Morgunblaðið - 23.12.2000, Page 56
56 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
EG ER SMEYKUR m AÐ LENbA A
SÖMU FÓÐURSKÁL OG HÚN!
02000 Tribune Media Servlces, Inc.
All Rights Reserved.
Ljóska
Ferdinand
m
■■■ Smáfólk ■
LOOK, KID, POSl'T BLAME ME...
BlAME THE 5CH00L 0OARP! e
NO, UJE'RE NOT 60IN6 TO
MAVE A CHRISTMA5 PLAV...
Sjáðu til, ekki kenna mér um... Kenndu
frekar skólanefhdinni um! Núna
verður ekkert jólaleikrit...
NO, VOU RE N0T60IN6T0
BE 6ABRIEL OR 6ERONIMO
OR ANVBOPY! Y00 MAP ALL
Y0URLINE5 MEMORIZEP?
Nei, þú átt ekki að leika Gabríel eða
Gerónímó eða einhvem! Varstu búinn
að laera allar setningamar þínar?
UJELL, F0R6ET EM..RUB
AN ERA5ER ON YOUR MEAPÍ
Jæja, gleymdu þeim.. Nuddaðu
strokleðri við hausinn á þér!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Hann orti um fallega
hluti, það er hlálegt
Frá Jakobi Viðari Guðmimdssyni:
AÐ UNDANFÖRNU hefur nokkuð
borið á því að nokkrir sjálfskipaðir
verndarar íslenskrar tungu hafi tek-
ið sér penna í hönd og mótmælt
verðlaunaafhendingu kenndri við
Jónas Hallgrímsson, á degi ís-
lenskrar tungu, en þau hlaut Megas
að þessu sinni eins og flestum er
kunnugt. Margt kúnstugt kemur
fram í þessum greinum en eitt eiga
þær þó sameiginlegt, það skín í gegn
um þær allar að íslenskuelskend-
urnir hafa hvorki lesið né hlustað á
Megas. Verndararnir finna Megasi
flest til foráttu og þó helst það að
hafa nítt Jónas Hallgrímsson ást-
mög þjóðarinnar og ætti hann (Meg-
as) því síst verðlaunin skilin. Megas
yrkir: „Sauðdrukkinn úti í hrauni lá
Hallgrímsson Jónas“ o.s.frv. Ja,
mikill er glæpur Megasar þegar það
liggur fyrir að Jónas Hallgrímsson
var ekki bindindismaður á vín og
ekki hófdrykkjumaður heldur. Pað
er öllum ljóst sem hafa kynnt sér
skáldskap Megasar að hann stingur
oft á kýlum og yrkir um mein í þjóð-
félaginu sem hamingjusamasta þjóð
í heimi vill ekki vita af og því síður
viðurkenna að séu til. Það er lítið um
Fanna skauta faldi háum í holræs-
unum. Annað dæmi nefna móður-
málsmærarar. Framburður Megas-
ar og flutningur er svo óskýr að ekki
er nokkur leið að skilja hann. Svo...
Ykkur sem hafið verið að gagnrýna
þessa verðlaunaafhendingu skal
bent á ef svo ólíklega myndi vilja til
að þið hlustuðuð einhvern tíma á
Megas, að með næstum öllum hans
diskum fylgja textarnir svo það
ættu að vera hæg heimatökin að lesa
þá. Annað, um óskýran framburð
Megasar þá hefur hann kosið að
flytja þá svona og þessi gagnrýni er
álíka og þegar menn voru að agnú-
ast út í stafsetninguna hjá Halldóri
Laxness á sínum tíma. Um áhrif
Megasar íslenska textagerð þarf
ekki að fara mörgum orðum, hann
er einfaldlega bestur og flestir þeir
sem reynt hafa að gera texta eða
ljóð sem eru á hærra plani en „ég
var hjá þér, þú varst hjá mér“ hafa
einhvern tíma tyllt sér við fótskör
hans. Og ef saga síðustu 20-25 ára er
skoðuð má sjá áhrif Megasar út um
allt bæði í rit- og talmáli. Þeir sem
örvænta um framtíð íslenskunar
þurfa engu að kvíða, því „á sér-
hverju götuhorni og húsasundi má
hitta á aðra sem greiðlega leggja
ykkur lið“, þökk sé m.a. Megasi.
JAKOB VIÐAR
GUÐMUNDSSON,
j akar @ vortex.is,
Engihjalla 15, Kópavogi.
Sorpa - umhverfissóði
númer eitt
Frá Emilíu S. Emilsdóttur:
ÉG VERÐ að tjá mig í framhaldi af
frétt í fjölmiðlum nú á dögunum af
ósómanum hjá Sorpu.
Mjög alvarlegur hlutur er það,
þegar svona óþverri eins og í frétt í
MBL var rætt um, að Sorpa henti al-
versta og hættulegasta úrgangi á
haugana í Alfsnesi og léti það danka
þar dögum saman án þess að urða
það. Þetta er í nálægð við kjúklinga-
og svínabú og getur hver sem er sagt
sér framhaldið á þessum sóðaskap
þegar fuglinn t.d. kemst í þetta.
Síðan eru þessir bændur rústaðir
ef bakteríur koma upp í afurðum
þeirra.
En það sem mér hefur lengi legið
á brjósti er losun á pappír (mjólk-
urfernum, dagblöðum, tímaritum
o.fl.) í gáma bæjarins.
Ég hef núna til nokkurra ára farið
með allar mjólkurfernur og annan
pappír samviskusamlega í gámana
sem eru úti um allan bæ, þrátt fyrir
háðsglósur míns heimilisfólks fyrir
þessa iðju mína, hvort ég viti ekki
það sem allir aðrir vita að þessu er
öllu hent í einn haug í Álfsnesi, engin
endurvinnsla eigi sér stað á þessu!
Þessu hef ég neitað að trúa.
Ég hef varist þessu með þrjósk-
unni einni saman og hrósað sjálfri
mér fyrir að vera „ekki umhverfis-
sóði“ og áfram hef ég haldið og litið
framhjá vorkunnaraugum heimilis-
fólksins.
Oft hef ég verið komin á fremsta
hlunn með að hringja í Sorpu og
spyrjast fyrir um þetta, hvort það sé
virkilega satt að þessu sé svona farið.
En vegna þess að ég hef ekki treyst
því að fá heiðarleg svör, hef ég látið
það vera og haldið áfram í þeirri trú
að ekki sé verið að hafa fólk að fífl-
um.
En nú er þetta komið fram.
Þetta eru allt tómar lygar og svik.
Ögmundur Einarsson forstjóri
Sorpu kemur fram í fjölmiðlum más-
andi og blásandi og belgir sig út um
sorpirðuna að betur megi ef duga
skuli, en heimilin standi sig þó mun
betur í flokkun sorps en fyrirtækin.
Sennilega tími fyrirtækin þessu
ekki, þetta kosti peninga og um þessi
mál þurfi skýr ákvæði hvemig haga
skuli og er hann þá örugglega að
vonast til að fá meiri peninga í hítina,
því dýr er Sorpa.
En nú hef ég misst alla tiltrú á
Sorpu og mun leggja þessa iðju mína
niður.
Við þig, Ögmundur, vil ég segja
láttu okkur skattborgarana í friði og
farðu að stunda vinnuna þína.
EMILÍA S. EMILSDÓTTIR,
Fannafold 1,112 Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.