Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1978, Qupperneq 7

Norðurljósið - 01.01.1978, Qupperneq 7
NORÐURLJÓSIÐ 7 orsakast að mestu leyti af vindlingareyk. (Af ryki stundum Þýð.) Maður, sem í langan tíma hafði verið vinur minn, kom til mín fyrir nokkru, er ég var á Dallas-svæðinu. Hann sagði við mig: ,,Dr. Rice, þú kenndir mér allt, sem ég þekkti í biblíunni. Þú kenndir mér að gefa tíund, °§ ég hef gefð um hálfa milljón dollara til málefnis Drottins. Eitt kenndir þú mér enn, og ég vildi ekki hlusta á þig, — það var um tóþakið. Nú er ég kominn °ieð Iungnaþan. Ég þori ekki að vera fjarri lækni mín- um, bví að tvisvar eða þrisvar í viku get ég dáið ef ég fæ ekki aukaskammt af súrefni. Ég vildi óska, að ég hefði hlustað á þig, er þú sagðir mér frá skaðvæni vindl- inganna.“ Er ég var í Muskegen, Michigan, fór ég að halda blessunarríkar vakningarsamkomur í Calvary Bapista- kirkjunni. Djákni mætti mér hjá flugvélinni og hann sagði: „Það er hræðilegt, hvernig konur reykja nú á dögum. Veistu, að kona sóknarprestsins í Biskupakirkj- unni hér reykir vindlinga stöðugt?“ ɧ svaraði: „Kannski er þetta orðrómur einn. Þú veist þetta ekki með vissu?“ >,Jú, ég veit það“ svaraði hann. „Ég veit það, af því að hún kaupir alltaf vindlingana í búðinni minni. Ég hef sjálfur selt henni þá.“ Ég sagði við hann: „Hver er munurinn á því, að það sé rangt að reykja og rangt fyrir sannkristinn mann að selja vindlinga?" Hann varð undrun lostinn. „Ég hef aldrei hugsað um það.“ Til að styrkja þá bændur, sem rækta tóbak, greið- um við í Bandaríkjunum um áttatíu milljónir dollara arlega til að tryggja tekjur þeirra. Það er heimskuleg, ókristilleg og óvísindaleg afstaða, þegar stjórnin vill setja lög, sem banna sölu á sakkaríni, af því að drykki nraður um 33 lítra á dag Cola drykk, í venjulegan rnannsaldur — sem er gerður sætur með sakkaríni, þá gseti hann feng'ð krabbamein. En hún styrkir fram- leiðslu tóbaks, sem er sannað, að veldur krabbameini °g tylft annarra sjúkdóma, fjötrar viljann, gerir líkam- ann fúlan og vanheiðrar Guð. Þeir, sem selja tóbak, eru samsekir hinum, sem nota bað. Stjórnin, þeir í henni, sem ráða yfir sölu þess, verða að svara fyrir synd sína, frammi fyrir Guði. 3. Áfengissalar eru undir bölvun Guðs. I spádómsbók Habakúks 2. kafla 15. grein standa bessi orð: „Vei þeim, sem gefur nágranna sínum (á- fengan) drykk.“ Það hvílir bölvun yfir þeim, sem leggja nagrönnum sínum eða meðbræðrum til áfengi. I Springfield, Illinois, var ég að halda vakningar- samkomur. Ég predikaði um vínsöluna og sagði: „Gef- 'ð gætur að manninum, sem selur áfengi og gefið gæt- að fjölskvldu hans. Bölvun og erfiðleikar munu vissulega koma, af því að Guð hefur sagt: „Vei þeim, sem gefur náunga sínum áfengan drykk.“ Maður, sem rak vínsölu þar í borginni, varð mjög reiður og talaði aiveg æðislega um heimsku þessa predikara. Tveimur vikum eftir, að ég laulc samkomunni og var farinn heim, bárust mér þær fréttir, að maður þessi fór dag nokkurn að opna vínsölustað sinn. Með lykil- inn í skránni datt hann niður dauður af hjartaslagi. Þetta gerist eklci ávallt svona skjótt. En það er bölvun yfir sérhverjum manni, sem hjálpar til að selja áfengi, hjálpar til að gera menn að drykkjumönnum og fátæklingum. Þeir auka glæpi. Þeir gera menn að styrkþegum. Með vínsölunni hjálpa þeir til að senda sálir vesalinga til helvítis, þrælbundnum vegna áfengis- SÖIll Þetta merkir, að matsöluhúsið, gistihúsið, farfugla- heimilið bera ábyrgð gagnvart Guði. Engum manni er óhætt, sem kvænist flugfreyju, ef henni finnst sér frjálst að bera fram vín þar. Finni hún ekki í samvisku sinni, að þetta er synd, þá mun hún ekki hafa samvisku- bit af því, þótt hún drekki sjálf. Með því að selja áfengi hefur hún selt sannfæringu sína. Kaupmaðurinn, er selur bjór, ætti að muna: „Vei þeim, sem gefur nágranna sínum áfengan drykk. „Bölv- un Guðs yfir áfengissölunni nær til allra, sem selja það og framþera það. Þetta eru alvarlegar aðvaranir frá Guði. Ö, hve sannkristið fólk ætti að leggja þær sér á hjarta. Vér ættum elcki að umbera þá, samþykkja gerðir þeirra né taka á móti þeim sem góðu, kristnu fólki, sem þrjóta slcýr boð Guðs í þessu alvarlega máli. (Þýtt af S.G.J.) OR „ANDLEGUM LJÖÐUM“: Á ættjörð vorri unun þýr, og eilíf sæla ríkir þar. Ei heyrast andvörp, hryggðin flýr, sem hjartað stundum áður bar. Viðlag: Vér lifum brauði lífsins á, og lífsins vatn þar teiga má, er svalar andans þorsta og þrá, oss þyrstir, hungrar aldrei meir. :,:Hvað, þyrstir aldrei meir?“ Nei, þyrstir aldrei meir! Því hvern, er trúir, Herrann kvað, hann hungrar, þyrstir aldrei meir. Þar hrynja engin harmatár, en heilög gleðin skín á brá. Vér dveljum þar um eilíf ár í unaðsfriði Guði hjá. Vér lifum þar í Drottins dýrð, þá dýrð vér munum líta senn. Hún verður ei með orðum skýrð, sem oss er fært að skilja enn. S. G. J.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.