Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Side 22

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Side 22
26 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS lögðu er list Laufásstafa grein á hinum mikla meiði kirkjulistar evrópskra miðalda, sem aftur á rætur í grísk-rómverskum fornaldararfi. Einkum á þetta við skreytilistina þar sem gríski akantusinn skipar hásæti. En það er einmitt hann sem lagður er til grundvallar myndbyggingu Laufásskurðar. Það er því hvorki þjóðleg list né norræn sem verður fyrir okkur á ofan- verðri 13. öld í Laufási, heldur angi alþjóðlegrar listar, sem í stórum drátt- um er borin uppi af klassískum anda grískum. Hitt er annað mál að hver söng með sínu nefi. Grundvallarlögmál lá að vísu að baki meginhugsun, sem hver og einn hafði frelsi eða valkosti að vinna úr eftir gáfum, upplagi og aðstæðum hvers staðar, hverrar stundar. Þetta gildir að sjálfsögðu um höfund Laufásstafa eins og aðra. Land hans leyfði honum ekki að höggva í stein, jafnvel efni það sem hann notaði, tréð, varð hann að fara sparlega með. Það var innflutningsvara. Þess vegna er skurður hans fremur grunn- ur eins og flestra landa hans. Fyrir bragðið fær hann sérstakt og sérkenni- legt svipmót, verður allt að því mjúklátur og blíður ásýndum. Ekki verður heldur annað séð við núverandi aðstæður en sá sami höfundur hafi haft persónulegt frumkvæði í uppbyggingu myndstefja sinna. Við þekkjum a.m.k. ekki slíka sambúð þéttra og gisinna blöðkusnigla sem á pálmettu- staf annars staðar frá eða þá dirfsku hans að setja gerólík myndstef saman við einar dyr. „Hlaupandi hundurinn" hans er einnig einstakur. Ekki skiptir það minna máli að hann er meistari í sjálfri útfærslunni. Með því á ég við að hann hefur hlotið í vöggugjöf mikla listgáfu og haft tækifæri til að þroska hana í góðum skóla. Mjög líklega séð sig um í veröldinni, síðan stundað list sína af alvöru og innsæi hins fullburða manns. Þýðingarmest var þó að þjóðfélagið, sem hann lifði í, þurfti á list hans að halda. Tæplega hefur hann annað gert um dagana en vinna að henni. Með öðrum orðum hann er „professional" eins og sagt er á erlendum málum. Verk hans bera öll einkenni hámenningar. Við getum því með góðri samvisku nefnt höf- und stafanna okkar góðu Laufásmeistarann. Afar erfitt er að gera sér grein fyrir stöðu Laufásskurðar innan íslenskr- ar myndlistar á 13. öld, til þess er samanburðarefni alltof rýrt. Valþjófs- staðahurðin, stafirnir frá Mælifelli og brotin frá Hrafnagili eru það eina. List þessara verka lýsir sama hámenningaranda. Mælifellsskurður gæti jafnvel verið eftir höfund Laufásstafa. Sé tímarýmið stækkað og litið á verk frá öndverðri 12. öld og fram undir siðskipti, sýnist frumkraftur arkaismans í Flatatunguskurði vera horfinn úr list Laufásstafa. A engri úr- kynjun ber heldur líkt og í list Munkaþverárfjalar, sem sannanlega er gerð eftir 1429. Svo er að sjá sem list Laufásstafa beri í sér öll einkenni hins klassíska anda, að vera í jafnvægi, standa mitt á milli arkaisma og úrkynj- unar. Ikónógrafía þeirra segir í rauninni hið sama. I henni felst ekki strang-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.