, sfmi 588 5518
Opið laugardag frá kl. 10-16
ý^<ir//Y\\\i\\ - Gœðavara
Gjdfavard - mdldr oij kdlfislell
Allir veróílokkdr.
Heimsfræijir liönnuöir
rn.d. Gidiini Versdte.
_— VERSLUNIN
Ltitigavegi 52, s. 562 4244.
REYNIR HKIDE
GLÆSILEG SKARTGRIPA- OG GJAFAVÖRUVERSLUN
Á GARÐATORGI 7, VIÐ .KLUKKUTURNINN"
IJR & DJÁSN • GAROATORG 7 • GAHÐABÆR . SÍMI 565 9955 • I'AX 565 9977