Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1978, Qupperneq 20

Norðurljósið - 01.01.1978, Qupperneq 20
20 NORÐURLJÓSIÐ „Ég svaf ekki mjög vel,“ mælti Odda seinlega. „En í raun og veru var það ekki sakir hitans. Ég er lafhrædd, Brenda, af því að þeir vilja, að ég fljúgi heim.“ „Finnst þér þú ættir að gera það?“ spurði Brenda. „Ef ég geri það ekki, missi ég atvinnu mína, og ég þarf að bíða eftir sjóferð, og ég veit, að móðir mín er kvíðandi út af mér, svo að mig langar til að komast heim eins fljótt og unnt er.“ „Og....?“ „Ég er viss um, að ég get það ekki,“ mælti Odda með vælurómi. „Ég mundi alltaf vera að hugsa um þessar hræðilegu mínútur á undan slysinu." „Svo að þetta er vandamálið?" „Þetta er vandamálið,“ samsinnti Odda. Brenda var hugsandi í fáein andartök. Síðan leit hún upp og horfði í augun á Oddu. „Hefur þú gert þetta að bænarefni?“ „Það hef ég ekki gert,“ svaraði Odda. „Jæja, mér finnst nú,“ sagði Brenda með sanngirni, „að þú gætir byrjað að ganga þann veg, sem þú ætlar að fara. Fyrst þú hefur nú tekið á móti Drottni Jesú sem frelsara þínum, þá ert þú ekki lengur þín eigin eign. Héðan af átt þú að vera undir stjórn hans og fram- kvæma áform hans með ævi þína, hvert svo sem það áform kann að vera. Það getur verið, að það sé hans vilji, að þú sért hér í Kalkúttu og farir heim með skipi. Hann getur ætlað þér aðra starfsbraut síðar. Hins vegar ef hann vill, að þú farlr heim nú þegar, þá getur þú alveg örugg treyst honum til að flytja þig þangað ó- hulta og að varðveita þig frá ofsahræðslu á leiðinni.“ Odda hlýddi á þetta með mikilli gaumgæfni og kink- aði lcolli til samþykkis, er Brenda lauk máli sínu. „Já, þetta allt er alveg satt, en hvemig get ég vitað, hvað Guð vill láta m:g gera?“ „Þetta er réttmæt spuming,“ samsinnti Brenda, „og það er ekki alltaf auðvelt að segja einhverri ann- arri, hvernig hún muni fá að vita vilja Guðs. En bið þú um þetta. Vertu fús til að gera það, sem Guð vill, og hann mun ekki láta þig gera glappaskot.“ „Þakka þér fyrir,“ sagði Odda og gekk til herberg- is síns. Brenda var önnum kafin við heimilisstörfin. En um það bil hálfri stundu síðar heyrði hún eitthvað glamra eins og talsímatóli væri lyft upp. Stutt samtal fór fram. Hún heyrði ekkert, hvað gerðist, en hjarta hennar átti frið, því að hún sá gegnum opnar dyrnar á herbergi Oddu, að hún hafði tekið hinn litla farangur sinn saman. Rúmfötin hafði hún líka brotið snyrtilega saman, svo að þau vom tilbúin að vera þvegin. 18. kafli. Skref fyrir skref. Odda hafði ákveðið, að hún yrði að fljúga heim. Alla ævi gladdi það hana, hve ákveðinn skrifstofustjóri flugfélagsins hafði verið, og fyrir ráðið skynsamlega, sem Brenda Grant hafði gefið henni. Meðan flugvélin stóra þaut áfram, fór Odda að slaka meira á. Hún gerði sér ljóst, að næsta flugferð yrði ekki nærri því eins erfið, og smám saman mundi hún gleyma flugslysinu og læra að þykja gaman að fljúga aftur. Hún fann líka innra með sér einhvern nýjan, kitlandi áhuga. Brenda hafði sagt henni, að Guð hefði sitt áform með ævi hennar. Það áform hlaut að vera gott og rétt, fyrst Guð hafði gert það. Hann þekkti allt og skildi allt. Ef hún gæti alltaf fundið, hvert áform Guðs væri og fylgt því skref fyrir skref, þá mundi hún aldrei gera glappaskot. Hún þurfti ekki að hafa nagandi ásakanir, sem sæktu stöðugt á huga hennar. . . . eins og þær höfðu sótt á hana, síðan hún rak Davíð frá sér. Þetta var unnið verlc, sem ekki var unnt að láta ógert aftur. Hún gerði sér þó ljóst, að alvarlega hindrunin, hve ólíkt þau litu á andleg efni, var nú horfin. Guð gæti ætlað henni allt aðra starfsbraut. Hann gæti líka ætlað henni að halda áfram að vera flugfreyja. En einhvern veginn mundi það verða allt öðruvísi, vegna þess það væri áform Guðs. Hún yrði að grípa hvert tækifæri til að tala við aðra um hann. Hún mátti ekki fela þessa nýfundnu sælu og hamingju innra með sér. Skyndilega og án þess að geta gert sér grein fyrir því, kom henni í hug bláeyga kristniboðsstúlkan, sem verið hafði í umsjá hennar í síðustu flugferðinni Hún hafði virst svo veik, en eiga þó svo mikinn frið. Hvar skyldi hún vera nú? Framkvæmdastjórinn í Kalkúttu hafði sagt henni, að daginn áður en Odda kom í skrif- stofuna, hefði hann frétt, að þónokkrir farþegar höfðu dáið við áreksturinn, og einn eða tve'r höfðu dáið seinna. „Ef til vill mæti ég henni á himnum,“ hugsaði Odda. Þá skildi hún skyndilega, hvers vegna hún hafði getað sigrast á flughræðslu sinni. Áður hafði ótti henn- ar við dauðann verið óttinn við ókunna myrkrið hin- um megin eftir dóminn, sem móðir hennar hafði stund- um talað um svo alvarlega. Nú be:ð hennar ekki dómur, engin fyrirdæming, því að hún var falin í Kristi Jesú Drottni sínum. Hönd var lögð á öxl hennar. Hún þrýsti hana fast og vingjarnlega. Rödd, er hún þekkti, mælti: „Hvað, ég held, að þetta sé Odda Mason. En gaman! Ég þekkti þig varla. Hvar hefur þú verið?“ Odda leit upp og í hlæjandi augu manns, sem eftirlit hafði með farþegunum. Hún hafði oft unnið með hon- um. „Jón!“ hrópaði hún, „það var gaman að sjá þig.“ „Hvernig er þetta, Odda, lentir þú ekki í flugslysi fyrir nokkrum vikum? Ég hélt þú hefðir farist.“ Vin- gjarnleg ásjónan var alvarleg nú. „Nei, ég bjargaðist, þannig, að það gekk kraftaverki næst þökk sé Guði, Jón, því að ég var ekki búin undir að devja.“ Ljós kviknaði í augunum, sem horfðu í augu hennar. „En þú ert það nú, skilst mér? Og ég þalcka Guði líka, því að ég bað fyrir þér, Odda. Andlitssvipur þinn er allur annar nú. Ég hefði nærri því getað vitað þetta án þess að þú segðir mér það.“ Aftur þrýsti hann snöggt með hendinni og var farinn. Odda fór að hugsa um, hve dásamlegt er að eiga ókunna vini, sem leggja okkur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.