Morgunblaðið - 23.12.2000, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2000 6, ■
■swajjjh.a .sw.iUfaa
EINA BÍÓIÐ MEÐ
KRINGLUBlAaS
mm
990 PUNKTA
PERÐUÍBÍÓ
Kringlunni 4-6, sími 588 0800
Lokað í dag,
Þorláksmessu
Opið annan í jólum
Kaupið miða í gegnum VITið. Nánari upplýsingar á vit.is
^i
vtt
MWWH snMmum wNha E
FtRIR
990 PUNKTt
PERDUÍBÍÓ
ri4i< riv^
niniinimitiiiuiiiiiii i' i'itttttti ri imiffJLn
Snorrabraut 37, simi 551 1384
'^3
Lokað í dag,
Þorláksmessu
Opið annan í jólum
Kaupið miða í gegnum ViTið. Nánari upplýsingar á vit.is Mfcj
mwuBssBBm
jm
&
1
Lokað í dag,
Þorláksmessu
Opið annan í jólum
LITTLE NICKY frumsýnd annan í jólum
í svörtum fötum gefur út eigin lagasmíðar
Sungið
úti á götu
Er hægt að vinna plötu frá grunni og gefa
hana út á aðeins tólf dögum? Augsýnilega.
SVO spyija strákamir í hljómsveit-
inni í svörtum fötum inni í plötukáp-
unni á Verkefni 1 sem þeir gáfu út
þann 20. desember en tökur á henni
hófust í stúdíóinu í glugga Skífunnar
á Laugaveginum þann 8. desember sl.
„Við vorum að spila á framhalds-
skólaballi á Selfossi og lofuðum
krökkunum að gefa út disk fyrir jólin
og ákváðum að standa við það loforð,“
útskýrir Áki, bassaleikari I svörtum
fötum sem best er þekkt fyrir að vera
tökulagásveit. En meðlimimir ákváðu
að semja öll lögin á upptökutíma-
bilinu, fyrir utan eitt; „I feel good“
sem fékk að fljóta með.
„Markmiðið var bara að búa til
plötu,“ segir Áki. „Pað þýðir ekkert
að vera fastur í tökulögunum, og
hvorki semja né gefa neitt út, svo við
ákváðum að drífa í þessu og við erum
bara ánægðir með árangurinn. Annað
er ekki hægt.
Eins og heyrist þá er hljómurinn
hrár, við leyfum mistökum að fljóta
með og það er lifandi stemmning yfir
plötunni. I seinasta laginu, „I feel
good“, stóð Jónsi söngvari úti á
miðjum Laugaveginum og söng lagið
þar í upptökunni. Við vildum líka vera
sýnilegir, það var bæði auglýsinga-
brella og hluti af stemmningunni."
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hrafnkell gítarleikari einbeittur við upptökur í Skífunni.
Áki segir plötuna gefa ágætis mynd
af sveitinni. ,Auðvitað verður næsta
plata unnin á öllu betri tíma en þetta
eru samt okkar pælingar, við gerum
þetta allt sjálfir þótt við eigum eftir að
móta okkar eigin stfl betur.“
í svörtum fótum er nú komin í lang-
þráð jólafrí eftir stífar upptökur og
dansleikjahald sem endaði með út-
gáfutónleikum uppi á Músík & mynd-
um í gærkvöldi.
„Þetta er búið að vera rosalega
gaman, hugmyndin var bara svo biluð
enda hafði enginn trú á að okkur
myndi takast þetta. Svo þegar við
sýndum fólki plötuna að tólf dögum
liðnum missti það andlitið," segir Áki
kíminn og ætlar að leggja sig.
TFA gefur út myndsnælduna Skífuskank#2
Fyrsta sólóplata Jóhanns Ásmundssonar
Morgunblaðið/Kristinn
Ómar Ómar og Sesar A berjast fyrir hip-hopmenningunni á íslandi.
Snúið, þeytt
og skankað
í ÞESSU litla landi þrífast allnokkrir
litlir, en æði virkir, tónlistarkimar.
Hip-hopmenningin hefur til að mynda
einskorðast við heldur þröngan og
lokaðan hóp og verið fremur dulin
hinum almenna menningameytanda.
