Norðurljósið - 01.01.1978, Blaðsíða 34

Norðurljósið - 01.01.1978, Blaðsíða 34
34 NORÐURLJÖSIÐ slíkar gáfur á þennan hátt?“ „Það hefir þú sjálfur sagt okkur hér í kvöld.“ Hann hafði þá ekki sofið, en heyrt predikun mína. Svo sagði hann: „Ég gæti komið með alls konar af- sakanir, en ég veit, að ég er syndari, mikill syndari, svartur, andstyggilegur syndari. Það er aðeins einn, sem getur frelsað mig. Ég vil koma til hans og gefast honum, eins og þú baðst okkur að gera í ræðu þinni í kvöld.“ Það kom í ljós, að eftir að hann hafði hlaupið frá mér síðastliðinn sunnudag, hafði hann snúið við og komið í humátt á eftir mér og séð, hvert ég fór. Þegar hann var búinn að sjá það, ákvað hann með sjálfum sér að reyna að halda sér frá áfenginu næstu viku, og koma svo og tala við mig næsta sunnudag. Hann vissi ekki, að hann hafði verið umkringdur biðjandi mönn- um alla vikuna. Nú sá hann, að þessi tímabundni sig- ur hans yfir áfenginu var afleiðing þess, að samstarfs- menn mínir höfðu sameinast með mér í bæn fyrir flóttamanninum. Ég kallaði þegar á nokkra af þessum vinum mínum, og við báðum í um það bil klukkutíma fyrir þessum vini okkar. Við báðum, að hann frelsaðist, en við gleymdum ekki heldur að þakka. Vinur okkar var mjög glaður. „En það er eitt, sem ég er undrandi yfir,“ sagði hann. — Ég get ekki rýmt því burt úr huga mínum — þetta hefir gert mig órólegan alla vikuna, og þetta er ein aðalorsökin til þess, að ég er hér nú. Hvernig gast þú vitað, hvað ég var að gera laugardaginn fyrir viku síðan? Þú sagðir frá því, sem hafði komið fyrir við skipasmíðastöð- ina, og síðar um daginn, þegar ég fékk mat hjá líknarsysturinni." Þá varð ég að gera játningu og segja nákvæmlega frá öllu, sem gerst hafði. Hann varð bæði undrandi og glaður. „Þetta er mjög merkilegt. Guð vissi, hvert hann ætti að senda þig, það er augljóst mál. En hvernig þekkir þú fjölskyldu mína?“ „Ég þekki hana eklci, en eftir því, sem ég gat séð og eftir það, sem ég hef fengið að vita, skil ég, að Guð sagði mér, hvað ég ætti að segja við þig. Er það rétt?“ „Já, þetta er nákvæmlega rétt. Ég á guðhrædda móður, föður og systur, sem verða nú að fá að vita allt þetta. Ég verð að fara heim svo fljótt, sem ég get. Það eru meira en tvö ár síðan þau hafa heyrt frá mér, og jafn- vel þó að ég hafi verið slæmur sonur og bróðir, er ég viss um, að þau munu taka á móti mér, þegar þau vita að ég hef snúið mér til Krists, — því að um það hefi ég örugga fullvissu nú.“ Þetta sagði hann með mikilli áherslu. Við komum málunum fljótt í lag. Með næsta pósti voru tvö bréf send til gamla heimilisins. Daginn eftir fékk ég að heyra frá systur hans það, sem gerst hafði. Bréfið frá H. hafði verið látið innan í bréf frá mér, þar sem ég skýrði þeim frá því, sem gerst hafði. Ég skrifaði eftirfarandi: Kæru vínir! Hér með sendi ég bréf, sem mun gleðja ykkur. Þegar þið lesið það, þá skuluð þið þakka hinum dásamlega Guði, sem vissi nákvæmlega, hvern- ig hann ætti að finna, þann, sem þið hélduð að væri glataður. Hann var glataður, en nú er hann kominn aftur. Guð blessi ykkur öll.“ Systir hans var viðstödd, er bréfið var opnað, og þegar þau sáu hina velþekktu rithönd, hrópuðu þau öll upp. „Guð veri lofaður! það er frá H.“ Ég fékk símskeyti, sem sagði, að systir hans mundi koma og sækja hann. Það var gleðileg heimför. Áður en hún hitti hann höfðum við snyrt hann til og breytt útliti hans, eins og hægt var. En hann sagði, að hann mundi segja henni allt um ástand sitt, hvernig það raunverulega var, er hann frelsaðist, — „því að ég vil,“ sagði hann, „að þau skuli skilja, hve dásamlegur Jesús er.“ Vegna hljómlistargáfu sinnar fékk hann fljótlega stöðu í heimabæ sínum sem orgelleikari. Presturinn í kirkjunni, — gamall vinur minn, — sem þekkir alla söguna, hefur sagt mér, að fólk komi aftur í kirkjuna, aðeins til að heyra H. spila algenga sálma, því að hann spilar af svo miklu lífi og fjöri. Þegar ég nú rifja upp þessa sögu um H„ verður mér það svo Ijóst, að gætum við aðeins þaggað niður þær hugsanir, sem svo oft hindra okkur í að framkvæma okkar góðu hvatir, og gera í staðinn einfaldlega það, sem við vitum, að er Guðs vilji, myndu fleiri læri- sveinar vinnast fyrir Jesúm ICrist. Þegar einhver er svo hræddur við það, sem aðrir kynnu að geta sett út á það, sem hann gerir, hindrar þetta okkur í því að gera mörg brostin hjörtu heil aftur. Tak burtu þína ímynduðu erfiðleika, og sjá: ísinn er svo þunnur, að fyrstu brosin bræða hann. Berðu fram hinn gamla sannleika, og múrarnir byrja að hrvnja hver af öðrum. AMAZING GRACE. Eftir John Newton. Hve dýrmæt er Guðs undranáð, sem upp mig hóf úr synd. Ég týndur var, mitt reikult ráð, var ræfill, sál mín blind. I hjartað sendi náðin neyð, úr nauðum hún mig tók. Hve mér varð náðin helg og heið, sem hjartans fögnuð jók. Or þrautum, snörum, hættum hér mig hefur frelsað náð. Og náðin Drottins nægir mér, hún nær á himnaláð. Og kominn heim á Ijóssins láð við lítum Jesúm Krist og lofum Drottins djúpu náð í dýrðar sæluvist. S. G. J. þýddi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.