Norðurljósið - 01.01.1978, Side 5
NORÐURLJÓSIÐ
5
ata líf fyrir líf, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, hönd
yrir hönd, fót fyrir fót, bruna fyrir bruna, sár fyrir sár,
skeinu fyrir skeinu.“ (2 Mós.21.23.) Bóndi konunnar
atti algert sjálfdæmi, ef bótum var haldið uppi.
Við íslendingar höfum átt okkar Sturlunga-öld. Um
hana mátti segja það, sem Hósea, spámaður hjá ísraels-
mönnum, sagði um samtíð sína: „í landinu er engin trú-
festi, né kærleikur, né þekking á Guði. Þeir sverja og
Jjúga, myrða og stela og hafa framhjá. Þeir brjótast
inn í hús, og hvert vígið tekur við af öðru. Fyrir því
drúpir landið og allt visnar, sem í því er, jafnvel dýr
merkurinnar og fuglar himinsins, og enda fiskarnir
í sjónum eru hrifnir burt.“
Gæti slík öld runnið upp hér á landi? Er hún ekki
þegar runnin upp? Fuglum loftsins hefur án vafa stór-
lega fækkað, raddir vorsins hljóðnað mikið, sé miðað
við það sem áður var. Hafa ekki fiskarnir í sjónum
verið mikið til hrifnir burt vegna ofveiði annarra þjóða
á íslands miðum og sjálfra okkar líka? Ég get varla
trúað því, hvað þá skilið það, að skipstjórar fiskveiði-
skipa skuli ekki forðast að veiða smáfisk, þegar þeir
verða þess varir, að hans verður vart í aflanum. Ekki
held ég, að nokkrum íslenskum bónda kæmi það til hug-
ar að slátra unglömbum nýbornum, enda þótt hann ætti
kost á háu verði fyrir skinnin af þeim. Bóndinn sér
smn hag því meiri sem lömbin verða fleiri og vænni
hl frálags. Þeim er því leyft að dafna til haustsins,
þegar slátrun þeirra gefur miklu meiri arð. En „fé-
girndin er rót alls þess, sem illt er,“ segir heilög ritn-
ln8- Sú girnd hefur sem margar aðrar girnir, leitt
fjölda fólks afvega.
Völuspá talar um, að vígöld verði og vargöld áður
veröld steypist. Varla verður komist hjá að álykta á
þann veg, að öld sú muni nú vera að renna upp hér á
landi. Síðan morðmálin voru í Vestur-Húnavatnssýslu
í kringum 1830, mun mega kalla hlé á slíkum athöfnum
hér á landi uns nú á allra síðustu árum, að nokkur morð
hafa verið framin. Er óhugnanlegt til þess að vita nú,
að slík öld skuli runnin upp aftur. En við hverju er að
búast? Tilkynnt var eitt sinn í sjónvarpi, að börn ættu
ekki að horfa á mynd, er átti að sýna. Samkvæmt
þessu sá kona nokkur á Akureyri um það, að drengur
í umsjá hennar fékk ekki að horfa á myndina. Hann
var látinn hátta og fara að sofa. Daginn eftir sagði þessi
drengur við konuna: „Krakkarnir segja, að þessi mynd
hafi ekkert verið Ijót. Það voru ekki drepnir nema
fimm menn í henni.“
Þegar biblían talar um endalok þessa tímabils, sem
við Iifum á, þá láta mennirnir ekki af þjófnaði sínum,
hordómi og manndránum. Siðspillingin magnast æ meir,
uns Guð verður að taka í taumana. Hvort sem því verð-
trúað eða ekki, segja menn, fróðir í spádómum
'blíunnar, þá er þar að finna 175 spádóma um dauða
vrists, en þrjú hundruð og átján um endurkomu hans.