Þessu vilja félagamir í TFA (Time
For Action) breyta, eins og nafhið
gefur til kynna, en fyrir stuttu var
opnuð heimasíðan www.tfa.is. Einnig
var félagsskapurinn að gefa út 90
mínútna myndband sem hýsir upp-
tökur frá plötusnúðakeppninni Skífu-
skank#2 sem fram fór þann 10. nóv-
ember síðastliðin en hana er hægt að
nálgast í gegnum heimasíðu TFA og í
verslunum Brim og Þmmunni. Upp-
taka frá Skífuskanki#l fylgir svo með
á spólunni sem kaupbætir.
„Þetta er fjórða plötusnúðakegpnin
sem við stöndum fyrir,“ segir Ómar
Ómar, talsmaður TFA. Með honum
er Sesar A, rímlistamaður með meiru
sem sá um framleiðslu myndbands-
ins. Sesar bætir því við að hinn marg-
verðlaunaði skífuþeytir frá Dan-
mörku, DJ Shine, hafi verið á meðal
dómara, og leiki hann listir sínar á
spólunni.
Strákamir segja spóluna vera
fyrstu heiniildina um hip-hop menn-
inguna á íslandi. „Það er til ákveðið
hugtak, „Turntablism" eða plötu-
snúðamenning" segir Sesar. „Þar er
talað um plötuspilarana sem hljóðfæri
en það eru nokkur ár síðan þetta kom
til sögunnar. Þá eru menn að taka
tvær plötur sem eru með sama takti
og búa til eitthvað alveg nýtt, flækja
þessu saman. Setja saman setningar
úr tveimur plötum o.s.frv." Ómar og
Sesar nefna til þá Rob Swift, Kid
Koala og Mix Master Mike sem dæmi
um listamenn sem hafa barist fyrir
viðurkenningu listformsins.
Þeim félögum þykir miður hversu
mikið hip-hop menningin íslenska er í
hvarfi frá sjónum almennings, segja
aðgengi hennar að fjölmiðlum lítið.
Þeir vonast eftir því að þessi athafna-
semi þeirra geti bætt eitthvað úr
þessu, m.a. með heimasíðunni nýju og
nefna til síður eins og www.dording-
ull.com (harðkjamarokk m.a.) og
www.breakbeat.is (taktbrotstónlist
og skyldar greinar) en þær hafa verið
að sinna sínum geirum á viðlíka hátt,
jafnt inn á við sem út á við.
Draumurinn
rætist
Morgunblaðið/Kristinn
Jóhann Ásmundsson: „...ég trúði því fyrst að þetta
gæti orðið að veruleika fyrir um tveimur árum síðan.“
ÚT er kominn
hljómdiskur-
inn So low sem
er fyrsta plata
bassaleikarans
góðkunna Jó-
hanns Ás-
mundssonar.
Jóhann hefur
verið einn
fremsti bassa-
leikari Íslands
í árafjöld og
ætti að vera
fólki að góðu
kunnur fyrir
störf sín með
Mezzoforte.
En með þess-
ari skífu hefur
langþráður
draumur loks orðið að veruleika.
„Þessi hugmynd fæddist fyrir
margt löngu en ég trúði því fyrst að
þetta gæti orðið að veruleika fyrir
um tveimur árum síðan," segir Jó-
hann og er auðsýnilega ánægður
með að þetta er loks komið í höfn.
„Þá fór ég loks að þreifa aðeins fyr-
ir mér með eigin tónsmíðar. Það er
nú orðið þannig að maður getur
unnið þetta mikið til heima við og
bara allt í einu voru komin þarna
nokkur lög. Síðan varð þetta til
svona hægt og rólega á þessu
tveggja ára tímabili."
Jóhann segist svo hafa kýlt á að
klára þetta af fyrir svona tveimur
til þremur mánuðum síðan. „Ég er
svo heppinn að hafa aðgang að
mörgum af okkar bestu tónlistar-
mönnum, maður þekkir þá nú svo
marga eftir öll þessi ár. Við unnum
þetta svo í skorpum."
