Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 92

Morgunblaðið - 04.11.2000, Blaðsíða 92
D34L + Borðtölvur + Fartölvur + Netþjónar 563 3000 -r- www.ejs.is M0RGVNBLAÐ1Ð,KR1NGLUNN11,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5G91122, NETFANG: RITSTJ&MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTII LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Farsími bjargaði er maður lenti undir vélskóflu úti í á Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Hörður Óskarsson vélamaður með fjölskyldunni heima í stofu á Selfossi. Með honum á myndinni eru Sigurlaug Sigurðardóttir, kona hans, Sigríður Ósk, dóttir hans, og sonurinn Birgir Örn. Dyrnar þar sem vinnufélagar Harðar náðu honum undan gröfunni. Lítill árangur af viðræðum fram- haldsskðlakennara og rikisins í gær Urslitalota í kjaradeilunni yfír helgina Hélt að - þetta væri mitt síðasta Selfossi. Morgunblaðið „ÉG bara lá þarna og beið, var alveg rólegur eftir að ég náði sambandi við Steypustöðina í gegnum símann. Þeir hefðu ekki farið að undrast um mig fyrren löngu seinna," sagði Hörður Óskarsson, vélamaður hjá Steypustöð Suðurlands, sem slapp naumlega þegar vélskófla sem hann var á valt á hvolf ofan í Tunguá skammt ofan við Torfastaði í Grafn- ingi um 11 kílómetra frá Selfossi. Starfsmenn Steypustöðvarinnar fluttu Hörð í skyndi á Sjúkrahús Suðurlands þar sem hann fékk að- hlynningu en fékk að fara heim um kvöldið. Húsið á vélinni lagðist saman Óhappið varð um kl. 15.30 á fimmtudag þegar Hörður var á leið frá malarnámu ofan við Torfastaði í /jrafningi. Þegar hann kom að brúnni yfír ána lyfti hann malar- skóflunni en hægra afturhjólið lenti á brúarstöplinum og við það snerist vélin út af veginum og valt síðan á hvolf niður í ána. Húsið á vélinni lagðist nánast saman og Hörður sat gjörsamlega fastur undir 25 tonna vélinni. Gálginn á skóflunni var uppi og tók þungann af þannig að húsið lagðist ekki alveg niður. Hörður lenti á kafi í vatninu nema höfuðið og vinstri öxlin. Hann náði til GSM- símans í brjóstvasanum, sem ekki fór á kaf, og gat hringt í starfsmenn Steypustöðvarinnar sem fóru strax til hjálpar og voru komnir á staðinn nokkrum múiútum seinna. GSM-síminn bjargaði „Þegar vélin fór á hliðina reyndi ég að henda mér niður og hélt satt að segja að þetta væri mitt síðasta. Vélin lenti í vatninu og seig siðan lengra ofan í það. Ég gat ekki hreyft mig og fékk fyrst innilokunarkennd en svo dró ég bara djúpt andann og einsetti mér að taka það rólega. Ég náði súnanum en það var ekkert samband inni í gröfunni svo ég teygði höndina út úr húsinu og heyrði þegar það var svarað. Þá kallaði ég eins og ég gat og strák- arnir heyrðu í mér og komu. Ég bað þá að koma með gastæki, krafttaliu og kúbein og lagði siðan á. Senni- lega hef ég legið um 40 múiútur í ánni en mér var ekki svo kalt á með- an ég var þar, hef sennilega dofnað. Sennilega hefði ég legið þarna í ánni á annan tíma hefði ég ekki verið með súnann svo það má segja að súninn hafi bjargað mér,“ sagði Hörður Óskarsson vélamaður sem ekki kenndi sér neins meins eftir volkið í ánni en sagðist þó vera svolítið stirð- ur og með einhverjar skrámur. „Við fórum Qórir upp eftir á tveimur bflum og maður vissi ekkert hvernig þetta var fyrr en við komum á staðinn og þá datt okkur ekki ann- að í hug en að þarna hefði orðið banaslys," sagði Kjartan Ólafsson, framkvæmdastjóri Steypustöðvar- innar. „Við brutum hurðina upp og slitum hana af og náðum honum nokkuð auðveldlega undan vélinni. Það var mikið lán að ekki fór verr þama," sagði Kjartan. LÍTILL árangur varð af sáttavið- ræðum í kjaradeilu