Norðurljósið - 01.01.1978, Page 25
NORÐURLJÖSIÐ
25
Nú er enginn slíkur milliveggur. Drottinn braut hann
niður með dauða sínum fyrir syndir allra manna. Ef
við höfum tekið við Kristi sem frelsara, erum við orðin
Guðs börn. Án mismunar vegna þjóðemis megum við
í trú ganga fram fyrir Guð. Við skulum ávallt gera
það í Jesú nafni.
10. kafli.
Heilagur Andi.
„Kristur keypti oss.... til þess að. . . . vér öðluð-
umst fyrirheitið um Andann.“ Gal.3.13.,14.
„Enginn getur sagt „Drottinn Jesús“ nema af heilög-
um, Anda.“ (l.ICor.12.3)
„Þannig hefur heldur enginn komist að raun um,
hvað Guðs er, nema Guðs Andi. En vér höfum....
hlotið Andann, sem er frá Guði, til þess að vér skulum
vúa, hvað oss er af Guði gefið.“ l.Kor.2.11.,12.
„Þegar hann, sannleiksandinn, kemur mun hann
leiða yður í allan sannleika.“ Jóh.16.13.
Heilög riíning nefnir Anda Guðs fyrst, þegar hann
>,sveif yfir vötnunum.11 Nýja testamentið talar um hann
fyrst, þegar hann kveikti það líf með Maríu heitkonu
Jósefs, er átti að verða sú persóna, sem mest hefur
kveðið að í allri sögu mannkynsins.
Þegar sá tími kom, er Jesús frá Nasaret skyldi hefja
starf sitt, þá steig heilagur Andi niður yfir hann, er
hann hafði verið skírður.
Þá urðu mikil þáttaskil í ævi Jesú. Kyrrláta ævin í
Nasaret var horfin að eilífu. Næstu árin þrjú og líklega
hálfu betur urðu mikil annríkis ár, rneðan Drottinn vor
Jesús ferðaðist um, kenndi orð Guðs, læknaði hina
sjúku og þjálfaði menn þá, sem taka skyldu við starfi
hans.
Elcki nægði sú þjálfun þó. Upprisinn bauð Drottinn
þeim að vera kyrrum í borginni, „bíða eftir fyrirheiti
Pöðurins, sem þér — sagði hann — hafið heyrt mig
tala um.... Þér skuluð skírðir verða með heilögum
Anda nú innan fárra daga.“ (Post. 1.4.,5.)
Þegar svo heilagur Andi kom, fengu lærisveinar
hans kraftinn, sem þá hafði áður skort. Þá predikaði
Eétur með svo miklum krafti, að meira en þrjú þúsund
manns bættust í samfélagið á þeim eina degi.
Pétur postuli predikaði he’ðingjunum Krist líka,
gerði það með krafti heilags Anda.. Er hann hafði
mælt þessi orð: „Honum bera alh'r spámennirnir vitni,
sérhver, sem á hann trúir, fái fyrir hans nafn synda-
yrhgefning," þá „féll heilagur Andi yfir alla þá, sem
°rðið heyrðu.“ Þeir trúðu og frelsuðust um leið.
Heilagur Andi heldur áfram starfi sínu enn í dag.
ann leiðir þá í allan sannleikann, sem í auðmýkt vilja
ata leiða sig og sleppa þeim kenningum og venjum, er
standast ekki í ljósi orðs Guðs. — Guð gefi að hann
ai ieht alla þá, sem Iesa þetta.
11. kafli.
»Ekki framar þjóna syndinni.“ Róm.6.6.
»Hann bar sjálfur syndir vorar á líkama sínum upp
á tréð, til þess að vér skyldum, dánir frá syndunum,
lifa réttlætinu.“ lPét.2.24.
„Látið því ekki syndina ríkja í dauðlegum líkama
yðar,. . . .heldur frambjóðið sjálfa yður Guði,. . . .því
að synd skal ekki drottna yfir yður.“ Róm.6.12.,13.,14.
Enginn maður þekkir, hve margir eru þeir menn,
sem þjóna öðrum. Sumir eru þó atvinnurekendur eða
stunda sjálfstætt starf.
Syndinni í einhverri mynd þjónar hver óendurfædd-
ur maður, sem kemst til vits og ára. Syndin er sem her-
konungur til foma, er tók fjölda frjálsra karla og
kvenna, en lét síðan fólk þetta þjóna sér sem ánauð-
uga þræla og ambáttir. Annar vilji en þess eigin stjórn-
aði athöfnum þess. Oftsinnis voru einvaldar þessir
harðstjórar mildir.
Venjulegast varaði ánauðin, meðan fólkið lifði. Lík-
aminn hvarf þá til moldarinnar, en sálin til dánar-
heima. „Þrællinn er þar laus við húsbónda sinn,“ segir
í Jobsbók (3.19.). I dánarheimum stunda menn ekki
búskap eða verslun. Bameignir eða iðnaður þekkjast
þar ekki, engin líkamleg þjónusta í nokkurri mynd.
Umskipti algjör hafa átt sér stað.
Þetta er það, sem Drottinn ætlast til, að alger breyt-
ing lífemis eigi sér stað, þegar einhver syndug sál veitir
honum viðtöku og fer að lifa honum. Syndin er gamli
húsbóndinn, atvinnuveitandinn í öllu því, sem er gagn-
stætt vilja Guðs. Við afturhvarfið á að segja upp vist-
inni, þjónustunni við ranglætið og syndina. I stað þess
kemur ný vist. Þar er atvinnuveitandinn Guð. Starfið,
sem hann fyrst og fremst vill, að við leysum af hendi
er réttlát breytni. Hún á að koma í ljós í öllum sam-
skiptum okkar við aðra og vera vel af hendi leyst:
„Hvort sem þú í hendi hefur
hamar, skóflu eða pál,
pentskúf, meitil, penna, nál,
hvaða starf, sem Guð þér gefur,
gerðu það af lífi og sál.“
Höf. Sigurbjörn Sveinsson, ritað hér eftir minni.
Þannig á einnig að vera þjónusta vor við réttlætið,
framkvæmd af lífi og sál, leyst af hendi fyrir Guðs
náð og kraft. Þá liggur að baki þjónusta sú, sem við
veittum ranglætinu og syndinni áður fyrr. Ný þjónusta,
nýtt líferni kemur í staðinn.
12. kafli.
„Þeir heyra ekki heiminum til.“ Jóh.17.16.
„Náð sé með yður og friður. . . .frá Drottni vomm
Jesú Kristi, sem gaf sjálfan sig fyrir syndir vorar til að
frelsa oss frá þessari yfirstandandi vondu öld.“
Gal.1.3.,4.
„Þér eruð dánir með Kristi undan valdi heimsvætt-
anna (frumreglna heimsins.") Kól.2.20. (bókstafleg
þýðing.)
„Það sé fjarri mér að hrósa mér, nema af krossi Drott
ins vors Jesú Krists, fyrir hvern heimurinn er mér kross-
festur og ég heiminum. Gal.6.14.