Morgunblaðið - 04.11.2000, Síða 68
^>8 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
SKOÐUN
MORGUNBLARIÐ
LEYFIOG EINKALEYFITIL
REKSTURS HAPPDRÆTTA OG
SKYLDRARSTARFSEMI
Á UNDANFÖRNUM árum hef-
ur Háskóli íslands iðulega fært
**þann möguleika í tal við ráðamenn
að svonefnt einkaleyfisgjald Happ-
drættis Háskóla íslands yrði fellt
niður með það að markmiði að gera
skólanum kleift að verja meiru af
sjálfsaflafé sínu til bráðnauðsyn-
legra byggingaframkvæmda hans.
Hefur verið bent á að happdrættið
njóti nú alls ekki í reynd einkaleyfis
til reksturs peningahappdrættis
með sama hætti og það gerði í upp-
hafi.
Margir hafa tekið undir sjónar-
mið Háskólans en aðrir hafa látið þá
skoðun í ljósi að um það sé að velja
að greiða einkaleyfisgjaldið áfram
eða að horfa fram á að lagalegum
grundvelli happdrættisins verði
kollvarpað.
Svo virðist sem sú skoðun sé
nokkuð ríkjandi að Happdrætti Há-
skóla íslands sé eitt aðnjótandi
einkaréttar til að reka peninga-
happdrætti eða skylda starfsemi
innan tiltekinna marka. Þessi mis-
skilningur er að öllum líkindum
sprottinn upp af þeirri staðreynd að
orðið einkaleyfi er ekki alltaf í lög-
um notað um takmörkun til slíks
reksturs heldur er gjarnan kveðið á
um, að það sem einum er sérstak-
^.lega leyft sé öðrum óheimilt.
I eftirfarandi samantekt þar sem
nokkrar greinar laga eru birtar má
sjá hverjir það eru sem hafa fengið
einkaleyfi til reksturs peningahapp-
drætta eða ígildi þeirra, auk þess
sem sjá má hverjir hafa tekið sér
slíkan rétt utan Iaga. Þá eru sýndar
nýjustu tiltækar opin-
berar upplýsingar
(skýrsla dómsmála-
ráðuneytisins um
happdrættismarkað-
inn, febrúar 1999) um
ágóða af reglulegri
starfsemi hvers aðila á
ári (1997) og það
hversu mikið viðkom-
andi var gert að greiða
í ríkissjóð vegna leyfis.
Almenn lög
Lög um happdrætti
(lotterí) og hlutaveltur
(tombólur)
1. gr. Happdrætti,
hverrar tegundar sem
er, má ekki hafa nema
með leyfi dómsmálaráðuneytisins,
og ekki hlutaveltur nema með leyfi
lögreglustjóra. Peningahappdrætti
eða önnur því lík happspil má ekki
setja á stofn án lagaheimildar. 2. gr.
Það er bannað mönnum á íslandi að
versla þar með eða selja hluti fyrir
erlend happdrætti eða önnur þvílík
happspil, eða að hafa þar á hendi
nokkur störf, er að þessu lúta. 3. gr.
Brot gegn lögum þessum varða
sektum og skal fara með mál af
þeim að hætti opinberra mála.
Sérlög
Lög um Happdrætti Háskóla ís-
lands
l.gr. Dómsmálaráðherra er heim-
ilt að veita Háskóla íslands einka-
leyfi til rekstrar happdrættis með
þeim skilyrðum, er nú skal greina:
a. Hlutatalan má ekki fara fram
úr 60.000, er skiptist í
12 flokka....
Dómsmálaráðherra
er enn fremur heimilt
að veita Háskóla ís-
lands einkaleyfi til
rekstrar skyndihapp-
drættis með peninga-
vinningum, svo og pen-
ingahappdrættis sem
ekki yrði rekið sem
flokkahappdrætti....
Dómsmálaráðherra
getur heimilað að við
starfsemi skv. 1. og 2.
mgr. séu notaðar sér-
stakar happdrættis-
vélar þannig að þátt-
taka, ákvörðun um
vinning og greiðsla á honum fari
fram vélrænt og samstundis og enn
fremur að slíkar happdrættisvélar
séu samtengdar, einstakar vélar og
á milli sölustaða...
e. Einkaleyfi til að reka happ-
drættið má veita til 1. janúar 2004.
Leyfishafi greiði í ríkissjóð 20%
af nettóársarði í einkaleyfisgjald.
2. gr. Á meðan happdrættið starf-
ar, er bannað að setja á stofn nokk-
urt annað peningahappdrætti hér á
landi, svo og að versla með eða hafa
á boðstólum miða erlendra happ-
drætta, auglýsa þá í innlendum
blöðum eða hvetja menn til að
kaupa þá.....
