Morgunblaðið - 23.12.2000, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 59
FRETTIR
BRIDS
Umsjón Uuðmundur Páll
Arnarsnn.
EDGAR heitinn Kaplan
sagði um þá Meckstroth
og Rodwell að það skipti
engu máli með hverjum
þeir væru í sveit - leikirnir
réðust alltaf á þeirra borði,
þar sem allt væri iðulega í
háalofti. Það er nokkuð til í
því og mjög oft taka þeir
ákvarðanir, sem öðrum
toppspilurum eru fram-
andi. Hér er skemmtilegt
dæmi frá síðasta heims-
meistaramóti á Bermuda í
janúar sl.
Norður gefur; enginn á
hættu.
Norður
A 9542
♦ 10975
♦ G
A AG96
Vestur Austur
aG AÁD1076
VÁ vKD
♦ 106432 V9875
+KD8752 *104
Suður
♦ K83
VG86432
♦ ÁKD
+3
Spilið kom upp í fyrstu
lotu úrslitaleiks Banda-
ríkjanna og Brasilíu:
Vestur Norður Austur Suður
Branco Freeman Chagas Nickell
- Pass 1 spaði 2 hjörtu
Dobl* 4 hjörtu Pass Pass
4grönd Pass 5 tíglar Dobl
Pass Pass Pass
Vestur Norður Austur Suður
Rodwell Campos Meckstroth Villas-Boas
- Pass 1 spaði 2 hjörtu
Dobl* 4 hjörtu Pass Pass
Dobl Pass Pass Pass
Sagnir eru samhljóða á
báðum borðum fram að
lokaákvörðun vesturs.
Doblið á tveimur hjörtum
er neikvætt, en þarf auð-
vitað ekki að sýna svona
mikla skiptingu. Því
ákveður Branco að segja
4G og biðja makker að
velja á milli láglitanna.
Það kostaði 500-kall fyrir
þrja niður í fimm tíglum.
Á stórri landsliðsæfingu
í síðustu viku var þetta spO
spilað (enginn kannaðist
við það) og langflestir
gerðu eins og Branco -
seildust upp á fimmta þrep
yfir fjórum hjörtum. En
eins og sést, doblar Rod-
well og það sem meira er -
kemur út með eina spilið
sem hnekkir fjórum hjört-
um: spaðagosa.
Auðvitað kallast það
engin snilld að „hitta á“ að
spila út í opnunarlit makk-
ers, en með hjartaásinn
blankan virðist ekki að-
kallandi að trompa spaða.
Því kemur a.m.k. vel til
álita að spila út laufkóng.
En þá stendur spilið. Eftir
spaða út, hins vegar, drap
Meckstroth með ás og
spilaði aftur spaða, sem
Rodwell trompaði með
ásnum! Þar með fékk
vörnin á öll trompin sín
þrjú og spilið fór einn nið-
ur.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyi-irvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og sima-
númer.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
Árnað heilla
Q A ÁRA afmæli. í dag,
O v/ 23. desember, verður
áttræð Guðlaug K. Guð-
laugsdóttir frá Búðum í
Hlöðuvík. Eiginmaður
hennar, Albert J. Kristjáns-
son, varð áttræður 3. októ-
ber sl. Þau voru búsett í
Súðavík og síðar í Hafnar-
firði en hún dvelur nú á Sól-
vangi í Hafnarfirði. Þau eru
að heiman í dag.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 15. júlí sl. í Sval-
barðsstrandarkirkju af sr.
Pétri Þórarinssyni Jóna
Bergþóra Sigurðardóttir
og Olafur Daníel Jónsson.
Þau verða búsett í Banda-
ríkjunum á næsta ári.
GULLBRÚÐKAUP. í dag, 23. des. eiga 50 ára hjúskaparaf-
mæli hjónin Guðrún Jónsdóttir og Sigurður Þorsteinsson,
Vetleifsholti, Rangárvallasýslu. Þau eru að heiman.
SKÁK
Umsjón llelgi Áss
(irétarsson
Staðan kom upp í at-
skákeinvígi Alexei Shir-
ovs (2746), hvítt, og Bor-
isar Gelfands (2683) á
heimsmeistaramóti
FIDE. Shirov, sem nú tefl-
ir undir fána Spánar, sigr-
aði fyrir tveim árum Vlad-
imir Kramnik í einvígi um
réttinn til þess að eiga við
Garry Kasparov. Það ein-
vígi fór fram á vegum
einna fjölmargra samtaka
sem Kasparov hefur stofn-
að um dagana. Hinsvegar
þegar til kastanna kom
varð ekkert af heims-
meistaraeinvíginu sjálfu
og Shirov stóð uppi slypp-
ur og snauður. Hann hefur
sjálfsagt grátið þurrum
tárum þegar Kasparov féll
af stalli í einvígi gegn
Hvítur á Ieik.
Kramnik fyrir skömmu.
24.He8+! Hxe8 Svartur
verður mátaður eftir
24...Kg7 25.DÍ8# 25.Dxc7
Hxb5 26.Dxb7 og svartur
gafst upp. Skákin í heild
tefldist svona: l.e4 c5
2.RÍ3 d6 3.d4 cxd4 4.Rxd4
Rf6 5.Rc3 a6 6.Be3 e5
7.Rb3 Be6 8.Dd2 Rbd7
9.fö Be7 10.g4 0-0 ll.O-
0-0 Dc7 12.Kbl Hfc8
13.g5 Rh5 14.Rd5 Bxd5
15.exd5 Rb6 16.Hgl a5
17.a3 a4 18.Rc5 dxc5 19.d6
Bxd6 20.Dxd6 Rf4 21.Bxf4
exf4 22.Bb5 g6 23.Hgel
Ha5.
