Morgunblaðið - 12.11.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913
261. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
* • •
Ovíst um orsakir lestarslyssins við Kitzsteinhorn-fjall í austurrísku Olpunum
Eldur varð 170 manns
Nýja-Mexíkó
Bush með
17 atkvæða
að bana í jarðgöngum
Bj örg’unar s veit-
um tókst ekki að
komast að lestar-
vagninum um
neyðargöng
Vín. AP, AFP.
ELDSVOÐI varð um 170 manns að
bana í austurrískri toglest með
skíðamenn á leið í bækistöð í hlíðum
Kitzsteinhorn-fjalls i Ölpunum, um
80 kílómetra sunnan við Salzburg, í
gær. Landstjórinn í Salzburg, Franz
Schausberger, sagði að 'aðeins átta af
alls um 180 farþegum hefðu komist
af. Ekki var skýrt frá þjóðerni skíða-
fólksins en að sögn talsmanna ís-
lenskra ferðaskrifstofa í gær var
ekki vitað til þess að íslenskir ferða-
menn væru á svæðinu.
í austurrískum fjölmiðlum kemur
fram að þetta var fyrsti dagur aust-
urrísku skíðavertíðarinnar og mikið
af ungu skíðafólki var á leið til skíða-
svæða.
Lestin var í jarðgöngum er eldur-
inn kom upp og björgunarmenn með
súrefnisgrímur áttu mjög erfitt með
að athafna sig vegna reyksins sem
fyllti göngin. Reyndu þeir að komast
inn um báða munnana og einnig, að
sögn fréttavefjar BBC, inn um neyð-
argöng sem liggja inn í aðalgöngin
um miðbik þeirra. Lestin var komin
um 600 metra inn í fjallið þegar slys-
ið varð, um klukkan 9.30 fyrir hádegi
að staðartíma. Þegar í stað var kall-
aður á vettvang fjöldi björgunar-
manna og 13 þyrlur voru sendar til
aðstoðar. Einnig héldu þyrlur með
sérþjálfaða slökkviliðsmenn af stað
frá Bæjaralandi í sunnanverðu
Þýskalandi til hjálpar. Að sögn aust-
urrísku sjónvarpsstöðvarinnar ORF
var fjöldi lækna sem sóttu ráðstefnu
í Salzburg sendur á staðinn.
Taldir hafa Iátist
nær samstundis
Norbert Karlsböck, bæjarstjóri í
Kaprun, bæ í grennd við slysstaðinn,
sagði að eldurinn hefði logað í þrjár
stundir og þykkir reykjarbólstrar
hefðu komið út um munna jarðgang-
anna sem er í um 600 m fjarlægð frá
þeim stað þaðan sem lestin lagði af
stað og í um 2.400 metra hæð yfir
sjávarmáli. „Við höfum ekki hug-
mynd um orsökina, vitum aðeins að
AP
Björgunarsveitir í bænum Kaprun í grennd við slysstaðinn í Austurríki á laugardag, þyrlur sveima yfir staðn-
um. Sérþjálfaðir slökkviliðsmenn frá Bæjaralandi voru sendir á vettvang en björgunarmönnum tókst ekki að
komast inn í göngin í tæka tíð vegna reykjarkófsins.
eldur kviknaði í lestarvagninum,"
sagði Karlsböck.
Gerhard Huber, framkvæmda-
stjóri austurríska Rauða krossins,
sagði í samtali við Sky-sjónvarps-
stöðina að ekkert hefði verið hægt að
gera til þess að bjarga fólki í lestinni.
Hún hefði brunnið til kaldra kola og
farþegarnir látist nær samstundis.
Talið er að þeim sem komust lífs af
hafi tekist að komast út um glugga í
afturhluta lestarinnar.
Öflugir stálkaplar með drifbúnað
utan ganganna draga lestina neðan-
jarðar megnið af rúmlega 3.200
metra langri leiðinni upp fjallið. Rík-
issjónvarpið í Austurríki sagði að svo
virtist sem kaplarnir hefðu brostið
skömmu áður en eldurinn kviknaði.
Lestin var tekin í notkun árið 1974.
Þetta er mesta slys sinnar tegundar
en árið 1976 fórust 42 farþegar á leið
til ítalska skíðabæjarins Cavalese
þegar togvír lestarinnar slitnaði.
lestarvagninum í göngunum.
ÍSLANDOGÁLIÐ
Ekkert jS
góða sati
lagsþjónus
meirihluta
Washington, West Palm Beach. AP, AFP.
KJÖRMÖNNUM George Bush
fjölgaði um fimm á kostnað A1 Gore í
gær eftir endurtalningu í sambands-
ríkinu Nýju-Mexíkó sem Gore hafði
hreppt eftir upphaflega talningu.
Endurtalning gaf Bush aftur á móti
17 atkvæða meirihluta í ríkinu.
Enn er hart deilt um framkvæmd
kosninganna í Flórída. Endurtalning
gaf Bush rúmlega 300 atkvæði fram
yfir Gore í ríkinu en beðið er eftir því
að öll utankjörstaðaatkvæði skili sér
áður en hægt er að úrskurða endan-
lega hver hafi sigrað þar. Verður það
ekki gert fyrr en í lok næstu viku. Að
sögn Miami Herald er búist við að
um 7.000 atkvæði eigi eftir að berast
frá fólki sem býr utan Bandaríkj-
anna. Ennfremur kemur til greina
að málaferli vegna meintra mistaka
við framkvæmdina í Flórída geti orð-
ið til þess að þæfa málið vikum sam-
an og tefja fyrir forsetaskiptum. A
hinn bóginn gáfu sumir talsmenn
demókrata í skyn í gær að ekki væri
víst að látið yrði reyna á vafaatriði
fyrir dómstólum vegna ófyrirsjáan-
legra afleiðinga sem slík mál gætu
haft á stjórnmálalíf landsins.
Kjörmannaatkvæðin 25 í Flórída
eru talin ráða niðurstöðunni, fram-
bjóðandinn sem fær þau hefur
tryggt sér nauðsynlegan meirihluta,
270 kjörmenn.
----------------
Evrópulönd
Aukinn ótti
við kúariðu
París. AP.
ÓTTINN við kúaiiðu fer vaxandi
víða í Evrópulöndum og hafa Frakk-
ar nú ákveðið að banna í eitt ár sölu á
vinsælu lostæti, hóstarkirtlum úr
kálfum, til þess að draga úr hættunni
á að fólk sýkist af heilarýrnunarsjúk-
dómnum Creutzfeldt-Jakob sem tal-
inn er geta stafað af kúariðusmiti.
Rétturinn heitir á frönsku „ris de
veau“ og er á boðstólum á mörgum
veitingastöðum.
Svissneski Rauði krossinn hyggst
banna fólki sem dvaldist í meira en
sex mánuði í Bretlandi á árunum
1980 til 1995 að gefa blóð en kúariða
varð faraldur í Bretlandi á þessum
árum.
David Byrne, sem fer með heil-
brigðis- og neytendamál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins,
gerði fyrr í vikunni lítið úr hættunni
en sneri við blaðinu á föstudag og
hvatti stjórnh- aðildarríkjanna til að
ganga lengra en krafist væri í reglu-
gerðum. „Þetta er brýnt að verði
gert til þess að auka traust almenn-
ings á að varnarráðstafanirnar nægi
til að vernda fólk fyrir sjúkdómn-
um,“ sagði Byrne.
MORGUNBLAÐIÐ 12. NÓVEMBER 2000
5