Skírnir - 01.01.1880, Page 93
RUSSLAND.
93
þeim víggarSi sáu Rússar annaS síki og þar fyrir innan eins-
konar vagnavirki (þ. e. vögnum hlaðiS i skotvirki) og stóS þar
mikill sægur vopna&ra manna. þaðan komu nú fleiri og fleiri
til vígsins, og runnu á móti stórskeytahriSinni. Rússar hjeldust
þá ekki viS og urSu aS leita undan og forSa sjer. þeir ljetu
mart liS i hardaganum og á undanhaldinu, því hinir veittu þeim
lengi eptirför, — eBa aS því skýrslur þeirra segja 7 foringja og-
234 hermenn. þeir segja, aS Tekkar hafi haft tífalt liS viS þá
í orrustunni, en hugga sig líka viS, aS þeir hafi misst 2000 eSa
meira, en höfuSforinginn í þorpinu, Berdí MúraS aS nafni, hafi
falliS. Lómakin hjelt hraSfara undan vestur aptur og staSnæmdist
ekki fyr enn komiS var 10 «rastir^ (verst — 500 faSmar) vestar.
Á leiSinni ijetust margir særSra manna. þeir áSu nokkra stund
þar sem Karíbaris heitir, en höfSu lítiS eptir fóSurs og vista, og
urSu því aS hraSa þangaS ferSum, sem birgSir voru til. þetta
gekk allt meS mestu þrautum, því úlfaldar þeirra tóku sýki og
drápust fyrir þeim hundraSatali. 20. september komst herinn til
þess þorps, sem Tersakan heitir, og var þar þá Tergúkasoff fyrir.
MeS því aS hjer var hvorttveggja óhollt, vatn og lopl, þá ljet
hann enn lengra halda til þeirra staSa, þar sem herinn skyldi
hafa vetrarsetu, því nú var ekki til frekari sókna aS hugsa aB
sinni. En vita mátti, aS Rússar mundu ekki vilja láta viS svo
búiS sitja, og þvi hafa þeir búiS liS sitt til nýrrar herfarar
Tekkum á hendur. þeir hafa sett fyrir þann her Skóbeleff hers-
höfSingja, sem vann sjer flest til frægSar í TyrkjastríBinu. En
nú getur þó svo fariB, aS honum verSi meira á hendur fólgiS,
en a& fara öræfaferSir, jafna á Tekkum og elta upp þeirra sveitir.
Svo er nýtt miskliBa mál meB vexti, aB Rússar höfBu látiB’
herdeildir ráSast inn í land, sem Kúldja heitir, og liggur í Túr-
kestan austanverSu. Sínverjar lögSu undir sig nokkurn hluta af
Túrkestan eystrá, eSa Kasbgar, á undangenginni öld, en sökum
þess aS landiS er svo langt fjarri meginríkinu, þá hefir þeim
ekki or&iB svo haldsamt á þeirri eign sinni, sem þeir mundu
viija, en hafa líka átt heima viS miklum vanda aS snúast, þar
sem Ta'ipínga-uppreisnin var. 1863 komu inn í landiB til hern-
aSar og rána Kirgisasveitir og fóru þar sem logi yfir akur. Sin-