Morgunblaðið - 04.11.2000, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
VIKU
m
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 43
Associated Press
Slæmur félagsskapur.
„Þeir
hugsa ekk-
ert um eig-
in heilsu“
Helsinki. Reuter.
LÍFSHÆTTIR fmnskra karl-
manna eru ábyrgir fyrir því
að sjö ára munur er á meðal-
ævilengd karla og kvenna þar
í landi. Finnskir karlar borða
óholla fæðu og bókstaflega
iðka það að reykja sig og
drekka í hel.
„Karlmenn hér hugsa ein-
faldlega ekkert um eigin
heilsu,“ segir Mika Gissler
sem vann að gerð könnunar á
meðalævilengd fyrir finnsku
hagstofuna. „Einn þáttur sem
miklu skiptir er sú staðreynd
að finnskir karlmenn bæði
reykja og drekka meira en
konur auk þess sem þeir
borða meira af feitum pyls-
um.“
I öðrum norrænum löndum
er munur á ævilengd karla og
kvenna að jafnaði fimm ár.
Hið sama gildir um aðildar-
ríki Evrópusambandsins.
Þessi munur er hins vegar sjö
ár í Finnlandi og er hann
hvergi meiri innan Evrópu-
sambandsins. Finnar þurfa að
horfa til austurs til að finna
meiri mun, til Eystrasalts-
ríkjanna og Rússlands.
Finnskir karlar lifa að með-
altali í 74 ár en konur sjö ár-
um lengur. Karlar í nágrann-
aríkinu Svíþjóð lifa að jafnaði
þremur árum lengur en þeir
finnsku og konurnar þar
verða árinu eldri en kynsyst-
ur Jæirra í Finnlandi.
I Finnlandi er búist við að
þetta bil fari minnkandi á
næstu árum, að sögn Mika
Gissler. Þess sjást merki að
lífshættir finnskra karlmanna
fari örlítið batnandi en mestu
skiptir að sífellt fleiri konur
huga betur að heilsu sinni.
lægja þannig fitu undirhúðarinnar
og hefur stundum náðst góður ár-
angur á þennan hátt. Um öll þessi
úrræði getur viðkomandi skurð-
læknir veitt upplýsingar.
Áfram verður haldið að leita með-
ferðarúrræða við sogæðabólgu. í
lokin má nefna að sums staðar er-
lendis eru sérstakar meðferðarstofn-
anir fyrir sogæðabólgu og félög eða
stuðningshópar fyrir sjúklinga með
sjúkdóminn.
Á NETINU: Nálgast má skrif
Magnúsar Jóhannssonar um læknis-
fræðileg efni á heimasíðu hans á
Netinu. Slóðin er: http://www.hi.is/
-magjoh/
• Lcsendur Morgunblaðsins geta spurt
lækninn um það sem þeim liggurá
hjarta. Tekið cr á móti spurningum á
virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í
síma 5691100 og bréfum eða símbrcfum
merkt: Vikulok. Fax 5691222. Einnig
gcta lesendur scnt fyrirspumir sfnar
með tölvupósti á netfang Magnúsar
Jóhannssonar. clmag@hotmail.com.
Oflækningar vegna
eyrnabólgu barna
Morgunblaðið/Sverrir
Meiri hætta er á oflækningum ef læknir er í tímaþröng að sögn Vil-
hjálms Ara Arasonar heilsugæslulæknis.
UM ÞRIÐJUNGI færri böm fengu
sýklalyfjameðferð við eymabólgu á
12 mánaða tímabili á áranum 1997-8
en á jafnlöngu tímabili 5 áram áður.
„Eins hefur tekist að spoma við þró-
un sýklalyfjaónæmis. Arangur okkar
hefur verið öðram þjóðum til fyrir-
myndar og það er oft bent á okkur,
m.a. í Bandaríkjunum, vegna þessa,“
segir Vilhjálmur Ari Arason, heilsu-
gæslulæknir á heilsugæslustöðinni
Sólvangi í Hafnarfirði en hann hefur
ásamt læknunum Jóhanni Ág. Sig-
urðssyni, Karh G. Kristinssyni og
Sigurði Guðmundssyni rannsakað
sýklalyfjanotkun við eymabólgum og
sýklalyfjanotkun utan spítala á fjór-
um stöðum á íslandi. Auk þess
rannsakaði hann, ásamt Jóhanni
Agústi, meðhöndlun eymabólgu með
hljóðhimnuröram. Rannsóknimar
vora kynntar á vísindaþingi Félags
íslenskra heimilislækna, sem haldið
var í Hveragerði nú í lok október.
