Morgunblaðið - 04.11.2000, Síða 80
MORGUNBLAÐIÐ
$0 LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 2000
DAGBÓK
í dag er laugardagur 4. nóvember,
309. dagur ársins 2000. Orð dagsins:
v Þess vegna, mínir elskuðu bræður,
verið staðfastir, óbifanlegir, sí-
auðugir í verki Drottins. Þér vitið að
erfíði yðar er ekki árangurslaust í
Drottni.
(1. Kor. 15,58.)
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Wels
fer í dag.
. Hafnarfjaröarhöfn:
Karelie fer í dag.
Fréttir
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyking-
um í Heilsustofnun
NLFÍ Hveragerði, fund-
ur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
Áheit. Kaldrana-
neskirkja á Ströndum á
150 ára afmæli á næsta
ári og þarfnast kirkjan
mikilla endurbóta. Þeir
sem vildu styrkja þetta
málefni geta lagt inn á
reikn. 1105-05-400744.
Mannamót
Félög eidri borgara í
Garðabæ, Bessastaða-
hreppi, Hafnarfirði og
Kópavogi efna tii sam-
eiginlegs fundar, laugar-
daginn 4. nóvember nk.
kl. 14 í Safnaðarheimil-
inu, Kirkjuhvoli, Garða-
bæ. Fundarefni: Kjara-
mál eldri borgara.
Umræðustjóri: Helgi K.
Hjálmsson, varaformað-
ur Landssambands eldri
borgara. Ræðumenn:
Stefán Ólafsson prófes-
sor, Benedikt Davíðsson,
formaður Landssam-
bands eldri borgara. Fé-
lögin hvetja félagsmenn
til að ijölmenna á fund-
inn.
Félagstarf aldraðra,
Garðabæ. Vetrafagnað-
ur verður í Garðaholti 9.
nóvember kl. 20 í boði
Lionsklúbbsins Eikar.
Rútuferðir frá Álftanesi
og Kirkjulundi kl. 19.30.
Félag eldri borgara í
rlafnarflrði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Hraunseli, Reykjavíkur-
vegi 50. Ganga kl. 10.
Rúta frá Miðbæ kl. 9:50
og Hraunseli kl. 10. Kl.
14 verður sameiginlegur
fundur með Kópavogi,
Garðabæ, Bessastaða-
hreppi og Hafnarfirði í
Kirkjuhvoli um kjaramál
eldri borgara. Rúta frá
Hraunseli kl. 13:20. Á
morgun verður
„markaðsdagur" kl. 13-
16. Vöfflur og súkkulaði.
Bólstaðarhlfð 43. Haust-
fagnaður verður föstu-
' * daginn 10. nóvember,
salurinn opnaður kl.
16.30, dagskráin hefst
með borðhaldi kl. 17,
hlaðborð, Þóra Þorvalds-
dóttir verður með upp-
lestur, EKKO kórinn
syngur, Ragnar Leví og
félagar leika fyrir dansi,
skráning á fyrir kl. 12
fímmtudaginn 9. nóvem-
ber.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Haustbasar
og kaffisala verður 4. og
5. nóvember frá kl. 13-
17.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10-13. Matur í hádeginu.
Fræðsluferð verður farin
í Áiverið í Straumsvík
þriðjudaginn 7. nóvem-
ber. Þeir sem hafa áhuga
tilkynna þátttöku til
skrifstofu FEB fyrir 6.
nóvember. Brottför frá
Glæsibæ. Aðeins er tekið
á móti 25 manns Alkort
spilað kl. 13.30 á þriðju-
dag. Göngu-Hróifar fara
í létta göngu frá Hlemmi
á miðvikudagsmorgun kl.
9.50. Ath. breyttan tíma.
Árshátíð FEB verður
haldin 10. nóvember.
Matur, ræðumaður
kvöldsins verður Stein-
grímur J. Sigfússon al-
þingismaður, félagar úr
Karlakómum Þröstum
syngja nokkur lög, skop-
saga, gamanmál, happ-
drætti, veislustjóri Arni
Johnsen alþingismaður.
Dansleikur á eftir, hljóm-
sveitin Upplyfting leikur
fyrir dansi. Miðar seldir
á skrifstofu FEB. kl.
13.30. Silfurlínan opin á
mánudögum og miðviku-
dögum frá kl. 10-12 Ath.
skrifstofa FEB er opin
frá kl. 10-16. Upp-
lýsingar á skrifstofú
FEBísíma 588-2111 frá
kl. 10-16.
Gerðuberg, félagsstarf.
„Kynskóðimar mætast
2000“ heimsókn barna
frá Ölduselsskóla á
mánudögum kl. 9.50-
11.15 í tréútskurðar-
vinnu „þúsaldarskjöld-
urinn“ umsjón Hjálmar
Th. Ingimundarson.