LJOÐABROT
BJART ER YFIR BETLEHEM
Bjart er yfir Betlehem,
blikar j ólastj arna.
Stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarnan allra barna.
Var hún áður vitringum
vegaljósið skæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa, kæra.
Víða höfðu vitringar
vegi kannað hljóðir,
fundið sínum ferðum á
fjöldamargar þjóðir.
Barst þeim allt frá Betlehem
birtan undur skæra.
Barn í jötu borið var,
barnið Ijúfa, kæra.
Barni gjafir báru þeir.
Blítt þá englar sungu.
Lausnaranum lýstu þeir,
lofgjörð Drottni sungu.
Bjart er yfir Betlehem,
blikar jólastjarna.
Stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarnan allra barna.
Ingólfur Jónsson.
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert gæddurgóðum skipu-
lagshæfíleikum ogmeð
ákveðni og drifkrafti ert þú
vel til forystu failinn.
Hrútur
(21. mars -19. apríl) ,
Þú þarft að gæta þess að leita
stöðugt uppi nýja hluti þvi að
stöðnunin á illa við þig og
dregur úr þér allan mátt.
Vertu því stöðugt á varð-
bergi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Láttu það ekki á þig fá, þótt
þér finnist aðrir ekki kunna
að meta verk þín að verðleik-
um. Þú skilar þínu og menn
munu læra að meta framlag
þitt.
Tvíburar t
(21. maí - 20. júní) nrL
Hættu að velta hlutunum íyr-
ir þér. Taktu ákvörðun um
framhaldið og láttu ekkert
stöðva þig í að hrinda málun-
um í framkvæmd. Byrjaðu
strax.
Krabbi
(21. júní-22. júlí)
Misstu ekki móðinn, þótt eitt-
hvað fari úrskeiðis. Enginn er
fullkominn og þú ekki heldur
svo þú skalt bara herða upp
hugann og halda áfram.
Ljón
(23. júlf - 22. ágúst) M
Mundu að þú ert ekki einn í
heiminum og það á ekki síst
við um vinnustað þinn. Vertu
samstarfsfús og lipur svo að
verk strandi ekki á þér.
Mtyja
(23. ágúst - 22. sept.) <fi$L
Þótt þig langi stundum til
þess að fara á svig við regl-
urnar skaltu halda þeirri
löngun í skefjum þvi hún kall-
ar bara á vesen og vandræði.
VÖg~
(23. sept. - 22. okt.)
Þeir eru margir sem bíða
þess að sjá þig láta athafnir
fylgja orðum. Taktu þér tak,
annars áttu á hættu að verða
umsvifalaust dæmdur amlóði.
Sporðdreki
(23. okt. -21. nóv.)
Þú átt ekki að hika við að láta
vinnufélaga þína standa við
sín orð. Ef þú lætur þá kom-
ast upp með annað eru áhrif
þín á bak og burt og allt í
hættu.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) SO
Þeir eru margir sem gætu
hagnast á framtaki þínu.
Leyfðu þeim það, því sjálfur
muntu bera nóg úr býtum
fyrir þig og þína og vel það.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar)
Þú mátt ekki láta það henda
þig að geta ekki lokið við
verkefni á tilskildum tíma.
Slíkt kemur órorði á þig og þú
átt erfitt með að fá verkefni.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.)
Það er hreint furðulegt
hverju maður getur vanist af
illri nauðsyn. Þess vegna
skaltu ekki snúa upp á þig,
þótt þér þyki skúmálarnir
skrýtnir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Kipptu þér ekki upp við það,
þótt aðrir vilji kenna þér hóg-
værð og umburðarlyndi.
Þeim mun glaðari verða þefr,
þegar þú sýnir þetta strax.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Ný stjórn íslensk-
ameríska félag’sins
AÐALFUNDUR íslensk-amer-
íska félagsins var haldinn fyrir
skömmu. Á fundinum voru reifuð
helstu mál félagsins á nýliðnu
starfsári. Formaður félagsins
flutti skýrslu stjórnar og einnig
voru reikningar þess kynntir og
samþykktir.
Eitt af meginverkefnum Is-
lensk-ameríska félagsins er að
veita Thor Thors-styrki til náms-
manna sem hyggja á nám í
bandarískum háskólum. Styrk-
þegar að þessu sinni voru 15.
Einnig var veittur styrkur úr
sama sjóði til Kristínar ísleifs-
dóttur listakonu, til að sækja
námskeið við listiðnaðarskólann í
Haystack í Maine.
íslensk-ameríska félagið vinn-
ur nú að því að koma upp öflugri
heimasíðu. Undanfarin ár hefur
félagið unnið að því að koma á og
styrkja starfsþjálfunarverkefni á
milli Islands og Bandaríkjanna.
Það verkefni er nú að festa sig í
sessi.
Ný stjóm íslensk-ameríska
félagsins tók við á aðalfundinum.
I henni sitja; Einar Benediktsson
sem var endurkjörinn sem for-
maður, en aðrir sem að kosnir
voru í stjóm em; Þórður S. Ósk-
arsson varaformaður, Árni G.
Sigurðsson, Gunnar S. Sigurðs-
son, Kristín Jónsdóttir, Sigurjón
Ásbjörnsson og Skarphéðinn B.
Steinarsson.
1928, á horni Laugavegs og Klapparstígs, sími 552 2515.
30-50%
afsláttur
af öllu jólaskrauti