Eins og sjá má af ofangreindu eru
heimildarákvæði vegna happdrætt-
isreksturs Háskóla íslands mjög
viðtæk. Skýrt er tekið fram um
einkaleyfi til reksturs peningahapp-
drættis og kveðið á um hversu mik-
ið skuli greitt fyrir einkaleyfið.
Á árinu 1997 var hagnaður af
rekstri happdrættisins um 350
milljónir króna og greiðsla í ríkis-
sjóð vegna einkaleyfis var um 70
milljónir króna.
Lög um getraunir
1. gr. Ríkisstjórninni veitist
heimild til þess að stofna félag, ís-
lenskar Getraunir, sem afli fjár til
stuðnings íþróttaiðkunum á vegum
áhugamanna um íþróttir í landinu í
félögum innan Ungmennafélags ís-
lands eða íþróttasambands íslands.
2. gr. Félagið starfrækir íþrótta-
getraunir, en með íþróttagetraun-
um er átt við að á þar til gerða miða,
getraunaseðla, sem félagið eitt hef-
ur rétt til að gefa út, eru merkt
væntanleg úrslit íþróttakappleikja,
íþróttamóta.
10. gr. Öllum öðrum en íslensk-
um Getraunum skal óheimilt að
starfrækja getraunir, sem um ræðir
í 2. gr. þessara laga.
Samkvæmt þessum lögum er
veitt heimild til reksturs íþrótta-
getrauna. I 10.gr. laganna er tekið
fram að um einkaleyfi sé að ræða.
Ekki er kveðið á um gjaldskyldu
vegna einkaleyfisins.
Á árinu 1997 var ágóði Islenskra
Getrauna um 60 milljónir króna.
Lfíg um talnagetraunir
1. gr. Dómsmálaráðherra er
heimilt að veita Iþróttasambandi
íslands (ÍSÍ), Ungmennafélagi ís-
lands (UMFÍ) og Öryrkjabandalagi
íslands (ÖBÍ) leyfi til þess að starf-
rækja saman, í nafni félags sem
samtök þessi munu stofna, getraun-
ir er fram fara með þeim hætti að á
þar til gerða miða er skráð eða valin
Á árinu 1997 var hagn-
aður af rekstri happ-
drættisins um 350 millj-
ónir króna, segir
Ragnar Ingimarsson,
og greiðsla í ríkissjóð
vegna einkaleyfis var
um 70 milljónir króna.
röð talna og eða bókstafa. Heimild
þessi gildir til ársloka 2005.
7. gr. Öheimilt er öðrum en fram-
angreindu félagi íþróttasambands
íslands, Ungmennafélags íslands
og Öryrkjabandalags Islands að
starfrækja getraunir með þeim
hætti sem um ræðir í 1. gr.
Samkvæmt þessum lögum er ís-
lenskri Getspá veitt heimild til
reksturs sérstakra getrauna
(lottós). í 7.gr. laganna er tekið
fram að um einkaleyfi sé að ræða.
Ekki er kveðið á um gjaldskyldu
vegna einkaleyfisins.
Á árinu 1997 var ágóði íslenskrar
Getspár um 325 milljónir króna.
Lög um söfnunarkassa
1. gr. Dómsmálaráðherra er
heimilt að veita Islenskum söfnun-
arkössum (ISK), félagi í eigu Rauða
kross Islands, Landsbjargar, Sam-
taka áhugamanna um áfengis- og
vímuefnavandann og Slysavarnafé-
lags Islands, leyfi til að starfrækja
söfnunarkassa með peningavinn-
ingum....
2. gr. Með söfnunarkössum í lög-
um þessum er átt við handvirka og/
eða vélræna söfnunarkassa sem
ekki eru samtengdir og í eru sett
peningaframlög er jafnframt veita
þeim sem þau leggja fram mögu-
leika á peningavinningi, allt að
ákveðinni fjárhæð, og skal úthlutun
vinninga byggjast á tilviljun. Söfn-
unarkassar samkvæmt lögum þess-
um skulu vera merktir Islenskum
söfnunarkössum.
5. gr. Brot gegn lögum þessum
varða sektum nema þyngri refsing
liggi við broti samkvæmt öðrum
lögum. Þá er heimilt með dómi að
gera upptæk tæki og fjármuni sem
notaðir hafa verið við brot á lögun-
um.
Samkvæmt þessum lögum er Is-
lenskum söfnunarkössum veitt
heimild til reksturs sérstakra söfn-
unarkassa með peningavinningum
(sbr. spilakassa sem sjá má í sjopp-
um og víðar um allt land). Ekki er
kveðið á um einkaleyfi en vart verð-
ur 5. gr. laganna túlkuð með öðrum
hætti en þeim að öðrum aðilum sé
óheimill sambærilegur rekstur og
því sé um ígildi einkaleyfis sé að
ræða. Ekki er kveðið á um gjald-
skyldu.
