Skírnir - 01.01.1880, Qupperneq 22
22
ENGLAND.
ingi stormsins var það, að brúin bilaði. Brúin var mikið mann-
virki, á lengd 5,310 álnir, og ekki meir enn hálfs annars árs
gömnl, en 6 ár hafði þaö tekiÖ ab leggja hana yfir hiö breiÖa
ármynni. þaö af henni sem niður hrandi, var nær 1600 álna á
lengd. Hjer komst enginn lífs af, en tala jpeirra sem fórust var
79 fulloröinna manna, auk 10—15 barna.
Látnir menn. 28. júní dó lávaröurinn John Law-
rence (68 ára aö aldri), fyrrum varakonungur á Indlandi.
ÁÖur enn hann tók við þeirri tign af Elgin lávaröi, haföi hann
veriö landstjóri í Pendjap, og aflaö sjer mikils oröstírs fyrir
dugnaö sinn og stjórnsemi. Hann var af Vigga flokki, og á
stjórnarárum sinum á Indlandi ljet hann sjer mest annt um að
hlutast sem minnst til mála eöa j>ess sem fram fór í grenndar-
ríkjum Indlands, t. d. á Afganalandi og víöar, og kallaöi, sem
hans flokksmenn, aö fæst afskipti heföu minnsta ábyrgð. Frá
bonum komu seinustu árin greinir í blöö, t>ar sem hann ávítaÖi
harðlega Tórýstjórnina fyrir atfarirnar á Afganalandi, og komu
hjer óvægileg andsvör á móti, og var sagt, aö afskiptaleysi hans
væri mest um að kenna, er Englendingar yröu nú svo mikið á
sig að leggja. — 27. ágúst andaðist í Hampstead Rowland
Hill («baronet») næstum hálfníræður að aldri. Hann var á
ungum aldri skólakennari, en kom þrítugur til Lundúna og fjekk
í>ar embætti í póstmálastjórninni. Margir bafa haft minna <>til
sins ágætis» enn þessi maður, því hann var sá enn fyrsti, sem
það hugkvæmdist, aö bæði hver einstakur maður og allt ríkið
hefði sýnan hag af, að burðareyrir brjefa og póstsendinga yrði
afn, að J>ví er til vegalengdarinnar kæmi. Englendingar leiddu
uppástungu hans í lög 1840, og er hún nú orðin grundvallar-
atriði í póstmálalögum allra siðaðra þjóða. þegar hann beiddist
lausnar úr þíónustu stjórnarinnar, veitti þingið honum til verð-
launa í sæmda skyni 360,000 króna, ei) við samskot fjekk hann
í heiðursgjöf 270,000 króna. Áður hafði hann fengið nafnbótina.
— 30. nóvember dó einn af þingskörungum Englendinga John
Arthur Roebuck, 76 ára gamall. Hann var frjálslyndur maður,
en vildi þó aldri bindast í lag Vigga, þó þeir gætu opt talið
hann síns liðs, og kaus heldur að vera höfuðflokkunum óháður