Morgunblaðið - 04.11.2000, Page 73
I
MORGUNBLABIÐ__________________________________________LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 73~~
KAUPMANNASAMTÖKIN 50 ÁRA
Þorvaldur Guðmundsson í Sfld og físki. Prúðbúinn búðarsveinn fyrr á öldinni. Runólfur Ivarsson rak dæmigerða hverfaverslun.
irnir eru Almennur stofnlánasjóður
Kaupmannasamtaka Islands, Stofn-
lánasjóður matvöruverslana og
Stofnlánasjóður raftækjasala og hef-
ur verið í umræðunni að sameina
stofnlánasjóðina í einn.“
Guðað á glugga
Lýður vekur athygli á hraðfara
þróun í smásöluverslun frá því
Kaupmannasamtökin voru stofnuð.
„Eldri kynslóðin vandist því að gera
innkaupin hjá kaupmanninum á
horninu um miðja öldina. Yfirleitt
voru nokki-ar verslanir á svipuðum
slóðum, þ.e. með nýlenduvörur, fisk,
mjólk og kjöt. Fyrstu verslunarmið-
stöðinni með mismunandi verslun-
um undir sama þaki var komið á fót í
Morgunblaðshúsinu undir heitinu
Vesturver fyrri hluta ársins 1955.
Fyrsta sjálfsafgreiðsluverslunin,
gjafavöruverslunin Liverpool, var
opnuð á Laugaveginum um haustið.
Eins og glögglega má sjá af mynd í
Sögu Kaupmannasamtakanna var
almenningur forvitinn og kom til að
virða fyrir sér varning verslunarinn-
ar í gegnum búðargluggana kvöldið
fyrir opnunina," segir Lýður og tek-
ur fram að SÍS hafi opnað aðra sjálf-
safgreiðsluverslunina skömmu síðar.
„Islenskir kaupmenn hafa löngum
verið duglegir að ferðast og kynna
sér nýjungar í verslunarrekstri í
öðrum löndum. Nokkrum hópi ís-
lenskra kaupmanna var boðið í slíka
ferð til Bandaríkjanna snemma á 6.
áratugnum. Þorvaldur Guðmun-
dsson í Síld og fisk skrifaði um ferð-
ina í Verslunartíðindi og spáði því að
næsta skrefið í verslunarrekstri á
Islandi yrðu stórmarkaðir með stór-
um bílastæðum í úthverfum höfuð-
borgarinnar. Sú spá rættist ekki
fyrr en með fyrsta íslenska stór-
markaðinum undir merkjum Hag-
kaups í Skeifunni árið 1970. Nú setja
stórmarkaðir og verslunarmiðstöðv-
ar áberandi svip á smásöluverslun á
landinu."
Framtíðarþróunin
„Eins og fram kemur í bókinni
kann tæknivæðing að orsaka stór-
breytingar á verslunarháttum á
næstu áratugum. Netverslun er að
vísu í smáum stíl ennþá. Ýmsir spá
stóraukningu á henni á næstu árum
og aldarfjórðungi enda séu Islend-
ingar fljótir að tileinka sér tækni,“
segir Lýður og tekur fram að skipt-
ar skoðanir séu um hvert þróunin
muni leiða. „Til eru þeir sem ætla að
með tilkomu netverslunar hætti búð-
in að vera miðdepill samskipta við
viðskiptavinina. í staðinn komi skrif-
stofan, vel búin nýtísku tækjum,
rúmgóður lager og heimsendingar-
þjónusta. Aðrir leggja áherslu á að
viðskiptavinir vilji þreifa á vörunum
og skoða þær í hillum áður en kaup
séu gerð og að búðir hafi um langan
aldur verið staðir þar sem menn
hittast og taka jafnvel tal saman.
Víst er að þær gegndu síðarnefnda
hlutverkinu í ríkum mæli fram yfir
miðja öldina en líklega hefur tilkoma
stórmarkaða og stóraukin verslun
dregið úr þessu.“
Starfsöm ritnefnd
Gunnar segir að hugmyndin að því
að láta rita sögu Kaupmannasam-
takanna hafi kviknað fyrir allmörg-
Almenningur þyrptist að glugga Liverpool til að virða fyrir sér vöruúrvalið í fyrstu sjálfsafgreiðslubúðinni.
Skókaupmenn varaðir við að kaupa
röntgentæki í búðir sínar
SLIK tæki eru algeng í skóbúðum
erlendis, og geta viðskiptavinimir
séð hvemig beinin í fætinum taka
sig út í nýju skónum. Ef einhverjir
skókaupmenn hér skyldu hugsa sér
að kaupa röntgentæki í verzlanir
sínar, til þess að viðskiptavinirnir
geti virt fyrir sér hvemig beinin í
fætinum taka sig út innan í skónum,
er þeim hér með eindregið ráðlagt
að leggja ekki í þann kostnað.