Á árinu 1997 var ágóði Islenskra
söfnunarkassa um 860 milljónir
króna.
Lög um happdrætti fyrir Sam-
band íslenskra berkla- og brjóst-
holssjúklinga
1. gr. Heimilt skal Sambandi ís-
lenskra berkla- og brjóstholssjúkl-
inga að reka vöruhappdrætti með
eftirfarandi skilyrðum: a. Hlutatal-
an má ekki fara fram úr 75.000.
Draga skal í 12 flokkum ...
3. gr. Heimild þessi gildir til árs-
loka 2007...
Happdrætti SÍBS er einn þriggja
aðila (hinir eru HHÍ og DÁS) sem
reka flokkahappdrætti og hafa til
þess sérstakt leyfi. Samkvæmt lög-
um skal happdrættið vera vöru-
happdrætti. Vinningar happdrætt-
isins eru hinsvegar bland af
peningavinningum og vörum.
Auglýsingar bera með sér að um
peningahappdrætti er að ræða og
vinningar eru í reynd greiddir út í
peningum t.d. gegn framlagningu
reikninga.
Á árinu 1997 var ágóði Happ-
drættis SÍBS um 30 milljónir króna.
Lög um happdrætti Dvalarheim-
ilis aldraðra sjómanna
1. gr. Heimilt skal Dvalarheimili
aldraðra sjómanna að stofna happ-
drætti um bifreiðar, bifhjól, báta,
búnaðarvélar, íbúðarhús og ein-
stakar íbúðir, húsbúnað, hljóðfæri,
búpening, flugvélar og farmiða til
ferðalaga....
2. gr. Dráttur skal fara fram í
Reykjavík undir eftirliti nefndar,
sem dómsmálaráðherra skipar til
þess....Dregið skal mánaðarlega.
3. gr. Heimild þessi gildir til ársloka
2007.
Happdrætti DAS hefur leyfi til
reksturs happdrættis með mánað-
arlegum útdráttum og er það nú
rekið sem flokkahappdrætti. Sam-
kvæmt lögum skal happdrættið
vera vöruhappdrætti. Vinningar
happdrættisins eru hinsvegar fyrst
og fremst peningavinningar og eru
auglýstir sem slíkir. Happdrættið
býður vinningshöfum m.a. að fá
vinninga greidda með ávísun eða
innlagningu á bankareikning við-
komandi.
Á árinu 1997 var ágóði Happ-
drættis DAS um 50 milljónir króna.
Samkvæmt því sem hér hefur
verið upp talið má sjá að hagnaður
þeirra aðila sem reka peningahapp-
drætti eða skylda starfsemi var um
1675 milljónir króna á einu ári.
Happdrætti Háskóla íslands
greiddi á umræddu ári um 70 millj-
ónir króna í ríkissjóð vegna svo-
nefnds einkaleyfis en aðrir aðilar á
markaðnum greiddu ekkert fyrir
starfsleyfi sín og sérheimildir:
Ef miðað er við að gjaldtaka rík-
issjóðs vegna happdrættisreksturs
hefði verið sama fjárhæð, þ.e. 70
milljónir króna á umræddu ári, en
verið dreift á þá sex rekstraraðila
sem hér hafa verið upp taldir og þá í
samræmi við ágóðahluta hefði hlut-
ur HHI verið um 15 milljónir króna.
Ef til vill væri slík gjaldtaka ásætt-
anlegri fyrir ríkissjóð en niðurfell-
ing einkaleyfisgjalds HHÍ. Ráðstöf-
unarfé Háskóla íslands á árinu 1997
vegna happdrættisfjár hefði sam-
kvæmt þessu aukist um 55 milljónir
króna á árinu.
Höfundur er forstjóri Happdrættis
Háskóla fslands.
u
iS3
FUJIFILM
SAMEINAR ÞRJÁR
AF HEITUSTU TÆKNI-
NÝJUNGUNUM í DAG.
ALLT í EINUM LITLUM PAKKA.
Hágæða stafræn myndavél • MP-3 spilari ■ stafræn myndbandsvél
Kostar aðeins kr. 65.900
REYKJAVÍK & AKUREYRI
Skipholti 31. Reykjavík, s: 568 0450 • Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850
^fcrn*cÁ/c/ é
Slci
Iðnbúð 1,210Garðabæ Collection
sími 565 8060
Ragnar
Ingimarsson
Rekstraraðilar Hagnaður Leyfisgjald Hagn. til ráðst.
(millj.kr.) (niillj. kr.) (miljj. kr.)
Happdrætti Háskóla Islands 350 70 280
íslenskar getraunir 60 0 60
íslensk getspá 325 0 325
Islenskir söfnunar- kassar 860 0 860
Happdrætti SÍBS 30 0 30
Happdrætti DAS 50 0 50