Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Side 122
126
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
herbergi fyrir kaupmanninn. Annað var í syðri endanum og hitt í hinum
nyðri, o.s.frv., svo augljóst er að þessar vistarverur voru á sömu hæð.
Einnig kemur fyrir að sagt er þannig frá að ljóst er að um yfirfærða
merkingu er að ræða: „til saa kaldt kielder, eller Varehuus" og „er afdeelt
til kiælder eller Varehuus". ‘ í nokkrum tilfellum er einnig svo frá sagt að
gengið var upp tröppu úr þessum svokallaða „kielder" upp á loftið, sem
oftast nær var sagt ná yfir allt húsið; búðina og „kielderen". A Eyrar-
bakka er einnig talað um að í vestri enda hússins sé krambúðin og tveir
litlir „kieldere" og í eystri endanum sé „Pack-kielder". Á Hofsósi byrjar
úttektin á þennan veg „Kramboden og Kielderen, er eet Huus".
Af danskri orðabók frá 1820, má aftur á móti ráða að „kielder" á dönsku
þýði einhverskonar kjallari. Mörg dæmi eru tekin um notkun orðsins, en
sú fyrsta sem nefnd er, er í merkingunni geymslukjallari. Þannig er lík-
legt að merkingin hafi flust með notkuninni á rýminu upp á fyrstu hæð í
íslensku einokunarverslunarhúsunum, þar sem þeir höfðu vörugeymsl-
urnar að því er best verður séð.
Algengast er að þessir svokölluðu kjallarar tengdust fyrst og fremst
krambúðum, þótt fyrir kæmi að þeir væru í öðrum húsum verslunar-
staðanna. Þá voru þeir notaðir á svipaðan hátt og þegar þeir voru undir
sama þaki og krambúðin. í sumum tilvikum eru lýsingar á húsunum það
stuttorðar að ekki er farið út í að lýsa nákvæmri notkun húsanna. En þótt
upphaflega hafi ekki verið kjallari undir húsinu á Skagaströnd, breytir það
ekki því að húsið sjálft hefði getað verið flutt milli staða.
Hæð frá gólfi og upp í mæni er ekki sú sama á krambúð Skagastrandar-
kaupmanna og Hillebrandtshúsinu eins og það er nú. Húsið eins og það
er á Blönduósi er lægra heldur en það sem lýst er í úttektum á Skaga-
strönd. Munar þar um það bil einum og hálfum metra. Hugsanlegt hefði
verið að mæla hæðina frá mæni og niður í kjallara og þá fæst sama hæð og
á Skagaströnd, en nokkuð ljóst er að ekki hefur verið kjallari undir kokk-
húsinu þar. Þakinu gæti þá hafa verið breytt nokkuð við flutning, og
hugsanlegt að nýtt þak hafi verið sett á það á Blönduósi. Einnig er mögu-
legt að þaki hússins hafi verið breytt einhverntíma á árunum 1817-1877.
Yngsta tiltæka lýsing á húsinu á Skagaströnd er frá 1817 og þá er nefnt að
þakið sé einfalt og húsið leki. Endurnýjun á þakinu á þessu 60 ára tímabili
er frekar líkleg.
Leifur Blumenstein taldi mögulegt af útliti þaksperranna að dæma, að
þær væru frá því að húsið var reist á Blönduósi. Hann nefndi timbur-
stærðina á sperrunum sem búast hefði mátt við að væri meiri ef þær væru
frá 18. öld. Einnig að búast hefði mátt við að áferð og litur timbursins væri
annar ef sperrurnar væru frá þeim tíma. Leifur nefndi einnig þakhallann