Skírnir - 01.01.1880, Blaðsíða 174
174
AFRÍKA.
landstjórn Egiptalands,- gæti aldri vel gefizt til langframa, þó af
því kynna nú margar umbætur að standa, og þaö kynni a8 koma
fleirum í þarfir enn þeim, sem ættu þar fjár aö krefjast.
Habessinía.
Skírnir ætti helzt aö fara fram hjá þessu landi, því hjeðan
kemur fátt anna'ð í fjrettum enn það er meö flugufregnum má
telja, en nú verður hann þó aö koma hjer viö og færa það
hjeðan til leiðrjettingar á sögu vorri í fyrra, að fundir þeirra
Jóhannesar og Meneleks konunga voru eigi þeir, sem þar var
sagt, enn hitt mun satt, að þeir settu grið sín á milli, og að
Menelek gerðist hins undirkonungur. Jóhannes konungur er stirf-
inn og illur viðureignar, að því enskum manni, Gordon að nafni,
hefir frá sagzt. Gordon hefir verið í mörg ár iandstjóri og land-
varnaforingi Egiptajarls í því landi suðurfrá og við Habessiníu, sem
Súdan heitir. J>að hafa Egiptar unnið undau Habessiníukonungi.
J>au grið, sem Jóhannes konungur gerði við Egipta, hefir hann
optlega rofið og brotizt inn í Súdan, en hann hefir sjaldan haft
annan árangur enn þann, sem hann hefir haft með sjer 1 herfangi
með ránum fengið. Hann hefir optast orðið að hörfa aptur fyrir þá
sök, að grannar hans hafa ráðizt á land hans, þegar lið hans var
á fjarri staði komið, eða lýðskyldir höfðingjar gerðu uppreisn —
en allir þóttust honum eiga grátt að gjalda, en sumir sitja um,
að koma til valda öðrum syni Theodórs keisara, sem fjell fyrir
Englendingum 1873. Gordon segir, að hann sje svo illa siðaður,
að variegt muni að senda til hans sendiboða. J>etta þekkir
Gordon líka af reynd. í vor bárust þær frjettir, að tveir lýð-
skyldir höfðingjar hefðu gert uppreisn móti Jóhannesi konungi,
en befðu orðið honum reiðir fyrir það, að hann hafði út úr þeim
mikið skattgjald til herfarar á hendur Egiptajarli, en hefði þó
hvergi farið og stungið peningunum í handraðann. I lið með
þeim á nú Menelek konungur að hafa gengið, og á Jóhannesi
að hafa vegnað miður í viðskiptunum. Af Menelek fara skárri
sögur, og frá honum komu þau skeyt.i til Englands í fyrra, að
hann hefði bannað mansal fyrir alit sitt ríki og lagt mikið við,
ef brotið yrði.