Mannkynið á betri tíma í vændum en þá, sem nú
hða yfir það. I lífi hvers einstaks manns getur, í ein-
verjum mæli, slíkur tími runnið upp, ef hann vill
láta af syndum sínum, fá þær allar fyrirgefnar hjá Guði
fyrir sakir nafns Drottins Jesú. Kraftinn til að lifa nýju
lífi vill Guð gefa okkur, ef við lesum orð hans og leitum
samlífs við hann í bæn. Mætti það verða hlutskipti
þeirra allra, sem hlýtt hafa erindi þessu.
Tortímandinn mikli
Eftir dr. Austin L. Sorenson.
Áfengið, það er tortímandinn mikli. Evangeline
Booth hafði réít fyrir sér, þegar hún sagði: „Fremur
öllu öðru í heimi, sem orðið hefur til bölvunar, hefur
áfengið úthellt meira blóði, sett upp fleiri sorgarblæj-
ur, selt fleiri heimili, gjört fleira fólk gjaldþrota, vopn-
að fleiri þorpara, drepið fleiri börn, brotið fleiri gift-
ingarhringa, spillt meir sakleysi, blindað fleiri augu,
rekið vitið úr hásæti, kramið fleiri hjörtu, gjört dreng-
skapinn skipreika, vansæmt heiður kvenna, ónýtt fleiri
mannsævir, rekið fleiri til að fremja sjálfsmorð og
grafið fleiri grafir.“
Athugið, hvernig Matt.10.28. á við hér: „Og hræðist
eigi þá, sem líkamann deyða, en geta eigi deytt sálina,
en hræðist heldur þann, er mátt hefur til að tortíma
bæði sálu og líkama í helvíti."
Áfengið er morðingi. Áfengið lýstur fimm sinnum
fleiri en berldar og krabbamein. Hershöfðinginn
Persing komst svo að orði: „ölvun hefur drepið fleiri
menn en fallið hafa í öllum styrjöldum mannkyns-
sögunnar.“ Dánartala drykkjumanna er yfirleitt þriðj-
ungi hærri en annarra manna. Þjóðvegirnir eru stráðir
sundruðum heimilum og slettum blóðs, af því að ölvað
ir ökumenn deyða fleiri af vinum olckar og ástvinum
heldur en styrjaldir. Áfengið er ræningi. Þjófurinn
segir: „Peningana eða lífið.“ Áfengið heimtar: „Pen-
inga þína og líf þitt.“ Abraham Lincoln sagði einu
sinni: „Ef þrælahald er ekki rangt, þá er ekkert rangt.“
Við þetta bæti ég: „Sé ekki röng sala áfengis, er fram-
leiðir betlara, sundruð heimili og tortýningu sálna, þá
er ekkert til, í öllum alheimi Guðs, sem er rangt.“
Áfengið tortímir þjóðum. Tonybee, sagnfræðingur-
inn mikli, hefur frætt oss um það, að siðmenning
mikil, á ekki færri en 16 stöðum, hefur liðið undir lok
vegna hnignandi hugsjóna og þar af leiðandi siðferðis-
legs niðurbrots. Jón Byggkorn (áfengið) hefur ekki
gert sér neinn þjóðamun. Sú þjóð, er sáð hefur þjóð-
ar-ofdrykkju, hefur uppskorið þjóðar-upplausn. Peta-
in marskálkur lýsti yfir því, er Frakldand var hemum-
ið í síðari heimsstyrjöldinni: „Vegurinn, sem innrás-
arher Nazista ferðaðist á, var búinn til og steinlagður
af fimmtu innanlandsherdeild okkar: áfengissýki, trú-
leysi og óskírlifi." Einhver hefur bent á það. „Sér-
hver þjóð, sem tortímst hefur í sögu mannkyns hef-
ur farist vegna drykkjuskapar. Ef Bandaríldn farast,
þá deyja þau af drykkjuskap. Áfengið er allra versti
óvinur lýðræðis, slægasti svikari þess. í Washington