Morgunblaðið - 04.11.2000, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Krístnes
Yatnsskort-
ur vegna
bilunar á
aðveituæð
EKKI hefur enn verið hægt að taka
nýju endurhæíingarsundlaugina á
Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit í
notkun eins og til stóð vegna bilunar á
aðveituæð fyrir kalda vatnið. Vegna
þessa hefur verið skortur á neyslu-
vatni á spítalanum og í húsunum þar í
kring og einn daginn í vikunni var þar
alveg vatnslaust, að sögn Vignis
Sveinssonar framkvæmdastjóra fjár-
mála og reksturs Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, FSA.
Kaldavatnslögnin er úr plasti og
liggur úr fjallinu ofan við Kristnes en
vegna veðurs og ófærðar síðustu daga
hefur ekki enn verið hægt að athuga
með skemmdir á henni. Talið er að
lögnin hafi laskast, þar sem hún skilar
ekki nógu miklu rennsli og tæplega
því neysluvatni sem þarf fyrir spítal-
ann og húsin í kring. Á meðan er ekki
hægt að taka sundlaugina í notkun.
Vignir sagði að ekki hafi tekist að
finna út hvar bilunin er en björgunar-
sveitarmenn hafa m.a. gert tilraun til
að fara upp í fjallshlíðina á sérútbún-
um fjaliajeppa og vélsleða en án
árangurs. Gera átti enn eina tilraun til
þess að fara upp í fjallshlíðina í gær
og ætluðu menn að freista þess að
finna bilunina. Lögnin sem er niður-
grafin, er nokkuð löng en að sögn
Vignis fer hún að minnsta kosti á ein-
um stað í gegnum læk, þar sem auð-
velt er að komast í rörið sjálft.
Vignir sagði að ekki hefði komið til
stórra vandræða á spítalanum vegna
vatnsskortsins en að fara þyrfti spar-
lega með vatnið. Hann sagði það
nokkuð undarlega tilviljun að þetta
skyldi koma upp nú þegar átti að fara
að taka endurhæfingarlaugina í notk-
un. Málið gæti þó hafa haft einhvem
aðdraganda þar sem söfnunartankur
væri fyrir vatn í fjallshlíðinni og að
einhvem tíma gæti hafa tekið að
tæma hann.
Vignir sagði nauðsynlegt að finna
bilunina sem fyrst, þannig að hægt
væri að hefja viðgerð á lögninni og
hann vonast til að vatnsmálin verði
komin í lag í síðasta lagi í næstu viku.
Einnig kæmi til greina að útvega vatn
með öðrum hætti.
Framkvæmdir við endurhæfingar-
sundlaugina á Kristnesi hafa staðið
yfir til fjölda ára og á þeim tíma hafa
fjölmargir aðilar lagt fram íjármagn
til verksins.
Tekjur Norðurorku nema um 1.147 milljónum króna á næsta ári
Lán greidd niður um
250 milljónir króna
í FYRSTU fjárhagsáætlun Norður-
orku, sem er sameinað fyrirtæki
Hita- og vatnsveitu og Rafveitu Ak-
ureyrar er gert ráð fyrir tekjum að
upphæð 1.147 milljónir króna á
næsta ári. Rekstrargjöld em áætluð
691 milljón króna og hagnaður fyrir
fjármagnslið og afskriftir verður
rúmar 456 milljónir króna. Fjár-
magnsliðir eru áætlaðir 80 milljónir
króna og afskriftir 370 milljónir
króna þannig að gert er ráð fyrir 6
milljóna króna hagnaði af rekstrin-
um á næsta ári.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri á Akureyri sagði þegar hann
lagði fram frumvarp að fjárhags-
áætlun bæjarsjóðs og stofnana hans
á fundi bæjarstjórnar í vikunni, að
Ijóst væri að rekstur veitna Akur-
eyrarbæjar væri með miklum ágæt-
um og í góðu jafnvægi.
