Morgunblaðið - 04.11.2000, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 2S
ÚRVERINU
MorgunDlaðið/Porkell
Frá setningu aðalfundar Landssambands smábátaeigenda, sem fram
fór á Grand Hótel í gær og fyrradag.
Landssamband smábátaeigenda
Samstaða hjá
trillukörlunum
„ÞAÐ sem mér er efst í huga á þess-
ari stundu er þessi frábæra samstaða
sem menn héma ná um mál, því eins
og allir vita eru trillukarlar sundur-
leitur hópur og eðli smábátasjó-
mennskunnar er að menn eru oft á
tíðum einir á báti,“ sagði Arthur
Bogason, fonnaður Landssambands
smábátaeigenda, að loknum aðalfund-
inum á Grand Hótel Reykjavík í gær.
Arthur sagði að menn hefðu leyst
mörg mál en upp úr stæði sá ein-
dregni vilji að hafna allri frekari
kvótasetningu ásamt þeirri kröfu að
menn nytu jafnræðis í atvinnugrein-
inni.
Fundurinn samþykkti samhljóða
eftirfarandi aðalályktun:
„Frumskilyrði þess að lifandi og
þróttmikill sjávarútvegur sé stundað-
ur á íslandi er að fyllstu sanngimi sé
gætt við smíði leikreglna innan at-
vinnugreinarinnar, ásamt því að ný-
liðun geti átt sér stað með eðlilegum
hætti.
LS hefur fullan skiining á ýmsum
þeim takmörkunum sem settar hafa
verið á fiskveiðarnar og styður þær
margar hverjar heilshugar.
LS kvikar þó hvergi frá þeirri
grandvallarskoðun sinni að hand-
færaveiðar eigi að njóta frjálsræðis
og sérstöðu og skorar á stjómvöld að
hefja nú þegar tilslakanir hvað þær
varðar. Með slíkri aðgerð gefst
stjómvöldum tækifæri til að nálgast
lausn og sátt tveggja mikilsverðra
þátta: Annars vegar væri fjölmörgum
þeirra er illa standa innan fisk-
veiðikerfisins vegna aðstöðumunar og
ósanngjamra leikreglna undan-
genginna ára rétt hjálparhönd og
hins vegar að ryðja braut fil
heilbrigðrai- nýliðunar í greininni,
sem að óbreyttu er nánast útilokuð.
Gangi lögin um stjóm fiskveiða
óbreytt eftir er á hinn bóginn verið að
fjarlægjast þessi mai-kmið hröðum
skrefum. Það rekstraramhverfi sem
hundraðum smábátaeigenda er stefnt
inn í 1. september 2001 er með þeim
hætti að útgerð þeirra afleggst að
mestu, atvinnutæki þeirra rýrna í
verðgildi svo milljörðum króna skiptir
ásamt því að framkalla stórfellt rask á
lífslqöram og búsetu. Við þetta verð-
ur ekki unað.
Þær væntingai- sem aðalfundur LS
gerir til þeirrar nefndar sem sjávar-
útvegsráðherra skipaði til að endur-
skoða lögin um stjóm fiskveiða eru að
henni beri sú gæfa að rétta smábáta-
eigendum sáttahönd og ganga til
samvinnu við þá að varanlegri lausn
þeima mála sem við blasa.
Aðalfundur LS ítrekar enn og aftur
fyrri áskoranir sínar hvað varðar um-
hverfisáhrif veiðarfæra. Það er fisk-
veiðiþjóð, sem hikar ekki við að lýsa
sjálfri sér sem fremstri meðal jafn-
ingja, til háborinnar skammar að
draga endalaust lappirnar hvað varð-
ar þetta lykilatriði við nýtingu fisk-
veiðiauðlinda.
í kapphlaupi nútímans við leit að
nýjum auðlindum sem hægt er að
hefja verðlagningu og verslun með
vill á tíðum gleymast að til er það sem
seint eða aldrei verður metið til fjár.
Öflug smábátaútgerð tengir í senn
saman þætti úr þjóðmenningu Islend-
inga sem eiga djúpar rætur meðal
landsmanna, ásamt því að viðhalda
fjölbreyttu atvinnu- og mannlífi
strandbyggðanna. Hún tengir saman
arfleifð fyrri tíma og hátækni nútím-
ans án þess að kasta fyrir róða þess-
um ómetanlegu gildum."
WWW
Undirfa taverslun
\ Brjósfakölct
w
Lindirfafnadun
J\)se.nfa fn a du n
Jdáfffafnadun
Óöloppar
TiiunifiJi
Kringlunni 8-12 Sími 553 3600
Sæsilfur hf. áætlar að hefja sjókvíaeldi í Mjóafírði
Gert ráð fyrir 8.000
tonna ársframleiðslu
SÆSILFUR hf. áætlar að hefja sjó-
kvíaeldi í Mjóafirði og er umsókn
þess efnis til meðferðar í stjórnkerf-
inu. Gert er ráð fyrir að eldið hefjist
af krafti vorið 2002 og að ársfram-
leiðslan verði um 8.000 tonn en árs-
veltan um 1,7 milljarðaf króna. Enn-
fremur hefur AGVA Norðurland ehf.,
dótturfyrirtæki Sæsilfurs, sótt um að
hefja starfrækslu 4.000 tonna kvíeld-
isstöðvar í Eyjafirði ásamt seiðaeldis-
stöð á landi á Hauganesi í Eyjafirði.
