Morgunblaðið - 23.12.2000, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 25
Niðurstaðan ráðin
en framtíðin ekki
Kona gengur hjá veggspjöldum frambjóðenda í kosningunum til serbneska þingsins. Reuters
Kosningabandalaginu
sem kom Kostunica til
valda í haust er spáð
stórsigri í þingkosning-
unum sem fram fara í
Serbíu í dag. Þar með
kemst til valda maður
sem á sér níu líf, Zoran
Djindjic, umdeildur
stjórnmálamaður með
vafasama fortíð skrifar
Urður Gunnarsdóttir.
Verkefnin sem bíða eru
risavaxin eftir tíu ára
einangrun og óstjórn
Slobodans Milosevic.
NIÐURSTAÐA þingkosn-
inganna sem fram fara í
Serbíu í dag er svo til ráð-
in. Enginn virðist velkjast
í vafa um að Lýðræðis-andstaða
Serbíu, DOS, sem er bandalag 18
stjórnarandstöðullokka, muni hljóta
um 2J% atkvæðanna. Kosningabarátt-
an hefur verið kraftlaus og h'tt áber-
andi, svo sigurvisst er bandalagið, og
helstu andstæðingamir í Sósíalista-
flokknum hafa álitið vissara að halda
sigtilhlés.
Það eina sem virðist geta komið í
veg fyrir algeran stórsigur er að kjós-
endur telji það ekki ómaksins vert að
fara á kjörstað Athygli velqa þó vegg-
spjöld stúdentasamtakanna Otpor;
mynd af jarðýtu og yfirskriftinni:
„Við fylgjumst með ykkur. Lítill vafi
leikur á því orðunum er einkum beint
til mannsins sem talið er fullvíst að
setjist á stól forsætisráðherra eftir
kosningar, Zoran Djindjic. Mannsins
sem hefur verið kallaður tækisfæris-
inni og „ofvirkur lítill Slobo.
Stöðnun frá byltingunni
Litlaus kosningabaráttan er til
marks um hve tímabærar breyting-
amar í byrjun október vom. Þúsund-
um saman snemst Serbar á sveif með
lýðræðissinnunum í DOS og vinsæld-
ir bandalagsins og leiðtoga þess,
Vojslav Kostunica hafa aukist dag írá
degi. Frá því að DOS sigraði í júgó-
slavnesku forsetakosningunum og
Vojslav Kostunica tók við embætti
forseta sambandsríkisins hefur hins
vegar lítið gerst í serbneskum stjóm-
málum. Þær hreinsanir sem búist var
við að myndu fylgja í kjölfar valda-
skiptanna em takmarkaðar enda hafa
sósíahstar ráðið lögum og lofum á
serbneska þinginu.
I raun hefur ríkt stöðnun á meðan
serbnesku þingkosninganna hefur
verið beðið. Enginn hefur velkst í vafa
um að DOS muni bera sigur úr býtum
en sósíalistum hefur tekist að halda
völdum í þinginu þrátt fyrir að þeir
hafi orðið að deila völdum með DOS.
Niðurstaðan hefur orðið pattstaða
þar sem hvorir um sig hafa komið í
veg fyrir að mál nái fram að ganga.
Með sigri í kosningunum ætti DOS
loks að takast ætlunarverk sitt, að ná
stjórn á lögreglunni og mörgum
helstu embættum og stofnunum Ser-
bíu og koma þar með í veg fyrir end-
urkomu Milosevic. Fáeinir embættis-
og valdamenn hafa séð sitt óvænna og
flúið og þá gjarnan með stórar fúlgur
fjár en flestir undirsátar Milosevic
eru hins vegar enn við völd.
Verkefnin sem við blasa eru risa-
vaxin og kosningaloforðin snúast í
stuttu máli að koma efnahagnum í
lag. DOS hefur einnig nefnt umbætur
í heilbrigðismálum og dómskerfi og
menntakerfið þarfnast algerrar end-
urskoðunar. Auka þarf atvinnutæki-
færi í landi þar sem atvinnuleysi er
geysilegt, líklega um 50%, og um 40%
landsmanna draga fram lífið á um 15
Bandaríkjadölum á mánuði.
DOS spáð 60-80% atkvæða
Kosið verður um 250 þingsæti og er
landið allt eitt kjördæmi. Um 6,5
milljónir manna eru á kjörskrá í Ser-
bíu og Kosovo en Serbar þar fullyrða
að þeir hyggist ganga að kjörborði
þótt fulltrúar Sameinuðu þjóðanna,
sem fara með stjórn héraðsins, kann-
ist ekki við neitt.
