Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Qupperneq 180
184
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Byggðosafn Austiir-SkaftafeUssýslu
Byggðasafn Austur-Skaftafellssýslu á Höfn í Hornafirði hefur sem fyrr aðal aðsetur í
Gömlubúð og gegnir húsið hlutverki sínu vel. Pakkhús, sem safnið eignaðist árið 1990, er
enn sem komið er notað sem geymsluhúsnæði. Pakkhúsloftið er þó orðið vinsælt fyrir ýms-
ar sýningar og viðburði. Unnið var lítilsháttar að viðgerð hússins sem hafin var árið 1991 og
einnig var Ióð hússins gerð aðlaðandi.
Líkt og á öðrum söfnum voru Gamlabúð og Pakkhúsið opin gestum á alþjóðadegi safna
18. maf og komu margir á báða staði og skoðuðu húsin og það sem þau geyma. Alls komu
2.048 gestir á sýningar byggðasafnsins og er það töluverð fjölgun frá fyrra ári er 1.657 gestir
komu til að sjá sýningar safnsins. Auk fastasýningar stóð safnið að sýningu á ljósmyndum
Skarphéðins Gíslasonar í Suðursveit. Þá voru settar upp tvær farandsýningar í samvinnu við
Hafnarskóla. Tengdist önnur námi barna um landnám Islands. Hin, sem kom frá náttúru-
verndarráði, sýndi meðal annars umgengni mannsins við náttúruna í hnotskurn. Tvær sýn-
ingar voru settar upp í Pakkhúsinu. Sú fyrri var myndlistarsýning Pjeturs Stefánssonar. Sú
síðari var sögusýning tengd sjávarútvegi og sjómennsku og sett upp í samvinnu sjómanna-
dagsráðs og safnsins. Loks má geta þess að sýning náttúrugripasafns sem höfð er á lofti
Gömlubúðar var talsvert aukin á árinu og bætt inn nýjum gripum sem safninu höfðu borist.
Byggðasafnið í Skógum
Gestafjöldi sem heimsótti Byggðasafnið í Skógum undir Eyjafjöllum í ár var um 20 þús-
und. Safnið flutti að nokkru í nýtt húsnæði á árinu. Sjóminjasalur var fullgerður og skipið
Pétursey var flutt í hann í byrjun maí. Samfara því var sett upp sýning á sjóminjum. Sumar-
sýning var sett upp í hluta nýja hússins þótt ekki væri þá fullgerður. Hún var tekin niður í
árslok. Af þessu leiddi miklar breytingar í gamla safnhúsinu. Saga þurfti miklar dyr á stein-
vegg til að koma Pétursey út og steypt upp í að nýju. Tvöfaidur sýningaveggur var settur
upp í stæði Péturseyjar í gamla húsinu og jafnframt var steinsteypa lögð í gamla bátsstæðið.
Innréttingar voru teknar niður í hluta af rishæð og þar lagt nýtt gólf ofan á gamla gólfið sem
orðið var gengið og laslegt. Þessar framkvæmdir kostaði safnið af eigin aflafé.
I árslok voru skráðir safnmunir samtals 8.175. Til safnauka má telja Intenational jarð-
vinnslutraktor á járnhjólum frá árinu 1928, í nokkuð góðu ástandi. Þá má nefna málverk,
skrautmálaða kistu, útsaumuð veggteppi, útsaumaða stóla, upphlut með fögru víravirkis-
belti o.fl.
Mikið starf bíður ársins 1993 í Skógum. Gert er ráð fyrir að fram verði haldið framkvæmd-
um við nýja húsnæðið, en talsverðu starfi er enn ólokið við vesturhluta aðalhæðar, ris og
anddyri. Nauðsyn er að koma upp sýningarskápum úr gleri til varðveislu margra minja svo
sem vandaðra kvenbúninga o.fl. Nauðsyn er einnig að auka nokkuð við starfskrafta í safninu
um ferðamannatíma.
Oll aðstaða í safninu gerbreytist með nýju safnhúsi og í raun hefði verið ógerlegt að halda
því áfram opnu án þess miðað við aðstreymi gesta á mesta annatíma um sumarmánuði.
Safnvörður í Skógum er Þórður Tómasson.
Byggðasafn Vestmannaeyja
Byggðasafn Vestmannaeyja var stofnað 1932 og var 60 ára afmælisins m.a. minnst með
sýningum. Þá var og minnst 130 ára afmælis Bókasafnsins, en söfnin eru til húsa í sömu bygg-
ingu ásamt skjala-, lista- og ljósmyndasafni og heyra þau síðartöldu tvö söfn undir Byggða-
safnið, en Jóhann Friðfinnsson er þar safnvörður.
Meðal viðburða á árinu var sýning á munum úr eigu Gísla J. Johnsen, konsúls og heiðurs-
borgara kaupstaðarins árið 1951, en í júlí sl. fékk safnið til varðveislu marga kjörgripi sem
voru eign Gísla. Þá var sett upp sýning á munum úr Landlist, er var fyrsta fæðingarstofnun
landsins, byggð 1847, en húsið var tekið niður í júní sl. í samráði við húsfriðunarnefnd.