Norðurljósið - 01.01.1978, Síða 18

Norðurljósið - 01.01.1978, Síða 18
18 NORÐURLJÖSIÐ indastólunum, sem stóðu þar hjá borði. Þjónninn setti af stað rafknúinn blævæng og fór hljóðlega út um einar dyrnar af mörgum með tjaldi fyrir. Bak við þann enda stofunnar, sem notaður var sem borðstofa, voru tvennar dyr með tvöföldum hurðum fyrir, sem opn- uðust út á veggsvalir. Tekið var að rökkva, en Odda gat þó séð móta fyrir trjám og runnum í litlum, um- luktum garði. Betty hafði sagt, að vinir þeirra ættu heima í hæð í húsi. Ávallt endranær hefði Odda haft mikinn á- huga fyrir þessari nýju gerð á íbúð. Eins og á stóð var hjarta hennar áhyggjufullt og hugarró hennar trufluð, vegna hugsana, sem höfðu byrjað eftir hugsunarlausu orðin, sem hún heyrði í skrifstofunni. Fáum stundum fyrr höfðu vonir hennar verið sem rauðar rósir. Hve allt hafði farið öðruvísi, hugsaði hún með nokkurri beiskju. Nærri því með tregðu minntist Odda annarra orða, sem sögð höfðu verið um hana, þegar hún ætl- aði að finna Davíð: „Skyldi Odda vita, hvert hún á að snúa sér, verði hún fyrir vonbrigðum?“ „Ég veit það ekki,“ hugsaði Odda vansæl. Rósemi hennar og sjálfstraust virtust hafa yfirgefið hana. „Hve fegin vildi ég vita það.“ 15. kafli. Ekki vonbrigði. Rétt um leið og hún viðurkenndi þörf sína kom svarið. Stofan virtist fyllast hljómlist, þegar hlýleg rödd drengs söng: „Hann er ekki horfna vonin, Herrann Jesús meira’ er mér en í fögrum dægurdraumum dreymt mig hafði, að hann er. Er ég þekkti” hann betur, betur, brenna hjá mér innra’ ég fann: að sem allra flestir, flestir, fari líka’ að elska hann. Að sem allra flestir, flestir fari líka að elska hann.“ Þetta voru fögur orð, og þau voru sungin af fagurri röddu. En Oddu var það mikilvægast á því andartaki, að sérhvert orð var sannfæring söngvarans. Sá vissi, sem úti var á svölunum, hvað það var að fá vonir sínar uppfylltar í stað þess að sjá þær bregðast. Odda reis á fætur og sneri sér að glugganum. Þá heyrði hún létt fótatak við hlið sér. Ung stúlka kom inn úr einum dyrunum, sem tjöldin voru fyrir. Hún raulaði lágt lagið, sem sungið hafði verið með svo mikilli viðkvæmni. Stúlkan virtist ekki furða sig neitt á því að sjá Oddu. Og í stað þess að kynna sig, spurði Odda í skyndi: „Hver var að syngja?“ „Það var blindur drengur,“ var svarað. „Hann dvelur hiá okkur um tíma. Hann syngur mjög fallega. Viltu sjá hann?“ „Nei‘ sagði Odda og hörfaði undan. Henni urðu skyndilega Ijós tárin á vöngum sínum. „En sértu vinur Betty og Dicks, þá hiýtur þú að geta sagt mér, hvernig ég get lært að syngja þetta líka.“ Brenda Grant vissi þá, að kunningjastúlkan nýja átti ekki við, að hana langaði til að læra nýtt lag. Stúlkurnar tvær settust á þægilegan legubekk, og Brenda lauk upp lítilli biblíu, sem hún tók af borði þar rétt hjá. „Hvers vegna viltu finna Drottin Jesúm?“ spurði hún hljóðlega. „Af því að ég þarfnast hans,“ mælti Odda í bænar- rómi. „Ég hélt ég væri svo gáfuð, að ég gæti stjórnað lífi mínu. En allt hefur gengið á tréfótum. Ég er ný- búin að gera mér Ijóst, að raunverulega ætti ég að vera dauð núna. Væri ég það, mundi ég vera glötuð.“ Hún þagnaði, eins og þetta skelfilega orð hefði orðið enn Ijósara fyrir huga hennar en nokkru sinni fyrr. „Ég hélt, að lífið yrði svo skemmtilegt. Nú er það allt eyði- lagt. Þeir vilja láta mig fljúga heim, en ég þori það eklci. Ég veit ekki, hvað ég að gera.“ Orðagusa Oddu var nokkuð lík vælum í vonsviknu og hræddu bami. En Brendu var einlægni hennar augljós. „Hefur þú nokkru sinni hugsað út í það, að ástæðan fyrir því, að þú getur ekki stjórnað lífi þínu sjálf, er sú, að þú ert syndari! Aldrei getur þú bjargað þér sjálf, þegar syndin er annars vegar.“ „Ég er búin að reka mig á það líka,“ viðurkenndi Odda. „Ég veit, að biblían segir, að allir séu syndarar, því að það var ritningargrein um það á spjaldi í flug- höfn í Lundúnum, og ég hataði hana alltaf.“ „En nú veist þú, að hún er sönn?“ „Já.“ „En hefur þú nokkru sinni íhugað það, að Guð getur ekki látið sem hann sjái ekki syndina, af því að hann er sjálfur heilagur? Hún mundi því ávallt skilja okkur frá honum. En sonur hans, Drottinn vor Jesús Kristur, kom til jarðarinnar og tók á sig refsinguna fyrir syndir okkar og bar þær á líkama sínum á brott, hann, lambið Guðs, sem tekur á brott synd heims- ins.“ „En beri hann á brott syndir alls heimsins, þá er allt í lagi með alla,“ sagði Odda efablandin. „Það gæti verið svo, ef allir vildu það,“ sagði Brenda hljóðlega, „því að Jesús bar í raun og veru syndir allra. En það er eitt, sem Guð getur ekki fyrirgefið." „Hvað er það?“ spurði Odda áhyggjufullum rómi. Guð getur ekki fyrirgefið neinum, sem vill ekki trúa á Drottin Jesúm og veita viðtöku hreinsun dýr- mæta blóðsins hans frá synd.“ „En þannig var ég,“ sagði Odda. „Ertu þannig ennþá?“ spurði Brenda. Andartak hugsaði Odda sig um. „Nei,“ sagði hún að lokum. „Ég vil verða hrein af syndinni, og ég trúi, að Drottinn Jesús geti gjört það fyrir mig, og ég vil þjóna honum.“ Stúlkurnar féllu á kné, og Brenda kenndi þessari ný-afturhorfnu sál, hvemig ætti að biðja til Guðs, sem

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.