Fólk er sátt við að bíða
Á áranum 1992-3 var eymabólga
algengasta ástæða þess að böm
fengu sýklalyf, eða um 65% allra sýk-
lalyfjameðferða fyrir börn, og höfðu
læknar og heilbrigðisyfirvöld vera-
legar áhyggjur af að þessi mikla
notkun lyfjanna gegn þessum til-
tekna kvilla stuðlaði að sýkla-
lyfjaónæmi pneumokokka. Pneumo-
kokkasýkingar era algengasta orsök
eyrnabólgu en auk þess valda þær
ýmsum alvarlegum sjúkdómum, t.d.
lungnabólgu. Var þá gripið til þess
ráðs að hvetja lækna og forráðamenn
barna til að draga úr notkun sýkla-
lyfja, m.a. við vægum eymasýking-
um. „Nú höfum við væntanlega sýnt
fram á að eymabólgur vora ofmeð-
höndlaðar í a.m.k. 30% tilfella fyrir 5
áram og líklega er það enn gert,“
segir VUhjálmur Ari.
Rannsókn læknanna náði til barna
á aldrinum 1-6 ára á þessum tveimur
tímabUum. Rúmlega 800 böm frá
fjóram þéttbýhsstöðum á landinu
tóku þátt í rannsókninni.
„Fólk er yfirleitt sátt við að bíða
með að gefa börnum sínum sýklalyf,
sérstaklega þegar það áttar sig á
hversu mikið inngrip sýklalyfjagjöf
er. Það er eðlUegt að börn fái væga
eymabólgu upp úr kvefi og best er að
láta ónæmiskerfið um að fást við
hana. En það er mikilvægt að gerður
sé skýr gi-einarmunur á vægri eyma-
bólgu og alvarlegri eymabólgu með
háum hita,“ segir VUhjálmur Ari.
Hann segir enn fremur að helsti
ávinningur þess að nota sýklalyf við
vægum eyrnabólgum sé að barnið
losni fyrr við verki. Líkur á alvarleg-
um kvillum á borð við heymar-
skemmdir aukist aftur á móti ekki
þótt engin s_ýklalyf séu gefin í slíkum
tilfellum. „Okostimir era hins vegar
oft og tíðum meiri og ekki má gleyma
aukaverkunum sýklalyfja, sem geta
verið alvarlegar."
Oflækningar
Vilhjálmur Ari segir að hann hafi
tekið þátt í rannsóknunum einkan-
lega vegna áhuga síns á oflækning-
um. Bendir hann t.d. á að fyrir áratug
eða svo hafi verið algengt að fólk hafi
verið greint með „bronkítis" og það
meðhöndlað með sýklalyfjum. Nú tU
dags sé sami kvilli aftur á móti all-
ajafna greindur sem kvef í berkjum
eða astmi og viðeigandi lyf gefið ef
nauðsyn krefur. Meiri hætta sé á of-
meðhöndlun sýkinga ef læknir er í
tímaþröng auk þess sem sjúklingar
leiti oft til læknis vegna skilaboða frá
umhverfinu um að meðferð sé nauð-
synleg. „Fyrir utan að geta valdið
beinum skaða geta oflækningar
skapað heUbrigðisvandamál eins og
t.d. að auka á ónæmi baktería fyrir
sýklalyfjum.11
Vilhjálmur Ari segir að hljóð-
himnurör séu sett í eyran á þriðja
hverju íslensku barni á íyrstu ævi-
áram þess og að læknar séu beittir
miklum þrýstingi til að finna viðun-
andi lausn á tíðum eyrnabólgum hjá
barni. Engin þjóð notar rörin eins
mikið og íslendingar, segir hann enn
fremur. „Þetta er fyrsta faralds-
fræðilega rannsóknin sem gerð hefur
verið hér á landi um notkun hljóð-
himnuröra,“ segir Vilhjálmur Ari.
Samkvæmt niðurstöðum rannsókn-
arinnar höfðu böm með rör í eyram
ekkert síður fengið sýklalyf síðustu
átta vikumar fyrir þátttöku í rann-
sókninni en börn sem ekki vora með
rör. Hann segir niðurstöðumar vekja
þá spumingu hvort ísetning
hljóðhimnuröra geti talist til oflækn-
inga.
„Vökvi í miðeyra er mjög algengur
hjá bömum, oftast í tengslum við
kvefpestir. Yfirleitt hverfur hann á
3-6 mánuðum og rör era inngrip í
náttúrulegt ferli. Eymabólgur era
ekki meginástæða þess að rör era sett
í hljóðhimnur heldur það að menn
telja að ef vökvi situr lengi inni í eyr-
anu geti heym skerst og það tefji fyr-
ir málþroska. Sönnur hafa þó aldrei
verið færðar á að rör í eyrum stuðli að
auknum málþroska," segir Vilhjálm-
ur Ari. „I framhaldi af þessum niður-
stöðum þarf að rannsaka hvort heym
og málþroski íslenskra bama er betri
eða verri en í nágrannalöndunum þar
sem rör era miklu sjaldnar notuð.“
Alvöru skor
2.990,-
Bamakuidskér í miklu urvali
VINTERSPORT
ÞfN FRfSTUND - OKKAR FAG
VINTERSPORT
Blldshöfða • 110 Reykjavík • slmi 5 1 0 8020 • www.intersport.is