Norðurljósið - 01.01.1978, Blaðsíða 30

Norðurljósið - 01.01.1978, Blaðsíða 30
30 NORÐURLJÖSIÐ Er Kristur Jesús, Drottinn dýrðar, dvaldi hér á jörð, gegn djöfli, heimi, synd og freistni baráttan var hörð. Hann sigur vann, og sigur hans varð sigur fyrir menn, því að sannleikurinn, vegurinn og lífið er hann enn. Fjórtán ára stúlka, Constance Blyth, bætti nú við einu versi. Það beinir hugsun vorri að kraftaverk- um og líknsemi, sem Drottinn framkvæmdi svo marg- sinnis, er hann var hér á jörðu. I eyðimörku saðning veitti svöngxnn, þreyttum lýð, með smáum brauðum, litlum fiskum Drottinn fyrr á tíð. Vort daglegt brauð og annað allt, vér fáum Guði frá, því að Faðirinn, sem gefur allt, er samur nú sem þá. Þettta vers var ekki þýtt nákvæmlega, var því breytt nokkuð. Kventrúboði, Ada Habershon, bætti þá við tveimur versum, er einnig segja frá því, sem Kristur gerði, en þau benda líka á, að hann færði mönnum fagnaðar- boðin frá Guði. Er Pétur tók að sökkva, hélt hann úti um sig brátt, sinn arm til hjálpar Drottinn rétti, hann á nógan mátt. Hann frelsar þann, sem til hans hrópar: „Herra, bjarga mér!“ því að Herrans máttur nú í dag sem forðum samur er. Er Jesúm fundu syndum hlaðnir, sjúkir, þreyttir menn, þeim synda fyrirgefning veittist, heilsa og hvíld í senn. Ó, kom til Drottins, kom með allt, og komu þína ei drag, því að Kr:stur Jesús er í gær hinn sami og í dag. Enn þá hafði ekkert verið minnst á, að Kristur kæmi aftur til að taka fólk sitt til sín. Ungfrú A.M. Hodgkin bætti úr þessu með versi, sem hún orti. Það hljóðar þannig: Vor Drottinn gaf oss loforð, er hann yfirgaf vorn heim, um endurkomu sína til að ríkja hér með þeim, sem trúað hafa og treyst á hann, þá sækja mun hann senn. og síðan birtast með beim, því að hann er samur enn. Dr. Griffith Thomas bætti þá enn við versi, er sýnir, hvernig Guð hefur opinberað sig oss mönnum í Kristi. Sem mikinn Guð og frelsara vér finnum ávallt Krist, sem fullkomnlega nægir oss, er samur hinst sem fyrst. Vér trúum honum, fygjum honum, glaðir göngum vér, því að Guð, sem heilög ritning boðar, ávallt samur er. Þegar nánar er að gáð, þá sýnir ekkert af öllum þess- um versum, hvað Kristur Jesús gerir fyrir fólk sitt nú á þessum tíma. Úr því bætti maður, sem nefndi sig „Óþekktur kristinn maður.“ Ég veit þó það um hann, að hann hafði fengið lömunarveiki og lamast mikið, en gerði samt það, sem hann gat í þjónustu Krists. Hann bætti við síðasta versinu, sem hljóðar þannig: Og frá þeim degi, er hjarta mitt var frelsara mínum fest, ég finn í honum Hjálpara og mikinn æðsta prest. Hann frelsar mig, hann annast mig. öll dýrð þér, Drott- inn, ber, því hinn dásamlegi kærleikur þ!nn sami um eilífð er. Jobsbók Eftir ritstjórann Hún skyggnist bak við tjaldið, er skilur að sýnilegan og ósýnilegan heim. Ég byrjaði að lesa biblíuna frá upphafi til enda, þegar ég var 14 ára gamall. Flest var mér óljóst, nema það sem var hrein og bein frásögn af atburðum. Eink- um gekk mér illa að skilja spámanna ritin, sömuleið- is ljóðaritin: Jobsbók, Sálmana, Ljóðaljóðin og sömu- leiðis bréfin í nýja testamentinu, svo ekki sé nefnd Opinberunarbókin. Síðan þetta var, hef ég eignast bækur, sem skýra rit biblíunnar. Biblíulestur minn hef ég aukið mikið Þegar eitthvað torskilið mætir auganu, þá er gott að geta gripið bók eða bækur, sem skýra það. Jobsbók er án vafa eitt hið allra mesta skáldverk, sem hefur verið ritað. Þar er leitast við að krjúfa til mergjar það, sem mörgum er og hefur verið vanda- mál hið mesta: Hvers vegna mæta sömu örlög öllum mönnum, góðum og vondum, réttlátum og ranglátum? En„ Guð er meiri en hjarta vort og þekkir alla hluti.“ Allir þræðir tilveru okkar renna um greipar hans. En hann hefur gefið okkur frjálsan vilja, svo að við getum valið, hvort við hlýðum eða óhlýðnumst, beygj- um okkur undir hans stjórn á lífi okkar og högum eða gerum uppreisn gegn því, sem kemur fram við okkur. Einmitt þetta er viðfangsefni Jobsbókar. Persónur þær, sem koma fram í Jobsbók, eru allar afkomendur Abrahams. Sú opinberun, sem hann hafði fengið um tign og mátt Guðs, er sameign Jobs og vina hans, þegar bókin hefst. Þeir, sem vilja hafa sem mest gagn af því, sem hér verður skráð, ættu að sjálfsögðu að lesa Jobsbók sam- hliða þessu. Landið Úz, þar sem Job átti heima, mun hafa legið norðaustur frá Palestínu, Gyðingalandi. Job var án vafa niðji Abrahams og varðveitti þá trú, sem Abra- ham átti á Jahve. Sömuleið;s helgisiði hans: að færa Drottni fórnir. Job átti heima í borg (29. kafli) .Þegar öldungamir og tignarmennimir sáu hann, þá þögnuðu þeir. Hann sat efstur meðal þe;rra „eins og konungur umkringd- ur af hersveit sinni. . . . “ Ef til vill nálgaðist tign hans konungstign.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.