Miðvikud: kl. 11.20-
12.40 unnið við að
„kríla“, umsjón Eliane
Hommersand. Fimmtud.
kl. 13-14 unnið við kerta-
skreytingar umsjón Óla
Kristín Freysteindóttir.
Föstud. kl. 10.11 unnið
við bútasaum „þúsaldar-
blómið“ umsjón Jóna
Guðjónsdóttir. Sund og
leikfimiæfinar mánud.
kl. 9.25 (ath. breyttur
tími) fimmtud. kl. 9.30.
Boccia á þriðjud. kl. 13
og föstudögum kl. 9.30.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið kl. 9-17. Matar-
þjónusta er á þriðju- og
föstudögum, panta þarf
fyrir kl. 10 sömu daga.
Fótaaðgerðastofan opin
kl. 10-16.
FEBK. Púttað verður á
Listatúni kl. 11 í dag.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudögum frá
kl. 11 leikfimi helgistund
og fleira.
Félagsstarf SÁÁ. Fé-
lagsvist í Hreyfilshúsinu
(3. hæð) á laugar-
dagskvöldum kl. 20 og
bridge á sunnudags-
kvöldum í Hreyfilshús-
inu (3. hæð) kl. 19.30.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundurverð-
ur á morgun kl. 21 í
Konnakoti, Hverfisgötu
105. Nýir félagar vel-
komnir. Muni gönguna
mánudag og fimmtudag.
Kvenfélag Háteigssókn-
ar. Félagsfundurverður
þriðjudaginn 7. nóvem-
ber kl. 20 í safnaðar-
heimilinu.
Lífeyrisdeild Landsam-
bands lögreglumanna.
Fundur á morgun kl. 10 í
Félagsheimiii LR,
Brautarholti 30. Félagar
fjölmennið.
Bergmál, líknar- og
vinafélag. Opið hús í dag
kl. 16 í húsi Blindrafé-
lagsins, Hamrahlíð 17,2.
hæð. Góðir gestir koma í
heimsókn, fjöldasöngur,
veitingar á góðu vérði.
Dagdvöl, Sunnuhlíð,
Kópavogsbraut 1.
Haust- og jólabasar
verður í dag kl. 14, kaffi-
sala til styrktar Dag-
dvöhnni.
Húsmæðrafélag Reykja-
víkur Basarinn verður á
Hallveigarstöðum við
Túngötu sunnudaginn 5.
nóv. og hefst kl. 14.
Margt eigulegra hand-
unninna muna.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GÍ, s.
5303600.
Kvennadeild Barð-
strendingafélagsins
verður með basar og
kaffisölu sunnudaginn 5.
nóvember í Breiðfirð-
ingabúð, Faxafeni 14.
Húsið opnað kl. 14. Ým-
iss konar handavinna og
heimabakaðar kökur,
happdrætti.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í sima 588-7555
og 588-7559 á skrifstofu-
tíma Gíró- og kredit-
kortaþjónusta.
Samtök lungnasjúkl-
inga. Minningarkort eru
afgreidd á skrifstofu fé-
lagsins í Súðurgötu 10
(bakhúsi) 2. hæð, s. 552-
2154. Skrifstofan er opin
miðvikud. og fostud. kl.
16-18 en utan skrifstofu-
tíma er símsvari. Einnig
er hægt að hringja í síma
861-6880 og 586-1088.
Gíró- og kreditkorta-
þjónusta.
MS-félag íslands. Minn-
ingarkort MS-félagsins
eru afgreidd á Sléttuvegi
5, Rvk, og í síma 568-
8620 og myndrita s. 568-
8688.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimersjúkl-
inga. Minningarkort eru
afgreidd alla daga í s.
533-1088 eðaíbréfs. 533-
1086.
Heilavernd. Minningar-
kort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588-9220
(gíró) Holtsapóteki,
Vesturbæjarapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og hjá
Gunnhildi Elíasdóttur,
ísafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Parldn-
sonsamtakanna á Islandi
eru afgreidd í síma 552-
4440 og hjá Áslaugu í
síma 552-7417 og hjá
Nínu í síma 564-5304.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavfk. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýaingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1166,
sérblöð 669 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 669 1115. NETFANG:
RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innaniands. í lausasöiu 150 kr. eintakið.
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Tekju-
skattshækkun
NÚ stendur fyrir dyrum að
hækka útsvar um 1% vegna
tilfærslu skatta milli ríkis
og sveitarfélaga en jrfirvöld
ætla að lækka tekjuskatt á
móti aðeins um 0,33%.
