Morgunblaðið - 23.12.2000, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fagurt fyrir austan
Séð yfír Lagarfljót, tignarlegt, vetrarbúið Snæfell í íjarska, en hið gamla fljótshús Egilsstaðabænda í forgrunni.
Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann
Dansað í kringum jólatréð í Lýsuhólsskóla.
Litlu jólin
með
Jóhannesi
úr Kötlum
Hellnum - Skólastarfi þetta árið í
Lýsuhólsskóla lauk 20. desember
með litlu jólum nemenda. Þeir
höfðu sett saman veglega dagskrá
til að skemmta sér og foreldrum
sínum, en þeim er alltaf boðið til
skemmtunarinnar.
í upphafi flutti séra Guðjón
Skarphéðinsson jólahugvekju og
nemendur skólans sem eru í Lúðra-
sveitinni Snæ fluttu nokkur lög.
Aðaldagskráin var tileinkuð Jó-
hannesi úr Kötlum og hófst á kynn-
ingu elstu nemenda á skáldinu. I
framhaldi af því leiklásu nemendur,
allt frá yngstu og upp í efstu bekki,
Ijóðin um jólasveinana, grýlukvæði,
jólaköttinn og jólabarnið og allir
tóku undir þegar sungið var Jólin
koma. Boðið var upp á veglegt
kaffihlaðborð sem foreldrar nem-
enda Iögðu fram og á eftir var
sungið og dansað í kringum jóla-
tréð.
Morgunblaðið/HalldórGunnarsson
Björn Eiríksson talaði fyrir hönd systkinanna við afhendingu
á bifreiðinni.
Samgöngusafninu
í Skógum færð
dýrmæt gjöf
Holti - BÖRN Eiríks Björnssonar
frá Svínadal í Skaftártungu færðu
Samgöngusafni íslands f Skógum að
gjöf bifreið hans Dodge Weapon,
Z-2, árgerð 1942,5. desember sl., á
100 ára afmælisdegi hans en hann
andaðist 18. september 1998. Eirík-
ur var einn af bestu völundar-
smiðum landsins, sjálflærður og
náttúruhagur sem m.a. smiðaði 51
rafmagnstúrbínu til nota víðsvegar
um landið.
Bömin hans þrjú, Sigurdís Erla,
Bjöm og Ágúst og barnaböm vildu
minnast hans á afmælisdegi hans
með þessari gjöf sem var staðfest
með gjafabréfi. I gjafabréfinu segir:
„Hann notaði bifreiðina til flutninga
á efni og túrbínum, í Qallaferðir, til
fjöruferða, í sjúkraflutninga og til
heimilisnota. Ámoksturstæki smíð-
aði hann á bifreiðina og notaði tals-
vert, þar til dráttarvélar tóku við
því hlutverki. Hann notaði bifreið-
ina fram á síðasta æviár. Að end-
ingu var bifreiðin notuð til að flylja
eiganda sinn hinstu ferðina í Graf-
arkirkju."
Þórður Tómasson, safnvörður í
Skógum, þakkaði fyrir gjöfina og
hversu dýrmæt hún væri fyrir sam-
göngusafnið, sem væri nú verið að
hefja byggingu fyrir. Bifreiðin
myndi minna á ferðir Eiríks, störf
hans og ótrúleg smíðaafrek. Safnið
myndi einnig verða tækjaminjasafn
og ætti safnið þegar eina völundar-
smíð Eiríks, rafmagnstúrbínu, frá
Hvanneyri, og vænti hann þess að
safnið myndi eignast fleiri muni úr
smiðju hans.
Sigþór Sigurðsson í Litla-
Hvammi, stjórnarmaður safnsins,
þakkaði einnig fyrir gjöfina og rifj-
aði upp ógleymanlegt persónulegt
atvik frá því fyrir nokkrum árum
þar sem nútfma dráttarvél með
ámokstursgræjum bilaði þannig að
Gjafabréfið undirritað.
fíngerður spíss gaf sig og það virtist
eitt til ráða að fá nýjan hlut sendan
utanlands frá eða fá aðra vél til
verksins. I stað þess var leitað til
Eirfks í Svínadal sem gerði við spfss-
inn á örskammri stundu og starfið
hélt áfram með vinnuflokknum.
