Morgunblaðið - 23.12.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsætisráðherra skipar starfshóp til að bregðast við dómi Hæstaréttar
Nýtt lagafrumvarp
verði tilbúið flj ótlega
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á aukafundi í gær-
morgun tillögu Ingibjargar Pálmadóttur heil-
brigðisráðherra um að skipa sérstakan starfshóp
til að greina hvaða leiðir eru færar til að bregðast
við nýföllnum dómi Hæstaréttar, um að skerðing-
arákvæði tekjutengingar maka samræmist ekki
jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Jafnframt er
starfshópnum falið að undirbúa nauðsynlega
lagasetningu vegna dómsins. Starfshópnum er
ætlað að vinna hratt að málinu og svo getur farið
að þing verði kallað fyrr saman en ráð var fyrir
gert, til að afgreiða væntanlegt lagafrumvarp.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra
sagði ríkisstjórnina hafa brugðist skjótt við þess-
um tímamótadómi en hins vegar væru ekki öll
kurl komin til grafar varðandi ýmsa þætti í dómi
Hæstaréttar.
„Og þessi nefnd ríkisstjórnarinnar mun fara of-
an í alla þá þætti, því það kann að vera að þetta
hafi víðtækari áhrif en augljóst er í dag.“
Heilbrigðisráðherra sagðist vilja minna á að
tekjutengingar hefðu verið við lýði í 60 ár og að
einu breytingarnar hefðu báðar verið gerðar fyrir
stuttu, sú fyrri árið 1998 og sú seinni árið 2000.
„Þannig að við höfum viðurkennt að þessar
tekjutengingar hafi verið allt of miklar og þær til-
lögur sem ég hef komið með inn í ríkisstjóm til að
minnka tekjutengingamar hafa verið samþykkt-
ar. Og það er mjög mikilvægt að þetta komi fram,
vegna þess að ég hef heyrt það undanfarna daga
að þetta sé eitthvað nýtt. Það eina sem er nýtt er
að við höfum verið að minnka tekjutengingarnar.“
Ingibjörg sagði að vinna starfshópsins við að
undirbúa lagabreytingar ætti að ganga hratt fyrir
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra
svarar fyrirspumum fréttamanna eftir rík-
isstjórnarfund í gærmorgun.
sig. „Og það kann að vera að við þurfum að kalla
saman þing fyrr en áætlað var.“
Að sögn heilbrigðisráðherra er þessi lagasetn-
ing nauðsynleg, samkvæmt mati þeirra sem best
þekkja til, en hins vegar sé ekki ljóst enn þá hvað
muni felast í þessu nýja frumvarpi. Þá sé enn
óljóst hvað þessar breytingar muni kosta rík-
issjóð.
„En ég hef alltaf sagt að þessar tengingar séu
of miklar og við þurfum að minnka þær. Eg hef
sagt að ég vilji ganga lengra og það verður gengið
enn þá lengra núna til að minnka tengingamar.
En ég vil líka segja, að það verður samt ekki
þannig að allar tengingar í almannakerfinu verði
afskrifaðar, þvi þá erum við ekki að jafna kjör
fólks í þessu landi."
Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði eftir
ríkisstjórnarfundinn í gærmorgun að ákveðið
hefði verið að setja niður hóp fræðimanna á þessu
sviði til þess að fara yfir málið endanlega og út-
búa löggjöf til þess að fylgja eftir þeim dómi sem
upp hefur verið kveðinn. Hann sagðist ekki úti-
loka að þing yrði kallað fyrr saman en samkvæmt
áætlun hefjast þingstörf eftir jólafrí 23. janúar
nk.
„Það er mál manna, sem fjalla um þetta fyrir
okkur, að dómurinn sé æði óskýi- og óglöggur.
Menn þurfi að fara mjög vel yfir hann og und-
irbúa sig vel þannig að allt framhald verði með
sem skipulegustum hætti.“
í starfshópinn hefur forsætisráðherra skipað
þá Jón Steinar Gunnlaugsson hrl., sem jafnframt
er formaður, Jón Sveinsson hrl. samkvæmt til-
nefningu utanríkisráðherra, Baldur Guðlaugsson
ráðuneytisstjóra samkvæmt tilnefningu fjármála-
ráðherra og Þóri Haraldsson, aðstoðarmann ráð-
herra, samkvæmt tilnefningu heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra.
Útflutningi
á lamba-
kjöti til
Færeyja
settar
skorður
ÚTFLUTNINGUR á íslenska
hestinum til Færeyja mun
leggjast af og ekki verður
hægt að flytja út lambakjöt til
landsins eftir 1. febrúar næst-
komandi nema frá sláturhúsum
sem eru viðurkennd af Evrópu-
sambandinu. Þau eru aðeins
tvö á landinu. Einnig verður
bannað að fiytja út egg til
Færeyja.
Ástæður þessa eru nýr
samningur Færeyinga við Evr-
ópusambandið sem felur í sér
að nýjar reglur taka gildi um
innflutning á landbúnaðaraf-
urðum.