Samkvæmt skoðanakönnunum mun
DOS fá að minnsta kosti 60% atkvæða,
sumar spár benda jafnvel til 8Ó%. Sósí-
alistaflokki Slobodans Milosevic, fyrr-
verandi forseta, er spáð fiá 8-15% og
Róttæka flokkinum, sem þjóðemis-
öfgamaðurinn Vojslav Sjesjelj fer fyr-
ir, um 6%. Ekki er talið að aðrir flokkar
muni komast yfir 5% markið sem þarf
til að ná sæti á þingi. Það útilokar JUL,
kommúnistaflokk Miru Markovic, eig-
inkonu Milosevic, og Endumýjur-
hreyfingu Vuk Draskovic.
í lok nóvember féllust flokkamir
átján sem standa að DOS á skiptingu
þingsæta eftir kosningar. Stærstu
flokkamir em Lýðræðisflokkur
Djindjic og Lýðræðisflokkur Serbíu,
sem Kostunica stofnaði fyrir átta ár-
um er hann klauf sig út úr þeim fyrr-
nefnda. Fái DOS helming greiddra
atkvæða fá þessir flokkar jafnmörg
atkvæði en vinni DOS stórsigur hagn-
ast Djincjjic á því. Hljóti DOS til
dæmis 79% stuðning í kosningum,
fær bandalagið í heild 187 þingsæti.
Þar af fengi flokkur Djindjic 49 þing-
sæti, flokkur Kostunica 46.
Sundrungarmerkin sjást þegar
Þrátt fýrir að flokkamir sem
standa að DOS bjóði fram saman era
sundrangarmerkin löngu farin að
sjást. Deilur milli flokka og einstak-
Sigg>a &Tiwo
G U L L S M i Ð I
STKANDGATA 19 S.Ml 56S 4B54
linga hófust svo að segja daginn sem
Kostunica tók við embætti og snerust
einkum um misjafnar skoðanir hans
og Djindjic á því hversu vasklega
skyldi fram gengið í að ná völdum.
Djindjic er talsmaður hraðra um-
skipta og hefui- margoft verið líkt við
jarðýtu. Kostunica hafði sitt þó fram
enda nýtur Djindjic takmarkaðs
trausts á meðal serbneskra kjósenda
þótt staða hans sé sterk innan DOS.
Stjómmálaskýrendur hafa spáð því
að DOS muni líklegast klofna eftir
kosningar. Ekki er þó víst að stjóm
bandalagsins myndi falla þar sem ein-
stakir flokkar innan bandalagsins
gætu haldið stjómartaumunum, lík-
lega undir stjóm Djindjic.
Fylgið við DOS hefur aukist um-
talsvert frá því í forsetakosningunum
í september. Enginn velkist í vafa að
sá gríðarlegi stuðningur sem DOS
nýtur er fyrst og fremst Kostunica að
þakka en samkvæmt skoðanakönnun-
um eru 78% Serba jákvæðir í garð
hans en aðeins 10% neikvæðir. Hins
vegar líta aðeins 32% Serba Djindjic
jákvæðum augum en yfir 40% era
honum andsnúnir.
Ofvirkur lítill Slobo
Djindjic er maður sem náð hefur að
skapa sér óvinsældir fyrir ótrúleg-
ustu hluti. Elda fólki finnst hann of
mikill menntamaður, unga fólkið seg-
ir hann spilltan tækifærissinna. Þjóð-
emissinnar telja hann of hallan undir
Vesturlönd en fijálslyndir hafa hom í
síðu Djindjc vegna náinna tengsla
hans við stríðsglæpamennina Radov-
an Karadzic og Arkan.
Það verður þó ekki af Djincljic tekið
að fáir hafa jafngóðan skilning á inn-
viðum serbneskra stjómmála og því
hvemig hefja á umbætur með hraði.
Krafturinn er einmitt eitt aðalsmerki
2 ooo linuu
ísland verður byggilegt.
„Skemmtileea oe fjörleea skrifúð“.
Jón Þ. Þór/MbL
Djindjic, útgefandinn Alexander Tij-
anic kallaði hann fyrir skemmstu „of-
virkan lítinn Slobo og vísar þar til ná-
inna tengsla Djindjc við ýmsar
valdaklíkur.
Djindjie er fæddur í Bosníu árið
1952 og segist hafa lært virðingu fyrir
öðram þjóðum og trúarbrögðum í
bamæsku. Ymsir hafa þó orðið til að
bera brigður á það, einkum eftir að
uppvíst var um vinskap hans við Rad-
ovan Karadzic, leiðtoga Bosníu-Serba
í Bosníustríðinu, og stríðsglæpa-
manninn Arkan.
Djindjic var uppreisnargjam, 18
ára mótmælti hann því að Josip Broz
Tito skyldi útnefndur forseti ævilangt
og 22 ára gömlum var honum stungið
í fangelsi fyrir að stofna ólögleg
námsmannasamtök. Að afplánun lok-
inni hélt hann til Þýskalands þar sem
hann lagði stund á heimspeki. Hann
sneri aftur til Júgóslavíu og hóf íljót-
lega afskipti af stjómmálum. í lok átt-
unda áratugsins stofnaði hann Lýð-
ræðisflokkinn ásamt Kostunica en
flokkstarfið einkenndist af innbyrðis
átökum um stefnu og einstaklinga.
