Skírnir - 01.01.1880, Blaðsíða 48
48
ÍTALÍA.
minna bæri á þeim gauragangi. Fremstir í flokki bafa veriS
vinir og fylgiliSar Garíbaldís gamla, og einn af þeim var sá
hershöfSingi, sem hjet Avezzana, og gekkst mest íyrir a8 stofna
þaS fjelag, sem áSur er nefnt og var forseti þess Hann dó í
lok órsins (82 ára að aldri), og þá spörnSu fjelagsmenn ekkert
til a8 heiöra hann í ntförinni sem bezta forvígismann fyrir rjett-
indum Ítalíu og þjóSarkröfum Itala. Sökum þess, aB þessi at-
burSur kom stjórninni í nýjan vanda, viljum vjer láta hans nánara
getiS, en minnumst fyrst á annan atburS, sem á undan var
genginn, og varS til þess aS ýfa Itali og minna þá á torfærurnar
aS ná SuSurtýró), Trentínó og Istríu undan Austurríki. þess er
getiS aS framan (í Frakklands þætti), aS Bisrnarck fór til Yínar
i fyrra sumar, og aS erindislok hans urSu þau sem hann vildi:
náiS samband meS J>ýzkalandi og Austurríki. Hann hafSi þegar
1866 tekiS því fjarri viS sendiboSa Italíukonungs, aS taka Triest
af Austurríki, eSa bola þaS frá hafinu, sem hann og fleiri komust
aS orSi. En allir skildu, aS þar sem hann hjer tók raálstaS
Austurríkis, þá varSi hann ekki síSur hagsmuni þýzkalands, því
um Austurríki á þaS skemmstu leíS til Adríuhafs álíka og til
svarta bafsins og Grikklandshafs. Nú voru þessi miklu ríki
komin í bandalag, og ítalir gátu sjeS, aS leikurinn var nú hálfu
erfiSari enn áSur. Um allt land varS mikill kur, og þó verstur
í blöSum fjelagsins, og sum þeirra kölluSu stjórnina hafa illa
sjeS fyrir högum landsins, en hana vantaSi þar á ofan þor og
þrek. Til útfarar hershöfSingjans, sem fyr var nefndur, var
mönnum boSiS fráTríest og Trient, og komu þaSan fjöldi manna.
Italia irredenta hafSi fengiS sjer merki, og skyldu gestirnir frá
enum „óendurleystu11 borgum bera þaS eptir kistunni og fylgja
henni meS blómsveigum J>ar aS auki var ráSgert, aS likræSan
skyldi flutt af anda fjelagsins og skyldi þar kastaS þungum
ávörpum á Austurríki. En meS því, aS í líkfylgdinni hlutu aB
vera bæSi menn úr stjórninni og úr þingdeildunum, þá sá stjórnin
í hvert óefni mundi koma, ef allt færi svo fram, sem til var
ætlazt. RáSherrarnir tókuþvíþaS til úrræ&is abbjóSaforustumönnum
fjelagsins til viStals vib sig. BoSin komu frá róBherra innan-