Það em læknamir, sem gefa
skókaupmönnum þessa ráðlegg-
ingu, en í nýútkomnu fréttabréfi um
heilbrigðismál segir frá röntgen-
tækjum, sem mikið séu notuð í skó-
verzlunum erlendis. Segir þar að
helmingur afgreiðslufólks í skóbúð-
um Ameríku, sem spurt sé um,
hvaða gagn það telji tæki þessi gera,
sé þeirrar skoðunar að þau geri ekk-
ert gagn, en séu aðallega til að sýn-
ast og blekkja fólk.
í fréttabréfinu um heilbrigðismál
segir m.a.:
Erlendis er algengt að sjá lítil
röntgentæki í stórverzlunum, eink-
um í Ameríku, en þau em einnig far-
in að sjást í meiri háttar skóverzlun-
um í Evrópu. Sá, sem mátar á sig
skó, getur farið með skóinn á fætin-
um í röntgentækið og séð hvernig
beinin í fætinum taka sig út í skón-
um.
í læknablöðum Ameríku hafa
undanfarið birzt margar ritgerðir
um hættuna, sem þessu fylgir. Hætt-
an er lítil fyrir afgreiðslufólkið, en
hún getur verið meiri en góðu hófi
gegnir fyrir kaupendurna, sem geta
farið búð úr búð og geislað fætur
sína mai’gsinnis í hverri búð. Ef sami
fótur er gcislaður í 20 sekúndur fær
hann, samkvæmt mælingum sem
gerðar hafa verið, 12,8-116 röntgen,
en 250 röntgen getur valdið húðroða
og 300 röntgen getur valdið vaxtar-
truflun í beini bams. Það segir sig
því sjálft, að ef slík geislun er endur-
tekin margsinnis sama dag eða dag
eftir dag, getur hún orðið hættuleg.
Læknar leggja yfirleitt til að hætt
verði við röntgengeislanir í skó-
verzlunum, vegna þess að þær séu of
hættulegar.
Alþýðublaðið,
11. desember 1951.
um árum. „Ekki var hafist handa við
verkið fyrr en Júlíus Jónsson,
kenndur við Nóatún, gaf Kaup-
mannasamtökunum þriggja ára laun
sín fyrir setu í stjórn Endurvinnsl-
unnar hf. með því skilyrði að fénu
yrði varið til ritunar sögu samtak-
anna árið 1996. Kaupmannasamtök-
in tóku sig til í framhaldi af því og
tilnefndu sérstaka sögunefnd,“ segir
Gunnar og tekur fram að sögu-
nefndin hafi unnið ötullega að því
markmiði að gefa bókina út á afmæl-
isárinu allar götur síðan. Ritstjórinn,
Lýður Björnsson, hefur heldur ekki
slegið slöku við því hann hefur skrif-
að bókina á tæpu ári. „Ég hef alltaf
lagt áherslu á að ljúka verki á um-
sömdum tíma,“ segir Lýður þegar
spurst er fyrir um hvemig hann hafi
farið að því að ljúka jafn veglegri
bók á svo skömmum tíma. „Fyrstu
um sinn vann ég að bókinni í % hluta •.
starfi. Á lokasprettinum varð ég að
taka allan daginn til að bókin kæmi
út á tilsettum tíma. Annars er ég
þokkalega fljótur að skrifa þegar ég
er kominn á skrið og Kaupmanna-
samtökin hafa verið dugleg að halda
til haga fundargerðum og ýmsum
öðrum gögnum í gegnum tíðina."
Hann tekur fram að sögunefndin
hafi reynst honum ákaflega vel. „Ég
hef unnið margar bækur í líkingu við
Sögu Kaupmannasamtakanna og
aldrei kynnst jafn starfssamri rit-
nefnd. Sögunefndin fór yfir allan
texta, útvegaði ýmis gögn og aðstoð-
aði við nafngreiningar. Af öðrum vil
ég sérstaklega þakka Guðna Þor-
grímssyni, fyrrverandi starfsmanni
samtakanna, fyrir aðstoð við öflun
gagna og nafngreiningar."
Saga Kaupmannasamtakanna
verður eins og áður segir fyrsta
bindið í ritröðinni Kaupmenn og
verslun á Islandi. „Ég býst við að ég
fari að hita upp fyrir næsta áfanga
uppúr áramótum. Hin bindin, vænt-
anlega 5 eða 6, koma til með að
geyma æviskrár allra kaupmanna
frá árinu 1855. Inn á milli verður
laumað ýmiss konar ítarefni um
verslun og viðskipti á íslandi," segir
Lýður og viðurkennir að ekki hafi
verið sett niður ákveðin tímamörk
um hvenær hin bindin komi út. lfAð-
eins eitt er á hreinu, þ.e. að alls ekki
má líða of langur tími á milli bók-
anna.“
J