Skírnir - 01.01.1880, Side 92
92
RÚSSLAND.
fcví Tekkar komu þeim á óvart og urakringdu þá, og fór hjer öll
vörn í handaskolum. ViSskiptunum lauk svo, að Tekkar ger5u
Persa að bandingjum sínum og seldu þá mansali. Amóta hafSi
farið fyrir Kívumönnum skömmu áður. Jarl þeirra, Mehemed
Emin Khan, sem annars var talinn meðal nýtustu höfðingja þess
lands, fór með allmikinn her Tekkum á hendur, en hann ljet líf
sitt í þeirri óhamingjuför, og úr henni komu aptur fáir sem
engir. — Rússar kváðu erindi sitt inn í þetta Odáðahraun Asíu
vera það, að segja Tekke-Turkómönum til siðanna og ’hepta
rán þeirra og útrásir, en af því þeir fóru dult með ráð sitt, þá
ætluðu margir, að þeim hafi eigi hitt miður til gengið að komast
á góða herstöð suður frá og nær Herat og Afganalandi enn
áður, þar sem þeim þótti, að Englendingar væru að leggja her-
leiðirnar að sunnan og landsunnan. Til ferðarinnar hafði Lazareff
15,000 úlfalda auk 6000 áburðareykja, því hjer varð allt með
sjer að fiytja, sem fyr var á vikið. Sagt er og, að Persar Ijetu
vistalestir koma að sunnan til móts við her Rússa. Á leiðinni
dó hershöfðinginn af blóðkreppu, og var þá höfuðforustan fengin
Tergúkasoff í hendur, öðrum hershöfðingja — hinn þriðji var
Loris Melikoff — sum rjeð sóknum að her og kastölum Tyrkja
í Litlu Asíu, en á meðan hann var á .ferðinni til hersins var sá
foringi fyrir honum, sem Lómakin heitir. Hann sótti vígi það,
sem Dengil Tepe heitir, en Tekkar höfðu hjer meiri viðbúnað
enn Rússar ætluðu. J>etta var að vísu ekki annað enn þorp eitt,
þeim áþekkt, sem Tekkar eiga alstaðar þar sem dallendi er eða
gróðrarkvosir í eyðimörkinni sunnanverðri. En af því þeir eiga
ekki góðra gesta vonir, girða þeir þorp sín viggörðum og grafa
um þau dýki. Svo var og hjer um horfið, en Lómakin hafði
mætt áður smáflokkum (riddarasveitum), og höfðu þeir veitt lítið
viðnám áður þeir «skunduðu undan». Hann ljet forvarðalið sitt
renna að þorpinu (8. september), og fann það þegar að hjer var
ekki greitt aðgöngu. Höfuðsóknin varð að norðanverðu þorp-
inu, og hjer komust Rússar yfir eitt síkið og náðu að klifra upp
víggarðinn, sem þar var fyrir innan. þeir komust hjer í harðan
bardaga og mannskæðan, því Tekkar voru fjölliðaðir fyrir og
óðu á raðirnar með reiddum vopnunum, hjuggu og lögðu. Frá