Morgunblaðið - 23.12.2000, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fram sýknað af kröfu KR um
bann við notkun nafnsins Fram -
Fótboltafélag Reykjavíkur
Kröfu um notk-
un nafns á ensku
vísað frá dómi
HÉRAÐSDÓMUR
Reykjavíkur vísaði í gær
frá kröfu Knattspyrnu-
félags Reykjavíkur þess efn-
is að Fram - Fótboltafélagi
Reykjavíkur hf. verði bönn-
uð notkun nafnsins Fram -
Fótboltafélag Reykjavíkur á er-
lendum tungumálum. Fram
er sýknað af kröfu KR um
að heitið Fram - Fótbolta-
félag Reykjavíkur skuli af-
máð úr firmaskrá.
Knattspyrnufélag Reykja-
víkur var stofnað árið 1899 og
til ársins 1915 hét það Fótboltafélag
Reykjavíkur. Var þá nafni þess
breytt þar sem betri íslenska þótti
að nota orðið knattspymufélag í
stað fótboltafélags. Var heitið skráð
sem vörumerki 24. júlí 1997 hjá
Einkaleyfastofu. Hlutafélagið Fram
- Fótboltafélag Reykjavíkur var
skráð hjá Hlutafélagaskrá 18. sept-
ember 1998. í nóvember það ár and-
mælti KR skráningu hlutafélagsins
við Hlutafélagaskrá sem vísaði mál-
inu frá á þeirri forsendu að úrlausn-
arefnið væri margslungið og því
ekki rétt að hún tæki á málinu. KR
vísaði þá málinu til samkeppnisráðs
í sama mánuði sem komst að þeirri
niðurstöðu í mars 1999 að ekki væri
tilefni til afskipta ráðsins.
Sótt um skráningar á ensku
í september 1998 sótti Fram um
skráningu tveggja vörumerkja hjá
Einkaleyfastofu, annars vegar
Fram FC Reykjavík og hins vegar
Fram Fótboltafélag Reykjavíkur.
KR sótti í nóvember 1998 um skrán-
ingu vörumerkjanna KR - Reykja-
vík FC, KR - Reykjavík Football
Club, KR - Football Club of Reykja-
vík og KR - FC Reykjavík. KR lagði
inn andmæli vegna umsóknar Fram
hjá Einkaleyfastofu og er málið enn
til meðferðar þar svo og umsókn KR
um framantaldar skráningar.
Stefnandi telur að hætta sé á
ruglingi með félögunum, heiti þeirra
haíi nákvæmlega sömu merkingu og
þau standi fyrir sömu starfsemi.
Þetta eigi ekki síst við þegar heitin
séu þýdd á ensku og bendir KR á að
félagið hafí við keppni og alla starf-
semi erlendis verið auðkennt með
orðunum Reykjavík FC eða FC
Reykjavík. Telur félagið sig hafa
öðlast auðkennarétt á þeim orðum
sem heiti þess er sett sam-
an úr með sleitulausri notk-
un þeirra í heila öld.
Fram telur aftur á móti að
tilkynning um stofnun einka-
hlutafélagsins Fram - Fót-
boltafélags Reykjavíkur hafi
birst í Lögbirtingablaðinu 2. des-
ember 1998 og tilkynning um
breytingu úr einkahlutafélagi
í hlutafélag birst þar 21.
janúar 1999. Málið sé höfðað
tæplega tólf mánuðum eftir
tilkynninguna, frestur til
málshöfðunar sé liðinn og beri
því að sýkna stefnda. Þá segir
stefndi að stefnandi þafi ekki sýnt
fram á að krafa hans eigi sér laga-
stoð og geti hann ekki byggt á notk-
un sinni á nafninu árin 1899 til 1915.
Einnig telur Fram að nafnið Fram í
auðkenninu sé áberandi bæði í sjón
og framburði og að við mat á rugl-
ingshættu skipti máli að hverjum
meint ruglingshætta beinist. Það
séu íslenskir knattspyrnumenn og
áhugamenn um íþróttina og fullyrða
megi að vegna sérþekkingar þeirra
á knattspyrnu sé útilokað að þeir
rugli saman heitunum sem deilt er
um. Sömu sjónarmið eigi við um
notkun á nafninu Fram-FC Reykja-
vík, stefnandi geti ekki öðlast einka-
rétt á að nota skammstöfunina FC,
sem sé almenn skammstöfun fyrir
Football Club og notuð af fjölmörg-
um félögum í enskumælandi lönd-
um.
Of víðtæk krafa
I niðurstöðu dómsins segir að sú
krafa stefnanda að Fram verði
bönnuð notkun heitisins Fram -
Fótboltafélag Reykjavíkur á erlend-
um tungumálum sé of víðtæk til að
dómur verði lagður á hana og er
henni því vísað frá. Þá segir varð-
andi mat á ruglingshættu nafnanna
Knattspyrnufélag Reykjavíkur og
Fram - Fótboltafélag Reykjavíkur
að ljóst sé að hvorki sé hljóðlíking né
sjónlíking með heitunum. Orðið
Fram sé hluti auðkennis stefnda og
girði algjörlega fyrir að hætta sé á
að menn villist á heitunum. Var því
ekki fallist á kröfu um bann við
notkun heitisins Fram - Fótbolta-
félag Reykjavíkur. Þá var stefnandi
dæmdur til að greiða 300 þúsund
krónur í málskostnað. Allan V.
Magnússon kvað upp dóminn.
Kolbrún Bergþórsdóttir, Stöð 2
VAKA- HELGAFELL
Gyrðir Elíasson
Gula húsið
„Það skrifar vart nokkur maður betur
á íslensku en Gyrðir þessi árin, - Gula
húsið er enn ein staðfesting þess.“
Iðn Yngvi lóhannsson, DV
„Sú litla og yfirtætislausa bók sem
„Gula húsið“ er (eynir því mikið á sér.