Sæsilfur hf. er nýtt félag, byggt á
fiskeldisfélaginu AGVA ehf. Hlutaféð
er 100 milljónir kr. og eiga Síldar-
vinnslan hf. og Samherji hf. sín 35%
hvort félag, Anna Katrín Ámadóttir
og Guðmundur Valur Stefánsson
20% og Hraðfrystistöð Þórshafnar
hf. 10% hlut. Þegar sjókvíaeldið hefst
bætist seiðaeldisfyrirtækið Silfur-
stjaman í Öxarfirði væntanlega í hóp
hluthafa en þegar eldisstöðin hefur
náð fullri stærð er gert ráð fyrir að
hlutafé í fyrirtækinu verði ekki undir
600 milljónum króna.
Guðmundur Valur Stefánsson,
framkvæmdastjóri Sæsilfurs, segir
að tvennt gefi tilefni til bjartsýni.
Þekking á fiskeldi sé miklu meiri nú
en áður og auk þess sé stefnt að því
að nota íslensk-norskan stofn sem sé
mun heppilegri en íslenski stofninn
sem áður hafi verið notaður í kvíaeldi.
Fáist öll tilskilin leyfi á næstunni
verður hægt að byrja seiðaeldið af
fullum krafti upp úr áramótum. Gert
er ráð fyrir að seiðin verði að hluta til
alin hjá Silfurstjömunni í Öxarfirði.
Fiskur sem fer í sjó þarf helst að hafa
náð 300 til 500 gramma þyngd og því
er reiknað með að eldið hefjist ekki
að fullu fyiT en vorið 2002.
Mörg störf skapast
Að sögn Guðmundar Vals má áætla
að við eldið og slátrun skapist 35 til 40
störf og 15 til 20 störf til viðbótar
vegna íúllvinnslu auk annarra um-
svifa. Talið er að á hverjum virkum
degi verði slátrað 35 til 40 tonnum í
Síldarvinnslunni í Neskaupstað og
gengið út frá því að þar verði jafn-
framt hægt að fullvinna hluta fram-
leiðslunnar. Einnig verða kannaðir
möguleikai- á að framleiða fóður og
umbúðir á svæðinu og þörf verður
fyrir ýmsa aðra þjónustu svo sem
varðandi að- og fráflutninga ásamt
nótaþvotti og ýmiss konar viðhaldi.
Besti búnaður
Sæsilfur gerir ráð fyrir að starfs-
og rekstrarleyfin geri kröfu um að
besti fáanlegi búnaður verði notaður
og strangar umgengnis- og starfs-
venjur viðhafðar sem tryggi að hverf-
andi líkur séu á að lax sleppi úr
kvíum. Guðmundur Valur segir að
sjúkdómar séu nánast ekki til í fisk-
eldi og með góðum búnaði og góðum
starfsháttum megi ætla að strok úr
kvíum verði varla merkjanlegt en á
alþjóðavettvangi hafi greinin sett sér
það markmið að koma alfarið í veg
fyrir strok innan þriggja ára. Sæsilf-
ur ætlar sér að taka virkan þátt í
stefnumótun Landssambands fisk-
eldis- og hafbeitarstöðva og þar með
Alþjóðasambandi laxeldisframleið-
enda en gengið er út frá því að ekki
seinna en í mars á næsta ári hafi
náðst samkomulag við NASCO, op-
inbera laxverndunarsamtökin í
Norður-Atlantshafi, um reglur sem
gilda eigi fyrir allt kvíaeldi í Norð-
ur-Atlantshafi.
Rættum
lækkun
tolla
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra átti í vikunni fund með
starfandi sjávarútvegsráðherra
Kína, hr. Wan Baorai.
Ráðherrarnir ræddu hvernig
liðka mætti fyrir viðskiptum milli
landanna, meðal annars viðskipt-
um með vörar og þekkingu sem
tengist sjávarútvegi og um tolla-
lækkanir á íslenskum sjávarafurð-
um í Kína. Kínverski ráðherrann
sagði að í framhaldi af inngöngu
þeirra í Alþjóðaviðskiptastofnun-
ina myndu tollar lækka í áföngum.
Ráðherramir ræddu einnig um-
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Wan Baorui,
starfandi sjávarútvegsráðherra Kína.
hverfismerkingar sjávarafurða og
vora sammála um að stjórnvöld,
sem hafa fiskveiðistjórnunina á
hendi, þyrftu að gegna forystuhlut-
verki í umræðunni. Þá var rætt um
samstarf í menntamálum á vett-
vangi sjávarútvegsskóla Sam-
einuðu þjóðanna. Ráðherrarnir
ræddu einnig hvalveiðar og afstöðu
íslendinga til Alþjóðahvalveiði-
ráðsins. I máli kínverska ráðherr-
ans kom fram að afstaða Kínverja
hafi verið sú að þar eigi að gæta
verndunarsjónarmiða en þeir séu
ekki mótfallnir sjálfbærri nýtingu
allra auðlinda hafsins.
Við kynnum THER-A-PEDIC, bandarískar
heilsudýnur, sem unnið hafa til margra
verðlauna fyrir hönnun og gæði.
Komdu og leggðu þig!
www.lystadun.is