Skírnir - 01.01.1880, Page 151
SVÍÞJÓÐ.
151
heima, a8 gera aö þeirra dæmi og leita vestur til nýrra og sælli
byggSa.
Af þingi Svía vitum vjer fátt aS segja. Hin nýju herlög
mættu sömu mótstöSu sem fyr, og þaS er vottur um, hve spart
Svíar halda á framlögum til hers og landvarna, aS þitigiS færSist
undan aS veita 100,000 króna til viSgerSar á einum höfuSkastal-
anum (Karlsbergskastala), og aS því oss minnir, þá var þaS hiS
eina, sem fram var lagt, aS þingiS veitti 20,000 króna til skot-
mannafjelaganna, og fje tií nýs skotskála handa einni deild skot-
hersins — þ. e. húss og skotskeiSs þar sem til marks er skotiS.
Tollur var aukinn á sumum varningi, og á suman nýr lagSur t.
d. á humal, ost og maíshveiti. LögtekiS var aS hafa mælingar
og vættir Frakka, sem nú er orSiS tíSast í flestum löndum.
f>ing Svía veitti og sitt Samþykki til hinna nýju víxlbrjefalaga
fyrir öll NorSurlönd, sem þingin í Kristjaníu og Kaupmannahöfn;
sbr. Skírni 1878, 145. bls. J>aS var upp boriS á þinginu aS gera
nýjan tollsamning viS NorSmenn, og skyldi engi tollur greiddur
af þeim varningi er færi yfir landamærin eSa fluttur væri frá höfn
til bafnar landanna á milli, og þeim ekki heldur, sem áSur væri
tollur goldinn af í öSru hvoru landanna. Björnstjerna greifi bar
þetta upp, en málinu var aptur vísaS, sem viS var aS búast.
Tekjur ríkisins fyrir þ. á. eru reiknaSar til 74,995,000 kr. en
útgjöldin til 72,622,324 kr.; afgangurinn á svo aS jafna þab upp,
sem vanlaSi á í fyrra, aS tekjur og útgjöld stæSust á endum. —
ViS árslok voru rikisskuldirnar 157 millíónir króna. — þinglok
1 5. maí.
Vegna mótstö&unnar gegn herskipunarlögunum sagSi stjórnar-
forsetinn, de Geer, af sjer embætti, og fylgdu honum meiri hluti
hinna ráSberranna, meSai þeirra Björnstjerna (f. utanrikismálum).
Posse greifi kom saman nýju ráSaneyti og gerSist formaSur.
Hann hefir veriB talinn helzti skörungur «landmanna»-flokksins,
en tók þó í sitt liB ymsa úr öSrum flokkum. Hann hefir veriS
forseti neSri deildarinnar, og hefir mikiS orB á sjer fyrir vits-
muni og skörungskap. MeSal hinna nýju ráSherra nefnum vjer
Hammarsköld prófessor, sem tók vib kirkjumálum, orSlagSur fyrir
sakir lærdóms og mælsku. Hann er frjálslyudur maBur og hefir