Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Page 172
176
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
hús, sem upphaflega var reist sem viðbygging við timburstofu frá því um aldamótin 1800.
Sumarið 1992 var Viktoríuhús endurbætt rækilega. Húsið var tekið í gegn yst sem innst og
jafnframt byggðu bændurnir í Vigur viðbyggingu við húsið, gestastofu, sem notuð verður til
móttöku ferðamanna. Viktoríuhúsið verður notað í sama skyni.
Vindmyllan í Vigur. Vindmyllan í Vigur er hin eina hérlendis. Ekki er vitað hvenær hún
var reist, en það gerði Daníel Hjaltason gullsmiður. Sumarið 1992 var byrjað að gera við myll-
una. Þakið var endurbætt og dyttað lítillega að gangverkinu.
Kirkjuhvammskirkja, Hvammstanga. Timburkirkja reist árið 1882 af Stefáni Jónssyni smiði
frá Syðstahvammi. Kirkjuhvammskirkja var aflögð sem sóknarkirkja árið 1957 er ný kirkja
var vígð á Hvammstanga. Nokkuð var gert við kirkjuna árið 1964 fyrir samskotafé, en síðar
hefur hún mikið látið á sjá. Undirstöður hússins hafa riðlast og kirkjan skekkst mikið. Þjóð-
minjasafnið gekkst fyrir því að kirkjunni var þyrmt og að lítilsháttar hefur verið dyttað að
henni. Sumarið 1992 var hafin rækileg viðgerð á kirkjunni. Norðurhlið hússins var öll endur-
bætt, undirstöður hlaðnar að nýju og gert við húsgrindina og klæðningu. Kostnaður við
verkið var um 1,6 milljónir.
Glaumbær í Skagafirði. Stór torfbær byggður á tímabilinu 1750-1879. Prestssetur frá 11.
öld. Þar var reist kirkja fyrir orð Guðríðar Þorbjarnardóttur, sem grafin er í Glaumbæjar-
kirkjugarði. Seinast var búið í bænum árið 1947 en þá tók Þjóðminjasafn íslands við honum
til varðveislu. Árið 1952 var Byggðasafn Skagfirðinga opnað í bænum fyrir tilstuðlan sýslu-
nefndar Skagafjarðarsýslu. Fjöldi ferðamanna sem koma í Glaumbæ hefur vaxið ár frá ári og
sumarið 1991 voru skráðir rúmlega 18.000 gestir. Bæjarhúsin eru 13 talsins og hefur verið
gert við þau hægt og bítandi, eitt hús á ári. Sumarið 1992 var ráðist í mun viðameiri viðgerð
en áður. Fjögur syðstu húsanna í bæjarröðinni voru endurbætt. Ekki tókst að ljúka verkinu
fyrir vetrarfrost, eins og að hafði verið stefnt.
Hólar í Hjaltadal. Torfbær á Hólum í Hjaltadal frá því 1860, nefndur Nýi bær. Seinustu tvö
ár hefur verið unnið að viðgerð bæjarins. Veggir hafa verið endurhlaðnir, gert við burðar-
virki og þekjur endurnýjaðar. Sumarið 1992 var nokkuð unnið að framkvæmdum, en hluti
verksins var fólginn í því að endurbæta galla á verki fyrra árs.
Pakkhús á Hofsósi. Stokkabyggt vörugeymsluhús, reist 1772 á vegum Islands- og Græn-
landsverslunarinnar. Þjóðminjasafn íslands eignaðist húsið árið 1954. Pakkhúsið er bjálkahús
með bröttu risþaki sem í upphafi var skarsúðarklætt. Viðgerð á húsinu hófst fyrir nokkrum
árum en verulegur skriður komst þó ekki á endurbætur fyrr en sumarið 1991, en þá var tekin
upp samvinna milli Þjóðminjasafns og Hofshrepps um að ljúka viðgerðinni í skyndi. Húsið
var tekið í notkun fyrri hluta árs 1992.
Klukknaport á Möðruvöllum í Eyjafirði. Timburgrind frá 1781 og hét sá er lét reisa Sigurð-
ur Eiriksson. Ber bygging þessi einkenni íslenskra klukknaporta frá 18. öld. Portið stendur í
hlöðnum kirkjugarðsvegg framan við kirkjudyr, á sex stoðum með hálfþili að ofan og með
rimlum á hliðum. Þak er yfir portinu með reisifjöl. Þrjár klukkur hanga á ramböldum í rjáfr-
inu. Hér er um einstakt mannvirki að ræða. Klukknaport voru algeng áður fyrr, en eru fátíð
nú orðið. Klukknaportið á Möðruvöllum er þeirra langelst og hefur varðveist í upphaflegri
mynd. Nýlega lauk viðgerð á sjálfu timburverkinu en sumarið 1992 var klukknaportið tjarg-
að og dyttað að því lítilsháttar.
Hólar í Eyjafirði. Gamli Hólabærinn er um margt dæmigerður torfbær frá því um og fyrir
aldamótin. Einstakur er hann fyrir það hve mikið er af ævafornum húsviðum í bænum, við-
um úr gömlum stafkirkjum o.fl. Er það einkum þess vegna sem Þjóðminjasafnið hefur stefnt
að varðveislu hans. I þrjú sumur hefur nú verið unnið að viðgerð bæjarins á vegum Þjóð-
minjasafnsins. Þegar hefur verið gert við tvö af fjórum húsum í bæjarröðinni, skála og bæjar-
dyr. Stofan, sem var hálffallin saman, var sumarið 1992 tekin niður og viðir hennar merktir.
Dyttað var að öðrum húsum.