Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1954, Blaðsíða 50
54
ið á reka, en rétt þykir, að nokkru fyllri og fræðilegri greinargerð
fyrir þessum merka fundi komi hér í Arbók.
Vorið 1947 lét Þórður bóndi Daníelsson á Sílastöðum brjóta mikið
land norðan við túnið þar, alveg út að merkjunum milli Sílastaða og
Garðshorns. Verkið var unnið með jarðýtu. Neðst í spildunni var
grænn hóll, ávalur og sléttur, vaxinn töðugæfu grasi, enda jafnan
sleginn með túni, þótt ekki væri hann áfastur gamla túninu. Hóll þessi
1. mynd. Afstaða kumlanna á Sílastöðum.
Plan of Viking burial-field at Sílastaðir.
var um 300 m utan og neðan við bæinn á Sílastöðum, en suður og
niður frá Garðshorni ög nær þeim bæ. Nú er hann væntanlega alveg
horfinn í nýræktina, sem er fullgróin. Sunnan við hólinn og neðan
við hann voru márgar stórar þúfur. Bæði hólinn og þúfurnar jöfnuðu
jarðýtumenn við jörðu án þess að þeir tækju eftir neinu óvenjulegu,
og sama máli gegnir um þá menn, er seinna um sumarið fóru með
dráttarvél og diskaherfi um flagið. En í september um haustið tók
bóndinn eftir því, að einkennilega mörg bein voru í flaginu, og að lok-
um rakst hann á tvö ryðguð axarblöð. Ég var staddur fyrir norðan,
þegar þetta gerðist, og tilkynnti Þórður bóndi mér um fundinn. Rann-
sakaði ég kumlin fjögur, sem þarna reyndust vera (1. mynd), dagana