Þannig hækka skattar á
launamenn um 0,67%. Þar
sem þessi hækkun er tekju-
skattshækkun leggst hún
nær eingöngu á launamenn
því aðrir komast hjá því að
borga tekjuskatt að meira
eða minna leyti. Því er
þetta glæpur gegn hinni
vinnandi stétt. I þessu sam-
bandi er rétt að geta um hin
miklu skattsvik sem
hrossaútflytjendur hafa
stundað í gegnum árin með
því að gefa upp brot af því
verði sem þeir seldu hross-
in á. Á yfirvöldum er það að
skilja, að stinga eigi þess-
um glæp undir stól og
reyna að þegja málið í hel.
Ja, það er ekki sama hvort
þú ert Jón eða séra Jón.
250944-4709.
Frábær þjónusta
OKKUR langar að koma á
framfæri þakklæti til sölu-
manns á Bílaþingi Heklu
sem heitir Árni Freyr og
var einstaklega lipur og
þjónustulundaður við okk-
ur hjónin þegar við vorum
að skipta um bíl nýlega. Við
kunnum virkilega að meta
hvað hann gaf okkur góðan
tíma því við erum ekki vön
að standa í bílaviðskiptum.
Vonum að honum eigi eftir
að vegna vel í sínu starfi.
Við eigum örugglega eftir
að verzla við Heklu næst
þegar við skiptum um bíl.
Elínborg
og Guðmundur.
Ég vil allan
ruslpóst
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi koma
því á framfæri, eftir öll
skrifin í sambandi við
ruslpóst, að hún vill fá allan
ruslpóst. Henni finnst gott
að kíkja í hann og geta bor-
ið saman verð.
Bann við
haglabyssum
ÉG legg til að sett verði
bann við notkun á hagla-
byssum á íslandi. Menn
skilja eftir sig tonn af blýi
og það mengar náttúruna.
Umhverfisráðherra ætti að
taka þessi mál alvarlega til
athugunar.
Björn Indriðason.
Dýrahald
Lítinn hvolp
vantar heimili
FALLEGAN 11 vikna
hvolp vantar gott heimili.
Um blending af border coll-
ie og collie er að ræða,
svartan, brúnan og hvítan
hund. Upplýsingar hjá
Hilmari í síma 486-1163.
Tapað/fundid
Lyklakippa tapaðist
LYKLAKIPPA tapaðist
laugardaginn 28. október
sl„ sennilega í Litla-
Skerjafirði. Lyklakippan er
tvær lyklakippur fastar
saman. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 899-
7707.
GSM-sími
í óskilum
LJÓSFJÓLUBLÁR GSM-
sími fannst. Kveðjan í hon-
um er til Betu. Eigandi get-
ur vitjað hans í síma 697-
9774.
Fjallahjól
týndist
MOUNTAIN-Trek fjalla-
hjól, blásanserað með
svörtum brettum, týndist
frá Skeiðarvogi 103. Á hjól-
ið vantar keðjuhlífma. Þeir
sem hafa orðið varir við
hjólið hafi samband í síma
588-1930 eftir kl. 18 á
kvöldin. Fundarlaun.
Glær piastpoki í
óskilum
GLÆR plastpoki fannst í
Bökkunum í Breiðholti íyr-
ir stuttu. I pokanum var
kvenullarjakki. Upplýsing-
ar í síma 557-4776.
Krossgáta
LÁRÉTT;
1 ber með sér, 4 grískur
bdkstafúr, 7 samviskubit,
8 kuskið, 9 hol, 11 líkams-
hlutinn, 13 vangi, 14
styrkir, 15 skraut, 17
haka, 20 skel, 22 ilmur,
23 galsi, 24 þrástagast á,
25 kvendýrið.
LÓÐRÉTT:
1 síli, 2 nálægt, 3 vitlaus,
4 þref, 5 böggull, 6 tdm-
an, 10 krafturinn, 12
veiðarfæri, 13 knæpa, 15
strákpatta, 16 svertingi,
18 afferming, 19 eld-
stæði, 20 kvenmanns-
nafn, 21 korna.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 moðhausar, 8 semur, 9 dapur, 10 ani, 11 rýran,
13 nærri, 15 skalf, 18 strók, 21 lóm, 22 látna, 23 árnar, 24
krakkanum.
Ldðrétt: 2 ormur, 3 hýran, 4 undin, 5 aspir, 6 æsir, 7
krói, 12 afl. 14 ætt, 15 salt, 16 aftur, 17 flakk, 18 smána,
19 runnu, 20 kyrr.
Víkverji skrifar...
YÍKVERJI hefúr haft bæði gagn
og gaman af því að fylgjast með
sjónvarpsþáttum Jóns Ársæls Þórð-
arsonar, ,20. öldin - brot úr sögu
þjóðar“, sem sýndir hafa verið á Stöð
2 að undanfomu. Þótt þættirnir hafi
fram tii þessa ekki beinlínis varpað
nýju Ijósi á einstaka atburði er fram-
setningin nýstárleg og þama bregður
fyrir myndefni, sem hefur ekki sést
áður. Jón Ársæll er vel máli farinn og
hefur þægilega rödd í hlutverki þular
og framsetningin er einföld og að-
gengileg, en sennilega er það lykill-
inn að því hversu vel hefur tekist til
að dómi Víkveija.