Djindjic var ásamt Vuk Draskovic í
forystu er Serbar gengu fylktu liði
veturinn 1996-1997 um borgir Serbíu
tii að mótmæla kosningasvindli Mil-
osevic. Niðurstaðan varð málamiðlun
sem fleytti Djindjic í embætti borg-
arstjóra Belgrad. Viðkoma hans þar
varð stutt og átök hans og Draskovic
urðu til þess að sjá síðamefndi klauf
sigútúr DOS.
Er Milosevic hóf sóknina gegn
Kosovo-Albönum fyrir alvöra, gagn-
rýndi Djindjic hann harðlega og lét
ekki af henni þrátt fyrir loftárásir
NATO á Júgóslavíu. Gagnrýnin féll
ekki í góðan jarðveg og óttaðist
Djindjic svo um líf sitt að hann flýði til
Svartfjallalands.
Eftir að stríðinu lauk sneri hann
aftur til Serbíu og tók hann þráðinn
upp í DOS en ljóst var að ætti banda-
lagið að eiga sér einhverja von um sig-
ur í kosningunum til forseta Júgóslav-
íu, yrði að finna annan frambjóðanda
en Djindjic. Hann hefur hins vegar
ráðið lögum og lofum á bak við tjöldin
og hefur ítrekað kastast í kekki milli
hans og Kostunica, sem hefur hingað
til haft betur. Nú virðist tækifæri
þess síðarnefnda hins vegar vera að
renna upp.
Milosevic fyrir rétt og
endalok Júgóslavíu?
Enn er fjölda spuminga ósvarað;
hvað verður um MÚosevic, hvað verð-
ur um Svartfjallaland og Kosovo og
hver er framtíð Kostunica?
Þær raddir gerast æ háværari í
Serbíu sem krefjast þess að Milosevic
verði færður fyrir rétt í Serbíu, þar
sem hann verði látinn svara til saka
fyrir glæpi gegn serbnesku þjóðinni.
Utanríkisráðherra Júgóslavíu Goran
Svilanovic, lýsti þessu yfir fyrr í vik-
unni. Nær alger andstaða virðist hins
vegar vera við að framselja hann til
stríðsglæpadómstóls Sameinuðu
þjóðanna í Haag.
Flest bendir til þess að Milosevic,
sem var endurkjörinn formaður
flokks síns verði kjörinn á þing og
muni njóta þinghelgi. Henni er þó
hægt að aflétta en tíminn leiðir í Ijós
hve mikill þrýstingur verður á stjóm-
völd að draga Milosevic til ábyrgðar.
Svartfellingar hafa reynst Serbum
erfiður ljár í þúfú og hafa hafnað sam-
starfi við þá.
Láti þeir verða af hótunum sínum
um að efna til þjóðaratkvæðis um
sjálfstæði á fyrrihluta næsta árs er
ekki búist við að Serbar muni grípa til
vopna til að viðhalda sambandsríkinu.
Serbar telja að um eina og sömu þjóð
sé að ræða en era orðnir langþreyttir
á því að vera í gíslingu litla bróðurs.
Klofhi Júgóslavía, kann það að ýta
undir kröfur um sjálfstæði Kosovo,
sem myndi að nýju raska stöðugleik-
anum á Balkan. Djiindjic hefur verið
ómyrkur í máli þegar Kosovo er ann-
ars vegar og krafist þess að aukinni
hörku verði beitt gagnvart Kosovo-
Albönu í Suður-Serbíu og einnig tæpt
á máli sem án efa á eftir að verða við-
kvæmt, framtíðarstöðu héraðsins.
Hann hefur hins vegar gefið til kynna
að hann sé reiðbúinn að reyna að ná
samkomulagi um aukið sjálfstæði við
Djukanovic, forseta Svartfjallalands,
til að viðhalda sambandsríkinu.
Takist það ekki, stendur Kostunica,
vinsælasti stjómmálamaður Serbíu,
og maðurinn sem sigraði Milosevic,
uppi forseti ríkis sem ekki er til nema
á pappímum. Lausnin á því kann þó
að vera innan seilingar, forsetakosn-
ingar era fyrirhugaðar í Serbíu á
næsta ári og nú þegar era famir að
sjást á götum Belgrad barmmerki
þar sem lagt er að Kostunica að bjóða
sig fram.
Jólatilboð |[J
Mikið úrvai af
smáfræsurum og
fylgihlutum til módel- og
föndurvinnu.
axicraft
TLaugavegi 29,
sími 552 4320