Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Síða 154
158
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Sigurðardóttir. Yfir sumartímann var María Karen Sigurðardóttir í starfsþjálfun vegna vænt-
anlegs náms hennar í Konservatorskólanum í Kaupmannahöfn.
Á árinu unnu starfsmenn deildarinnar að forvörslu nokkurra muna sem eru taldir utan
safns og hafa legið á Þjóðminjasafninu og beðið meðhöndlunar. Meðal þeirra voru tveir hökl-
ar, rykkilín, altarisbrún og altarisdúkur frá Skarðskirkju á Skarðsströnd, armborðar frá
Byggðasafni Hafnarfjarðar, hökull frá Minjasafni Akureyrar, smádúkar frá Byggðasafni Suð-
urnesja, altarisdúkur frá Stóra-Núpskirkju, altarisklæði og stóla frá Haukadalskirkju, patínu-
dúkur frá Borg á Mýrum. Loks má nefna rekkjurefil og 13 blúnduparta úr safnauka.
Meðal annarra umfangsmikilla verkefna sem forvörsludeild annaðist voru forvarsla og
frágangur muna úr fornleifarannsóknum safnsins að Bessastöðum á árunum 1987-1992. Þá
var unnið við forvörslu, hreinsun og frágang gripa sem senda átti á sýninguna Víkingar og
Hvíti-Kristur í París, Berlín og Kaupmannahöfn. Unnu starfsmenn deildarinnar að pökkun
gripanna og höfðu umsjón með uppsetningu þeirra í Grand Palais í París, í Altes Museum
Berlín og í Nationalmuseet í Kaupmannahöfn. Þá fór mikill tími í að vinna við hluti frá
Stóruborg. Lokið var við að frostþurrka tré- og Ieðurmuni, sem fundist höfðu á árunum
1986-1990. Þeir trémunir, sem höfðu verið pakkaðir í plastpoka voru settir í sýrufrían pappír
og er nú aðeins eftir að ganga frá örfáum þeirra í sýrufríar umbúðir. Loks var hlutunum end-
urraðað og eru þeir nú mun aðgengilegri.
Starfsmenn deildarinnar unnu að uppsetningu nokkurra sýninga í Þjóðminjasafni. Á ár-
inu var einnig unnið að undirbúningi og síðar framkvæmd byggðasafnakönnunar fyrir þjóð-
minjaráð og voru skrifaðar skýrslur um eftirfarandi söfn og þau könnuð: Byggðasafn Akra-
ness- og nærsveita, Görðum; Byggðasafn Borgarfjarðar, Borgarnesi; Norska húsið: Byggða-
safn Snæfellinga og Hnappdæla, Stykkishólmi; Gamla pakkhúsið í Ólafsvík; Sjómannagarður-
inn Hellissandi; Byggðasafn Dalamanna, Laugum; Minjasafnið á Akureyri; Nonnahús, Akur-
eyri; Davíðshús, Akureyri; Sigurhæðir-Matthíasarsafn, Akureyri; Byggðasafn Rangæinga og
Vestur-Skaftfellinga, Skógum; Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti; Byggðasafn Vestfjarða,
Isafirði; Byggðasafn Skagfirðinga; Byggðasafn Suður-Þingeyinga; Síldarminjasafnið á Siglu-
firði og Byggða- og listasafn Árnesinga, Selfossi.
I október fór Kristín Huld Sigurðardóttir í hálfs mánaðar námsferð til Lundúna til að
kynna sér forvörslu málmhluta. Halldóra Ásgeirsdóttir sótti ráðstefnu í Cardiff í Wales um
notkun rafeindatækja til að mæla hita- og rakastig.
Meðal smærri verkefna má nefna forvörslu ýmissa muna, m.a. hinna umtöluðu fornleifa
sem fundust við skipsflök við Flatey. Var undirbúin sýning á þeim og eru munirnir nú í salt-
afvötnun á forvörsludeild. Hnífur frá Kaldbaksvík úr eigu Reykjasafns í Hrútafirði var for-
varinn og gripir fundnir við fornleifarannsókn Guðrúnar Sveinbjarnardóttur í Reykholti. Þá
eru ónefndir fjölmargir gripir sem voru yfirfarnir, settir í nýjar umbúðir og meðhöndlaðir á
viðeigandi hátt.
Textíl- og búningadeild
Svo sem verið hefur frá upphafi er aðeins einn fastráðinn starfmaður við deildina, þ.e.
deildarstjóri. Fram til 15. október sl. gegndi Elsa E. Guðjónsson því starfi, en þá hófst eins árs
rannsóknarleyfi hennar. Um miðjan október kom Fríður Ólafsdóttir lektor í textílmenntum
við Kennaraháskóla Islands, til starfa, en hún hafði verið ráðin í hálft starf til þess að gegna
störfum deildarstjóra næsta árið.
Samhliða almennum deildarstjórastörfum hefur Fríður unnið áfram að gerð bæklings um
upphlut og er stefnt að því að hann geti orðið fullbúinn til prentunar fyrir mitt næsta ár. Þá
vann Fríður einnig að jólasýningu safnsins. Meðal annars setti hún upp, ásamt Margréti
Gísladóttur textílforverði, sýningardeild með íslenskum karlmannafatnaði frá síðustu öld til
þess að gefa hugmynd um hvernig íslenskir jólasveinar kynnu að hafa klæðst og útbjó enn-
fremur spurningalista fyrir sýningargesti til að nálgast hugmyndir þeirra um klæðnað jóla-