í þáttunum fjallar Jón Ársæll um
fólkið í landinu og þá atburði sem
skiptu sköpum í sögu þjóðarinnar á
20. öld og er frásögnin fléttuð saman
með gömlum ljósmyndum, brotum úr
kvikmyndum og viðtölum við fólk
sem upplifði atburðina og ef tíl vill er
það ekíd síst sú beina tenging, sem
fæst í slíkum viðtölum, sem endur-
speglar hvað best upplifun alþýðu-
fólks á íslandi á eftirminnilegum at-
burðum aldarinnar. Þykir Víkveija
ekki ólíklegt að þessir sjónarpsþættir
eigi eftir að koma að góðum notum
við sögukennslu í framtíðinni og að til
þeirra verði gripið þegar mikið liggur
við og stórviðburðir 20. aldar rifjaðir
upp.
XXX
ÍKVERJI hefur fylgst með
kosningabaráttu forsetafram-
bjóðendanna í Bandaríkjunum, en
forsetakosningar fara þar fram næst-
komandi þriðjudag, 7. nóvember.
Víkveiji hefur svo sem ekki þungar
áhyggjur af úrslitum kosninganna,
en smám saman hefur hann verið að
hallast á sveif með hinum geðþekka
rfldsstjóra í Texas, George W. Bush.
í ágætri Viðhorfs-grein Karls
Blöndal í Morgunblaðinu síðastliðinn
fimmtudag segir meðal annars um
ríkisstjórann: „Bush skilgreinir sig
sem umhyggjusamt íhald. Þessi um-
hyggjusemi virðist lítið annað en
skjól til að gera sjálfan sig gjaldgeng-
ari í augum kjósenda. Handritið að
kosningabaráttu Bush gæti allt eins
verið tekið úr fyrstu kosningabaráttu
föðurins fyrir þingsætí. Þá var
áherslan lögð á það að að orða hlutina
almennt í ljósi þess að kjósendum
leiddist þegar farið væri út í smáat-
riði á borð við hvernig eigi að gera
hlutina og hvar eigi að fá peninga til
þess.
Það er greinilegt að Bush notar
sjálfan sig sem mælikvarða þegar
hann leggur dóm á þolinmæði kjós-
enda gagnvart smáatriðum. Hann
kemur í vinnuna klukkan níu á
morgnana, tekur einn og hálfan tíma
í mat og er farinn heim klukkan
ílmm. Dagurinn fer í myndatökur og
stutt samtöl við fulltrúa þrýstihópa
og fleiri. Hann lætur aðra um smá-
atriðin og hlífir bæði sjálfum sér og
kjósendum."
Þessi lýsing á verðandi forseta
Bandaríkjanna, og þar með valda-
mesta manni heims, er ef til vill ekki
traustvekjandi. Við þetta má svo
bæta að Bush hefur stundum komist
klaufalega að orði, einkum ef um er
að ræða mál sem hann hefur ekki sett
sig nægilega vel inn í, og þau virðast
vera fjölmörg. Nýjustu fréttir herma
að hann hafi á sínum yngri árum ver-
ið kærður fyrir ölvunarakstur. Slíkt
er auðvitað ekki til eftirbreytni, en
öllum getur orðið á í lífinu. Það er
bara mannlegt.
Þrátt fyrir allt þetta er eitthvað í
fari Bush sem höfðar tfl Víkveija, ef
til vill bara það hversu „venjulegur"
maður hann er í samanburði við A1
Gore, sem virðist ekki allur þar sem
hann er séður. Að dómi Víkverja er
vond lykt af „ölvunarakstursmálinu"
og fnykinn leggur af herbúðum vara-
forsetans. í rauninni undirstrikar
þetta mál tvöfeldnina í siðgæði Am-
eríkana.
Það sem gerir þó útslagið í afstöðu
Víkveija tii forsetaframbjóðendanna
er sú staðreynd að Ai Gore er öfga-
fullur umhverfisvemdarsinni. Hann
hefur margoft lýst yfir andstöðu sinni
við hvalveiðar og öfgar á einu sviði
leiða oft til öfga á öðrum. A1 Gore er
umhverfisvemdarsinni af því tagi að
hann gæti þess vegna tekið upp á því
einn góðan veðurdag að lýsa yfir and-
stöðu við fiskveiðar á þeim forsend-
um að þær séu of sársaukafullar fyrir
fiskinn. Ef það gerðist værum við ís-
lendingar í vondum málum.