... Gyrði Elíassyni tekst með látleysi
og ákaftega öguðum vinnubrögðum
að skila stuttum sögum um stóran
sannleika á eftirminnilegan máta.“
Fríóa Björk Ingvarsdóttir, Mbl.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Jóhann Bjamason með „bestu jólagjöfina" Guðmund Elí í fanginu situr við hlið Laufeyjar Guðmundsdóttur
konu sinnar sem heldur á stóra bróður, Bjarna Degi.
Besta jólagjöfin að fá
drenginn heilan heim
GUÐMUNDUR Elí Jóhannsson,
litli drengurinn sem bjargað var
giftusamlega eftir bflveltu við
Blöndu í vikunni, hefur náð sér að
fullu og var útskrifaður af barna-
deild Bamaspítala Hringsins í há-
deginu í gær. Eins og Morgun-
blaðið greindi frá í gær blés
Jóhann Bjarnason, faðir Guðmund-
ar, lífi í ársgamlan snáðann.
„Það er ekki hægt að lýsa
hvemig okkur er innanbrjósts, að
hafa fengið hann heilan heim.
Þetta er besta jólagjöfín sem við
hefðum getað hugsað okkur,“
sagði Jóhann. „Maður reynir bara
að hugsa ekkert um það sem hefði
getað orðið og við erum full þakk-
lætis fyrir hvað allt fór vel.“
Jóhann hefur farið á námskeið í
skyndihjálp en sagðist aðspurður
aldrei hafa átt von á að þurfa að
nýta sér tæknina sem hann lærði
þar. „Hann er hraustur, strák-
urinn, og var fljótur að hressast.
Hann er reyndar þreyttur, greyið,
og hefur sofið vært siðan hann
kom heim af spítalanum."
Fjölskyldan var öll í bflnum þeg-
ar hann valt og sluppu fjölskyldu-
meðlimir að sögn Jóhanns ótrú-
lega vel. „Það eru nokkrar
skrámur og marblettir á okkur en
engir skurðir og engin brot. Nú
erum við bara að slappa af og
hvfla okkur."
Ekki hafa fleiri farist
í umferðinni síðan 1977
Þrjátíu og þrír hafa
látist í umferðar-
slysum á árinu
Handteknir
með fíkniefni
LÖGREGLAN á ísafirði handtók í
gær tvo menn á Isafjarðarflugvelli í
en þeir voru báðir með fíkniefni í fór-
um sínum. Við húsleit á heimili ann-
ars mannsins fannst þýfi sem leitað
hefur verið að í nokkrar vikur.
í fréttatilkynningu frá lögreglunni
á ísafirði komu mennirnir báðir með
áætlunarflugvél Flugfélags íslands
frá Reykjavík. Þeir komu hvor með
sinni vélinni og málin eru ekki talin
tengjast. Lögreglan hafði afskipti af
mönnunum þar sem grunur lék á að
þeir væru með fíkniefni meðferðis.
Sá grunur reyndist á rökum reistur
því annar var með tæplega 5 grömm
af kannabisefnum á sér og hinn með
tæp 9 grömm af sama efni.
Mennirnir, sem eru 18 og 22 ára
gamlir, hafa báðir viðurkennt að eiga
efnin og hefur þeim nú verið sleppt.
Við rannsóknarvinnu naut lögreglan
á ísafirði aðstoðar lögreglumanns úr
Bolungarvík sem hefur yfir að ráða
sérstaklega þjálfuðum fíkniefnaleit-
arhundi.
------*-4_*-----
Flugfélagið
semur um flug
til Kulusuk
FLUGFÉLAG íslands og græn-
lenska heimastjómin hafa samið um
flug milli Reykjavíkur og Græn-
lands. Flogið verður tvisvar í viku
allt næsta ár frá Reykjavík til Kulu-
suk og þaðan áfram til Nerlerit Inaat
og síðan til baka til Reykjavíkur.
Samningurinn tryggir Flugfélag-
inu rúmlega 100 milljónir íslenskra
króna. Nerlerit Inaat er mjög af-
skekkt og eru þetta einu samgöngur
bæjarfélags við umheiminn. Til
Kulusuk verður flugið tímasett
þannig að tenging náist samdægurs
til Nuuk, höfuðstaðar Grænlands.
ÞAÐ sem af er þessu ári hafa 33
látið lífið í banaslysum í umferðinni.
Ekki hafa fleiri látist í umferðar-
slysum síðan 1977 þegar 37 manns
biðu bana. Þá urðu 33 banaslys árið
1975.
í þessum mánuði hafa fjórir far-
ist í umferðarslysum.
Tveir karlmenn létust þegar bíll
þeirra lenti í smábátahöfninni í
Vestmannaeyjum þann 15. desemb-
er sl. Karlmaður beið bana þegar
bíll hans valt í Öxnadal fjórum dög-
um síðar. Þá lést kona í árekstri
fólksbíls og jeppa á Fljótsheiði í
Reykdalshreppi í S-Þingeyjarsýslu.
Samkvæmt tölum Umferðarráðs
hafa 32 hafi látist en ráðið vinnur
eftir reglum Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar. Þær reglur kveða á
um að ekki megi líða meira en einn
mánuður frá því að sá sem slasast
lætur lífið til að slysið teljist bana-
slys. Kona sem slasaðist alvarlega í
bflslysi á gatnamótum Norðurlands-
vegar og Sauðárkróksbrautar þann
21. júní sl. lést á sjúkrahúsi í byrjun
ágúst.