Útflutningur á íslenskum
eggjum til Færeyja er umtals-
verður og markaðshluti þeirra
stór, að því er fram kemur í
Útheija, fréttabréfi Útflutn-
ingsráðs íslands. Ekki verður
hægt að flytja út íslenska hesta
til Færeyja nema með því að
flytja þá fyrst til Danmerkur
þar sem úttektarstöð fyrir lif-
andi dýr frá þriðja landi er
ekki í Færeyjum. Útflutningur
á öðrum sauðfjárafurðum til
Færeyja mun að öllum líkind-
um alveg leggjast af, þ.m.t.
svið, saltkjöt og innmatur.
Eldur
hjá Alpan
á Eyrar-
bakka
Selfossi - Eldur kom upp í loftræst-
ingu yfir málningarvél í verksmiðj-
unni Alpan á Eyrarbakka um
klukkan 13.30 í dag. Mikill reykur
gaus upp og sjónarvottar sáu eld
koma út úr loftræstiháf hússins.
Engan sakaði við brunann en einn
starfsmaður var þó fluttur á sjúkra-
hús vegna gruns um reykeitrun.
Slökkvilið kom á brunastað frá
Eyrarbakka, Selfossi og frá Þor-
lákshöfn og Hveragerði og gekk vel
að slökkva eldinn sem var mestur í
loftstokkunum og þaki hússins.
Slökkviliðsmenn rufu þak hússins i
kringum loftræstiháfinn til að kom-
ast að eldinum.
Starfsmaður sem vann við máln-
ingarvélina sagði að hann og annar
starfsmaður hefðu orðið varir við
cld í loftræstistokknum.
Einar Þór Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Alpan, sagði óvíst um
skemmdir en í kringum fram-
leiðslutækin er viðkvæmur búnað-
ur sem getur skemmst af völdum
vatns og reyks. Um 25 manns voru
við vinnu í verksmiðjunni þegar
eldurinn kom upp.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Mikinn reyk lagði frá norðurenda verksmiðjuhússins.
Lést í bílslysi
KONAN, sem lést á fimmtudag í til heimilis að Grundargili í
árekstri á vestanverðri Fljóts- Reykjadal. Hún lætur eftir sig
heiði í Reykjadalshreppi, hét eiginmann og fjóra uppkomna
Eva Jónsdóttir. Hún var 49 ára, syni.
Minnkandi aflaverðmæti frystitogara
Arnar og Bald-
vin með mesta
verðmætið
FRYSTITOGARARNIR Arnar HU
og Baldvin Þorsteinsson EA eru með
hæsta aflaverðmæti fiskiskipa, líkt
og á síðasta ári, en verðmætið hefur
þó lítillega dregist saman frá því í
fyrra. Aflaverðmæti frystitogarans
Höfrungs III frá Akranesi hefur aft-
ur á móti aukist um fjórðung.
Amar HU var væntanlegur til
heimahafnar á Skagaströnd í gær-
kvöldi en skipið var með mesta afla-
verðmæti fiskiskipa á síðasta ári, yfir
einn milljarð króna. Gylfi Guðjóns-
son, útgerðarstjóri Skagstrendings
hf., vildi ekki gefa upp nákvæmt afla-
verðmæti Arnars að svo stöddu en
sagði það á bilinu 950 til 1.000 millj-
ónir. Hann sagði að þótt aflaverð-
mætið væri nokkuð minna en á síð-
asta ári væri árangurinn sérlega
góður og ánægjulegur. ,Arnar
veiddi minni þorsk en við ætluðum á
árinu. Eins má segja að tíðarfarið
hafi gert okkur erfitt fyrir en það
hafa verið leiðinleg veður á árinu,
sérstaklega á Vestfjarðamiðum. Þá
hafa tíðar svæðalokanir vegna smá-
fisks gert sóknina erfiðari,“ sagði
Gylfi. Skipstjóri á Arnari HU er Árni
Sigurðsson.
Baldvin Þorsteinsson EA, frysti-
togari Samherja hf. á Akureyri, er
væntanlegur til hafnar í dag. Krist-
ján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri
útgerðarsviðs Samherja, sagðist
ekki geta áætlað heildaraflaverð-
mæti skipsins á þessu árí en það
væri lítillega minna en í fyrra, vænt-
anlega á bilinu 950 til 1.000 milljónir
króna. Skipstjóri er Guðmundur Þ.
Jónsson.
Afiaverðmæti frystiskips Haralds
Böðvarssonar hf. á Akranesi, Höfr-
ungs III AK, var á árinu um 920
milljónir króna. Það er nærri 200
milljónum króna meira verðmæti en
á síðasta ári. Þessi góði árangur er
sérstaklega áhugaverður í ljósi þess
að Höfrungur III hefur ekki yfir
jafnmiklum þorskveiðiheimildum að
ráða og Ai-nar HU og Baldvin Þor-
steinsson EA.
40SJí»j;í
¥ ¥/
LIjoDI>i\
ÁLAUGARDÖGUM
osmiiíi
ívar Hauksson golfkennari
heimsóttur til Spánar / B2
Tryggvi að öllum líkindum
kyrr hjá Tromsö / B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is