Norðurorka skilaði næstum jafn
miklum hagnaði og bæjarsjóður fyr-
ir afskriftir og fjármagnskostnað og
yrði áfram haldið á þeirri braut sem
mörkuð hefði verið, að greiða niður
lán veitunnar af myndarskap, eða
um rúmar 250 milljónir króna. Gert
er ráð fyrir að langtímaskuldir
veitustofnana Akureyrarbæjar verði
um 1.700 milljónir króna í lok næsta
árs. í málefnasamningi meirihlutans
er gert ráð fyrir að lækka verð á
heitu vatni á síðari hluta kjörtíma-
bilsins og sagði bæjarstjóri að lagð-
ar yrðu fram tillögur í þeim efnum á
næsta ári. Hafi yrði í huga í þeim
umræðum samhengið milli verð-
lagningar á heitu vatni og gengis og
vaxtaþróunar sem hefðu afgerandi
áhrif á afkomu veitustofnana.
í áætlun veitunnar er gert ráð
fyrir áframhaldandi þátttöku í fyrir-
tækjunum íslenskri orku ehf. og
Þeystareykjum ehf. en með þeim
hætti tekur veitan að sögn bæjar-
stjóra fullan þátt í þeirri sókn til
betri búsetuskilyrða sem bæjar-
stjóm ber að vinna að af alefli.
Heildarfjárfesting Norðurorku á
næsta ári er áætluð 143,5 milljónfr
króna, þar af fara 35 milljónir í
dreifikerfí, 50 milljónir í raforku-
kerfi og 46,5 milljónir í rannsóknir
og vatnsöflun.
Morgunblaðið/Margit Elva
Umferðarfræðsla í Grímsey
UMFERÐARFRÆÐSLA var haldin í grunnskólanum í Grímsey í síð-
ustu viku og sá Þorsteinn Pétursson, lögreglumaður á Akureyri, um
fræðsiuna. Á myndinni er hann að aðstoða nemendur í fyrsta og fjórða
bekk að stilla hljólreiðahjálma sem þeir fengu geflns frá Kiwanisfélag-
inu Grími í Grímsey. Grímur gefur árlega 6 ára og 9 ára nemendum
nýja hjálma.
VIRÐI SÍMENNTUNAR FYRIR FYRIRTÆKI
- Markviss uppbygging þekkingarauðs -
Málþing á vegum Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar - SÍMEY, fimmtudaginn
9. nóvember, kl. 13.00-18.45 á Fiðlaranum, Akureyri.
Fyrirlesarar verða:
Landsvirkjun, Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs.
íslensk verðbréf, Sævar Helgason, framkvæmdastjóri.
Byggðastofnun, Kristinn H. Gunnarsson, stjómarformaður.
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar - SÍMEY, Baldur Dýrfjörð stjómarformaður .
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar - SÍMEY, Katrín D. Þorsteinsdóttir forstöðumaður.
Háskólinn á Akureyri, Helgi Gestsson lektor.
Þekking, Stefán Jóhannesson framkvæmdastjóri.
Starfsgreinasamband íslands - SGS, Kristján Bragason.
íslenska álfélagið - ÍSAL, Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi.
/ lok dagskrár fer fram afhending á viðurkenningarskjölum til stofnaðila SÍMEY og boðið
upp á léttar veitingar íframhaldi af því!
Málþingsgjald er kr. 1.000 ámann.
Vinsamlegast skráið ykkur fyrir 9. nóvember.
Sendið þátttökutilkynningu á netfangið simey@simey.is
eða skráið ykkur hjá riturum í síma 462 7620.
SÍMENNTUNARMIÐSTÖÐ
, , , , . . CVIAFJAROAR
Askiljum okkur rett til breytinga a dagskra an fynrvara.
<E>SÍMEY
Tilsölu
er fyrirtækið Þ. Björgúlfsson ehf.
Hafnarstræti 19, Akureyri
Um er að ræða smásöluverslun og heildverslun. Félagið á
fasteignina Hafnarstræti 19, sem er verslunar- og
skrifstofuhúsnæði, samtals 459,9 fm. Fasteignin er vel
staðsett og býður upp á mjög mikla og fjölbreytta
möguleika. Reksturinn og fasteignin seljast saman eða sitt í
hvoru lagi.
Upplýsingar veittar á fasteignasölurmi. / rj
tASTUGNASAtAN
BYGGÐ
Akureyri
sími 462 1744 fax462 7746