Sverrir Magnússon í Skógnm,
framkvæmdasfjóri safnsins, þakk-
aði einnig gjöfina og sagði bifreið-
ina ómetanlegan feng fyrir sam-
göngusafnið, bifreið sem væri enn í
notkun á númerum með sfna sér-
stæðu sögu, hlyti að vera einsdæmi
og verðugt verkefni að gæta og
halda utan um, því þessi tegund bif-
reiða hefði reynst einna best í ferð-
um um óbrúuð vatnsföll og í torfær-
um á fyrri árum.
í lokin var gestum boðið til kaffi-
drykkju þar sem rætt var um ótrú-
leg smíðaafrek Eiríks og hversu
frumstæðar aðstæður hann bjó við
að steypa málma, renna í bekk og
smíða stóra sem smáa hluti til hvers
verks sem hann vann. Þá var minnst
á sfðasta viðfangsefnið sem hann
vann við en náði ekki að ljúka, gerð
sérstakrar vindmyllu sem var hönn-
uð af honum, miðuð við íslenskar
aðstæður og bíður þess að unnið sé
áfram við.
Morgunblaðið/Finnur
Skólahljómsveit Tónlistarskólans lék fyrirstarfsfólk og viðskiptavini
Islandspósts á Tálknafirði.
Tónleikar á Tálknafírði
Tálknafirái - Eyrir skörofhu hélt
Tónskólinn á Tálknafirði jólatónleika
í íþrótta- og félagsheimilinu. Tónleik-
amir voru vel sóttir og boðið var upp
á fjölbreytta dagskrá. Þó voru jóla-
lögin áberandi á efnisskránni, sem
skiljanlegt er. í framhaldi af tónleik-
unum hefur skólahljómsveitin farið í
nokkur fyrirtæki á staðnum og leikið
fyrir starfsfólk, en það er liður í fjár-
öflun fyrir hljóðfærasjóð skólans.
Einnig var farið á Patreksfjörð og
leikið fyrir eldra fólk á sjúkrahúsinu.
Þeir tónleikar voru í boði Verkalýðs-
og sjómannafélags Tálknaíjarðar.
Tónlistarskóli Tálknafjarðar var
endurvakinn í haust, þegar Helga
Þórdís Guðmundsdóttir hóf störf
sem skólastjóri. Aðsókn að skólanum
hefur verið mjög góð og eru nemend-
ur 33, í forskóla og almennu hljóð-
færanámi. í ráði er að Marion Gizella
Worthman hefji störf við skólann á
næsta ári, til þess að ekki þurfi að
takmarka aðgang nemenda að skól-
anum.
Gömlu kirkj-
unni í Stykk-
ishólmi gefín
skírnarskál
Stykkishólmi - Messað var í gömlu
kirkjunni í Stykkishólmi sunnu-
daginn þriðja í aðventu. Við það
tækifæri var kirkjunni gefin skírn-
arskál. Gjöfin var frá börnum Lár-
usar Elíassonar og Ástu Þ. Páls-
dóttur til minningar um foreldra
þeirra. Ásta og Lárus bjuggu í
Stykkishólmi alla sína tíð. Lárus
dó 1971, þá 78 ára að aldri, og
Ásta dó árið 1989, þá 89 ára göm-
ul. Ásta hefði orðið 100 ára á þessu
ári ef hún hefði lifað.
Skírnarskálina gerði glerlista-
konan Ebba Júlíana Lárusdóttir,
dóttir þeirra hjóna. Skálin er mjög
falleg og hafði höfundur í huga
bláa hvelfingu kirkjunnar og gylltu
stjörnurnar í lofti hennar. Séra
Gunnar Eiríkur Hauksson þakkaði
Svanlaugi Lárussyni fyrir gjöfina,
en hann er eitt systkynanna og
býr í Stykishólmi.