framhaldsskóla- kennara og ríkisins í gær. Reiknað er með nær samfelldum fundahöldum í deilunni í húsnæði sáttasemjara yfir alla helgina og á mánudag en að óbreyttu hefst boðað verkfall framhaldsskólakennara á miðnætti á mánudagskvöld. Þórir Einarsson ríkissáttasemjari sagði í gærkvöldi að úrslitalotan í viðræð- unum væri að hefjast og látið yrði reyna á yfir helgina hvort samningar takast án verkfalls. Hefur hann beð- ið deiluaðila að tjá sig ekki um stöð- una í viðræðunum yfir helgina. Skólayfirvöld eru uggandi vegna yfirvofandi verkfalls kennara og hvetja þau nemendur sína til þess að mæta í skólann þrátt fyrir að verk- fall skelli á. „Við erum eiginlega mest hrædd við góðærið, að góðærið gleypi þá, því það er auðvelt að fá vinnu og því hætt við að margir freistist til þess að gera það,“ segir Sigurborg Matthíasdóttir, aðstoðar- skólameistari Menntaskólans við Hamrahlíð. Pétur Rasmussen, konrektor Menntaskólans við Sund, segir að ef verkfall skelli á verði skólinn eftir sem áður opinn nemendum. Hann sagði að kennslustofur yrðu reyndar lokaðar en að bókasafn og annað rými yrði opið nemendum. Nemendur menntaskóla sem rætt var við í gær sögðust ýmist ætla að læra eða vinna ef til verkfalls kæmi en einn nemandi sagðist ætla að skella sér til Frakklands í viku. Flestir nemendur virðast búast við verkfalli og til marks um það eru flestir framhaldsskólanna búnir að skipuleggja svokallaða verkfalls- dansleiki á þriðjudaginn, sama dag og kennarar hafa boðað verkfall. Kennarar í Verzlunarskólanum boða verkfall 13. nóvember Kennarar í Verzlunarskóla ís- lands samþykktu í atkvæðagreiðslu í gær að boða verkfall frá og með 13. nóvember. 63 voru á kjörskrá og af þeim greiddu 58 atkvæði eða 92,06%. Já sögðu 43 eða 74,14%. Nei sögðu 12 eða 20,69%. Auðir og ógildir seðl- ar voru þrír. ■ Hræddust við/46-47 ---------------- Bílvelta á Borgarfjarðarbraut • • Okumaður slapp lítið meiddur ÖKUMAÐUR jeppa slapp lítið meiddur eftir að bifreið hans hvoifdi á Borgarfjarðarbraut skammt frá Varmalandi um níuleytið í gær- kvöldi. Að sögn lögreglunnar í Borgar- nesi missti ökumaðurinn stjórn á bílnum í beygju vegna ísingar á veg- inum. Fór bíllinn hálfa veltu og end- aði á hvolfi ofan í skurði. Ökumaður- inn, sem var einn í bílnum, var í bílbelti og telur lögreglan aðspurð að það kunni að hafa átt þátt í því hve ökumaðurinn meiddist lítið. Hann hlaut nokkrar skrámur. Alvarleg líkams- árás á Barónsstíg KONA á þrítugsaldri varð fyrir al- varlegri líkamsárás á heimili sínu ^fcið Barónsstíg í gærkvöldi. Unn- usti konunnar sparkaði í andlit hennar með þeim afleiðingum að tvær tennur brotnuðu auk þess sem hún hlaut aðra áverka í and- liti. Lögreglan í Reykjavík handtók manninn við heimili konunnar og færði í fangageymslur. Maðurinn var undir áhrifum áfengis. Hann verður yfirheyrður í dag. Konan var flutt á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss en fékk að fara heim að lokinni aðhlynningu. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Ljósahátíð hafin HÁTÍÐIN Ljósin í norðri hófst í Reykjavík í gær en hún þriggja, Reykjavíkur, Helsinki og Bergen. Tilgangur mun teygja anga sína víða um borgina. Meðal annars hátiðarinnar er að virkja myrkur og kulda vetrar- hefur þremur lýsandi gróðurhúsum verið komið fyrir á mánaðanna á norðurslóðum á jákvæðan hátt til list- Lækjartorgi eins og hér má sjá. sköpunar og skemmtunar. Hátíðin stendur fram á mánudagskvöld og er hún ____________________________________ samstarfsverkefni norrænu menningarborganna ■ Möguleikarnir/34
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.