Það má gera því skóna að það sé
ekki hlaupið að því að sinna eigin
efni ef maður er mikið að spila á
hljómleikum. „Það dregur svolítið
úr manni ef maður er mikið að spila
um helgar," samsinnir Jóhann. „En
ég tók þá ákvörðun fyrir rúmum
tveimur árum síðan að drífa mig í
tónlistarskóla. Þar með skuldbatt
ég sjálfan mig til að vinna að þessu
af einurð.“
Jóhann segir langa skorpuvinnu
hafa bæði jákvæðar og neikvæðar
hliðar. „Stundum fmnst manni
þetta allt ómögulegt og vill henda
þessu í ruslið og gleyma öllum
svona pælingum. Svo tók ég bara
lokaákvörðun um að klára þetta og
þá var þetta eiginlega allt komið,
það þurfti bara að setja lokið á
kassann og ljúka þessu, ekki vera
að hanga yfir þessu lengur. Þegar
maður er heima við og er að spá í
eigin spilamennsku getur maður
farið í þessa þvflíku hringi og þá er
þetta bara orðin martröð," segir Jó-
hann og hlær að sjálfum sér.
Hann segir diskinn vera í nokkuð
beinu framhaldi af því sem Mezzo-
forte var að gera. „Eftir á að
hyggja finnst mér kannski að ég
hefði átt að vera öllu djarfari. En
þetta er frumraun mín sem laga-
smiðs og maður er svona að læra á
þetta. Nú er maður í þvi að byggja
upp sjálfstraust og trú á sjálfum
sér sem slíkum.“
Stutt
Mótmælir
úr ljónabúri
►ÞÝSKUR Ijónatemjari mun
dveljast næturlangt í ljónabúri
til að mótmæla brottflutningi
sirkussins síns. Belgísk yfir-
völd gáfu sirkusnum ströng
fyrirmæli í síðustu viku um að
yfirgefa það landsvæði sem
hann stóð á. Raphacl Marcus
Mischler, hinn hugdjarfi ljóna-
temjari, sem jafnframt er son-
ur stjómanda sirkussins,
hyggst vekja athlygi á málstað
sirkussins með þessum hætti.
Raphael hyggst nota prik til að
veijast ljónunum ef þau gerast
of ágeng. „Ef ég sofna þegar
kvöldi hallar þá get ég ekki
fullvissað ykkur um að ég
verði hér enn á morgun" sagði
Ralph við blaðamenn meðan
Ijónin horfðu á hann hungr-
uðum augum.
Fullkomin
eiginkona?
► Það er misjafnt hvaða kosti
mönnum finnst kona þurfa að
hafa til að bera. Það virðist þó
liggja nokkuð Ijóst fyrii- eigend-
um pútnahúss í Tókýó. Þar
gefst viðskiptavinunum kostur
á íbúð sem innréttuð er sem
„draumaíbúð" hins japanska
karlmanns. Þai’ bíður hans ung
og fögur „eiginkona" sem þjón-
ar honum eins og hann óskar,
horfir á þá sjónvarpsþætti sem
hann kýs að horfa á, hlustar á
hann fiill aðdáunar á meðan
hann gortar af afrekum sínum í
vinnunni þann daginn, forðast
að íþyngja honum með eigin
áhyggjum og vandamálum, eld-
ar gimilegan kvöldverð og, að
sjálfsögðu, kætir kauða í hjóna-
herberginu. - Sannarlega full-
komin eiginkona það.
Nýtur þess
að pirra
► Neal Terry er sestur í helg-
an stein en hefur fundið upp á
áhugaverðri leið til að stytta
sér stundir. Að eigin sögn
skemmtir hann sér við að pirra
fólk. „Ég hef helgað líf mitt því
að fara í taugamar á fólki. Það
er náðargjöf mín“ segir hinn
78 ára gamli Dallasbúi „Eins
og ég hef sagt sonum mínum:
Þér á líklega ekki eftir að
lynda við alla sem verða á vegi
þfnum um ævina, svo láttu
vaða og farðu í taugarnar á
þeim!“
15 ára Hexía?
►Hún Brandi Blackbear hefur
farið í mál við skólayfirvöld í
Oklahóma eftir að hafa verið
vísað úr skóla í tvígang. Það má
deila um hvort brottvísanimar
vom ástæðulausar en Brandi
var send burt eftir að hafa skrif-
að skuggalegar athugasemdir í
dagbók sína og í annað sinn þeg-
ar aðstoðarskólastjórinn taldi
víst að galdrakukl stelpunnar
hefði gert kennara við skólann
veikan. Að sögn hafa engin
sönnunargögn enn fundist sem
sanna að þessi 15 ára stúlka hafi
valdið veikindum hjá fullorðn-
um manni með Wicca-göldrum.